Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2001, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2001, Page 29
LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2001 37 DV „murder by the minute" i okkar þátt- um og engin ræðuhöld. Þetta átti að vera brútal og var það oft. Þetta var þægileg og gefandi tilbreyting, að geta smnfusað hluti mánuðum saman mið- að við hraðann sem alltaf var í fréttun- um.“ Svipað og á NT og Tímanum - Undanfarið misseri hefur verið i gangi þróun hjá íslenska útvarpsfélag- inu sem sumir hafa líkt við flótta og kallað Flóttann mikla í háifkæringi. Mjög margir lykilmenn hafa horfið úr starfi, bæði þeir sem haldið hafa um stjómvölinn á rekstrarsviði og einnig þekkt andlit af skjánum. Ert þú hluti af einhverjum atgervisflótta? „Mér var gert tilboð sem ég gat ekki hafnað. Ég hef séð svipaða hluti gerast þegar ég var á NT og Tímanum þar sem lykilmenn hættu og þá var eins og færi af stað atburðarás sem erfitt var að sjá fyrir endann á. Það er ekkert leyndarmál að ís- lenska útvarpsfélagið á í miklum fiár- hagslegum þrengingum. Það er erfitt árferði og gengisbreytingar sem rétt er að kaila gengisfellingar hafa haft mjög dramatísk áhrif á afkomu fyrirtækis- ins. Þetta er fyrirtæki með miklar skuldir í erlendri mynt, sérstaklega dollurum, og útgjöld í erlendum mynt- um en allar tekjur í islenskum krón- um. Mitt brotthvarf frá Stöð 2 tengist þessum aðstæðum ekkert. Það var eng- inn vondur við mig né setti mér stól- inn fyrir dymar. Ég á aðeins góðar minningar frá veru minni þar og fór sáttur," Hefði skorið ísland í dag - Eggert telur ljóst að innan skamms verði Stöð 2 að grípa til rót- tækra aðgerða til þess að draga úr út- gjöldum því fátt sýnist vera um tæki- færi til þess að auka tekjur i svipinn. En hvað hefði hann gert? Helgarblað „Ég hefði lagt ísland í dag niður og dregið verulega úr umsvifum frétta- stofunnar. Með þessu er ég ekki að varpa neinni rýrð á þá sem þar vinna eða þeirra verk en ef þetta hefði verið gert um líkt leyti og Skjár einn skai' niður sína fréttadeild þá hefði að minnsta kosti samfélagið fengið þau skýru skilaboð að við erum öll að deyja. Ef sjáifstæðar sjónvarpsstöðvar á Islandi eiga að lifa þá verður að losna við RÚV út af auglýsingamarkaði eða gefa fólki kost á að velja hvort það borgar áskriftargjöld af því. Þetta er frekar einfalt." Eins og Bónus og Hagkaup - Skjár einn kom inn á sjónvarps- markaðinn með brauki og bramli og þótt mikið tap hafi verið á rekstrinum sýnist hann samt vera tryggður út næsta ár. Það er samdóma álit flestra að ókeypis samkeppni hafi þegar vald- ið Stöð 2 miklu tapi. Voruð þið sofandi á verðinum? „Við gerðum þau mistök að líta aldrei á þá sem alvöru samkeppni. Þetta var í raun nákvæmlega eins og þegar Bónus kom inn á markaðinn og Hagkaupsmenn sváfú á verðinum þar til það varð of seint. Við gerðum þessi sömu mistök. Ég var til dæmis einn þeirra sem var alltaf sannfærður um að Skjár einn myndi ekki halda þetta út nema nokkra mánuði. Þeir reyndust síðan vera að framleiða mjög mikið af efni sem fólk vildi sjá þótt mikið af því væri lélegt og buðu upp á mikið af ■ spennandi erlendu efni.“ Trúi ekki á Skjáinn „Ég er sannfærður um að Skjár einn á enga framtíð fyrir sér sem ókeypis sjónvarpsstöð. Ég trúi ekki á þessa við- skiptahugmynd og er sannfærður um að innan skamms munu þeir læsa sinni dagskrá eða finna aðrar leiðir til að innheimta tekjur. Sú hugmynd að peningamenn séu að halda Skjá einum gangandi af ein- skærri heift út í Jón Ólafsson og í þeim tilgangi sérstaklega að ganga af Stöð 2 dauðri finnst mér afar langsótt. Þannig hugsa ekki þeir peningamenn sem ég hef kynnst," segir Eggert og vill bæta við af gefnu tilefni að Jón Ólafsson eigi ekkert í emax. Þráðlaust net - En hvað er það sem Eggert er að fara að gera? „Ég sagði einhvem tímann í gamni að það væri þrennt sem mig langaði til að starfa við. Eitt væri fjármagns- markaður, annað væm fiarskipti og það þriðja væri að vera forsætisráð- herra en ég reiknaði reyndar ekki með því að það væri laust. Eftir að ég tók próf sem löggiltur verðbréfamiðlari má segja að það fyrsta hafi ræst og þegar ég fékk tæki- færi til að koma inn í þetta fyrirtæki sem heitir emax þá fannst mér það vera mitt stóra tækifæri og hugsaði mig ekki um. Ég hefði gjaman viljað vera áfram með Peningavit á Stöð 2 en þetta var einfaldlega meira spennandi." Eggert segir þetta þar sem við sitj- um í höfuðstöðvum emax í Hlíðasmára í Kópavogi. Það er bert og tómlegt hús- næði en einhver spenningur í loftinu. Þar situr við borð annar flóttamaður af Stöð 2, Hannes Jóhannsson, sem var helsti tæknimeistari þar til margra ára. Hannes var sagður svo ómissandi að þegar Stöð 3 lagði upp laupana eftir skamman tíma var hann sá eini af fyrrum starfsmönnum Stöðvarinnar sem átti strax afturkvæmt á sinn gamla vinnustað. emax ætlar að bjóða landsmönnum upp á þráðlausa tengingu við Netið. Þetta verður gert á örbylgjusviði á svokölluðu 2,4 GHz tíðnisviði. Átta sehur sem hvert getur annað 2000 not- endum hafa verið settai' upp og þráð- laust samband er þegar í boði fyrir helstu götur í miðbænum og Eggert segir það gilda um 80% af Reykjavík. „Við erum eina fiarskiptafyrirtækið á íslandi sem reiðir sig ekkert á Lands- símann heldur stendm' eitt. Við erum hins vegar til í samstarf því það er bjargfóst sannfæring okkar að sam- skipti verði þráðlaus í mun meiri mæli en nú er gert.“ Þjónusta verður seld í áskrift með 12 mánaða skuldbindingu og Eggert full- yrðir að tiltölulega auðvelt verði að bjóða lægra verð og betri þjónustu heldur en þegar er fyrir hendi á mark- aðnum. Ema er í samstarfi við amer- ískt fyrirtæki sem heitir IDigi um tækilausnir en stærstu eigendur eru Spectra AB, sem er skandinavískt fyr- irtæki, og Hámark sem er fiárfesting- arfélag á Akureyri í eigu norðlenskra sparisjóða. PÁÁ Eggert hjá eMax Hann segist ekkert eiga nema góðar minningar eftir ettefu ára feril í sjónvarpi og blaöamennsku. Hann stundaöi jöfnum höndum fréttaskrif og þáttagerð. Norðurljósin dofna: Hætt og farin - lykilmenn hverfa á braut á meðan skuldirnar vaxa Páll Magnússon Farinn aö skrifa fréttatilkynningar fyrir Kára Stef- ánsson. Sigmundur Ernir Rúnarsson Farinn aö skrifa leiöara í DV. Þeir sem muna um það bil fimmtán ár aftur í tímann þegar Stöð 2 var að hefja göngu sína minnast þess ef- laust þegar verið var að manna skútuna og þekktar skjá- stjörnur og fréttahaukar voru hausaveidd- ar af eina keppi- nautnum sem þá var við lýði, RÚV. Þekkt nöfn og vanir fréttahaukar eins og Páll Magnússon, Hallur Hallsson, Yngvi Hrafn Jónsson og Ómar Ragnarsson stóðu upp úr stólum sínum á RÚV og örkuðu upp á Lyngháls til að taka þátt í ævintýrinu. Enginn þeirra er þar lengur. Það er eðli fiölmiðla að þeir eru hvikulir vinnustaðir. Menn ganga út í reiðiköstum eða brenna upp undan álagi. Það sem hefur verið að gerast á Stöð 2 undanfarið miss- eri sýnist vera af nokkuð öðrum toga því þar hafa lykilmenn gengið út í hrönnum, bæði úr efstu lög- um stjórn- pýramídans en ekki síður hafa þekkt andlit horf- ið af skjánum eitt af öðru. Þótt maður komi oftast í manns stað þá verður ekki betur séð en stjórnendur Stöðvar 2 séu markvisst að losa sig við dýra starfskrafta með langa reynslu og ráða í þeirra stað ódýra viðvaninga sem verða þjálfaðir upp í beinni út- sendingu. Fjörutíu hættir á árinu Alls hafa um 40 starfsmenn hætt hjá Norðurljósum það sem af er ár- inu og er það í samræmi við yfirlýs- ingar Hreggviðs Jónssonar for- stjóra í upphafi ársins. Þar af hafa 20 hætt sjálf- ir. Samkvæmt bestu heimildum DV er enn von á frekari uppsögn- um. Á þessu ári, sem senn er liðið, hættu tveir reyndustu frétta- haukar Stöðvar 2 störfum með til- tölulega skömmu millibili. Fyrst hvarf Páll Magnússon af vettvangi og gerðist blaðafulltrúi íslenskrar erfðagreiningar. Það þóttu mörgum vera nokkur tíðindi og sjónarsviptir að slíkum jaxli úr stétt fréttamanna. Ekki löngu seinna tók Sigmundur Ernir Rúnarsson aðstoðarfrétta- stjóri föggur sínar og hvarf til starfa hér á DV og hef- ur þá sérstöðu að vera sá eini úr hópnum sem fer til starfa á öðrum fiölmiðli. Þorsteinn J. Vilhjálmsson og Jón Ársæll Þórð- arson eru báðir horfnir til ann- arra starfa við dagskrárgerð á sama vinnustað en óhætt mun að _______________ eigna þeim ríkan hlut af vinsældum þáttarins ísland í dag og Jón Ársæll gerði frasann „Þetta er ísland í dag“ nær ódauð- legan. Félagi þeirra, Helga Guðrún Johnson, er einnig horfin af vett- vangi og sest á skólabekk og er haft Helga Guðrún Johnson Farin og ætlar aö hugsa um svínin. Páll Baldvin Baldvinsson Farinn eftir samtats 10 ára starf. Hannes Jóhannsson Farinn í annaö sinn meö reynstuna. fyrir satt að hún ætli að hasla sér völl í svínarækt að því loknu en hún er gift Kristni Gylfa Jónssyni, einum Brautarholtsbræðranna, sem eru að gera föðurleifð sína að stærsta svínabúi landsins. „Perlum er enn kastað fyrir svín,“ sagði ónefndur viðmælandi DV um þá tilfærslu. Ragnheiður Elín Clausen, þula þjóðarinnar, flutti sig frá RÚV á fyrra ári og hóf störf í íslandi í dag en hætti störfum fljótlega eftir að Páll Magnússon hvarf af vettvangi en hann mun hafa ráðið hana í óþökk nokkurra samstarfsmanna sinna. Þekktir og óþekktir Hannes Jó- hannsson, reynd- asti tæknimaður Stöðvar 2 til margra ára, hef- ur hætt og hafið ......*.. störf hjá emax þar sem fyrir var á fleti fyrrum fé- lagi hans, Eggert Skúlason, sem hætti hjá Stöð 2 í mai eftir 11 ára starf. Viktor Ólason markaðsstjóri er á förum frá fyrirtækinu og það sama er fullyrt um Svein Andra Sveins- son, fiármálastjóra félagsins. Þetta er staðfest af yfirmönnum Norður- ljósa. Þeir hafa báðir veriö lykil- menn í rekstri íslenska útvarpsfé- lagsins og verður skarð þeirra án efa vandfyllt. Fyrir fáum mán- uðum hætti einnig Jensína Böðvarsdóftir, starfsmanna- stjóri ÍÚ, eftir langt og farsælt starfhjáfélaginu. Því starfi gegndi einnig Halla Tómasdóttir um tima en hvarf einnig á braut. Páll Baldvin Baldvinsson, sem hefur starfað sem dagskrárstjóri Stöðvar 2 í samtals tíu ár á tveimur tímabilum, hefur látið af störfum þar eftir að þriggja mánaða skyndilegu leyfi hans lauk og er fátt vitað um áform hans utan hvað hann er sagður sitja við skriftir. Björgvin Halldórsson, söngvari og þúsundþjalasmiður, hefur lengi verið starfsmaður íslenska útvarps- félagsins, bæði sem umsjónarmaður Bíórásarinnar en einnig hefur hann verið „rödd“ Stöðvar 2 og lesið inn á dagskrárkynn- ingar af stakri snilld. Hann mun halda því áfram en að öðru leyti hverfa til starfa á öðrum vettvangi. Björgvin Halldórsson Farinn en röddin lifir áfram. Ragnheiður Elín Clausen Farin og sést ekki meir í ís- landi í dag. Níu milljarðar í nýlegri úttekt 1 Frjálsrar versl- unar á fiölmiðlamarkaði er fullyrt að skuldir Norðurljósa nemi 9 millj- örðum um þessar mundir. Þar er fullyrt að báðar frjálsu sjónvarps- stöðvarnar rói lifróður vegna sam- dráttar á auglýsingamarkaði. Þar er bent á að stöðin gæti þurft að grípa til örþrifaráða eins og þeirra að loka fréttastofunni eða draga starf- semi hennar verulega saman. Sérfræðingar sem DV ræddi við taldi að samkeppni Skjás eins og Stöðvar 2 einkenndist um þessar mundir af því að báðar stöðvar væru að bíða eftir dauða hinnar. Hann taldi að neyðarúrræði Stöðvar 2 yrði að kaupa upp samkeppnina eins og gert var þegar Stöð 3 ruddi sér til rúms á markaðnum fyrir nokkrum árum. PÁÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.