Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2001, Qupperneq 39
UV LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2001
smáauglýsingar - Sími 550 5000 Þverholti 11
Ottast um heilsu
Whitney Houston*
Orðrómur um að poppsöng-
konan Whitney Houston hefði
látist af of stórum skammti eit-
urlyfja fór á kreik á fimmtudag
en blaðafulltrúi hennar var
ekki seinn á sér að kveða hann
niður.
„Ég var að tala við Whitney,"
sagði blaðafulltrúinn Nancy
Seltzer í yflrlýsingu sem hún
sendi frá sér. „Hún hefur það
fínt og skilur ekki hvers vegna
einhver hefur tíma til að koma
nýjum gróusögum á kreik, mið-
að við alit sem gengur á núna.
Hún er heima í New Jersey með
fjölskyldu sinni.“
Svo mörg voru þau orð blaða-
fulltrúans. Hinu verður
kannski ekki neitað að orðróm-
ur af þessu tagi sprettur ekki
upp að ástæðulausu. Vitað er að
Whitney og eiginmaður hennar,
Bobby Brown, hafa lengi átt í
vanda með fíkn sína í ólögleg
eiturlyf. Þau hafa bæði komist í
kast við lögin vegna þessa,
hann þó oftar en hún.
Ekki var svo útlit söngkon-
REUTER-MYND
Orðrómur um dauða Whitney
Svo viröist sem allt tal um dauöa Whitney
Houston sé ótímabært.
unnar á stórtónleikum
Michaels Jacksons í New York
á dögunum til aö bæta úr skák.
Mörgum manninum var brugð-
ið þegar Whitney steig fram á
sviðið. Hún var svo horuð að
undrum sætti og gekk greini-
lega ekki heil til skógar.
Whitney kom fram á fyrri tón-
leikum Michaels en aflýsti þátt-
töku í hinum síðari. Hvort það
var af völdum veikinda eða
uppistandsins vegna holdar-
farsins skal ósagt látið.
„Hún lítur nánast út eins og
beinagrind," varð stjörnublaða-
konunni Barböru Walters að
orði.
Slúðurblaðamaðurinn Matt
Drudge sagði sem svo að Whit-
ney hefði litið verr út en söng-
konan Karen Carpenter
skömmu áður en hún lést af
völdum átraskana.
REUTER-MYND
Fáklæddar í Argentínu
Fyrirsætur sýna brjóstahöld og nærbuxur á sýningu argentískra tískuhönnuöa
í Buenos Aires fyrir skemmstu. Klæönaöurinn vakti athygli manna.
Indíánar og kúrekar vinsælir í Þýskalandi
Kúreka- og indíánasögur þýska skáldsagnahöfundarins Karls May hafa veriö mjög
vinsælar í Þýskalandi síöustu áratugina, svo vihsælar aö sérstakar Karl May-hátíö-
ir hafa veriö haldnar árlega síöustu 50 árin í Bad Segebergin, þar sem sögur
Mays hafa veriö settar á svið. Myndin hér aö ofan er frá 50 ára afmælishátíöinni
sem nýlega var haldin og sjáum viö Aptasí-höföingjann Winnetou (Gojko Mitic)
berjast fyrir lífi sínu viö Stóra Úlf (Joshy Peters).
Berry Berenson meðal fórn-
arlambanna í New York
Leikkonan Berry Berenson, ekkja
leikarans Anthony Perkins sem lést
árið 1992, var meðal farþega i flugvél
American Airlines, sem var fyrri vél-
inn sem flaug á World Trade Center í
New York á þriðjudaginn. Berenson,
aem var 53ja ára, starfaði einnig sem
ljósmyndari og var á leið heim til Los
Angelel úr fri frá Cape Cod. Berenson,
sem var dótturdóttir tískuhönnuðar-
ins Elsu Schiaparelli og systir
leikkonunnar Marisu Berenson, var
þekktust fyrir leik sinn i myndunum
„Cat People" og „Remember My
Name“. Hún lætur eftir sér tvo syni og
er annar þeirra Osgood Perkins Jr,
sem lék á móti Reese Witherspoon í
„Legally Blonde“. Af öðrum þekktum
einstklingum úr dægurheiminum sem
fórust í hryðjuverkunum má nefna,
David Angell, framleiðanda og höfund
sjónvarpsþáttanna • „Frasier" og
Cheers", en hann var ásamt konu
sinni, Lynn, í sömu vél og Berenson.
Angell, sem var 54 ára, hlaut sex
Emmy verðlaun á ferlinum fyrir sjón-
varpsþætti sína, en var einnig höfund-
ur „Wings“ gamanþáttana. Þá var,
Barbara Olson, fréttaskírandi á CNN,
meðal farþega í vélinni sem lenti á
Pentagon.
Upplýsingar í síma: 561-8585 / 561-8586
Aðhaldsnámskeið
Gauja litla,
frír prufutími
Hópastarf:
Valkyrjur
í vígahug (konur)
Vinir
í víðáttu (karlar)
Unglinganámskeið:
13 til 16 ára
frír prufutími
Barnastarf:
Kátir krakkar
7-9 ára
10 -12 ára
REYKJAVÍK OG AKUREYRI
HEILSUGARÐUR
CAUJA LITLA