Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2001, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2001, Qupperneq 23
23 LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001 H>V__________________________________________________________________________________________________Helgarblað Kelirí og slagsmál - rigning og ástarsorgir: Jörfagleði samtímans Hátíðin í Atlavík, árió sem Bítillinn mætti á svæöið, var einhver fjölsóttasta útihátíð sem haldin hefur verið hér á landi. Enda var talsvert að sjá og upplifa. Ekki mættu nema fáein hundruð á Viðeyjarhátíðina árið 1984. Bæði setti afleitt veður strik í reikninginn en einnig voru bitastæðari atriði í boði fyrir austan. Löggan grípur í taumana Á útihátíð endur fyrir löngu. Unglingadrykkja hefur löngum verið einn af fylgi- fiskum útihátíða, en oftar en ekki hefur löggann sett kíkinn fyrir blinda augað hvað þetta varöar. En þó ekki ailtaf. A Akureyri Þessi mynd var tekin á Halló Akureyri árið 1996. Framkvæmd þeirrar há- tiðar var umdeild og margt þótti hafa farið úr böndunum. En menn lærðu af'reynslunni og betur tókst árin á eftir, en svo fór að hátíðin var blásin af eftir Halló-ið 1999. Fyllirí, kelirí og slagsmál. Rigning, ástarsorgir og lerkað fólk bæði á lík- ama og sál. Jörfagleði samtimans. ís- lensk útihátíð í hnotskurn? „Það fylgir kúltúrnum á íslandi að fólk þarf að láta eins og skepnur við og við til þess að fá útrás,“ segir læknir sem var á vakt í Þórsmörk um sl. helgi i viðtali við DV sl. mánudag. Þessi lýsing gæti allt eins átt við um fjölmargar aörar útihátíðir sem haldnar hafa verið á ís- landi um langt árabil. Sumar að vísu næsta fásóttar, en alténd hafa þær ein- kennst af ölvun og því sem á íslandi er kallað að æskan skemmti sér. Töðugjöld í Húsafelli Ofarlega í minnum margra af bítla- kynslóðinni eru útihátíðir sem í nokk- ur skipti voru haldnar í Húsafellsskógi á sjöunda áratugnum. Keflavíkurbítl- arnir í Hljómum voru helstu og stærstu númerin þar og drógu þúsund- ir að. „Það voru eins konar töðugjöld ungs fólk sem var í sveit i Borgarfirði að fara á Húsafelishátíð um verslunar- mannahelgina," segir Stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnússon sem sjálfur hefur staðið að ótalmörgum útihátíð- um vítt og breitt um landið. Hann kveður sér enn í fersku minni þegar Rúnar Júlíusson lék listir sínar á - og jafnvel ofan á - sviðinu með ögrandi hætti, ber að ofan - svo sumir töldu að honum myndi fatast flugið, sem þó aldrei varð. Jakob kveðst hafa staðið hugfanginn við sviðið, 11 vetra gamall, og fylgst með Hljómum - en eftirminnilegast sé sér kannski þegar Erlingur Björnsson, rytmagítarleikari Hljómanna, vatt sér að honum í pásu og bað hann um að kaupa fyrir sig Egils-appelsín og prins póló. „Ekki leyft mínum börnum ..." „Ég hefði ekki leyft mínum börnum að fara á þessa hátíð hefði ég vitað hvernig hún yrði,“ segir Ólafur Þórar- insson - Labbi í Mánum - sem var meðal þeirra tónlistarmanna sem fram komu á Saltvíkurhátíðinni um hvíta- sunnana 1971. Um tíu þúsund manns sóttu hátíðina en þarna komu fram þær hljómsveitir sem vinsælastar voru á þessum tíma, svo sem Trúbrot, Trix, Tilvera, Ævintýri. Náttúra og Roof Tops - auk Mána. „Þetta var gaman, en líka drulla, rigning og skítur," segir Ólafur Þórarinsson þegar hann rifjar þessa hátíð upp, sem aðstandendur sögðu að væri „prófsteinn á það hvort ungt fólk á íslandi gæti skemmt sér á heilbrigðan og sómasamlegan hátt,“ eins og komist var að orði. Hátíð fauk út á Viðeyjarsund Samkeppnin milli útihátiða landsins var væntanlega mest árið 1984. Þá bit- ust samkomuhaldarar í Vestmannaeyj- um, Viðey og Atlavik um hylli væntan- iegs fólks. „Það var stemning fyrir Við- eyjarhátið og vætanlega hefði hún orð- ið fjölsótt hefði veður ekki sett strik í reikninginn," segir Magnús Kjartans- son sem stóð að þeirri hátíð. Búist var við þúsundum á svæðið, en þær vænt- ingar runnu úti í sandinn að morgni fóstudagsins fyrir verslunarmanna- helgi þegar rigndi og fór að hvessa. „Hátíðin beinlíns fauk út á Viðeyjar- sund,“ segir Magnús og segir að um 500 manns hafi mætt á svæðið. Aðspurður um grundvöllinn fyrir því að halda útihátíð innan borgar- markanna segir Magnús að hann sé umdeilanlegur. „Ég gæti trúað því að krökkum þyki heppilegra að fara eitt- hvað út fyrir bæinn, en vera endilega þar sem mamma og pabbi gætu allt i einu dúkkað upp á tjaldskörinni, boðið góðan daginn og verið komin í heim- sókn.“ Þegar Ringo kom í Atlavík En Atlavík sló í gegn þetta árið. Þá hátíð sóttu alls um tíu þúsund manns, en helstu númerin voru Stuðmenn og Bítillinn Ringo Starr. Stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnússon segir að þegar fregnir hafi borist af Viðeyjarhá- tíðinni hafi þeir Stuðmenn sest á rök- Bítill á baki Bítillinn Ringo Starr sótti hátíðina í Atlavík árið 1984 - og brá sér meira að segja á hestbak. stóla og leitað að einhverju því trompi sem gæti slegið Viðeyinga út af laginu. Skömmu áður hafi þau Ragnhildur Gísladóttir og Tómas Tómasson verið við upptökur í einkahljóðveri Bítilsins í SV-Englandi og því hafi fólki þótt grá- upplagt að bjóða Ringo og Barböru konu hans á svæðið. Jakob hafði sam- band við umboðsskrifstofu Ringos, þar sem hann sjálfur var staddur fyrir til- viljun. Erindið var borið upp og Bítla- hjónin svöruðu um leið að þau væru til í tuskið. Þar með var Atlavíkurhátíð borgið og straumurinn lá þangað. Þegar til Islands var komið tóku hin- ir svonefndu Bítlagæslumenn á móti Ringo Starr. Vel var gert við Bítilinn bæði í mat og drykk sem meðal annars var boðið dýrindis koníak en spurt hverrar tegundar og hve gamalt hann vildi. Af stakri hógværð svaraði Ringo því til að slíkt skipti ekki máli, bara það væri blandað i kók og ísmolar væru í glasinu. Og þegar súperkokkur bauð hinum heimsfræga manni dýr- indis humar afþakkaði hann, sagðist ekki borða skriðdýr. Þannig sýndi Ringo Star í aila staði af sér alþýðlegt yfirbragð og þegar austur í Atlavik kom spókaði hann sig um í lopapeysu áður en hann steig á svið með Stuð- mönnum og var þannig eins og hver annars Austfirðingur á útihátíð. Var hann af einum góðglöðum „sveitunga" sinum spurður hvort hann hefði ekki örugglega kennt smíði við Eiðaskóla veturinn áður. Svo var ekki. Á níunda áratugnum hélt Héraðs- sambandið Skarphéðinn nokkrum sinnum útihátíðir í Þjórsárdal um verslunarmannahelgi. Gaukurinn var hátíðin nefnd og var fjölsótt framan af. Allt til ársins 1987 þegar hátíðahöldin brotlentu algjörlega. I stað þess að þrjú þúsund gestir mættu á svæðið eins og reiknað hafði verið með urðu gestirnir aðeins sjö. Skarphéðinsmenn sáu sér þvi þann kost vænstan að viðurkenna staðreyndir og blása hátíðina af, strax á fóstudagskvöldinu. „Við látum hverjum degi nægja sína þjáningu. Þetta er ný lífsreynsla," sagði Guðmundur Kr. Jónsson, for- maður Skarphéðins, eftir hátíðina. Fjárhagur sambandsins var í rúst eftir þetta en var þó bjargað skömmu síðar með eftirminnilegum tónleikum i Ker- inu í Grímsnesinu sem þúsundir sóttu. Almennilegt þjóðhátíðarfólk „Síðasta þjóðhátíð er alltaf best,“ segir Árni Johnsen, alþingismaður, brekkusöngvari og persónugervingur þjóðhátíðar í Eyjum, sem hefúr verið haldin í Herjólfsdal allt frá árinu 1874. Hann segir að þjóðhátíðin í fyrra hafi Á þjóðhátíö Það er eitt af einkennum hópa sem sækja þjóðhátíð í Eyjum að klæða sig í skrautlega búninga, eins og sjá má á þessari mynd. raunar tekist mjög vel og prúðmannleg framkoma gesta hafi verið einkenn- andi. „Um kvöldmatarleytið á sunnudeg- inum hringdu til okkar í Eyjum krakk- ar frá Patreksfirði og spurðu hvort brekkusöngurinn yrði ekki örugglega þá um kvöldið. Því var svarað játandi og þá kváðust krakkarnir myndu koma á svæðið með einkaflugvél gagn- gert til þess að syngja í brekkunni. Það gerðu þau líka - og á meðan beið ílug- vélin uppi á velli, sem flutti þau síðan til baka vestur um nóttina. Þetta kall- ar maður almennilegt þjóðhátíðar- fólk,“ segir Árni. Fimm þúsund smokka hátíö í þrígang, á árunum 1989 til 1991, voru haldnar útihátíðir um verslunar- mannahelgina í Húnaveri. Eða öllu heldur tónleikar. Um hvorum megin hryggjar í lagalegri túlkan samkomu- hald í Húnaveri var var lengi deilt um en veraldlegt yfirvald Húnvetninga, Jón ísberg, þáverandi sýslumaður á Blönduósi, tók þann pól í hæðina að í Húnaveri væru tónleikar - og'ekkert annað. Jakob Frímann Magnússon og hans menn kunna yfirvaldinu fyrrver- andi ævinlega heila þökk fyrir hvemig hann tók á málum og segir Jakob Frí- mann raunar að af öllum þeim embætt- ismönnum sem hann hafi kynnst hafi Jón ísberg tvímælalaust reynst besti vinur hinnar nýgildu tónlistar á ís- landi. í hittiðfyrra afhjúpuðu Stuð- menn við hátíðlega athöfn á Blönduósi bautasteininn ÍSBERG eftir Hrafnkel Sigurðsson myndlistarmann, Jóni ís- berg til ævarandi heiðurs. Tónleikarnir í Húnaveri voru um margt með yfirbragði íslenskrar útihá- tíðar. 8000 manns á 5000 smokka hátíð sagði Tíminn í frásögn sinni. „Á Hróarskelduhátíð í Danmörku reykja menn hass en á islenskri útihátíð er drukkið brennivín," segir Jakob Frí- mann Magnússon sem segir að eftir Húnavershátíð hafi sér þótt tímabært að hætta. Útihátíð á hverjum stað eigi sér í fæstum tilvikum nema fárra ára líftíma. Margar þekktir komu saman á úti- hátiðinni Úxanum sem haldin var á Kirkjubæjarklaustri um verslunar- mannahelgina. Má þar meðal annars nefna Bubba Morthens og Prodigy - svo eitthvað sé nefnt. Um fimm þúsund manns sóttu hátíðina sem kemst á spjöld sögunnar hvorki fyrir tónlist né mannfiölda heldur fyrst og síðast dóp. Allt flóði í fíkniefnum á Uxanum og á milli 20 og 30 fikniefnamál komu upp. Margir sem starfa að meðferðarmálum telja að með Uxanum hafi flóðgáttin opnast. Eftir þessa hátíð hafi fíkniefn- ið flætt inn í landið - og sú þróun hafi ekki snúist við eftir Uxann. Um sann- leiksgildi þessara frásagna skal ósagt látið hér en lögreglan var sátt við sitt. „Þetta varð ekki fikniefnahátíð og við höfum áreiðanlegar heimildir fyrir þvi að það voru fikniefnasalar sem flúðu af svæðinu - þeir gáfust hreinlega upp,“ sagði Guðmundur Baldursson lög- reglumaður í viðtali við DV eftir hátíð- ina. Á Akureyri var sjö verslunarmanna- helgar í röð haldin hátiðin Halló Akur- eyri og varð hún fjölsóttari með hverju árinu sem leið. Byrjaði árið 1994 í 5000 til 6000 gestum, en þeir urðu um 15.000 þúsund 1999. „En þá höfðu gagnrýnis- raddirnar, sem voru reyndar fámenn- ari hópur en þeirra sem voru hátíðinni fylgjandi, sigur og Halló Akureyri var ekki haldin oftar," segir Magnús Már Þorvaldsson sem stýrði hátíðinni öll árin. Var fýrir vikið í fjölmiðlum nefndur Halló Akureyri sjálfur. Það sem gagnrýnendur Halló Akur- eyri settu helst út á var mikil drykkja unglinga í bænum og ýmis ólæti. Há- værust varð þessi gagnrýni 1996 og margt sem þar kom fram kveðst Magn- ús geta tekið undir, sérstaklega hvað varðar ónóg tjaldsvæði. Mun betur hafi hins vegar verið staðið að skipu- lagningu hátíðarinnar árin á eftir og og betra skikk hafi verið á öllum hlut- um. Það hafi því verið sér mikil von- brigði að Halló Akureyri var blásin af eftir hátíðina 1999. Magnús Már segir það vera stað- fasta skoðun sína að hvergi sé heppi- legra og betra að halda útihátíð en einmitt á þéttbýlisstöðum eins og Ak- ureyri, þar sem aðgengi að allri þjón- ustu sé gott, en slíkt sé ávísun á að hlutimir gangi vel upp eins og megi segja um Halló Akureyri í heildina. Bláedrú í bíltúr Frægasta útihátíð allra tíma á Is- landi var svo haldin árið 1994. Sú hátíð einkenndist að vísu ekki af drykkju, slagsmálum eða brotnum hjörtum eins og aðrar þær útihátíðir sem hér að framan er lýst, heldur kannski allt öðru. Prúðbúið og bláedrú fólk í sunnudagsbíltúr á hreint ekki von á því að Þingvallarúnturinn snúist upp í martröð. Þúsundir bíla stopp í einni bendu sem nær frá Þingvöllum í Ár- túnsbrekku. Súrrealiskt klúður er ef til vill sú lýsing sem best hæfir hátíðinni þegar fimmtíu ára afmæli lýðveldisins var fagnað, þjóðvegahátíðinni sem svo hefur verið nefnd. En allar þær tíu há- tíðir sem hér hafa verið gerðar að um- talsefni lýsa þó trufluðum veruleika - eða kannski fyrst og síöast undrum ís- lenskrar þjóðarsálar. -sbs

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.