Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2001, Page 20
20
LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2001
Helgarblað
I>V
Áföll
Eyjamanna
- Tyrkjarán, eldgos, húsbrunar, kvótaskerðing, áföll Árna
Johnsens, væntanlegt brotthvarf Keikós
Það er stundum sagt að mótbyr og
meðbyr gangi yfir í hrinum og trúlega
er sagan í Biblíunni um hin sjö mögru
og sjö góðu ár hin þekktasta af þeim.
Allt er þegar þrennt er segir íslensk al-
þýðutrú og vísar til sama fyrirbæris.
Vestmannaeyingar hafa sem hluti
islensku þjóðarinnar ekki fariö var-
hluta af mótlæti gegnum aldimar og
sumt af þekktustu áfollum fyrri alda
kom hart niður á Eyjamönnum og
nægir að nefna Tyrkjaránið og móðu-
harðindin sem dæmi.
Á seinni tímum hafa Vestmannaey-
ingar fengið sinn skerf af mótlæti þeg-
ar þjóðinni hefur annars gengið vel og
er Vestmannaeyjagosið 1973 sennilega
frægasta dæmið um það. Þá tóku
reyndar aðrir landsmenn mjög virkan
þátt í hjálparstarfi svo Eyjamenn stóðu
ekki einir.
Á síðasta ári má halda því fram að
röð áfalla hafa dunið yfir Eyjamenn.
Þessi áfóll hafa verið með ýmsu móti -
sumum má líkja við slys eða óhöpp en
flest þeirra verða þó að flokkast undir
harðindi af mannavöldum. Öll áföllin
hafa þó átt það sameiginlegt að hafa
haft djúpstæð áhrif á andann í Vest-
mannaeyjum og hvert um sig hafa þau
haft áhrif, sum minni önnur meiri.
ísfélagið brennur
Það varð Vestmannaeyingum mikið
áfall þegar Sigurður Einarsson, for-
stjóri ísfélags Vestmannaeyja, lést
langt fyrir aldur fram haustið 2000.
Sigurður var ekki aðeins forystumað-
ur í atvinnulífi bæjarins heldur leið-
togi í félagsmálum með margvíslegum
hætti og naut almennrar virðingar í
bæjarfélaginu og mikið mark tekið á
ráðum hans. Óhætt er að segja að frá-
fall hans hafi verið öllum Vestmanna-
eyingum harmdauði.
Tæpum tveimur mánuðum eftir frá-
fall Sigurðar, í byrjun desember 2000
brann Isfélag Vestmannaeyja til kaldra
kola í eimun stærsta eldsvoða sem sést
hefur þar í bæ. 150 manns stóöu uppi
atvinnulausir skömmu fyrir jól og nær
100 ára saga stærsta fyrirtækis bæjar-
ins var rústir einar. Þetta var mikið
reiðarslag fyrir bæjarfélagið, ekki síst
vegna þess að fljótlega var staðfest að
bruninn væri verk brennuvargs sem
kveikt hefði í húsinu. Svo tekið sé
nærtækt dæmi má segja að ísfélagið
hafi verið World Trade Center Eyja-
manna og íkveikjan sannkallað
hryðjuverk. Rannsókn málsins stóð
lengi og fjöldi manns var yfirheyrður
ísfélagið brennur
Tæpum tveimur mánuöum eftir frá-
fall Sigurðar Einarssonar brann ís-
félag Vestmannaeyja til kaldra
kola af völdum brennuvargs.
Þaö hryöjuverk og víötækt atvinnu-
leysi í kjölfariö og langvarandi
óvissa um uppbyggingu
var Vestmannaeyingum mikiö áfall.
Snorri er farinn
Nærri 500 manns hafa flutt frá Eyjum síðustu árin og margir litríkir bæjarbú-
ar í þeirra hópi. Snorri prédikari í Betel er farinn norður til Akureyrar.
án þess að tækist að upplýsa málið og
ódæðismaðurinn er enn ófundinn.
Skömmu síðar varð hörmulegt
banaslys í Eyjum þegar tveir fullorðn-
ir menn, fjölskyldufeður, þekktir borg-
arar í Eyjum drukknuðu í höfninni
þegar bíll þeirra rann í sjóinn í hálku.
Mikið var rætt um hvort byggja ætti
upp bolfiskvinnslu í ísfélaginu á ný og
lengi vel fékkst engin niðurstaöa i mál-
ið þótt nú séu uppi áætlanir um slíka
endurreisn nálægt ári eftir brunann.
Snorri er farínn líka
Ekki er að efa að þessi áfóll hafa orð-
ið til þess að auka brottflutning fólks
frá Vestmannaeyjum en íbúum þar
hefur fækkað um rúmlega 500 manns
frá 1995 sem lætur nærri að vera 1%
fækkun á hverju ári. í þessu umróti
hafa margir þekktir Vestmannaeying-
ar flutt í burtu og samfélagið misst
svolítið af þeim lit sem það áður hafði.
Þannig komst hinn litriki prédikari
Snorri í Betel í fréttirnar þegar hann
tók sig upp og flutti norður til Akur-
eyrar þar sem hann les nú syndugum
pistilinn eins og honum einum er lag-
ið. Þar þagnaði ein rödd Eyjamanna
sem hafði einstakt lag á að skera sig úr
fjöldanum.
HeijóKur og flugið
Á undanfömu ári hafa samgöngu-
mál Vestmannaeyinga tekið nokkrum
breytingum og verða þær að teljast
áfaÚ. Hið fyrra var þegar rekstur ferj-
unnar Herjólfs var boðinn út og Sam-
skip reyndust eiga lægsta tilboðið. Höf-
uðbækistöðvar Herjólfs hafa jafnan
verið í Vestmannaeyjum og nokkur
störf skapast í kringum þær. Mörgum
Vestmannaeyingum fannst bærinn
setja ofan við að missa yfirráðin yfir
Herjólfi þótt hann haldi að sjálfsögðu
áfram að ganga.
Það er líka eins gott því frá og með
1. október næstkomandi hættir Flugfé-
lag íslands áætlunarflugi til Vest-
mannaeyja. Þessi niðurskurður er
meðal hagræðingaraðgerða í kjölfar
stórkostlegs tapreksturs Flugfélagsins
Kelko er á förum
Keikó háhyrningur og kvikmynda-
stjarna kom Vestmannaeyjum á
heimskortiö. Nú mun flikkiö vera á
förum annaöhvort til Húsavíkur
eöa eitthvaö annaö. Þetta er
ákveöiö áfall fyrir Eyjamenn.
Flugfélagið hættir
Þaö bætist viö röö áfalla sem duniö hafa á Eyjamönnum þegar Flugfélag ís-
lands hættir áætlunarflugi þangaö í næsta mánuöi.
ur sjávarpláss, selt frá nokkuð af kvóta
en lögin um kvótasetningu á smábáta,
sem tóku gildi 1. september síðastlið-
inn, koma sérlega illa niður á Eyjum
að mati heimamanna.
í fyrsta lagi hverfur mikið af ýsu-
kvóta frá Eyjum við að ýsuveiðar smá-
báta voru settar undir kvóta. Kvóta-
setning á skötusel, keilu og löngu kom
einnig mjög illa við Eyjamenn en veið-
ar á skötusel hafa verið að byggjast
upp þar og á Suðurlandi undanfarin ár
með vaxandi sókn í utankvótategund-
ir. Góð löngumið eru skammt frá Vest-
mannaeyjum og því hafa heimamenn
um að hýsa hann og gimilegt tilboð
um langa dvöl hefur einnig borist frá
Reykjanesbæ. Þótt Vestmannaeyingar
yrðu fyrir nettum vonbrigðum þegar í
Ijós kom að engir ferðamenn máttu fá
að sjá kvikindið og fáir heimamenn
hafi séð hann i raun og veru þá kom
hann Eyjunum á heimskortið í
ákveðnum skilningi og útlendir fagur-
kerar á sviði hvalaheimkynna völdu
Vestmannaeyjar úr hópi íslenskra
sjávarplássa til að hýsa þann svart-
hvíta. Nú á líka að taka hann í burtu.
-PÁÁ
notið góðs af og telja þvi umrædda
lagasetningu um kvóta á smábáta eitt
mesta reiðarslag sem dunið hefur yfir
Vestmannaeyjar í mörg ár.
Auk þess berst útgerð Breka VE í
bökkum um þessar mundir og ljóst að
bæði munu einhver störf tapast úr
bæjarfélaginu og sennilega verður
kvóti Breka leigður til annarra út-
gerða fyrst um sinn þótt hann hverfi
ekki úr bæjarfélaginu.
Árni eitt versta áfalliö
Það sem hefur verið kallað einu
nafni: Mál Áma Johnsens fyrrverandi
þingmanns hefur valdið gríðarlegu
uppnámi í Vestmannaeyjum síðustu
mánuði og er óhætt að segja að heima-
mönnum hafi ekki brugðið meira í
annan tíma. Viðmælandi DV í Eyjum
orðaði það svo að þótt þeir reyndu að
bera höfuðið hátt og sýna „kallinum"
virðingu eins og hann orðaði það, væri
ekki vafi á að Vestmannaeyingar
fyndu til skammartilfinningar og
djúpra vonbrigða vegna þessa máls
sem engan veginn er séð fýrir endann
á. Varla þarf að rifia upp að máiin snú-
ast um stórfelld afglöp Áma Johnsens
i opinbem starfi, þjófnað og misbeit-
ingu opinbers fiár. Lögreglurannsókn
stendur yfir en sýnt þykir að Ámi
verði ákærður og hljóti dóm fyrir af-
brot sín. Ámi hefur verið dugmikill
fyrirgreiðsluþingmaður fyrir Vest-
mannaeyinga árum saman, nokkurs
konar tákn bæjarfélagsins og naut
mikils persónufylgis á heimavelli.
Og Keikó líka
Eins og þetta allt sé ekki nóg þá ber-
ast nú fréttir af því að háhymingurinn
Keikó sé á fömm frá Vestmannaeyj-
um. Rætt hefur verið við Húsvíkinga
Árni Johnsen, fyrrum alþingismaður
Árni hefur árum saman veriö nokkurs konar erkiVestmannaeyingur og
táknmynd eyjanna. Afsögn hans og afglöp hafa rist djúpt í þjóöarvitund
eyjarskeggja og eru hluti af hrinu áfalla sem duniö
hafa yfir samfélagiö þar.
en Vestmannaeyingar tóku þessari
breytingu afar illa og mótmæltu há-
stöfum þótt þau mótmæli breyttu engu
um áform félagsins.
Heimamaður í Vestmannaeyjum
sem hefur stutt Sjálfstæðisflokkinn til
margra ára sagði í samtali við DV að
gremja syði í Eyjamönnum vegna sam-
göngumála og hugsuðu þeir ráðherra
samgöngumála Sturlu Böðvarssyni
þegjandi þörfina, og ekki síður Áma
Mathiesen sjávarútvegsráðherra.
Búsifjar kvótakerfisins
Áföll Eyjamanna sem tengjast sjáv-
arútvegi eru eiginlega sérstakur kapít-
uli. Eyjamenn hafa, eins og mörg önn-
Herjólfur siglir
Helsta samgönguæö eyjarskegga er ekki lengur undir stjórn heimamanna heldur var reksturinn afhentur
Samskipum eftir útboð. Þetta fannst þeim vera áfall.