Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2001, Blaðsíða 24
28
______________________________________________________________FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2001
Tilvera I>V
Dauði Baldurs og draugar í fornum sögum:
Lífið eftir dauðann
lí f iö
Hljómar spila
norðan heida
Frægasta bítlahljómsveit á
íslandi fyrr og síðar, hinir einu
sönnu Hljómar, spila á
veitingastaðnum við Við Pollinn á
Akureyri í kvöld. Þetta er fyrsta
skemmtun Hljóma norðan heiða
síðan 1968 og mun sveitin leika flest
þekktustu Hljómalögin og auk þess
ýmsar perlur Bítlanna, Stones og
fleiri sveita sem gerðu garðinn
frægan á sjöunda áratugnum. Húsið
verður opnar klukkan 21 og hefst
skemmtunin kl. 23 stundvíslega.
Miðaverð er 1800 krónur.
Klúbbar
■ GOTT GLENS A CLUB 22 UM
HELGINAi I kvöld ætlar Doddi litli
aö taka sér stöðu í búrinu á Club
22 á miönætti og halda uppi villtri
partístemningu um nóttina og fram
undir morgun. Ef þú ert graður
hlökkum viö til að sjá þig!
■ KAFFI REYKJAVÍK í kvöld er
Dans á Rósum með fjörugt dansi-
ball. DJ Elliot byrjar 22 í þásu og
verður eftir ballið.
■ KRISTJÁN X Á HELLU Hinn einn
sanni Bubbi Morthens heldur
miðnæturtónleika á veitinga-
staðnum Kristján X á Hellu í kvöld.
Tónleikarnir hefjast klukkan 23.00.
■ MIÐGARÐUR SKAGAFIRÐI
Stuömenn munu sjá um aö trylla
mannskapinn á Norðurlandi í kvöld
á dúndurballi i Miögaröi í Skagafirði.
■ GAUKIJR Á STÖNG Hreimur og
félagar í hljómsveitinni Land og synir
verða með brjálaö ball á Gauki á
Stöng í kvöld.
Klassik
Í REYkHÖLfSHÁfÍÐ Á FIMM ARA
VIGSLUAFMÆLI REYKHOLTS-
KIRKJU Reykholtshátíö verður
haldin á fimm ára vígsluafmæli
Reykholtskirkju um helgina. Úrvals
tónlistarmenn, innlendir sem erlend-
ir, koma fram á fernum tónleikum.
Hátíöarguösþjónusta verður á
sunnudegi kl.14.00. Herra Siguröur
Siguröarson vígslubiskuþ í Skál-
holti, þrédikar. A hátíöinni verða flutt
vel þekkt og sígild verk meistaraevr-
óþskrar tónlistarsögu. Uþplýsingar
um Reykholt og hátíöina er að finna
á vefsíðunum www.reykholt.is og
www.vortex.is/festival og hjá
Heimskringlu.
Sveitin
■ SPENNANDI HELGI I VkPEY Við
ey hefur upp á margt aö bjóða um
helgina. Reiöhjól eru lánuö án end-
urgjalds og eyjan hefur að geyma
ókeyþis tjaldstæði fyrir þá sem vilja.
Boðiö er uþþ á gönguferö á laugar-
daginn og kaþólska messu á
sunnudag kl. 14 með tilheyrandi
staðarskoöun.Viðeyjarstofa er oþin
alla helgina meö kaffisölu og sýning-
in Klaustur á Islandi er opin frá kl.
13.00-16.15 alla helgina.
Leikhús
■ MEÐ VIFtO I LUKUNUM Leikritiö
Meö vífiö í lúkunum eftir Ray Coon-
ey veröur sýnt í kvöld klukkan 20 á
Stóra sviöi Borgarlelkhússins. Leik-
stjóri er Þór Tulinius og þýöandi
Arni Ibsen.
Sjá nánar: Líflö eftir vinnu á Vísi.is
Vésteinn Ólason, prófessor og for-
stöðumaður Stofnunar Árna Magn-
ússonar, er þessa dagana staddur
austur á Skriðuklaustri. Á morgun
kiukkan átta, verður hann með fyr-
irlestur á vegum Gunnarsstofnunar
sem nefnist Dauði Baldurs og
draugar í fornum sögum.
Dauði Baldurs
„Ég ætla aö tala um ákveðna
þætti í fornum textum," segir Vé-
steinn, „í fyrsta lagi er það frásögn-
in af dauða Baldurs í Snorra Eddu.
Frásögn Snorra er bæði löng og
rækileg, hann segir nákvæmlega frá
því hvernig Baldur deyr, er brennd-
ur og hvernig er reynt að bjarga
honum frá heljum. í fyrirlestrinum
ætla ég að skýra frásögnina sál-
fræðilega og tengi hana nútíman-
um. Eftir því sem ég kemst næst
fjallar sagan um allar þær tilfinn-
ingar sem vakna þegar einhver ná-
inn fellur frá eða skyndilegt dauðs-
fall ber að höndum."
Hugmyndir manna um lífið
eftir dauðann
Vésteinn segist telja að frásögnin
um dauða Baldurs hafi hugsanlega
virkað huggandi fyrir fólk þótt hún
hafi ekki verið skrifuð í þeim til-
gangi.
„Ég tala líka um nokkra katla í ís-
lendingasögunum sem segja frá
draugum og velti fyrir mér hvaða
hugmyndir menn höfðu um þá
dauðu, framhaldslífiö og hvers kon-
ar líf það hefur verið. Ég reyni að
tengja þetta allt saman og við hug-
myndir okkar um sömu mál í nú-
tímanum.11
Þegar Vésteinn er spurður um
niðurstöðu þessara vangaveltna seg-
ir hann að þær séu svo sem ekkert
nýjar. „Menn trúðu því að það
leyndist líf í líkamanum eftir dauð-
ann og þegar menn gengju aftur
sem draugar væri það í skrokknum
sjálfum en ekki sem einhver andi
eða vofa.
Þessi hugmynd er mjög sterk í
fornum sögum, sumum þjóðsögum
og lifir jafnvel enn í dag. Ég tíni til
nokkur dæmi í fyrirlestrinum eins
og þegar Gunnar kveður úr haugi
sínum í Njálssögu og segi frá
nokkrum afturgöngum í Eyrbyggja-
sögu og minnist á Vikivaka eftir
Gunnar Gunnarsson."
Er hálfpartinn
að borga fyrir mig
Að lokum segir Vésteinn að hann
hafi unnið með efni úr Snorra Eddu
áður og að þessi fyrirlestur tengist
ekki stórri rannsókn eða bókarskrif-
um. „Ég fékk að dvelja í fræðimanns-
íbúðinni á Skriðuklaustri í þrjár vik-
ur og er hálfpartinn að borga fyrir
mig með fyrirlestrinum." -Kip
DV-MYND DANÍEL
Höfuöstóövarnar
Bjarki Már Karlsson fyrir framan höf-
uöstöövar íslenskrar upplýsinga-
tækni í Borgarnesi.
Nýtt vefumsjónarkerfi:
Notenda-
vænt
íslenskt
umhverfi
- segir Bjarki Már Karlsson
íslensk upplýsingatækni í Borgar-
nesi hefur sett á markaðinn nýtt al-
íslenskt vefumsjónarkerfi sem feng-
ið hefur nafnið Nepal. Kerfið, sem
er alfarið þróað af starfsfólki ÍUT,
hefur fengið góðar viðtökur. Nepal
er miðlægur hugbúnaður sem gerir
notendum sínum kleift að sjá að
öllu leyti um innihald og uppbygg-
ingu vefsetra sinna í íslensku
vinnuumhverfi, setja fréttir á vef-
inn, bæta við efni eða taka það út,
setja inn myndir og tölur, gefa upp-
lýsingar um starfsemina og starfs-
fólk og margt fleira.
í samtali við DV sagði Bjarki Már
Karlsson hjá íslenskri upplýsinga-
tækni að framleiðsla og þróun
Nepal færi alfarið fram á aðalstöðv-
um fyrirtækisins í Borgarnesi en
þjónustusvæði þess væri þó allt
landið. „Með Netinu verða fjarlægð-
ir að engu og þegar um þjónustu
eins og þessa er að ræða er hægt að
veita hana hratt og örugglega."
Bjarki segir að útflutningur sé þó
ekki á dagskrá í bráð. „Margir af
keppinautum okkar eru að bjóða
upp á innflutt vefumsjónarkerfi sem
taka mismikið tillit til íslenskra að-
stæðna. Við leggjum áherslu á not-
endavænt íslenskt vinnuumhverfi
og á það að vera ávallt í stakk búið
til að koma á móts við óskir við-
skiptavina. í því liggur styrkur ís-
lenskrar framleiðslu."
Vésteinn Ólason prófessor
Frásögnin um dauöa Baldurs hefur hugsanlega virkaö huggandi fyrir fólk pótt hún hafi ekki veriö
skrifuö í peim tilgangi.
-DVÓ
Ný safnplata með
Bítlunum á leiðinni
Trommari Bítlanna sál-
ugu og Islandsvinur með
meiru, Ringo Starr, hefur
stokkið til varnar vini sín-
um og fyrrverandi hljóm-
sveitarfélaga, George
Harrison. Eins og flestir
vita þá birti breska blaöið
Mail on Sunday frétt þess
efnis að George, sem ný-
lega greindist með heila-
æxli, væri búinn að gefa
upp alla von og biöi nú
dauða síns með stóískri
ró. Harrison var fljótur að
kveða niður slíkan
orðróm.
Starr sagði í viðtali í
bandaríska sjónvarps-
þættinum Access Holly-
wood að hann hefði aldrei
trúað fréttunum af
George. ífyrsta lagi sagð-
ist Ringo hafa hitt George
fyrir þrem vikum og þá
hefði honum liðið vel.
Ringo sagði aö allir Bítl-
arnir þrir væru í góðu
sambandi og létu hver
annan vita ef eitthvað
bjátaði á. Þar sem George
hefði ekki hringt var
Ringo þess fullviss að allt
væri í himnalagi.
Ringo upplýsti í sama
sjónvarpsþætti að hann,
George og Paul McCartn-
ey ætluðu sér að hittast
seinna á árinu tO að ræða
hugsanlega útgáfu á öðr-
um safndiski tU að fylgja
eftir þeim sem kom út í
fyrra og náði miklum vin-
sældum. Safndiskurinn
var sá mest seldi í Bret-
landi á seinasta ári og
náði auk þess toppsæti
vinsældarlista í yfir 34
löndum.
Ringo er að hefja tón-
leikaferð um Bandaríkin
með hljómsveit sinni, AU
Starr Band. í sveitinni
eru gamlir rokkhundar,
m.a. Greg Lake úr Emer-
son, Lake og Palmer.