Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2001, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2001, Qupperneq 28
28 LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001 DV Helgarblað DV-MYNDIR: E.ÓL. Hagsmunir í húfi „Éggat auövitaö ailt eins reiknað með því eftir aö þessi yfirlýsing var farin í loftið aö égyröi látinn Ijúka. ... En hagsmunirnir sem voru í húfi voru þess eölis aö ég heföi ekki veriö aö sinna starfi mínu eölilega heföi ég ekki talað út eins og þarna vargert. Hagsmunanna vegna varö þetta aö gerast og segja hvernig í málinu lá. “ Sturla Geirsson, forstjóri Lyfjaverslunar íslands, er maður vikunnar í viðskiptalífi landsmanna: Út af gráa svæðinu - segir Sturla sem talar um áhættuna, siðferði viðskiptalífsins, sjálfan sig og urriðann fyrir norðan „í raun lít ég svo á að niðurstað- an á hluthafafundi Lyfjaverslunar á þriðjudag og niðurstaða Hæsta- réttar sem fékkst þann sama dag, þar sem lögbannskrafa var sett á kaup fyrirtæksins á Frumafli ehf., hafi verið sigur réttlætisins. Það á ekki að eiga sér stað að stórir hluthafar í almenningshlutafélög- um geti neytt aflsmunar í við- skiptum, fótum troðið minnihlut- ann og hina smærri hluthafa sem telja sig ekki geta haft áhrif á gang mála,“ segir Sturla Geirsson, forstjóri Lyfjaverslunar íslands. Mestu átök í seinni tíð Mestu átök sem upp hafa komið í íslensku almenningshlutafélagi á íslandi á seinni tíð eru að baki. Fyrir nokkrum vikum var gert heyrinkunnugt um kauptilboð Lyfjaverslunar íslands á Frumafli ehf., félagi sem er í eigu Jóhanns Óla Guðmundssonar sem aftur er einn stærsti hluthafinn í Lyija- verslun íslands. Frumafl á Öldung hf. sem hefur gert samning við heilbrigðisráðuneytið um rekstur hjúkrunarheimilis við Sóltún í Reykjavík. Nokkrir hluthafar í Lyfjaversluninni, sem voru í minnihluta við Jóhann Óla, mót- mæltu þessum kaupum, töldu m.a. kaupverðið óeðlilega hátt. Allt þetta varð til að hrinda af stað þeirri átakamiklu atburðarás sem staðið hefur yfir síðustu vikur og mikið hefur verið fjallað um. Það sem vakti hvað mesta at- hygli í málinu var þegar forstjóri Lyfjaverslunar íslands, Sturla Geirsson, og helstu framkvæmda- stjórar félagsins sendu frá sér yfir- lýsingu um sl. helgi þar sem þeir lýstu yfir andstöðu við kaupin á Frumafli, enda þótt vilji þáver- andi meirihluta stjórnar stæði til kaupa á hlut í félaginu. Fengum mikinn meöbyr „Ég gat auðvitað allt eins reikn- að með þvf eftir að þessi yfirlýsing var farin í loftið að ég yrði látinn fjúka. Fengi símtal eða uppsagnar- bréf. Sama gildir um aðra stjórn- endur félagsins sem skrifuðu und- ir bréfið. En hagsmunirnir sem voru í húfi voru þess eðlis að ég hefði ekki verið að sinna starfi mínu eðlilega hefði ég ekki talað út eins og þama var gert. Hags- munanna vegna varð þetta að ger- ast og segja hvemig í málinu lá,“ segir Sturla Geirsson þegar hann settist niður með blaðamanni DV. Hann segir að áður en áðumefnd yflrlýsing var send út hafi þeir stjórnendur Lyfjaverslunar ís- lands sem undir hana rituðu vissulega verið búnir að íhuga málið mjög vel. „Ef ég á að gefa einhver ráð til þeirra manna sem nú vinna að sameiningu Landssímans og ríkis- bankanna þá er það fyrst og fremst að menn verða þegar út í samkeppnina er komið að vera fljótir að aðlaga sig lögmálum markaðarins, vera vak- andi í samkeppninni. “ „En fram á síðasta dag gat þetta farið á hvorn veginn sem var. Vissulega fengum við mikinn meðbyr og stuðning, ekki slst utan úr þjóðfélaginu frá fólki sem er alveg ótengt félaginu. Ég tel raunar að hefði Hæstiréttur kom- ist að annarri niðurstöðu en raun- in varð með lögbannskröfuna hefði dugað fyrir meirihlutann, sem þá var, að kaupa hlut eins af stærri hluthöfum félagsins til að ná yfírráðum og fara með sigur á hluthafafundinum. “ - Hefur þú hugmynd um aö Jó- hann Óli Guðmundsson hafi undir þaö síöasta boöiö Lárusi og Aöal- steini Karlssyni aö kaupa þá út úr Lyfjaverslun íslands? „Þeir verða að tjá sig sjálfir um það en mér finnst ekki ólíklegt að svo hafi verið.“ - Nú kom fram í fréttum á miö- vikudagskvöld að fyrrverandi meirihluti í Lyfjaverslun íslands, sem Grímur Sæmundsen fer nú fyrir, hafi komiö saman til fundar fyrr þann dag til að ráða ráðum sínum ... „Það er ekkert óeðlilegt að menn komi saman eftir svona átök. Hluthafar Lyfjaverslunar ís- lands og Hæstiréttur hafa kveðið upp sinn dóm og þar með er nið- urstaða komin í málið. Það er flnt að þeir fundi.“ - Heldur þú að þeir ætli að selja sinn hlut í félaginu „Það er ekki mitt að meta það en mér finnst það ekkert ótrúlegt. Sumir koma inn í félög með það að leiðarljósi að ná þar völdum og vilja að öðrum kosti ekki vera þátttakendur í starfi viðkomandi félags." Veröa að gæta aö trú verðuglelkanum í aðdraganda þeirrar hallarbylt- ingar sem gerð var innan Lyfja- verslunar íslands á fundinum á þriðjudaginn höfðu sig mest í frammi hluthafarnir Lárus Blön- dal, Aðalsteinn Karlsson og Mar- „Einkavæöing á að vera í bland viö annan ar líka að framfc

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.