Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2001, Qupperneq 24
24
LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2001
Helgarblað
DV
Óvinurinn
- Osama bin Laden - maðurinn sem allir Vesturlandabúar ótt-
ast. Fetar í fótspor Sjakalans, Abu Nidal og Saddams Husseins
Osama bin Laden, maðurinn sem er
óvinur Vesturlanda númer eitt, er leið-
togi eða foringi arabískra hryðjuverka-
samtaka sem kalla sig al-Qaeda sem út-
leggst Stöðin á íslensku. Stöðugt fleiri
visbendingar benda til þess að hópar
þeir sem frömdu hryðjuverkin í New
York og Washington á þriðjudag hafi
notið annaðhvort leiðsagnar eða fjár-
magns frá Stöðinni.
Osama bin Laden er 43 ára gamall
milljarðamæringur, yngsti sonur sjeiks-
ins og kaupsýslumannsins Mohammeds
Awad bin Laden frá Jemen sem stórefn-
aðist á byggingarframkvæmdum, aðal-
lega í Saudi-Arabíu þar sem Osama ólst
upp.
Osama er yngstur 53 bama og eitt ör-
fárra barna fóður sins sem á engin al-
systkini. Hann á sjálfur að sögn að
minnsta kosti þrjár konur. Persónuleg
auðæfi hans eru sögð nema um 300 milj-
ónum dollara sem em tæplega þrjátíu
milijarðar íslenskra króna.
Stríð í Afganistan
Osama yfirgaf heimaland sitt 1979 til
þess að taka þátt í bardögum í Afganist-
an með múslímum gegn innrás Sovét-
manna. Það heilaga strið var að ein-
hverju leyti kostað af ameriskum leyni-
þjónustum og talið er að Osama hafi
hlotið einhveija þjálfun og leiðsögn und-
ir handarjaðri CLA. Fjöldi araba tók þátt
1 stríðinu í Afganistan sem naut einnig
stuðnings nokkurra þjóða við Persaflóa
og stór hluti þeirra naut þjálfunar frá
Amerikönum.
Osama sneri síðar aftur heim til
Arabíu en varð fljótlega landflótta vegna
baráttu sinnar gegn stjórnvöldum þar
og dvaldi eftir það ámm saman í Súdan
en hryðjuverk hans þar gegn Banda-
ríkjamönnum neyddu hann til þess að
flýja til Afganistans þar sem hann hefur
dvalist i felum í nokkur ár. Hann er þar
gestur talibanastjómarinnar sem hefur
ráðið lögum og lofum í landinu undan-
farin ár.
Heilagt stríð
Osama bin Laden hefur barist gegn
Bandaríkjamönnum síðastliðin 10 ár að
því er talið er. Bæði 1996 og svo aftur
1998 lýsti hann því yfir að heilagt stríð
stæði gegn Bandaríkjunum og hefur ít-
rekað þær yfirlýsingar síðan.
Ákafar tilraunir Bandaríkjamanna
til þess að hafa hendur í hári hans hafa
engan árangur borið né heldur háar
flárhæðir sem settar hafa verið honum
til höfuðs, eða 5 milljónir dollara síðan
1999. Eldflaugar sem Bandarikjamenn
skutu á Afganistan í kjölfar árása á
sendiráð þeirra í Afríku 1998 náðu ekki
að myrða bin Laden en 20 Pakistanar
létust í árásinni.
Hvar er hann?
Erfitt getur orðið fyrir Bandaríkja-
menn að koma fram hefndum með því
að myrða Osama bin Laden þar sem
dvaiarstaður hans er nær algerlega
óþekktur. Hann hefur í nokkur ár nær
aldrei sofið tvær nætur á sama stað,
ferðast alltaf i lítt áberandi bílum og hef-
ur hætt að nota faxvélar og síma sem
auðvelda njósnurum að staðsetja hann.
Hann hefur sést á nokkrum gervitungla-
myndum á ferð miili tjaldborga, moldar-
kofa og helia í flöllum Afganistans.
I byrjun vikunnar var talið að hann
væri í borginni Kandahar í Afganistan
en aðrir njósnarar telja að hann haldi
sig einkum í þorpinu Farm-e-Hadda sem
er rétt utan við borgina Jalalabad í aust-
urhluta landsins. Óljósar fregnir herma
að hann hafi verið hnepptur í stofufang-
elsi af afgönskum yfirvöldum eftir
hryðjuverkin í Bandaríkjunum af ótta
við hefndaraðgerðir en þær hafa enn
ekki verið staðfestar.
Laustengd samtök
Hryðjuverkasamtök hans, Stöðin sem
hann stofnaði að sögn 1989, eru meira í
ætt við laustengda hreyfmgu nokkurra
Carlos eða Sjakalinn
Var talirm hættulegasti hryöjuverkamaöur heimsins allt frá 1972 þegar ísra-
eiskir íþróttamenn voru myrtir í Munchen. Er talinn hafa tugi mannslífa á
samviskunni en fór huldu höföi allt til 1994 þegar hann var handtekinn á
skuröarhoröi og hírist nú í fangelsi.
ir réttu nafni Ilich Ramirez Sanchez.
Hann var þjáifaður og menntaður í
Moskvu en iUræmdasta afrek hans er
þátttaka í fjöldamorði á ísraelskum
íþróttamönnum á Ólympíuleikunum í
Múnchen 1972 en einnig tengdist hann
nokkrum flugránum og launvígum hér
og þar um heiminn.
Carlos var hundeltur um heiminn í
meira en 20 ár og leitaði síðast skjóls í
Súdan eftir að hafa verið vísað frá Sýr-
landi þar sem hann hafði dvalist árum
saman. Árið 1994 var hann lagður inn á
sjúkrahús og svæfður vegna minni hátt-
ar skurðaðgerðar. Hann var sofandi af-
hentur frönskum yfirvöldum og dreginn
fyrir dóm í Frakklandi og er þar í fang-
elsi. Sagt er að hann sé í algerri einangr-
un í fremur illri vist.
Af þessu öllu saman má trúlega draga
þá ályktun að þótt einhver sé sæmdur
nafnbótinni óvinur númer eitt þá þýðir
það ekki að eftirleikurinn verði auð-
veldur eða að sá hinn sami verði fljót-
lega handsamaður. Sennilega ná Banda-
rikjamenn ekki að handsama bin Laden
nema þjóðir Austurlanda snúi algerlega
baki við honum og framselji hann.-PÁÁ
Nokkur helstu hryðjuverk
tengd Osama bin Laden
Það tíðkast ekki lengur að þeir sem fremja hryöju-
verk lýsi þeim með formlegum hætti á hendur sér
eins og algengt var á áttunda og níunda áratugn-
um. Þess vegna er ekki nákvæmlega vitaö hve
mörgum árásum og hryðjuverkum Osama bin
Laden eða hópar tengdir honum hafa staöiö að.
Þetta er listi yfir þau sem menn eru nokkuð vissir
um að hann sé að meira eða minna leyti ábyrgur
fyrir.
1992
Árás á hótel í Aden í Jemen þar sem um 100 amer-
ískir hermenn bjuggu en þeir voru á leið til hjálpar-
starfs í Sómalíu. Enginn særöist I sprengingunni en
Osama bin Laden lýsti verkinu á hendur sér.
Febrúar 1993
Bílsprengja springur í World Trade Center í New
Vork sem drepur sex manns og særir meira en
1000.
Nóvember 1995
Sprengja springur i þjálfunaibúðum hersins í Riyad í
Saudi-Arabíu. Rmm ameriskir hermenn létust og 31
slasaðist.
Júní1996
Sprengja springur í íbúðablokk í bandarískri herstöð
i Dahran i Saudi-Arabíu. 19 ameriskir hermenn lét-
ust og 372 hermenn og óbreyttir ameriskir borgarar
særðust.
Ágúst1998
Sprengiur springa í sendiráðum Bandarikjanna í
Kenía og Tansaniu. 224 dóu í sprengingunni, þar af
12 Amerikanar.
Október 2000
Orrustuskipið USS Cole veröur fyrir sprengju í Aden
í Jemen. 17 hermenn létust og 39 særöust.
Júní 2001
Tíu handteknir með handsprengjur og vélbyssur í
Amman í Jórdaniu grunaðir um að hafa ætlað að
ráðast inn í sendiráð Bandarikjanna í Sanaa i
Jemen.
September 2001
Fjórum flugvélum rænt i Ameriku og tveimur þeirra
flogið á World Trade Center og einni á Pentagon. Sú
^órða hrapar í Pennsylvaníu. Mestu hryðjuverk
mannkynssögunnar. Óttast að tala látinna nái
tveimur tugum þúsunda.
lltt með fréttum utan úr þeim heimi
sem stendur svo mikill ótti af honum.
Óttast ekki dauðann
í viðtali við The Nation árið 1998
sagði bin Laden að aðilar í Saudi-
Arabiu sem hann telur landráðamenn
sem hafi selt sjálfstæði sitt fyrir olíu-
gróða, hafi boðið honum rúmlega 500
milljónir dollara fyrir að láta af sínu
heilaga stríði gegn Bandaríkjunum. Til-
boðinu var ekki tekið.
I sama viðtali flokkar hann dauða 107
flóttamanna í Quana af völdum ísraela
sem alþjóðlegt hryðjuverk sem verði að
hefna svo réttlætið nái fram að ganga.
Þá kemur einnig skýrt fram að
Osama óttast ekki dauðann og hann seg-
ir að haldið sé verndarhendi yfir sér og
í stríðinu við Rússa hafi hann sofið
vært 30 metra frá rússneskum her-
mönnum sem leituðu hans ákaft og
sprengjur sem varpað var að honum
hafi ekki sprungið.
„Við múslímar óttumst ekki dauð-
ann,“ segir bin Laden.
„Þegar við deyjum þá fórum við í
sælustað og rétt fyrir dauðann færist
yfir okkur ró frá Allah sem vemdar
okkur alla.“
í viðtalinu, sem fer fram hátt í snævi
þöktum fjöllum Afganistans, lýsir blaða-
maöurinn Robert Fisk þvi hve einangr-
aður bin Laden virðist vera og fylgjast
Osama bin Laden
Maöurinn sem heimsþyggöin leitar aö. Mest eftirlýsti hryöjuverkjamaður
heims undanfarin ár. Fimm mittjóna verölaun fyrir upplýsingar sem leitt gætu
til handtöku hans um árabii hafa engan árangur boriö.
Óvinur númer eitt
Osama bin Laden er ekki eini
arabinn sem hefúr náð þeirri vafasömu
stöðu að vera skilgreindur sem helsti
óvinur Bandaríkjanna og um leið alls
hins vestræna heims. Það var reyndar
Bill Clinton forseti sem sagði að bin
Laden væri óvinur Bandaríkjanna núm-
er eitt í kjölfar árásanna á sendiráðin í
Afríku.
Næstur á undan honum var Saddam
Hussein, forseti Iraks, sem hefúr verið
svamasti óvinur alls sem amerískt er
allar götur síðan stærsta herveldi heims
fór gegn honum í Persaflóastríðinu 1990.
Síðan hefur Irak verið í umdeildu við-
skiptabanni. Saddam hefur iðulega sýnt
í verki hatur sitt á Bandaríkjamönnum
en enn hefur ekkert komið fram sem
tengir hann við árásimar 11. september
sl. Andúðin er gagnkvæm og hafa
bandarískir ráðamenn meðal annars
líkt Saddam Hussein við Adolf Hitler.
Hvar er Abu Nidal?
Fyrir rúmum 10 árum var arabíski
hryðjuverkamaðurinn Abu Nidal tákn-
mynd alþjóðlegra hryðjuverka og var
hundeltur um allan heim. Hann beindi
hins vegar spjótum sínum einkum gegn
þjóðum utan Vesturlanda og lét mjög til
sín taka i hryðjuverkum gegn ísrael og
Jórdaníu en einnig Sýrlandi meðan
hann naut stuðnings Iraka. Hann var
þvi miklu fremur málaliði á sviði
hryðjuverka og vann fýrir þann sem
greiddi laun hans og skaut yfir hann
skjólshúsi.
Hans var ákaft leitað af amerískum
leyniþjónustum árum saman en fannst
aldrei og er talinn vera enn í felum i Lí-
bíu þar sem hann starfaði ailt fram til
1994. Á valdatíma Reagans var hann
skilgreindur sem óvinur Ameríku núm-
er eitt.
Handtekinn á skurðarborðinu
Árum saman var Carlos eða Sjakal-
inn, eins og hann var yfirleitt kallaður,
einn frægasti hryðjuverkamaður heims-
ins sem er talinn hafa myrt 83 menn á
ferli sínum.
Carlos er fæddur í Venezúela og heit-
Saddam Hussein, leiötogi Iraks
Maöurinn sem hefur veriö helsti óvinur Bandaríkjamanna síöastliöin 10
ár. Hatar Ameríku meira en allt annaö og hefur veríö líkt viö Hitler.
Abu
Hryöjuverkamaöur sem Bill Clinton,
fyrrverandi forseti Bandaríkjanna,
sagöi aö væri óvinur Bandaríkjanna
númer eitt. Áköf leit árum saman
bar engan árangur og Abu Nidal hef-
ur ekki náöst enn og ekkert til hans
spurst í nokkur ár.
hópa en þaulskipulagðan her. Sagt er að
Osama hafi að undanfómu látið tveim-
ur aðstoðarmönnum sínum eftir stjórn
samtakanna. Þetta eru tveir Egyptar,
Ayman-al-Zawahiri og Muhammed Atef
sem báðir hafa starfað með epgypskum
samtökum sem kalla sig al-Jihad sem
þýðir Heilagt strfð. Þau samtök myrtu
meðal annars 62 ferðamenn í Luxor í
Egyptalandi 1995.
Nokkur önnur hryðjuverkasamtök
misjafnlega mikið þekkt eru sögð tengj-
ast bin Laden sem láti þeim í té fjár-
muni til þjálfunar. Sagt er að fylgis-
menn hans séu allt að 3.000 talsins og
hann sé í miklum metum hjá ungum
aröbum sem hata vestræna lífshætti og
sérstaklega Bandaríkjamenn.
Maður sem handtekinn var við mis-
heppnaða tilraun til að koma fyrir
stórri sprengju á flugvellinum í Los
Angeles þegar ný öld gekk í garð sagðist
við yfirheyrslur hafa verið þjálfaður í
búðum Osama bin Ladens f Afganistan.
Þannig sýnist bin Laden frekar vera
eins og könguló í miðjum vef nær ósýni-
legra smáhópa fremur en skýr leiðtogi
eins hers.