Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2001, Page 4
4
FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2001
Fréttir
I>V
Réttarhöld yfir manni, ákærðum fyrir tilraun til manndráps og alvarlega líkamsárás:
Neitar að hafa átt þátt
í hnífaárás viö Hróa Hött
- bræður bera eindregið sök á ákærða - kona horfði á hann kasta hnífi
Athygli vakti í Héraösdómi Reykja-
víkur í gær að ung kona, sem er vitni
ríkissaksóknara í alvarlegu líkams-
árásarmáli, bar aö maöur af alsírskum
uppruna, sem er ákærður fyrir tilraun
til manndráps fyrir utan Hróa Hött i
ársbyrjun, hefði reynt að hafa áhrif á
sig eftir að hún hafði borið kennsl á
hann hjá lögreglu í vor. Þar var bæði
átt við simhringingar í heimanúmer
hennar og GSM-síma í vor, auk þess
sem hún hefði fengið bréf sent heim til
sín í sumar sem hún telur vera frá
honum.
um fyrir utan Hróa Hött í Fákafeni og
henti hnífi að hinum bróðurnum við
innganginn að líkamsræktarstöðinni
Hreyfingu í Faxafeni stuttu síðar.
Þessu neitar ákærði alfarið, segist
hvorki hafa verið á staðnum né hafa
séð hnífinn sem lagður er fram í mál-
inu. önnur vitni en bræðurnir eru því
mikilvæg i málinu ef ákæruvaldinu á
að takast að sanna sök á ákærða. Fram
kom í réttarhaldinu 1 gær að fjölskyid-
ur bræðranna segjast hafa orðið fyrir
hótunum af hálfu ákærða bæði fyrir og
eftir árásina.
1!
Umrædd kona er í raun lykilvitni
ákæruvaldsins í málinu. Bæði hún og
móðir hennar óskuðu eftir, vegna eig-
in öryggis, að ákærði viki úr dómsaln-
um í gær á meðan þær gáfu skýrslu
fyrir fjölskipuðum dómi.
Ákærða er gefið að sök að hafa
ráðist á tvo bræður með hnífi þann 5.
janúar síðastliðinn, en bræðumir eru
af marokkóskum uppruna. Þeir segj-
ast báðir fullvissir um að það hafi
einmitt verið umræddur maður sem
stakk annan þeirra tveimur hnífslög-
Dramatísk atburðarás
Báðir bræðumir störfuðu á Hróa
Hetti á framangreindum tíma. Annar
þeirra var að fara út í bíl þegar maður
veittist að honum og stakk hann skyndi-
lega í vinstri síðu og háls. Hér var um
lífshættulega áverka að ræða. Bróðir
mannsins kom út, sá árásarmanninn,
sem hann bar kennsl á fyrir dómi í gær,
og elti hann að aðalinngangi Hreyfingar
við Faxafen 14. Náði hann að slá árás-
armanninn eitt högg en við það sneri
hinn sér við og henti hníf í áttina að
honum. Vék bróðirinn sér undan og
lenti hnífurinn í bíl.
Við Hróa Hött í Fákafenl
Annar bræðranna var stunginn tvisvar með hnífi á bílastæði fyrir utan staðinn
þegar maður kom skyndilega að honum og lagði til hans bæði í síðu og við háls.
DV-MYNDIR BRINK
Inngangurlnn aö líkamsræktarstaðnum Hreyfingu
Vitnum ber saman um að árásarmaöurinn hafí snúið sér viö og hent hnífnum
að hinum bróðurnum. Vék hann sér undan en hnífurinn lenti í bíl. Ung kona
sem var aö fara út á þessum stað segist viss um að sá sem kastaöi
hnífnum hafi verið ákærði í málinu.
Um þetta leyti vom framangreindar
mæðgur að koma út frá Hreyfingu.
Dóttirin bar síðar kennsl á árásarmann-
inn með því að benda á mynd af ákærða
hjá lögreglu. Hún kvaðst viss um að sá
væri rétti maðurinn, það er sá sem
bræðurnir bera sök á.
Þegar ákærði var spurður út f málið
i gær neitaði hann öllum sakargiftum -
kvaðst ekki einu sinni hafa verið á
staðnum. Á hinn bóginn sagðist hann
hafa nokkru fyrr verið á leið heim til
sín frá líkamsræktarstöð við Bolholt,
hafa skokkað eftir Suðurlandsbraut og
síðan heim til sín í Álfheima. Maðurinn
neitar því alfarið sök. Fyrir liggur hjá
lögreglu að bræðurnir hafa áður kært
ákærða og ákærði þá. Um það er hins
vegar ekki fjallaö í þessu sakamáli.
Vitni styðja framburð
bræðranna
í málinu hefúr fjöldi vitna mætt. Ekk-
ert þeirra hefur hins vegar getað borið
kennsl á ákærða nema konan unga.
Hins vegar hefur framburður annarra
vitna stutt það sem bræðumir bera,
meðal annars um hvar og hvemig
ákærði sneri sér við og henti hnif í ann-
an bræðranna, þaö er fyrir utan Hreyf-
ingu. Hinn gmnaði hljóp þar inn og
virtist hafa gufað þar upp því enginn
virðist hafa séð hann koma aftur út úr
húsinu. Þegar lögreglumenn fóm heim
til ákærða, talsvert síðar, var hann þar
en í talsvert öðmvísi fótum en þeim sem
vitni sögðu hann hafa verið í þegar
árásirnar tvær áttu sér stað.
Sá sem fyrir hnífstungunum varð
fékk alvarlegar stungur nálægt mikil-
vægum líffæmm. Hann náði sér engu að
síður að mestu tiltölulega fljótlega mið-
að við þá áverka sem hann hlaut. I saka-
málinu fer hann fram á að ákærði greiði
sér 1,5 milljónir króna í miskabætur en
bróðir hans fer fram á 400 þúsund krón-
ur. I ljósi þess að árásarmaðurinn hefur
ekki verið sviptur frelsi segjast báðir
bræðumir vera óömggir um sig í dag-
legu lífi og þurfi stööugt að hafa varann
á, enda hafi hótanir borist um að a.m.k.
öðrum þeirra verði banað. -ótt
Fimm innbrot
í austurborg-
inni í nótt
Fimm innbrot voru framin í
austurborginni í nótt og eru þau
öll til rannsóknar hjá rannsókn-
ardeild lögreglunnar.
í fjórum tilfellum var brotist
inn í fyrirtæki. í einu tilfellinu
sást til mannaferða en þjófurinn
komst undan, í öðru tilfelli var
maður handtekinn og í einu til-
fellinu var ökutæki stöðvað
nokkru síðar sem talið var að
gæti hugsanlega tengst innbrot-
inu.
Eitt innbrotanna var á heimili
og er óttast að þar hafi mestu
verið stolið, þótt ekki lægi fyrir
endanlega í morgun hversu mik-
ið hafi verið tekið og málið í
rannsókn eins og hin innbrotin.
-gk
Stríð og auður á Súfistanum dvmynd brink
Björn Bjarnason, menntamálaráöherra og Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor gefa báðir út bækur fyrir jólin
og í gærkvöldi kynntu þeir efni þeirra á Súfistanum. í hita kalda stríðsins er heiti bókar Björns og er um greinasafn
aö ræða um öryggis- og varnarmál landsins á tímum kalda stríðsins. Hannes Hólmsteinn teiknar hins vegar upp
vegvísi að auölegð þjóðarinnar í bókinni Hvernig getur íslands orðiö ríkasta land í heimi?. Nýja bókafélagið gefur
bækurnar út. Fjörugar umræöur urðu um skoðanir höfundanna í umhverfi bóka ogyfir rjúkandi kaffibollum.
Nýjar tillögur gera ráö fyrir að 5% fiskveiðiafla megi selja utan kvóta:
Smábátalögum breytt til að minnka brottkast
Einar K. Guðfinnsson, for-
maður sjávarútvegsnefndar,
kynnti í gær breytingartillög-
ur í 2. umræðu um stjórn
fiskveiða hjá smábátum. Ein
stærsta breytingin er að í
stað þess að bátunum sé leyft
að koma með 5% aflans utan
heimilda og fái 10 krónur fyr-
ir kílóið í félagi við útgerðina
verður samkvæmt breyting-
unni heimilt að koma með að
landi 5% alls afla á fiskveiðiári utan
kvóta. 20% verða greidd af markaðs-
verði fyrir þann afla og skiptist jafnt
milli útgerðar og sjómanna. Von er
til þess að þessi
breyting vinni mjög
gegn brottkasti, að
mati Einars.
Dæmi um aðrar
breytingar eru
svokölluð meðafla-
regla auk þess sem
opnað er á heimild
ráðherra um byggða-
potta til að bregðast
við staöbundnum
vandræðum. Meö frumvarpinu er
brugðist við breyttu umhverfi smá-
bátanna frá 1. september sl. þegar
afli þeirra var kvótasettur.
Jóhann Ársælsson
(Sf) sagði að með
smábátalöggjöfinni
væri síðustu veiði-
réttindunum skipt
milli útvaldra. Gífur-
legt ósætti væri um
máliö og tóku ýmsir
stjórnarandstæðing-
ar undir þau orð.
Hins vegar lýsti Jó-
hann ánægju með
þær aðgerðir sem fyrr er getið og
eru taldar hamla gegn brottkasti.
Lengra hefði þó mátt ganga að mati
þingmannsins.
Ekkert verður af frum-
varpi um endurskoðun
fiskveiða fyrir jól eins og
sjávarútvegsráðherra hafði
áður boðað. Það kom fram
í umræöunum í gær og gaf
Árni Mathiesen þá skýr-
ingu að of skammt væri
síðan samstarfsflokkur
Sjálfstæðisflokksins, Fram-
sóknarflokkurinn, hefði
lokið sinni forvinnu um
málið til að fyrri tímaáætlun
héldist. Hann sagðist vonast til að
geta lagt málið fram á vorþingi.
-BÞ
Árni
Mathlesen.
Elnar K.
Guðfinnsson.
, Jóhann
Ársælsson.
1 Sólargartgur o '£ £fjíl/lL/ÍÍjJJ
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 15.31 14.45
Sólarupprás á morgun 11.14 11.30
Siödegisflóó 17.24 21.57
Árdegisflóö á morgun 05.51 09.48
Hvasst
Viövörun: Búist er viö stormi (meira
en 20 m/s) á miöhálendinu í kvöld.
S og SA 8-15 m/s en 10-18 í
kvöld, hvassast vestan til. Dálítil
súld viö suður- og vesturströndina
en bjartviöri á Norður- og
Austurlandi. Fremur hlýtt áfram.
Hlýtt í veðri
Sunnan og suövestan 5-13 m/s.
Súld eöa dálítil rigning sunnan- og
vestanlands en léttskýjaö á
Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 5 til
10 stig.
Veöriö
Laugardagur Sunnudagur Mánudagur
Hiti 5°
til 10°
Hiti 5°
tii 10°
Vindur: Vindur: Vindur:
5-13 "V* 5-13'"/* 5-11 m/s
t t
S og SV 5-13 S og SV 5-13 Vestlæg átt.
m/s. Súld syöra, m/s. Súld syftra, Þurrt
léttskýjaö léttskýjaö austanlands,
nyröra. Htti 5-10 nyröra. Hiti 5-10 væta annars
stig. stig. staöar. Httl 2 tll
8 stlg.
Vindhraöi
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinningsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviöri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveöur 28,5-32,6
Fárviöri >= 32,7
Veðriö
AKUREYRI skýjaö 9
BERGSSTAÐIR alskýjað 8
BOLUNGARVÍK skúr 10
EGILSSTAÐIR léttskýjaö 6
KIRKJUBÆJARKL. þoka í grennd 6
KEFLAVÍK þokumóöa 9
RAUFARHÓFN léttskýjaö 4
REYKJAVÍK súld 9
STÓRHÖFÐI þokumóða 8
BERGEN léttskýjað -0
HELSINKI snjókoma -3
KAUPMANNAHÖFN alskýjaö 1
ÓSLÓ þoka -5
STOKKHÓLMUR tiokumóða 1
PÓRSHÖFN skýjaö 7
ÞRÁNDHEIMUR súld 2
ALGARVE rigning 12
AMSTERDAM þokumóöa 4
BARCELONA heiöskírt 2
BERLÍN hálfskýjaö -3
CHICAGO rigning 8
DUBLIN þokumóöa 7
HALIFAX alskýjaö -3
FRANKFURT skýjaö 3
HAMBORG súld 2
JAN MAYEN léttskýjað -0
LONDON alskýjaö 7
LÚXEMBORG skýjaö 2
MALLORCA léttskýjaö 2
MONTREAL alskýjaö 3
NARSSARSSUAQ snjókoma -4
NEWYORK alskýjaö 8
ORLANDO heiðskírt 19
PARÍS hálfskýjaö 3
VÍN skýjaö -8
WASHINGTON súld 8
WINNIPEG heiöskírt -18