Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2001, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2001
Fréttir
DV
Samningur aðila vinnumarkaðar um verðbólgu miðar við litla verðhækkun:
Fimm mánuðir undir
afar lágu rauðu þaki
- vísitala neysluverðs nú þegar aðeins þrjú vísitölustig frá rauðu striki
„Vitaskuld eru þetta metnaðarfull
markmið, en metnaðarfullar breytingar
eru jú tilgangurinn með þessu öllu sam-
an,“ sagði Grétar Þorsteinsson, forseti
ASÍ, við DV í gær um þá einkunn sem
Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhags-
stofnunar, gaf tilraun aðila vinnumark-
aðarins og ríkis-
stjómarinnar við
að ná niður verð-
bólgu og vöxtum,
þannig að ekki
þurfi að koma til
uppsagnar launa-
liðar samninga í
febrúar. Þórður
talaði um það í
DV í gær að þetta væm metnaðarfull
markmið þar sem gert væri ráð fyrir
minni verðbólgu en flestir þeir sem til
þessa hafa verið að spá um verðbólgu-
horfumar hefðu búist við. Markmið að-
gerðarpakkans nú er að halda vísitölu
neysluverðs innan við 222,5 stig í maí
2002 þannig að verðbólga innan næsta
árs verði um 3%. Samkvæmt endur-
skoðaðri spá Þjóðhagsstofnunar er gert
ráð fyrir því að neysluverðsvísitalan
verði 225 stig i maí. „I síðustu Þjóðhags-
spá, sem sé sá frá Þórði, var gengið út
frá 3,5% verðbólgu á næsta ári og þá var
gengið út frá einhveiju sem heitir
óbreytt ástand - þ.e.a.s. að ekkert tillit
er tekið til þeirra aðgerða sem við erum
að tala um að gripið verði til í okkar til-
lögum,“ segir Grétar Þorsteinsson.
„Sannleikurinn er hins vegar sá að
þetta „óbreytta ástand" er ekki til,“ seg-
ir hann og bendir enn fremur á að þró-
unin geti bmgðið til tveggja átta, að
annaðhvort geri menn eitthvað í málun-
um eða allt fari úr böndunm.
0,5% hækkun í gær
Vísitala neysluverðs fyrir desember
var birt í gær og mælist 219,5 stig, sem
er um 0,5% hækkun frá því í síðasta
mánuði. Síðustu 12 mánuði hefur vístal-
an hækkað um 8,6% og undanfama þrjá
Birgir
Guðmundsson
fréttastjóri
mánuði hefur vísitalan hækkað um
1,5% sem jafngildir 6,1% verðbólgu á
heilu ári. Verðbólgan er þannig á greini-
legri niðurleið. Engu að síður er hækk-
un vísitölunnar nú umtalsverð og verð-
bólgustigið mun hærra en í nágranna-
löndum okkar. Miðað við þau markmið
sem sett em i
vinnunni um hinn
nýja efnahags-
pakka vantar ein-
ungis 3 visitölustig
upp á að vísitalan
sé komin upp í
rauða strikið sem
dregið er við 222,5
stigin. Til saman-
burðar má geta þess að síðustu þrjá
mánuði hefur vísitalan hækkað sem
nemur þessum þremur stigum og rúm-
lega það, en i september var vísitalan
216,3 stig og hefur hækkað um nálægt
einu stigi á mánuði síðan. Spurður
hvort þessi nýja vísitala hafi ekki skot-
ið samningamönnum skelk i bringu seg-
ir Grétar Þorsteinsson svo ekki hafa
verið. „Hún setur ekki strik í reikning-
Formannafundur
Á formannafundi ASÍ kom fram að engin umbylting væri í spilunum önnur en
sú sem aðllar vinnumarkaðarins myndu standa fyrir sjálfir.
inn því við vomm nokkuð meðvituð um
hver breytingin myndi verða. Og það
kom raunar fram á formannafundi okk-
ar fyrr i vikunni að það væri nú m.a.
Húsbréf
Innlausn
húsbréfa
Frá og með 15. desember 2001 hefst innlausn á
útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum:
Vísitalan
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,5% í gær en hefði miðað við óbreytta
mælingaraðferð átt að hækka nokkuð meira.
vegna þess og það hefði ýtt enn frekar
við okkur að menn stæðu frammi fyrir
áframhaldandi óheillaþróun og að nýjar
mælingar myndu ekki boða neinn við-
snúning. í mínum huga styður þetta
enn frekar mikilvægi þess að málið
gangi eftir," segir Grétar.
4. flokki 1992 - 32. útdráttur
4. flokki 1994 - 25. útdráttur
2. ftokki 1995 - 23. útdráttur
1. og 2. flokki 1998 - 14. útdráttur
Innlausnarveróið er að finna í Morgunbtaðinu
fimmtudaginn 13. desember.
Innlausn húsbréfa fer fram hjá íbúðalánasjóði, i bönkum,
sparisjóðum og verðbréfefyrirtækjum og liggja þar einnig
frammi upplýsingar um útdregin húsbréf.
íbúðalánasjóður
Borgartúni 21 [ 105 Reykjavík | Sími 569 6900 | Fax 569 6800
Lágt þak rauða striksins
Eins og áður segir er leiðin upp í
rauða strikið orðin stutt, einungis þrjú
stig milli vísitölunnar sem i gær mæld-
ist 219,5 og upp í þakið sem sett hefur
verið við 222,5 stig í maí. Þetta þýðir um
1,4% hækkun á 5 mánuðum! Augljós-
lega má ekki mikiö út af bera til að þetta
metnaðarfulla markmið náist og að
glíman við verðbólgudrauginn verði
háð undir afar lágu þaki hins rauða
striks. Þá hækkun sem varð á vísitöl-
unni sem birtist í gær má að miklu leyti
rekja til gengisþróunar sem hækkað
hefúr verð á innflutningi. Ljóst er að
gengissigið gæti hugsanlega stöðvast
við þessar aðgerðir, enda sýnir styrking
krónunnar að markaðurinn hefur trú á
ýmsum þeim aðgerðum sem verið er að
ræða um. Hins vegar hefði vísitalan
hækkað meira í gær ef ekki hefði kom-
ið til ný aðferð við að mæla hana. Versl-
unarvogin var leiðrétt til að koma til
móts við það að neytendur versla nú í
meira mæli en áður þar sem verð er til-
tölulega lágt án þess að þjónustustig
hafi breyst til muna. Ekki hefur verið
tekið tillit til þessa í vísitölunni og þvi
hafa verðbreytingar í dagvöruverslun
verið ofmetnar að undanfómu. Eflir
þessa breytingu kemur þetta hins vegar
fram i þvi að vísitalan er 0,27% lægri en
hún annars hefði verið.
Grænmetislækkun
Meðal þeirra aðgerða sem verið er að
tala um að grípa til í tengslum við efna-
hagspakka aðila vinnumarkaðarins er
aukið aðhald og verðlagseftirlit þar sem
fylgst væri með því að ávinningur af
gengisstyrkingunni skilaði sér inn i
verðlagið. Jafnframt er verið að ræða
um tollabreytingar á innfluttu græn-
meti sem gæti skilað sér í lægra vöru-
verði. Samkvæmt upplýsinum frá Hag-
stofunni vegur matarkarfan í heild
sinni tæp 17% í vísitölunni í heild og
grænmetið eitt og sér um 1,2% af heild-
arvísitölunni. Grænmetishækkunin
gæti þannig skipt máli þegar leiðin upp
i rauða strikið er ekki lengri en raun
ber vitni. Þannig má taka sem dæmi að
inni í vísitölunni sem birt var í gær var
um 30% lækkun á tómötum sem skilaði
sér í 0,03% lækkun á vísitölunni. Aðrir
stórir liðir í vísitölunni eru bíllinn sem
er ábyrgur fyrir um 16% í heildarvísi-
tölunni og húsnæðiskostnaður sem er
rúmlega 18% vísitölunnar. Þegar menn
eru aö vinna undir jafn lágu þaki og
rauða strikið setur verðlagsþróuninni
geta hinnar minnstu hreyfingar á þess-
um liðum skipt verulegu máli, annað-
hvort til hækkunar eða lækkunar.
Hækkun um áramót
í þessu sambandi er rétt að vekja at-
hygli á því að nú þegar liggja fyrir
ákvarðanir sem augljóslega munu setja
þrýsting á þetta markmið. I fyrsta lagi
liggur fyrir samþykkt um 7% hækkun
afnotagjalda RÚV sem tekur gildi um
áramótin og gæti þýtt um 0,07% hækk-
un vísitölunnar í heild. Þá liggur fyrir
að um áramót mun mjólkin hækka um
6,5% að meðaltali sem gæti þýtt eitthvað
um 0,18% hækkun vísitölunnar í heild.
Þá er einnig ljóst að ýmsar þær gjald-
skrárhækkanir sem tengjast bandorm-
inum munu hafa áhrif til hækkunar
vísitölunnar, s.s. aukin þátttaka sjúk-
linga í lyQakostnaði, komugjöld til sér-
fræðinga og svo skólagjöld. Bifreiða-
gjöldin sem hækka um 10% um áramót-
in munu hins vegar engin áhrif hafa því
Hagstofan flokkar þau sem skatt og
skattar eru ekki inni í vísitölunni. Loks
má nefna að viðurkennt er að gengis-
áhrifm skila sér ekki samstundis inn í
verðlagið og getur þar verið tímamunur
upp í allt að 2 mánuði þar til áhrifrn
koma að fullu fram. Þannig er óvist að
verðlagsáhrif gengisstyrkingar á vor-
inánuðum verði búin að skila sér sem
skyldi í mai.
Eina leiðin
Ljóst er því að með því samkomulagi
sem náðist í gær er verið að tefla til sig-
urs úr mjög þröngri stöðu. Markmiðið
er metnaðarfullt eins og forseti ASÍ og
forstjóri Þjóðhagsstofhunar hafa lýst, en
eins og Grétar Þorsteinsson orðaði það
þá er ekkert til sem heitir óbreytt
ástand og i því ljósi hafi ekki verið um
neina aðra leið að ræða fyrir aðlia
vinnumarkaðarins og ríkisstjómina.
Costgosvindlið:
85 höfðu
greitt fyrir
listann
- rannsókn lokið
Rannsókn á
Costgo-vörulista-
málinu svo-
nefnda er nú á
lokastigi. Að
sögn lögreglunn-
ar í Reykjavík
hefur rannsóknin
leitt í ljós að 85
höfðu greitt fyrir
pöntunarlistann.
Fólk greiddi
fimm þúsund krónur fyrir listann
og fékk forsvarsmaður Costgo, Goði
Gunnarsson, því 425 þúsund krónur
inn á reikning Costgo. Goði kom
fram í fjölmiðlum og boðaði sölu
ýmis konar heimilistækja á lágu
verði en til þess að geta keypt
þurftu menn fyrst að fjárfesta í
vörulistanum, sem reyndar enginn
fékk nokkru sinni að sjá.
Við rannsóknina lagði lögreglan
hald á megnið af fyrmefndri fjárhæð
og þegar hefur verið haft samband
við meirihluta greiðenda og verður
hlutfallslegri upphæð skilað til hvers
og eins á næstu dögum. Fjártjón þess-
ara 85 einstaklinga er því að mati lög-
reglunnar óverulegt. -aþ
Goði
Gunnarsson.
Friðarsamkoma:
Fulltrúar
6 trúarbragða
biðja fyrir friði
í ljósi þeirra hörmunga sem yfir
heimsbyggðina hafa dunið á siðustu
mánuðum hefur verið ákveðið að
halda friðarsamkomu í Kaplakrika i
Hafnarflrði laugardaginn 15. desem-
ber klukkan 14. Forseti íslands,
Ólafur Ragnar Grímsson, flytur
ávarp á samkomunni.
„Það er von okkar að saman safn-
ist stórir hópar fólks, síbúa og ný-
búa hér á íslandi. Því hvar svo sem
við stöndum i trúarbrögðum eða
menningu höfum við það sameigin-
legt að vilja lifa í friði,“ segja að-
standendur friðarsamkomunnar,
þær Esther Helga Guðmundsdóttir,
Hólmfríður Árnadóttir og Sigurlaug
Guðmundsdóttir. Á samkomunni
munu fulltrúar sex mismunandi
trúabragða, kristni, íslam, búdda-
trúar, hindí, ásatrúar og bahá’í,
koma fram, einn í senn, og flytja
stutt ávarp og bæn um frið.
„Við sem störfum að söng og tón-
listarmálum gerum okkur grein fyr-
ir hvílíkt afl býr í samhljómi stórra
hópa. Við viljum virkja þetta afl og
freista þess að safna saman sem
flestum ásamt kórfólki og öðru tón-
listarfólki sem væri leiðandi á þess-
ari samkomu," segja frumkvöðlar
samkomunnar.
DVIÚYND SÆDÍS HELGA GUÐMUNDSDÖTTIR
ÁTVR í Grundarflrði.
Fá vínbúö:
Áttatíu sortir í
boði hjá Maríu
Grundfirðingar þurfa ekki að
sækja jóla- og áramótaveigarnar til
næsta bæjar því fyrir skömmu opn-
aði ÁTVR vínbúð í bænum í sam-
starfi við verslunina Maríu. Vín-
búðin, sem er svokölluð áttatíuteg-
unda búð, er til húsa að Hrannar-
stíg 3 og verður opin sex tíma í
viku: alla virka daga á milli kl. 17
og 18 nema fóstudaga, en þá er opið
frá 16-18. -DVÓ/SHG