Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2001, Side 12
12
LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2001
Helgarblað
DV
Ný tegund hryðjuverkamanna komin fram á sjónarsviðið:
Mikið mannfall er hið
eina sem skiptir máli
Hryðjuverkamenn eru ekki leng-
ur eins og þeir voru í gamla daga.
Úr grasi virðist vaxin ný tegund
hryðjuverkamanna sem hefur það
markmið að valda sem allra mestu
tjóni og drepa sem flesta í einu.
Sérfræðingar í starfsaðferðum
hryðjuverkamanna eru sammála
um að árásirnar á World Trade
Center í New York og Pentagon,
höfuðstöðvar bandariska land-
varnaráðuneytisins, í Washington á
þriðjudag séu hápunktur þróunar
sem hefur átt sér stað undanfarin
tuttugu ár. Sú þróun hneigist öll í
þá átt að verða sem flestum að bana
í tæknilega flóknum aðgerðum.
Þessar aðgerðir hafa oft verið skipu-
lagðar af mönnum sem lýsa sjaldan
ábyrgð sinni á verknaðinum, né
setja fram einhver skýr markmið.
Hryðjuverkum fækkað
„Hryðjuverkum hefur farið fækk-
andi en á sama tíma hefur særðum
og látnum flölgað,“ segir L. Paul
Bremer III, fyrrum sérfræðingur
stjórnar Ronalds Reagans í hryðju-
verkamálum, i viðtali við dagblaðið
The New York Times.
Bremer átti þátt i að semja reglur
um aðgerðir stjórnvalda gegn
hryðjuverkum. „Tilhneigingin hef-
ur verið sú að hefndaraðgerðum
hefur flölgað þar sem hryðjuverka-
mennirnir reyna að drepa sem
flesta saklausa borgara."
Hryðjuverk sem vopn í pólitískri
baráttu eða hemaðarlegri er gömul
aðferð. Þeim hefur verið beitt af
þjóðríkjum, hópum og einstakling-
um. Hryðjuverkastarfsemi er stríð
sem brýtur allar reglur stríðsins.
Hún er því áhrifarík og hættuleg á
annan hátt en hefðbundnar hernað-
araðgerðir. Mikilvægast er að
hryðjuverk eru pólitískt vopn sem
hefur það markmið að þvinga fram
viðbrögð eða breytta afstöðu, annað
hvort i röðum óvinarins eða eigin
röðum.
Pólitískur tilgangur
Michele Zanini er sérfræðingur
við Rand-stofnunina og einn höf-
unda bóka um baráttuna gegn
hryðjuverkamönnum. Hann segir
að grundvallarmunurinn á hryðju-
verkamönnum nú til dags og hefð-
bundnum hryðjuverkahópum, eins
og palestínskum frelsishreyfingum
á sjöunda, áttunda og níunda áratug
síðustu aldar, sé sá að ákveðinn
þankagangur hafi einkennt aðgerðir
þeirra.
„Hann var sá að þeir beittu of-
imm
beldi í pólitískum tilgangi og þess
vegna var þeim mikilvægt að halda
því innan ákveðinna marka. Þeir
vildu auðvjtað líka eigna sér verk-
in. Tilgangurinn var að telja ein-
hvern á að aö gera eitthvað sem
maöur vildi að hann gerði eða
hætta einhverju sem maður vildi
ekki að hann gerði,“ segir Michele
Zanini í viðtali við vefritið
Salon.com.
Stööugt áhvggjuefni
Hryðjuverkastarfsemi hefur verið
stöðugt áhyggjuefni þjóðaleiðtoga
um allan heim undanfarinn aldar-
flórðung. Það eru hins vegar Banda-
ríkjamenn, bæði heima og heiman,
stríði milli hinna sterku og hinna
veikburða.
. REUTERiMYND
Horfst í augu við hryllinginn
Ung stúlka semLbýr á Manhattan horfir meö hryllingi á verksummerkin eftir árásina á World Trade Center í. New York
á þriðjudagsmorgun. Tveimur farþegaþotum, sem var rænt fyrr um daginn, var flogiö á tvo turna byggíngarinnar. Taliö
er aö allt aö tuttugu þúsund manns hafi farist í þessu óhugnaniegasta hryöjuverki sögunnar.
gr...................—.....*----------------- ------------------'■■■—*.......... ■
sem hafa verið skctmörk aðgerð-
anna sem hafa verið hvað stærstar í
sniðum og þar sem tjónið hefur orð-
ið mest. Mannskæðustu hrýðjuverk-
unum hefur verið beint gégn
óbreyttum bandarískum borgurum,
þar á meðal sprengjutilræðið í þotu
Pan Am flugfélagsins yfír Lockerbié
í Skotlandi árið 1988, sprengjutil-
ræðinu í Oklahomaborg árið 1995 og
í tilræðunum .gegn sendiráðum
Bandaríkjanna í Kenía og Tansaníu
áriö 1998.
En það eru þó ekki einungis
Bandarikjamenn sem hafa þátt þola
hryllileg hryðjuverk. Bandaríska
utanríkisráðuneytið telur að Ind-
verjar hafi verið fórnarlömb flestra
hryðjuverka á árinu 1999. Þá voru
Indverjar einnig fómarlömb manii-
skæðasta hryðjuverksins þar til
flugvélarnar tvær flugu á turna
World Trade Center á þriðjudags-
morgun, eða þegar flugvél ind-
verska flugfélagsins sprakk í tætlur
skammt frá írlandi 1985. Aðskilnað-
arhópur sikka lá undir grun um að
hafa framið ódæöisverkið sem varð
329 mönnum að bana.
Sérfræðingar í hryðjuverkum
hafa átt von á sífellt fleiri stórfelld-
um hryðjuverkum en allar slíkar
hugleiðingar tengjast notkun gjör-
eyðingarvopna, þar á meðal sýkla-
vopna og kjamorkuvopna, sem
menn óttast að vel skipulagðir hóp-
ar og ríkir geti komist yfir áður en
langt um líður.
Sýklar og kjarnorka
„Flestir þeirra sem berjast gegn
hryðjuverkainönnum flölluðu um
líkurnar á dómsdagsátburðárás þar
sem beitt yrði sýklavopnum eða
kjarnorkuvopnum," segir' Julietté
Kayyem, sérfræðíngur í hryðju-
verkum, við Kennedy-stjórnsýslu-
skólann við Harvard háskóla.
„Við óttuðumst að „ejtthvað
hræðilegt kynni aö gerast en ekki
að það yrði gert með hefðbundnum
aðferðum flugrána sem minna á átt-
unda áratug tuttugustu aidarinnar,“
segir hún.
Michele Zanini segir að gamal-
dags hryðjuverkemenn hafi beitt of-
beldi meira sem eins konar tákni,
þeir hafí meö því viljað sýna hversu
mikil alvara bjó að baki og að þeir
hafi verið tilbúnir til að valda ööru
fólki þjáningum. Nýju hryðjuverka-
mennirnir telji sig hins vegar eiga i
ábýrgð á tilræðinu á hendur sér. Lí-
biskur maður hefur nú verið fund-
inn sekur um að hafa komið
sprengjunni fyrir.
Heimamaður, Timothy McVeigh,
stóð fyrir tilræðinu i Oklahomaborg
árið 1995, mannskæðasta tilræöinu
á bandarískri grund þar til á þriðju-
dag. McVeigh var tekinn áf lifi í
sumar.
Ofbeldi sem aðgerð
En maðurinn.sem talinn er eiga
sök á flestum mannskæðum hryðju-
verkum gegn bandarískum borgur-
um er milljarðamæringurinn
Osama bin Laden, sem heldur til í
Afganistan, undir verndarvæng tali-
bana sem þar ráða ríkjum. Hann er.
efstur á lista grunaðra fyrir hryðju-
verkin á þriðjudag og víst þykir aö
hann hafi staðið fyrir hryðjuverk-
um á borð við sprengjutilræðin við
sendiráö. Bandaríkjanna í Kénía og
Tansaníu 1998 og sprengjutilræðið
við bandaríska herskipið Cole í
Jemen í fyrra.
Michele Zanini segir að tilræðin
á þriðjudag séu i anda þess sem bin
Laden hefur áður gert.
„Þetta er ofbeldi sem notað er
sem aðferð við stríðsrekstur. Því
fleiri sem látast, þeim mun betra er
það,“ segjr Zanini.
Byggt á New York Times, Aften-
posten og Salon.com.
Veikleiki hins sterka
„Hinir veiku gera uppreisn og
þeir hafa fullan skilning á því að
það er engin leið að sigrast á hinum
sterka með því áð ráðast framan að
honum. Þeir notfæra sér því veik-
leika hins sterka. Þeir gefa það með
hryðjuverkum. Þeir viljá ekki berj-
ast á venjulegum vígvelli af því að
þeir vita aö þeir yrðu teknir í bak-
aríið. Þeir grípa því til aðferða
hryðjuverkamanna og skæruliða.
Osama bin Laden Íítur svo á að
hann eigi í langvinnu striði við
Bandarikin með tilheyrandi orrust-
um og hefferðum. Hernaöarlegí
markmið.áijgj.að valda eins miklum
skaða ogSfttur er.“ segir Michele
Zanini, -smræðingur við ' Rand-
stofnunina.
Sprengjútilræöið í flugvél Pan
Am yfir Lockerbié árið 1988, þar
sem 270 manns Iétust, virðist hafa
vérið vendipunktur í aðgerðum
hryðjuverkamanna. Það var fyrsta
aðgerðin þar sem markmiðið var að
drepa sem flesta og enginn lýsti
REUTER-MYND
Höfuðpaurinn?
Hryðjuverkamaöurinn Osama bin
Laden er grunaður um aö bera
ábýrgö á tilræöunum á þriöjudag.