Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2001, Page 46
54
LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2001
Islendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
80-ára________________________________
Kristín Jónasdóttir,
Maríubakka 28, Reykjavík.
75 ára________________________________
Ásdís Pétursdóttir,
Skjólvangi, Hrafnistu, Hafnarfiröi.
lakobína Elísabet Björnsdóttir,
Úthlíð 8, Hafnarfiröi.
Skúli Marteinsson,
Háaleitisbraut 18, Reykjavík.
70 ára________________________________
Ágúst Sigurösson,
Birkihvammi 3, Hafnarfirði.
60 ára________________________________
Sigurborg Skjaldberg,
Þúfubaröi 17, Hafnarfirði.
Eiginmaöur hennar er Baldur Snæhólm
Einarsson. Þau eru í útlöndum.
Oóra Magnúsdóttir,
Hamraborg 14, Kópavogi.
Guöni Magnús Sigurösson,
Hlíðargötu 29, Sandgeröi.
Guörún Daníeisdóttir,
Tryggvagötu 24, Selfossi.
Hanna Rúna Jóhannsdóttir,
Jaöarsbraut 29, Akranesi.
Haraldur Sveinsson,
Hrafnkelsstööum 1, Flúðum.
Kristbjörg Siguröardóttir,
Jörundarholti 188, Akranesi.
Óskar Rafn Þorgeirsson,
Skarösbraut 13, Akranesi.
Sigurður Jónsson,
Ásvegi 8, Dalvík.
Vésteinn Arngrímsson,
Fellsenda 2, Búöardal.
Vigdís Gústafsdóttir,
Lyngheiði 9, Hverageröi.
Þóra Valdimarsdóttir,
Gimli, Reyöarfirði.
50 ára________________________________
Einar Marinósson,
Þrastarhólum 8, Reykjavtk.
Elísabet H. Einarsdóttir,
Suðurhúsum 6, Reykjavík.
Geir Reynisson,
Faxabraut 51, Keflavík.
Guöbjörg A. Stefánsdóttir,
Dverghömrum 46, Reykjavík.
Óiafur Sverrisson,
Byggöavegi 105, Akureyri.
Sesselja Ólafsdóttir,
Heiömörk 2a, Hverageröi.
Sigríöur Ása Einarsdóttir,
Skipasundi 45, Reykjavík.
40 ára________________________________
Ásdís Eyrún Sigurjónsdóttir,
Dalshöföa, Kirkjubæjarklaustri.
Ásta Júlía Arnardóttir,
Engihjalla 7, Kópavogi.
Eiríkur Guömundsson,
Heiöargeröi 14, Akranesi.
Georg Jimmy Tucsök,
Skeggjastööum, Hvolsvelli.
Gunnólfur Lárusson,
Stekkjarhvammi 7, Búöardal.
Ingunn Lilja Guömundsdóttir,
Holtsgötu 20, Njarövík.
Jósefína V. Antonsdóttir,
Breiövangi 13, Hafnarfiröi.
Sonja Ingibjörg Einarsdóttir,
Reykjabyggö 43, Mosfellsbæ.
Þórhildur Hrönn Þorgeirsdóttir,
Lindarholti 10, Raufarhöfn.
Jensína Ólafsdóttir, Sefgöröum 26,
Seltjarnarnesi, andaöist á Landspítala
Landakoti miövikud. 5.9. Útförin hefur
fariö fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu.
Unnar Magnússon, Hringbraut 104,
Keflavík, lést á Landspítala Vífilsstöðum
þriðjud. 11.9.
Jarðarfarir
Útför Sveins Ellerts (Ellertssonar)
Ellerts viöskiptafræðings, Jackson
Heights, New York, sem fara átti fram
frá Akraneskirkju föstud. 14.9., hefur
veriö færö til mánud. 17.9. kl. 14.00
af óviðráðanlegum ástæðum.
Magnús Bjarni Blöndal,
Snæringsstöðum, Vatnsdal, andaöist á
Háskólasjúkrahúsinu Huddinge, Svíþjóö,
föstud. 7.9.. Útför hans ferfram frá
Hólaneskirkju, Skagaströnd, laugard.
15.9. kl. 14.00.
Útför Brynhildar Stefánsdóttur, Vallholti
34, Selfossi, fer fram frá Selfosskirkju
laugard. 15.9. kl. 11.00.
Margrét Kristín Pétursdóttir,
Hraunbúöum, Vestmannaeyjum, sem
andaöist aöfaranótt fimmtud. 6.9.,
veröur jarösungin frá Landakirkju
laugard. 15.9. kl. 10.30.
DV
Sjötíu og fímm ára
Árni Jón Konráðsson
sjómaður í Reykjavík
Ámi Jón Konráðsson sjómaður,
Rjúpufelli 42, Reykjavík, verður sjö-
tíu og fimm ára á morgun.
Starfsferill
Árni fæddist að Móum í Grinda-
vík og ólst þar upp til fjögurra ára
aldurs en flutti þá með foreldrum
sínum á Seltjarnames og síðan að
Merkisteini í Sogamýri. Þau átti
síðan heima í Bræðraborg við
Bræðraborgarstíg en lengst af við
Bergþórugötuna. Þá var hann í
sveit að Rútsstöðum í Dölum eitt
sumar og hjá ömmusystur sinni að
Stærrabæ í Grímsnesi i þrjú sumur
og einn vetur.
Árni stundaði Bretavinnu á
stríðsárunum, var síðan starfsmað-
ur Reykjavíkurborgar en fór til sjós
1948 og átti eftir að vera fjörutíu og
átta ár til sjós sem háseti, bátsmað-
ur og stýrimaður.
Árni var fyrst á bátnum Ingólfi
Amarsyni RE, síðan á Bjamarey
VE, var á síld á bátnum Arinbimi
RE um skeið og síðan á Elliðaey VE,
þá á Fylki RE þar til skipið fórst
1956 er það fékk tundurdufl í
vörpuna sem sprakk við síðu skips-
ins.
Ámi var á togaranum Júni frá
Hafnarfirði 1956-57, var síðan á tog-
aranum Skallagrími, þá á Fylki
nýja til 1964, á Sigfúsi Bergmann frá
Grindavík til 1967, var síðan á tog-
aranum Sigurði til 1973. Hann kom
þá í land um skeið og starfaði við
hafnarframkvæmdir í Grindavík.
Ámi var á Engeynni frá Reykjavík,
síðan Otri GK og loks aftur á Engey
þar sem hann var til 1995 er hann
kom í land og lauk sínum langa sjó-
mannaferli.
Árni var heiðraður af Sjómanna-
Attræður
dagsráði á sjómannadaginn 1989. Þá
er hann heiðursfélagi Sjómannafé-
lags Reykjavikur.
Fjölskylda
Árni kvæntist 1.9. 1954 Helgu
Helgadóttur, f. að Skógtjörn á Álfta-
nesi 16.1. 1932, húsmóður. Hún er
dóttir Helga Kristins Guðmundsson-
ar, f. 24.11. 1902, d. 31.1. 1991, bif-
reiðarstjóra í Hafnarfírði, og k.h.,
Pálínu Pálsdóttur, f. 27.9. 1907, d.
19.1. 1970, húsmóður.
Böm Áma og Helgu eru Pálína
Kristín, f. 29.3. 1953, klæðskeri, bú-
sett í Hafnarfirði, gift Guðbrandi
Ingimundarsyni múrara og eiga
þrjú böm; Sigríður, f. 5.3. 1955,
verslunarmaður í Reykjavík, var
gift Gisla Sigmundssyni en þau
skildu og eiga þau tvær dætur en
sambýlismaður Sigríðar var Hall-
dór Axel Halldórsson sem nú er lát-
inn;Ásta, f. 5.12. 1956, verslunar-
maður í Hafnarfirði, gift Sigurði
Jónssyni, verkamanni hjá Eimskip,
og eiga þau saman tvö börn auk
þess sem hún á son frá því áður;
Valgerður, f. 21.2. 1959, garðyrkju-
maður og verslunarmaður í Reykja-
vík, gift Baldvini Skúlasyni iðn-
verkamanni og eiga þau tvö böm;
Konráð, f. 7.10.1960, bifreiðarstjóri í
Danmörku og á hann fimm börn;
Hafliði Ingibergur, f. 18.10. 1970, bif-
reiðarstjóri í Reykjavík en kona
hans Louisa Sigurðardóttir tölvu-
fræðingur og á hann eina dóttur;
Ámi, f. 20.6. 1972, húsasmiður í
Reykjavík, en kona hans er Sólrún
Pétursdóttir, starfsmaður við dag-
heimili, og eiga þau þrjú börn.
Systkini Árna: Guðbjörg, f. 21.11.
1922, d. 14.2. 1923; Ásta Halldóra, f.
6.11. 1924, d. 24.4. 1944, húsmóðir í
Reykjavík; Sigríö-
ur Þóra, f. 15.11.
1928, d. 30.12. 1982,
húsmóðir í Reykja-
vik; Jóhanna, f.
12.6. 1930, húsmóð-
ir í Sandgerði; Egg-
ert, f. 11.4. 1934,
verkamaður og síð-
ast húsvörður við
Landsbanka ís-
lands; Ásdís Guð-
björg, f. 21.3. 1936,
lengst af verkstjóri
í Hafnarfirði; Rafn,
f. 14.12. 1937, lengst
af sjómaður í
Reykjavík.
Foreldrar Árna
vom Konráð Árna-
son, f. 26.2. 1902, d. 22.12. 1975, versl-
unarmaður og innheimtumaður í
Reykjavik, og k.h., Sigríður Jóns-
dóttir, f. 1.12. 1895, d. 20.6. 1957, hús-
móðir.
Ætt
Konráð var sonur Áma, lausa-
manns á Þorkötlustöðum, bróður
Sigríðar, ömmu Ingvars Þórarins-
sonar, bóksala á Húsavík. Árni var
sonur Áma, hreppstjóra á Þorkötlu-
stöðum, Magnússonar, b. á Þor-
kötlustöðum, bróður Einars, afa
Sveinbjörns Beinteinssonar skálds
og Bjarna Bjarnasonar læknis.
Magnús var sonur Ólafs, b. á Efri-
Brú í Grímsnesi, Jónssonar og
Ragnhildar Beinteinsdóttur, hrepp-
stjóra og stórb. í Þorlákshöfn Ingi-
mundarsonar, b. í Holti, Bergsson-
ar, ættfóður Bergsættar, Sturlaugs-
sonar. Móðir Árna lausamanns var
Valgerður Gamalíelsdóttir.
Móðir Konráðs var Þóra, systir
Engilbertínu, ömmu Guðjóns lækn-
is og lögfræðinganna Gísla Kristins
og Sveins Sigurkarlssona. Þóra var
dóttir Hafliða, b. á Hrauni í Grinda-
vík, Magnússonar, b. á Járngerðar-
stöðum, Þórðarsonar. Móðir Hafliða
var Margrét Einarsdóttir. Móðir
Þóru var Sigríður Jónsdóttir, hrepp-
stjóra og dbrm. á Hrauni, Jónsson-
ar, ættfoður Járngerðisstaðaættar,
Jónsson. Móðir Sigríðar var Guð-
björg Gísladóttir, b. á Lambafelli,
Eirikssonar og Gyðríðar Jónsdótt-
ur.
Sigríður var hálfsystir, samfeðra,
ísleifs Jónssonar, verkfræðings og
fyrrv. forstöðumanns Jarðborana
ríkisins. Sigríður var dóttir Jóns, b.
í Einlandi í Grindavík, Þórarinsson-
ar, og Guðbjargar Ásgrímsdóttur.
Árni og Helga verða hjá dóttur
sinni og tengdasyni að Holtsgötu 16,
Hafnarfirði, og verða þar með heitt
á könnunni milli kl 16.00 og 19.00 á
morgun.
Sigurður Sigmundsson
umsjónarmaður sumarvinnu Landsvirkjunnar
Sigurður Sigmundsson, umsjón-
armaður sumarvinnu Landsvirkj-
unar, Ey II, Vestur-Landeyjum,
Rangárvallasýslu, er sextugur í dag.
Starfsferill
Sigurður fæddist að Ásólfsskála
undir Vestur-Eyjafjöllum og kynnt-
ist ungur almennum sveitastörfum.
Hann er rafveituvirki að mennt.
Sigurður var við vegavinnnu þrjú
sumur á unglingsárunum, í línu-
vinnu og við mælingar hjá RARIK í
fjórtán ár, starfaði við mælingar hjá
ýmsum verktökum, s.s. Suðurverki
hf„ Gunnari og Guðmundi sf„ Grét-
ari Sveinssyni og fleirum, starfaði á
Skattstofu Suðurlands í þrjú ár og
hjá Kaupfélagi Rangæinga og Héðni
hf. við rafvirkjun. Þá hefur hann
starfað við vinnurannsóknir og
fleira hjá ráðgjafarþjónustunni
Hannarr sf. og verið verkstjóri hjá
Landsvirkjun.
Á síðustu árum hefur Sigurður
átt þátt í að móta fræðslu ungs fólks
sem stundað hefur sumarvinnu hjá
Landsvirkjun. Auk þess hefur hann
starfað með Skógrækt ríkisins,
Landgræðslunni og ýmsum áhuga-
mannafélögum að uppgræðslu og
skógrækt.
Sigurður hefur stundað smábú-
skap með kindur og hross i félagi
við eiginkonu sína, auk þess sem
hann hefur stundað ökukennslu í
hjáverkum.
Sigurður hefur setið í hrepps-
nefnd Vestur-Landeyja, í stjórn
Leikfélags og Tónlistarfélags Rang-
æinga, var formaður Félags ís-
lenskra línumanna frá stofnun þess
og næstu tíu árin, sat í stjóm Raf-
iðnaðarsambands íslands og sam-
bandsstjóm ASÍ. Hann hefur sungið
með RARIK-kórnum, Karlakór
Reykjavíkur, Karlakór Rangæinga
og mörgum samkórum. Um þessar
mundur tekur hann þátt í söngdag-
skrá Sögusetursins á Hvolsvelli um
Njálu.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 17.4. 1965 El-
ínu Jónsdóttur, f. 3.12. 1944, bónda
og húsfreyju. Hún er dóttir Jóns M.
Jónssonar, bónda að Hvítanesi í
Vestur-Landeyjum, og Ástu Helga-
dóttur húsfreyju.
Böm Sigurðar og Elínar eru Ásta
María, f. 12.11. 1964, vaktstjóri, en
fyrri maður hennar var Sigurður
Sigþórsson og eru börn þeirra Silja
og Hrafn en seinni maður hennar er
Lárus Þorsteinsson og eru börn
hans Helga Guðrún og Hermann
Sveinn; Sigmundur, f. 29.6.1966, tón-
listarkennari; Jón Magnús, f. 30.8.
1967, nemi í vélhönnun og starfs-
maður Grunfoss í Danmörku en
kona hans er Áslaug Elísa Guð-
mundsdóttir tækniteiknari og er
dóttir þeirra Elín; Baldur, f. 21.1.
1969, verktaki; Helga Dögg, f. 23.2.
1973, verslunarmaður en maður
hennar er Guðjón Þorvarðarson
íþróttafræðingur og er sonur þeirra
Andrés Karl; Friðrik Svanur, f. 18.8.
1976, nemi við listaháskóla og
starfsmaður Merl en unnusta hans
er Kristrún Karlsdóttir.
Alsystir Sigurðar er Halldóra
Ingibjörg Sigmundsdóttir, f. 29.6.
1940, ráðskona Landgræðslunnar í
Gunnarsholti.
Hálfsystkini Sigurðar, sam-
mæðra, eru Jón Sigurðsson, f. 13.7.
1925, d. 1992, bankamaður, hljóm-
sveitarstjóri og textahöfundur í
Kópavogi; Vigfús Sigurðsson, f. 25.6.
1927, fyrrv. húsasmiður á Hellu;
Guðrún Sigurðardóttir, f. 6.2. 1934,
fyrrv. bóndi og tónlistarkennari.
Foreldrar Sigurðar voru Sig-
mundur Þorgilsson, f. 1893, d. 1968,
skólastjóri, búsettur að Ásólfsskála
undir Evjaíjöllum, og Júlíana Björg
Jónsdóttir, f. 1.7. 1896, d. 1978, hús-
freyja.
Sigurður og Elín verða í Dan-
mörku á afmælisdaginn.
Arinu eldri
Vilhjálmur Árnason hrl. er
84 ára í dag. Vilhjálmur
er af Hánefsstaðaætt,
bróðir Tómasar, fyrrv. ráö-
herra og seðlabanka-
stjóra, Þorvarðar heitins
forstjóra og Margrétar, móöur Valgeirs
Guöjónssonar tónlistarmanns.
Meðal frænda þeirra eru Snorri Sigfús
Birgisson tónskáld og Vilhjálmur Einars-
son skólastjóri, faðir Einars spjótkast-
ara. Allt eru þetta miklir ágætismenn,
verklagnir, markvísir, staffírugir og við-
ræðugóðir.
Vilhjálmur fékk prýöilegt uppeldi viö
sveitastörf og sjómennsku en hann var
mörg ár á sjó og vélbátaformaður I sex
ár. Hann lauk stúdentsprófi frá MA, lög-
fræðiprófi frá HÍ og var lengi meö lög-
fræðistofu með syni slnum Árna,
frænda sínum Eiriki Tómassyni og fleiri
þungavigtarmönnum, s.s. Hreini Lofts-
syni einkavæðingarformanni. Þá sat
Vilhjálmur I stjórn íslenskra aðalverk-
taka 1954-84 og lét sig ekki muna um
að vera stjórnarformaður þess ágæta
fýrirtækis 1971-84 og 1988.
Rannveig Guömundsdottir
alþingismaöur er 61 árs í
dag. Rannveig er ekki
bara krati heldur strangt
til tekið ísafjarðarkrati,
enda fædd þar og
uppalin. Hún stundaði skrifstofustörf,
var búsett I Noregi I nokkur ár og
starfaði á tölvudeild Rugleiða.
Rannveig sat I bæjarstjórn Kópavogs I
áratug, var þrisvar forseti bæjarstjórnar
og formaður bæjarráös. Hún hefur
veriö þingmaöur Reykjaneskjördæmis
fyrir Alþýðuflokkinn, jafnaðarmenn og
síðan Samfylkinguna frá 1989, var
tvívegis formaður þingflokks
Alþýðuflokksins, formaður þingflokks
jafnaðarmanna og er formaður
þingflokks Samfylkingarinnar. Þá var
hún félagsmálaráðherra 1994-95, sat
I flokksstjórn Alþýðuflokksins frá 1978
og var varaformaður hans um skeið.
Lítið hefur borið á Rannveigu I
pólitíkinni aö undanförnu. En eins og
vinkona hennar og kollegi sagði um
árið: Þeirra tími mun koma.
Jóhann Pétur Malmquist
tölvuprófessor er 52 ára í
dag. Jóhann er bróður
Guðmundar Malmquist
sem var forstjóri
Byggðastofnunar um langt
árabil. Jóhann lauk B.S.-prófi I
stærðfræði og eðlisfræði frá Caroll
College, Wisconsin I Bandarikjunum,
Ph.D.-prófi I tölvuverkfræði frá
Pennsylvania State University og
stundaði framhaldsnám við
Pennsylvania Státe University.
Jóhann hefur verið prófessor við
Háskóla Islands frá 1985 og hefur
komið mikið við viðburðarika sögu
tölvuþróunar, tölvukennslu og
tölvuviðskipta hér á landi slðustu árin.