Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2001, Blaðsíða 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001
I>V
Radovan Karadzic
Milosevic ætlaöi að framselja hann
til Haag til aö friöa Vesturlönd.
Milosevic:
Ætlaði að fram-
selja Karadzic
Slobodan Milosevic, nú ákærður
sem stríðsglæpamaður í Haag, fyrir-
skipaði árið 1996 handtöku og fram-
sal á Radovan Karadzic, fyrrverandi
leiðtoga Bosníu-Serba, til Stríðs-
glæpadómstóls Sameinuðu þjóðanna.
Momcilo Perisic, núverandi að-
stoðarforsætisráðherra Júgóslavíu,
var herráðsforingi Milosevics forseta
þegar fyrirskipunin var kunngerð.
Hann segist hins vegar hafa neitað að
handtaka Karadzic. MOosevic vildi
framselja Karadzic til að friða Vest-
urlönd. Á þessum tíma var viðskipta-
bann á Júgóslavíu og skilyrðið fyrir
því að fá banninu aflétt var að Kara-
dzic yrði framseldur.
Radovan Karadzic er nú efstur á
lista SÞ yfir striðsglæpamenn.
Ofbeldið eykst á
Vesturbakkanum
Átökin á Vesturbakka Jórdanár
magnast enn og er lítið sem minnir
á vopnahlé Georges Tenets CIA-
stjóra. Forvígismaður í Hamas-sam-
tökunum lést í bílsprengju í gær.
Palestínumenn segja það anga af yf-
irlýstri launmorðastefnu ísraels-
manna á leiðtogum palestínskra
baráttusamtaka. Samtökin hyggjast
hefna morðsins.
Einn ísraeli var skotinn til bana
og annar særður í borginni Hebron
á Vesturbakkanum. ísraelskir her-
menn fóru í kjölfarið inn á palest-
ínskt yfirráðasvæði og skutu á tvær
bækistöðvar palestínskra yfirvalda.
Að minnsta kosti 51 Palestínumað-
ur særðist í gær í árásum ísraels-
hers og landnema.
Michael Portillo
Líklegt þykir aö hann muni vera einn
hinna tveggja útvöldu.
Þrír eftir í íhalds-
slagnum
David Davis lagði upp laupana í
leiðtogaslag breska Ihaldsflokksins í
gær. Þar með eru frambjóðendumir
orðnir þrír en Michael Anchram,
fyrrverandi formaður flokksins, var
kosinn burt á fimmtudag.
Fyrirkomulagið í kosningunum
er þannig að þingflokkur íhalds-
flokksins kýs nokkrar umferðir þar
til tveir frambjóðendur eru eftir.
Það verða því Iain Duncan Smith,
Kenneth Clarke og Michael Portillo
sem berjast um að komast í lokaum-
ferðina. Þá fá 300 þúsund meðlimir
flokksins færi á að kjósa. Portillo
þykir sem fyrr sigurstranglegastur.
Næsta kosning verður á þriðjudag.
Kínverjar hrepptu
Ólympíuleikana
Kínverjar fá að halda Ólympíu-
leikana í fyrsta skiptið árið 2008. Ju-
an Antonio Samaranch, formaður
Alþjóða Ólympíunefndarinnar, til-
kynnti klukkan rúmlega 2 í gær að
Peking hefði verið valin úr hópi
fimm borga til að halda leikana.
Borgirnar Osaka í Japan, París í
Frakklandi, Toronto í Kanada og
Istanbúl í Tyrklandi lutu í lægra
haldi fyrir Peking. Kosning Alþjóða
Ólympíunefndarinnar var tvíþætt. I
fyrstu umferð var sú borg sem fæst
atkvæði fékk dregin út úr kosning-
unum. Seinni umferðin var endan-
leg og kom þá í ljós að Peking hafði
sigrað með yfirburðum. Kínverska
höfuðborgin fékk 56 atkvæði, en í
öðru sæti var Toronto með 22 at-
kvæði. París, sem hafði verið talin
næstsigurstranglegust, fékk 18 at-
kvæði. Istanbúl rak lestina með 9.
Ólympíuleikamir eru pólitískt
mikilvægir fyrir Kínverja sem
misstu af því að halda leikana árið
2000 þegar Sidney var valin með
tveggja atkvæða mun. Fréttirnar
Fögnuöur í Peking
Pekingbúar þustu út á götur í gær
og fögnuöu kjöri Alþjóöa Ólympíu-
nefndarinnar.
eru mikil hvatning fyrir kínversk
yfirvöld til að bæta ráð sitt. Kínverj-
ar segja leikana tækifæri fyrir land-
ið til að opna sig fyrir afganginum
af heiminum.
Gríðarleg útgjöld taka nú við hjá
Kínverjum við að undirbúa höfuð-
borgina fyrir leikana. Ijárfesta þarf
í vegakerfi, lestakerfi, íþróttaleik-
vöngum og hreinsun borgarinnar. í
heild ætla Kínverjar að eyða um 350
milljörðum íslenskra króna í um-
bætur og undirbúning fyrir leikana.
Margar umbætumar munu bæta
lífskjör hinna 14 milljóna íbúa í
Peking. Meðal annars verður komið
fyrir gasleiðslu sem á að leiða til
mun hreinna lofts i borginni, þ.e.
kolareykurinn verður að mestu
upprættur. íbúar í Peking æddu út
á götur borgarinnar og fögnuðu
kjöri Ólympíunefndarinnar gríðar-
lega í gær. Ekki fógnuðu þó allir.
Franskur stjórnmálamaður kallaði
kjörið hneyksli og líkti því við
ákvörðunina um að halda leikana í
Berlín 1936.
Funhlti í Palestínu
Palestínumenn léku sér á ströndinni í funhita á Gaza-svæðinu í gær. Þaö getur greinilega haft marga kosti í för meö sér
aö búa í landi sem ekki er fyllilega bílavætt. Átök milli Palestínumanna og ísraela fara stigvaxandi og Ariel Sharon, forsæt-
isráöherra ísraels, fer um víöan völl í áróöursstríöi þjóöanna. Tveggja daga heimsókn hans til Ítalíu lauk í gær.
Bush sagður ætla
í hart gegn Kúbu
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti ætlar að sýna nágrannaríkinu
Kúbu aukna hörku, samkvæmt
nafnlausum upplýsingum úr banda-
riska þinginu.
Eftir 3 daga mun Bush þurfa að
ákveða hvort hann lætur ákvæöi úr
Helms-Burton lögunum taka gildi
sem leyfir bandarískum borgurum
að fara í mál við hvem þann sem
nýtir sér eignir sem kommúnistar á
Kúbu gerðu upptækar í byltingunni
1959. Talið er að ef hann geri ákvæð-
iö virkt muni Evrópuríki bregðast
ókvæða við, enda gætu mörg evr-
ópsk fyrirtæki staðið frammi fyrir
lögsókn í kjölfarið. Ef Bush hins
vegar lætur umrætt ákvæði Helms-
Burton laganna taka gildi mun
hann ávinna sér stuðning
Kúbverskættaðra Bandaríkjamanna
George W. Bush
Er sagöur ætla aö blása lífi í barátt-
una viö kommúnista á Kúbu.
sem flestir eru andvígir kommún-
istastjórn Fidels Castro. Enda eru
flestir kúbverskir Bandaríkjamenn
flóttamenn frá Kúbu. Stuðningur
þeirra við Bandaríkjaforseta yrði
einnig mikilvægur bróður forset-
ans, Jeb Bush, fylkisstjóra í Flórída,
sem ætlar i endurkjör á næsta ári.
Ný stefna Bush gagnvart Kúbu er
talin miða að því að styðja stjórnar-
andstæðinga á eyjunni gegn yfir-
völdum. Hann hefur þegar boðist til
að útvega stjórnarandstæðingum
peninga og tæki.
í öðru lagi verður aukinni hörku
beitt í framkvæmd viðskiptabanns-
ins á Kúbu. Þá ku Bush ætla að
finna leið til aö koma í veg fyrir
truflanir Kúbverja á sjónvarps- og
útvarpssendingum til kommúnista-
ríkisins.
m
Stálu úr dánarbúi Díönu
Fimmtugur
breskur maður er
kærður fyrir að
hafa verslað með
stolna muni úr dán-
arbúi Díönu
prinsessu, sem lést
árið 1997. Munum
að andvirði 150
milljónir króna hefur verið stolið úr
dánarbúi Díönu. Einn ræningjanna
reyndist vera bryti hennar sem hún
kallaði „klettinn sinn“ sökum
meintrar heiðvirðu og tryggðar.
Þorpsbúar fluttir nauðugir
Yflrvöld í Namibiu hafa sagt íbú-
um þorps í norðurhluta landsins að
hafa sig á brott fyrir ágúst næst-
komandi ellegar verði þeir fluttir
nauðugir. Þorpið er nálægt heimili
forseta landsins sem vill fá flugvöll
þar sem þorpið er.
Enn stangað í Pamplona
Sjöunda bolahlaup San Fermin
hátíðarinnar í Pamplona á Spáni fór
fram í gær. 7 manns voru lagðir inn
á spítala þennan daginn, einn stang-
aður í lærið.
Frömdu satanískt morð
Þýskt par hefur viðurkennt að
hafa framið satanískt morð á kunn-
ingja sínum. Þau stungu hann 66
sinnum á heimili sínu i Bochum og
börðu hann með hamri.
Afganar banna Internetið
Talebanastjórnin í Afganistan
hefur bannað notkun Intemetsins í
landinu. Stjórnin vill vernda íbúana
fyrir ógeðfelldu og ósiðlegu efni.
Fær að hitta hetjuna sína
EMira Markovic,
eiginkona Slobodans
Milosevics, hefur
fengið leyfi hol-
lenskra yfirvalda til
að heimsækja eig-
mann sinn í fangels-
ið í Haag. Hún kallar
hann hetjuna sína.
Lausn á kynlífsvanda
Breskir geðlæknar segjast hafa
fundið aðferð til að losa menn við
kynlífsvanda sem 29 prósent kyn-
ferðislega virkra karlmanna eru
haldnir. Þeir segja latexhring geta
forðað frá ofbráðlátu sáðláti.
Pútín verði rólegur
Jean Chretien, for-
sætisráðherra Kanada,
segir að Vladimir Pútín
Rússlandsforseti muni
bíða og sjá hvernig þró-
un eldflaugavarnar-
kerfi Bandaríkjamanna
líður. Chretien átti
fund með Pútín í gær.
Sjöburar í Washington
Sjöburar fæddust í Washington í
Bandaríkjunum seint á fimmtudags-
kvöld. Konunni heilsast vel en börn-
in, 5 drengir og tvær stúlkur, eru á
gjörgæslu.
Hippi óttast framsal
Líklegt þykir að landflótta banda-
ríski hippaleiðtoginn, Ira Einhorn,
verði framseldur til heimalandsins
á næstunni. Hann flúði til Frakk-
lands árið 1977 þegar hann var
ákærður fyrir morðið á kærustu
sinni. Nýlega skar hann sig á háls
og púls til að mótmæla framsalinu.