Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2001, Síða 18
18
LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2001
Helgarblað
DV
Sumarmyndir DV:
Litlir sjóarar og sumarstúlkur
Var Mozart norn?
Jónas Sen
skrifar
Um þessar mundir standa yfir æf-
ingar á Töfraflautunni eftir Mozart og
verður hún frumsýnd um næstu
helgi. Það er ekki í fyrsta sinn sem
hún er sýnd hérlendis, enda ein vin-
sælasta ópera sem samin hefur verið.
Tónlistin er undurfögur og auðskilj-
anleg, og sagan hugljúft ævintýri.
Mikið er um samtöl á milli tónlistar-
atriða og því krefst verkið töluverðra
leikhæfileika sem okkar frábæru
söngvarar hafa vonandi til að bera í
ríkum mæli.
Allar óperur Mozarts eru stórkost-
legar, enda var tónskáldið snillingur.
Hann átti líka að hafa verið óskap-
lega góður þegar hann var lítiÚ,
englabam, eða svo sagði tónmennta-
kennarinn minn í bamaskóla, sem
var elskuleg gömul kona. Hún sagði
þetta til að við skólafélagamir yrðum
prúðir og stilltir en það virkaði ekki.
í tónmennt var fjallað um klassíska
tónlist, sem á þessum tíma þótti ægi-
lega hallærisleg, og þegar gamla kon-
an spilaði einu sinni fyrir okkur á pí-
anóið Fúr Elise eftir Beethoven fékk
hún skutlu í hausinn.
Goðsögnin um hinn prúða og góða
Mozart hefur verið lífseig. Það kom
berlega í ljós þegar kvikmyndin Ama-
deus var sýnd um miðjan níunda ára-
tuginn. Mozart, sem leikinn var af
Tom Hulce, hló skrækum hlátri út
alla myndina og var sóðalegur klám-
kjaftur. Hann var fullkomin and-
stæða óvinar síns, hins illa Salieris,
sem var fágað prúðmenni. Þetta fór
óskaplega fyrir brjóstið á mörgum
kollegum mínum og það var ekki tal-
að um annað i samsætum og á kenn-
arastofum. Ef maður vogaði sér að
vera á öndverðum meiði lá við aö
maður væri rekinn út. Það er því
varla að ég þori að segja það núna að
mér þótti Amadeus frábær.
í Amadeus kom fram sú kenning
að Salieri, sem var keppinautur Moz-
arts, hafi komið honum fyrir kattar-
nef. Aðrar skýringar á ótímabærum
dauða tónskáldsins eru til, þar á með-
al sú að frímúraramir hafi drepið
hann. Mozart, sem var sjálfur frímúr-
ari, átti að hafa kjaftað frá leyndar-
málum reglunnar í Töfraflautunni en
þar er eitt og annað sem augljóslega
er byggt á frímúrarafræðum. Fljót-
lega eftir að Töfraflautan var frum-
sýnd dó tónskáldið og þykir það mjög
grunsamlegt.
Margir halda að Frímúrarareglan
sé einhvers konar glæpasamtök; sum-
ir imynda sér meira að segja að þar
sé reglulega stundað kynsvall. En því
fer víðs fjarri; Frímúrarareglan hefur
mannrækt að markmiði og margir
mikilsmetnir menn eru þar á meðal.
Á íslandi er þó aðeins kristnum karl-
mönnum boðin innganga og hlýtur
það að teljast ferlega gamaldags að
regla með svo háleit markmið skuli
mismuna fólki á grundvelli kynferðis
og trúarbragða. Kannski er það boð-
skapur reglunnar að aðeins væri
hægt að rækta sjálfan sig ef maður er
laus við tuðið í helvítis kerlingunum.
Sem betur fer er önnur Frímúrara-
regla á íslandi með víðari sjóndeild-
arhring og nefnist hún Sam-frímúr-
Sumarmyndasamkeppni DV stendur sem hœst.
Munið að hœgt er að velja bestu mynd mánaðarins á
Visi.is Takið þátt í skemmtilegum leik.
Allir saman nú.
Amminammlnamm
Þessi gaf ekkert eftir í baráttunni viö beiniö. Myndina
tók Arnar B. Vignisson.
Sofandi í bílnum
Þaö er ekki ónýtt aö geta fengiö sér lúr í bílnum. Þessa mynd tók Kristín
Jóna Guöjónsdóttir af Ástrósu Mirru Þráinsdóttur.
arareglan. Þar eru bæði karlar og
konur af hvaöa trú sem er.
Hulunni hefur að einhverju leyti
verið svipt af Frímúrarareglunni sið-
ustu árin með tilkomu ýmissa bóka,
sérstaklega The Hiram Key eftir
Christopher Knight og Robert Lomas,
en þeir eru báðir frímúrarar. Margir
reglubræður þeirra eru ekki sáttir
viö bókina því í henni er ljóstrað upp
um ýmislegt sem gerist á flmdum og
á að vera leyndarmál. Höfundar upp-
lýsa að Frímúrarareglan eigi rætur
að rekja til fomra launhelga Egypta-
lands (sem er ástæðan fyrir því að
Töfraflautan er látin gerast þar) og
það er því engin tilviljun að flestir
helstu dulspekingar tuttugustu aldar-
innar hafa verið frímúrarar. Aleister
Crowley var hátt settur frímúrari og
upphafsmaður nornahreyfingar nú-
tímans, Gerald Gardner var það
einnig. Þess má geta að Gardner var
mjög hrifinn af því að ganga um
berrassaður og hann hafði óskaplega
gaman af flengingum. Margar nomir
em því naktar í trúarathöfnum sin-
um og em flengdar þegar þær em
vígðar inn. í dag segjast ótal konur
viðs vegar um heim (og menn líka)
vera nomir og stunda nokkurs konar
náttúrutrú sem oft er ærið nýaldar-
leg. Ef marka má margar íslenskar
heimasíður er töluvert af unglingum
hér á landi á kafi i svoleiðis hlutum.
Ástæðan fyrir því er einföld. Þáver-
andi biskup íslands, Séra Ólafur
Skúlason, sagði eitt sinn í sjónvarps-
viðtali að kirkjan ætti undir högg að
sækja vegna þess að það væri engin
„mystík" í henni lengur. Launhelgar
em hins vegar heillandi og því sækir
fólk í Frímúrararegluna, nomaskap
og annað þviumlíkt.
í vissum skilningi er „mystík“ í
tónlistinni líka. Að minnsta kosti er
nóg af henni í Töfraflautunni, þar
sem egypsku goðin Isis og Ósiris eru
tilbeðin og hofprestar og ævintýra-
persónur ganga um ljóslifandi. Ævin-
týrin segja manni oft meira en virðist
við fyrstu sýn og sumir telja sig
skynja alls kyns boðskap í Töfraflaut-
unni. Alltént er tónlist Mozarts
himnesk og það veröur enginn svik-
inn af henni. Nú er bara að vona að
sem flestir hugljómist á óperusýning-
unum á næstunni og enginn söngvari
fái skutlu í hausinn fyrir að geta ekki
leikið. Jónas Sen
I blóma lífsins
Sumarmynd ágústmánaöar var
þessi mynd eftir Arnar Má Hall
Guömundsson.
Sumarstúlkur
Þessa mynd tók
Randí Níelsdóttir af sannkölluöum
sumarstúlkum.
Litli sjóarinn
Hafið bláa hugann dregur og ekki
síður hugi ungra en gamalla.
Myndina tók Valur Stefánsson.