Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2001, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2001, Blaðsíða 22
22 Helgarblað LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001 DV Vandamál forríku frúarinnar Nicole Glover hafði allt til aö bera sem kona getur óskað sér. Hún var glæsileg og lifði lífi sem flestir geta aðeins látið sig dreyma um. Eiginmaðurinn var áhrifamik- ill bankamaður með góð sambönd við jöfra atvinnulífs og stjórnmála. Þau áttu tvær fallegar dætur. Range Rover frúarinnar sást iðu- lega á stæðum fyrir utan dýrustu lúxusverslanir í Sidney. Hún klæddist fötum frá Gucci, bar skartgripi frá Cartier og notaði ilmvatn frá Chanel. Og þótt hún væri yfirleitt ekki sérlega matlystug boröaöi hún reglulega úti og hafði lag á að láta sjá sig á réttum stöðum með réttu fólki. Ef nokkur manneskja virtist vera reglulega vel inn undir hjá þekktustu stjómmálamönnum og peningamönnum Ástralíu var það Nicole Glover. Range Rover-inn átti að sýna að þar fór útivistarmanneskja sem stundaði óbyggðaferðir og það sport sem þeim tilheyra. Hún átti milljón dollara hús viö ströndina sem notalegt var að skjótast í um helgar og þegar henni hentaði að hvíla sig frá samkvæmislifl eigna- og valdastéttarinnar. Önnum kafinn eiginmaöur Eiginmaðurinn Mark Glover var og er varaforseti og þar með fram- kvæmdastjóri Ástralíudeildar Bank of America. Hann vann fjórt- án klukkustundir á dag og hafði litlar hugmynd um eða áhyggjur af í hvað kona hans eyddi dögunum. Hann reiknaði með að eftir að frú- in væri búin að aka dætrunum í rándýran einkaskóla færi hún að versla sér til gamans, borða hádeg- isverð með vinafólki, sækja fundi nokkurra góðgerðarnefnda og láta snyrta hár sitt og neglur, að ríkra manna eiginkvenna hætti. En hin 36 ára gamla samkvæm- isljónynja átti sér leyndarmál sem átti eftir að rústa glæsilegan lifsstil hennar. Jafnframt því að taka þátt i samkvæmislífi og háttum ríka fólksins tók þessi aðlaðandi dökk- hærða kona þátt í lífskjörum dreggja samfélagsins. Hún varði Eiginmadur Nicole Glover var voldugur bankastjóri og á yfir- borðinu skorti hana ekkert af lífsins gœð- um. En hvers vegna leitaði hún á subbuleg- ustu krár borgarinnar og umgengst þar úrköst þjóðfélagsins sem héldu sig í hverfum sem heið- virðar manneskjur vildu helst ekki láta sjá sig í? miklu af tíma sínum í sóðalegustu hverfum Sidney-borgar þar sem fé- lagsskapurinn var hinir ömurleg- ustu allra borgarbúa. Tvöfalt líferni Þegar Nicole var ekki í hlutverki ríku og glæsilegu eiginkonu auð- mannsins hékk hún í búllum þar sem eiturflklar héldu til og var þá ein af þeim. Hún var haldin óstjómlegri heróínfíkn. Þetta tvöfalda lífemi kom i ljós þegar hún ók á og stórslasaði unga stúlku sem var við háskólanám. Stúlkan lifði af en það gerði orðstír Nicoleekki.; í ljós kom að eiginmaðurinn eða nánustu ættingjar frúarinnar höfðu enga hugmynd um að í 15 ár hafði hún veriö eiturlyfjafíkill. Hún hafði byrjaö á tiltölulega væg- um efnum og setti í sig næstum hvað sem var af eitrinu en þegar hér var komið sögu dugði ekkert minna en sterkir heróínskammtar. Þegar Mark Glover sinnti banka- viðskiptum og ferðaðist til Singa- pore, Hong Kong, London eða New York stundaði eiginkonan sín við- skipti án þess að þurfa að ferðast Ekiö upp á gangstétt Range Rover fínu frúarinnar hafnaði á Ijósastaur eftir að hafa ekiö yfir unga stúlku á gangstéttinni. út fyrir borgarmörkin. Hún leitaði þá á bari og billjardstofur þar sem fíkniefnaviðskipti og -neysla fóru fram. En þótt fíknin ræki hana áfram og hún svifist einskis til að komast í vímu var hún ekki viti sínu fjær. Hún var ávallt hrædd um að ein- hver þekkti sig og upp kæmist um tvöfalt lífernið. Hún fór aldrei í glæsifötunum í búllumar. Þegar hún fór í illræmdu hverfín til að kaupa eitrið var hún oftast klædd í snjáðar gallabuxur og fátæklega peysu. Slyslð Hún fór síðan heim meö skammtinn sinn og sprautaði hon- um í sig, ýmist gegnum bera húð- ina eða leitaði uppi staði innvortis til að fela nálarstungumar. Síðan hékk hún í vímu fyrir framan sjón- varpið eða hafði bók í höndum. Ef hætta var á að eiginmaðurinn kæmi snemma heim hélt Nicole sig á börum eða krám þar sem eitur- fíklar héldu sig og fengu aö njóta vímunnar i friði. Hún var á einum slíkum stað þann 19. ágúst 1999. Þegar leið á daginn og tími var til kominn að fara heim hringdi hún í leigubíl tU að aka sér að þeim stað þar sem hún hafði lagt Range Rovernum sínum. Þegar þau komu að jeppan- um varð leigubUstjórinn að vekja frúna. Nicole sté þegar upp í bíl sinn og ók af stað og ætlaöi fyrst að ná í dóttur sina sem var í dagvistar- skóla. Líklegt þykir að hún hafi sofnað undir stýri því hún gleymdi einni beyjunni og ók rakleitt upp á gangstétt og á 25 ára gamla stúlku, Ursulu McWUliams, og endaði á ljósastaur. Stúlkan varð undir bUnum og hlaut mikla höfuðskaða, sprungið nýra og lifur, handleggsbrot auk annarra meiðsla. Hún var talin í lífshættu í heUa viku og var með- vitundarlaus í mánuð. Hún er enn mjög Ula farin og auk líkamlegra örkumla er sálarlífið í rúst. Skilnaður Lögreglumenn sem komu að slysinu tóku eftir því að augu bU- stjórans sem oUi því voru blóð- hlaupin, fljótandi í tárum og með undarlegan glampa, Augnlokin voru hálflokuð og röddin drafandi. Morfín fannst í blóði sem þótti greinUeg vísbending um heróín- notkun. Glæsilega auðmannsfrúin viður- kenndi fúslega að hafa ekiö undir áhrifum fikniefna og hafa orðið völd að alvarlegu slysi. Hún viður- kenndi einnig að hafa veriö eitur- fíkUl í yfir 14 ár. Eiginmaðurinn bar að hann hefði ekki haft hugmynd um fíkn og lifnaðarhætti konu sinnar. Eftir að upp komst vegna bUslyssins skUdu þau hjónin. En bankamað- urinn telur að nú sé Nicole komin yfir fíknina eftir meðferð sem hún fékk. í réttinum sagði hann að hann væri viss um aö hún myndi aldrei snerta fikniefni aftur þar sem hún hefði nú lært sína lexíu og sæi innUega eftir að hafa lifað slíku líferni og valdið öðrum skaða. Samkvæmisstjarna Nicole Giover var ein skærasta stjarnan í samkvæmislífí Sidney-borgar og tíöur gestur í dýrustu versiunum og veitingahúsum í féiagsskap hinna votdugu og ríku. Hámarksdómur En dómarinn, Reg Blanch, var ekkert uppnæmur yfír staðhæfing- um um að hún væri orðin ný og betri manneskja. Hann sagði að undir venjulegum kringumstæðum hefði hún fengið skUorðsbundinn dóm en áður hafði hún tvisvar ver- ið staðin að því að aka bíl undir áhrifum áfengis og síðasta brot hennar væri mjög alvarlegt. Hlaut hún því hámarksdóm, þriggja ára fangelsisvist. Þegar dómurinn var kveðinn upp gróf Nicole andlitið í höndum sér og grét. Dómarinn sá ekki ástæðu til að hlífa henni og árétt- aði að hún heföi stefnt eigin lífi, barna sinna og annarra vegfarenda í bráöa hættu með því að aka bU undir áhrifum svo sterkra lyfja sem raim bar vitni. Hann bað frúna að hugleiða það í fangelsinu hvað hún hefði brotiö af sér og sagði að það hefði ekki veriö spurning um hvort hátterni hennar leiddi tU stórslyss heldur hvenær. En þótt Nicole hugleiði gerðir sinar og gangi í gegnum endurhæfíngu er það lítil huggun fyrir stúlkuna sem hún ók yfír. Hún á nú erfiöa ævi fyrir höndum vegna eiturfíknar finu frúarinnar i Sidney sem enn situr I fangelsi og á ekki afturkvæmt í glæsUegt sam- kvæmislíf eða félagsskap hinna ríku og voldugu. Herra alheimur í dauðadeild Bertil Fox komst á toppinn en hvað fór úrskeiðis á paradísareyjunni í Vestur-Indíum?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.