Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2001, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 14. JÚLl 2001
DV
19
Helgarblað
Einstakur bílaáhugamaður, safnari og varahlutasali á Garðsstöðum í Ögurvík:
meira en 180 bíla
inni í ísafjarðardjúpi
- er með sjö árgerðir af Moskvits - keypti upp varahlutalager hjá B&L
Á Garðsstöðum í Ögurvík í ísa-
fjarðardjúpi býr Þorbjörn Stein-
grímsson stóreignamaður hvað
varðar bíla sé miðað við fjölda.
Fæstir þeirra eru þó á skrá. „Ég
held þeir séu orðnir fleiri en 180.
Inni í skemmu á ég líka talsvert af
bílum,“ segir Þorbjörn sem er orð-
inn þekktur á Vestfjörðum og þó
víðar væri leitað
því fólk leitar
orðið mjög gjarn-
an til hans ef
varahluti vantar
í ýmsar tegundir
bíla.
„Ég byrjaði á
þessu árið 1980
en síðustu tvö ár
hefur þetta stór-
aukist hjá mér.
Ferðafólk sem er
á ferð um ísa-
fjarðardjúpið
kemur líka oft
hingað til að fá
gert við bíla
Þetta er nauðsynlegt," segir
Þorbjörn
Steingrímsson
Á sjö Moskvits-
bíla sem eru í
miklu uppáhaldi
hjá honum.
sina
Þorbjörn.
Þegar DV kom í Ögurvík sagði
Vilborg Ólafsdóttir, móðir Þorbjarn-
ar, að bændum í Djúpinu þætti oft
gott að vita um öll tækin og vara-
hlutina í Ögurvík. „Stundum hafa
menn notið góðs af, þegar þeir eru
að hamast í heyskap, komið hingað
og fengið varahluti," segir Vilborg.
Hún segir að mikil umferð hefði
verið um Djúpið í sumar. Til að
mynda var ferðafólk, ellilífeyrisþeg-
ar frá Eyjafirði, í rútuferð í Djúpinu
þegar DV var á ferð. Eyfirðingarnir
voru að bíða eftir bát við litla
bryggju í Ögurvik. Báturinn var að
koma utan úr Djúpi til að sækja Ey-
firðingana og fara með þá í skoðun-
arferð út í Vigur. Þaðan átti svo að
halda með bátnum til ísafjarðar um
kvöldið.
Sérstakur aðdáandi
Moskvits
„Minn fyrsta bíl eignaðist ég 12
ára,“ segir Þorbjörn og það vottar
fyrir mikilli umhyggju í röddinni.
„Þetta var Moskvits. í dag á ég ár-
gerðir ‘58, ‘59 Og ‘60 Og ‘63, ‘64 og ‘65.
Gamll tímlnn
Kirkjan og Ögurvíkurhúsiö gamla
og reisulega sem nú er í eigu
Landsbanka íslands.
ÐV-MYNDIR GVA
Horft heim að Garösstaö í Ogurvík.
Skammt frá er kirkja. Sumir hafa slegiö þvi fram í gríni aö efekiö er þjóöveginn skammt frá mætti vei ímynda sér aö góö kirkjusókn hafi veriö þann daginn sé
miöaö viö bílaflotann. Þorbjörn hefur stillt bílum sínum upp á skipulagöan og snyrtilegan hátt þannig aö aögengi aö hverjum bíl er þægiiegt.
1958-bíllinn er alveg gangfær. Svo á 1973. Hann er á lsafirði,“ segir Þor-
ég líka uppgerðan Moskvits, árgerð björn sem er starfsmaður hjá Eim-
Vagnar í uppáhaldl hjá Þorblrni
Aö minnsta kosti er þeim skipaö í nokkurs konar öndvegi.
Fremstur er Ford Grand Torino, árgerö 1970, þá kemur Moskvits, árgerö
1958, og síöan Voikswagen, árgeröir 1976. Allir bílarnir eru gangfærir.
skip á ísaflrði.
- Ætlarðu að selja Moskvits-bíl-
ana eða hvað?
„Nei, nei, ég læt þá ekki. En það
eru margir sem falast eftir þeim.“
- Vantar þig ekki varahluti í þá?
„Nei, nei, ég keypti lagerinn upp
hjá Bifreiðum og landbúnaðarvélum
þegar þær hættu með Moskvitsbíl-
ana svo mig vantar ekkert.
Þorbjörn orðar það svo að hann
sé meira og minna með allar gerðir
af bílum, gangfærum sem ógangfær-
um. „Þetta er allt upp í árgerðir
1999 en elsti bíllinn er árgerð 1954.“
-Ótt
Tónleikar Led Zeppelin 22. júní 1970
Áttu minjar frá þessum frægu tónleikum, s.s. upptöku, myndir
af tónleikunum, aðgangsmiða, áritað plaggat, ummæli
tónleikagesta, hljómsveitarmanna eða framkvæmdaraðila?
Vinsamlegast hafið samband við Kristínu í síma 869-0291 eða fjj
skrifið til dagmey@hotmail.com
Áhugaverðar minjar verðlaunaðar.
ishcsur - SörUsiciiS 26 - 220 Hífnarflörður - 555-7000 - www.lshcsur.is
Reiðnámskeið hefjast mánudaginn 23. júlf og eru vikulega
út 17. ágúst. Hvert námskeið stendur yfir í eina viku.
Skipt er í tvo aldurshópa 8 - 12 ára frá
kl. 9 - 12 og 13- 15 ára frá kl. 13- 16.
Miðað er við 12 nemendur í hóp með 2 leiðbeinendum.
Verð er kr. 7.500 pr. bam.
Allar nánari uppiýsingar og innritun í síma
555 7000 alla daga frá kl. 8-22.
Munið að allir
sunnudagar
lijá okkiir erti
dagar
Frá kl. 14-17
Börnin .1 htstbak
fyrii I OOkr
Káko, vöfflur og
grillaðar pylsur
HESTAR