Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2001, Page 56
Subaru Impreza
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 2001
Eiginmanns íslenskrar konu saknað eftir hryðjuverkaárásina á New York:
Ólýsanleg sorg
- segir Kristján Ragnarsson, yfirlæknir og tengdafaðir Howards Boulton
„Hér ríkir djúp
og ólýsanleg sorg,“
sagði Kristján
Tómas Ragnarsson,
íslenskur læknir
sem búsettur er í
New York ásamt
eiginkonu sinni,
þegar hann ræddi
við DV í gær um
hörmungar undan-
farinna daga. Hann
gegnir starfi yfirlæknis á Mount
Sinai sjúkrahúsinu í New York. Eig-
inmanns Vigdísar, dóttur Kristjáns,
Howards Boulton, er saknað eftir að
hin hryllilegu hryðjuverk voru unn-
in á World Trade Center sl. þriðju-
dag. Hann vann á 84. hæð í syðra
turni byggingarinnar. Howard og
Vigdís eiga 7 mánaða gamlan dreng.
Heimili þeirra er mjög nærri World
Trade Center, eða á 4. stræti á Man-
hattan.
Kristján sagði atburði síðustu
daga af þvílíkum toga að þeir snertu
alla, hvar sem væri í heiminum.
Þeir snertu ekki síst Islendinga og
ef þeir fyndu á einhvern hátt að þeir
hefðu einnig átt fulltrúa í New
York, sem hefðu orðið fyrir hörm-
ungunum, þá væri það þess virði aö
ræða það á opinberum vettvangi. Á
þeim grundvelli kvaðst Kristján
reiðubúinn að segja sögu fjölskyldu
sinnar allt frá því að ógnir hryðju-
verkanna skullu á.
Sjá viðtal við Kristján Tómas
Ragnarsson á bls. 14 -JSS
Árni G. Sigurðsson, flugstjóri hjá Flugleiðum:
Algjör paník í
Bandaríkjunum
- ekki raunhæft að hafa vopnaða menn um borð
DV, MONTREAL:____________________
„Eg sé ekki fram á að það verði
vopnaðir verðir um borð eða stál-
veggir á flugstjómarklefunum,"
segir Ámi G. Sigurðsson, flugstjóri
hjá Flugleiðum um varnir gegn
flugræningjum. Árni flaug á
fimmtudag áleiðis til Bandaríkj-
anna en varð að snúa frá og lenda í
Montreal ásamt þremur öðrum
Flugleiðavélum. Fimmta vél Flug-
leiða sem lagði af stað vestur um
haf lenti í Winnipeg. Flugbann hef-
ur verið í bandarískri lofthelgi allt
síðan hryðjuverkin voru framin á
þriðjudag.
„Það er algjör paník í Bandaríkj-
um í framhaldi af þessum hrika-
""‘legu hryöjuverkum. Ég tel að
lausnin sé fólgin í því að efla örygg-
isgæslu á jörðu niðri. Að hafa
vopnaða öryggisverði í öllum flug-
vélum er alltof dýrt og flugfélög
rísa ekki undir því,“ segir Árni.
Hann segir að þrátt fyrir að ísra-
elar hafi ráð á að vera með vopn-
OV-MYNDIR ÞÖK
Ahöfnin
Árni G. Sigurösson, Kristinn F. Eiríksson og Magnea Erla Antonsdóttir, fyrsta
flugfreyja, við komuna til Montreal.
aða öryggisverði um borð i öllum
farþegavélum gangi það ekki upp á
íslandi.
„Það er mjög notalegt að leggja
við hlið þessarra véla á flugvöllum
en venjuleg flugfélög hafa ekki efni
á slíku,“ segir Ámi.
Sigurður Helgason, fyrrverandi
forstjóri Flugleiða, segist óttast að
sú tegund hryðjuverka sem sýndi
sig í sinni verstu mynd á þriðjudag
eigi eftir að endurtaka sig ef ekki
verði gripið til aðgerða. „Það sýndi
sig þegar hryðjuverkamennirnir
rændu fjórum flugvélum samtímis
að öryggismál eru alls ekki í nógu
góðu lagi,“ segir Sigurður.
Hann tekur í sama streng og
Ámi flugstjóri varðandi það að
ekki sé raunhæft að vera með
vopnað fólk um borð í flugvélum.
„Fyrst og fremst verður að taka á
öryggismálum á flugvöllum. Flugfé-
lög standa ekki undir kostnaði við
að hafa vopnaða menn um borð,“
segir Sigurður. • -rt
Gamli forstjórinn
Siguröur Helgason, fyrrverandi for-
stjóri Flugleiöa, á vellinum í Montreal.
Gírafinn kominn heim! dvaiynd gv
Kvikmyndatökumaöurinn Páll Reynisson tók í gær á móti gíraffa sem hann
veiddi á ferö slnni um Suður-Afríku. Gíraffmn var stoppaöur upp áöur en
hann kom hingað til lands og heldur Páll á hauskúpunni. Gíraffinn mun aö
líkindum veröa stofustáss hjá Páli en þess má geta aö hann er hátt í fimm
metrar á hæö.
Pattstaða uppi um fjárhagsvanda Landspítalans:
Engin rök í núverandi gjaldtöku
„Það er pólitísk ákvörðun
hvort tekið verði smágjald af
sjúklingum eða ekki en ef ein-
hver gjaldtaka er fyrir hendi yf-
irleitt þá verður hún að vera
rökrétt. Mér finnst ekki rökrétt
að nú sé viðhöfð gjaldtaka á
dag- og göngudeildum en ekki
hjá þeim sem leggjast inn.
Rekstur dag- og göngudeildar
er miklu ódýrari og þetta virk-
ar eiginlega öfugt. Við ættum
því frekar aö taka upp gjald á þeim
þætti sem dýrari er í rekstrinum,"
segir Guðný Sverrisdóttir, formaður
stjórnar Landspítalans.
Vantar samræmingu
Stjóm Landspítalans fund-
aði í fyrradag en ekkert nýtt
kom fram á þeim fundi um
leiðir til að rétta fjárhags-
vanda ríkisspítalanna af. Á
fundi stjórnar um síðustu
mánaðamót litu umdeildar
hugmyndir dagsins ljós um
aukna gjaldtöku en Jón
Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra hefur hafnað slíku al-
farið. Koma þau viðbrögð stjómar-
formanni Landspítalans á óvart í
ljósi fjárhagsstöðu spítalans?
„Nei, þau komu ekki á óvart en
mér finnst rök hníga að því að þetta
verði samræmt," segir Guðný en
útilokar ekki að málið verði tekið
upp á Alþingi þótt hún hafi að sjálf-
sögðu ekki um slíkt að segja.
Landspítalinn er að leita leiða til
að rétta af 250 milljóna króna halla
fyrstu sex mánuði ársins. Líklegt
má telja að hallinn muni halda
áfram þar sem fæstar tillögur
stjórnar um breytingar eru þannig
að árangur af þeim komi fram strax.
Guðný segir hins vegar að til langs
tíma litið sá hagræðingar að vænta,
ekki síst með aukinni samhæfingu
sérgreina. -BÞ
Jón
Kristjánsson.
Rafkaup
Ármúla 24 • S. 585 2800
Útiljós
Brother merkiuélin
Rafport
llú er unnt að
merhja alit á
heimillnu,
köhubauka,
spálur, shóla-
dðt, geista-
diska o.fl.
nýbgiauegi 14 » síml 554 4443 « H.ls/rafport