Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2001, Síða 13
FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2001
13
DV
Útlönd
Sportvörugerðin
Skipholti 5, s. 562 8383
Heitur og þurr
Tveggja laga spunatækni
flytur rakann frá líkama-
num og heldur þér heitum
og þurrum.
Uppgjafarfresturinn í Tora Bora framlengdur:
Reynt aö fá óbreytta liðsmenn
til að framselja foringja al-Qaeda
Pia vill
Pia Kjærsgaard, leiðtogi Danska
þjóðarílokksins, segir að ný ríkis-
stjórn Anders Foghs Rasmussens
verði að læra að taka flokk hennar al-
varlega. Þetta er niðurstaða hennar
eftir fyrstu vikurnar sem stuðnings-
flokkur ríkisstjórnar Venstre og
íhaldsflokksins.
Danski þjóðarflokkurinn, sem fékk
22 menn kjörna í kosningunum i síð-
asta mánuði, getur tryggt ríkisstjórn-
inni þann meirihluta sem hún þarf til
að koma málum í gegn um þingið. En
flokkurinn vill ekki bara vera eins
konar trygging fyrir stjórnarflokkana.
Pia vill að hlustað verði á flokk henn-
ar, sem hafði andstöðu við útlendinga
sem helsta baráttumál sitt í kosning-
unum, hann tekinn alvarlega og að
hann fái önnur og meiri áhrif en áður.
„Staðan er allt önnur. Kosningaúr-
slitin eru jú klár og menn verða að
hafa það í huga,“ segir Pia Kjærs-
gaard í viðtali við danska blaðið
Jyllands-Posten í morgun.
?* 10 ára ábyrgð
?*■ 12 stærðir, 90 - 500 cm
f* Stálfótur fylgir
f* Ekkert barr að ryksuga
f* Truflar ekki stofublómin
f* Eldtraust
f* Þarf ekki aó vökva
fe íslenskar leiðbeiningar
f* Traustur söluaðili
f* Skynsamleg fjárfesting
^rti<spb®kk® 2
Smámlin^ 1. taS vl® D#b@nhnnn§
Bondalag islenskra skóta
lata taka sig alvarlega
Fiokkurinn hefur verið ófeiminn
við að hafa aðrar skoðanir en stjórn-
arflokkarnir, til dæmis í málum sem
snerta sjúkratryggingar og lengingu
fæðingarorlofs.
Pia Kjærsgaard sér fyrir sér að
Danski þjóðarflokkurinn muni ná
þýðinarmiklum árangri með ríkis-
stjórninni en útilokar ekki að flokkur-
inn skipi sér í lið með öðrum í til
dæmis félags- og heilbrigðismálum.
Liðsmönnum al-Qaeda hryðju-
verkasamtaka Osama bin Ladens,
sem enn hafast við á afmörkuðu
svæði í fjallendi Tora Bora í austur-
hluta Afganistans, var í gær boðinn
nýr uppgjafarkostur eftir að hafa
hunsað þann fyrri sem rann út í gær-
morgun. Sex manna samninganefnd
embættismanna af Nangarhar-svæð-
inu var send til viðræðna við al-Qa-
eda-liðana í gær og sagði Hazrat Ali,
foringi í her Norðurbandalagsins, að
nýja tilboðið fæli það í sér að óbreytt-
ir liðsmenn samtakanna framselji
Osama bin Laden og Mullah Omar
ásamt tuttugu öðrum foringjum, sem
kennsl hafa verið borin á sem alþjóð-
lega hryðjuverkamenn, og átti frestur-
inn að renna út seinni partinn í dag.
Samkvæmt óstaðfestum heimildum
var al-Qaeda-liðunum í staðinn heitið
frelsi en óvíst hvort tilboðiö var lagt
fram með samþykki Bandaríkja-
manna sem hingað til hafa krafist
handtöku allra al-Qaeda-liða til að
hægt verði að sækja þá til saka.
Að sögn al-Jazeera sjónvarpsstöðv-
arinnar í Qatar voru það aðeins
afganskir al-Qaeda-liðar sem sam-
þykktu fyrra uppgjafartilboðið en
ekki þeir arabísku.
Ekkert hefur spurst til Osama bin
Ladens síðustu daga og er haft eftir
fyrrum nánum samstarfsmanni hans
að hann hafi flúið yfir til Pakistans
fyrir tíu dögum síðan með nánustu
samstarfsmönnum sínum og hafi liðs-
menn pastúna aðstoðað hann við flótt-
ann. Aðrar heimildir sem hafðar eru
eftir öðrum nánum samstarfsmanni
bin Ladens segja að hann og nánustu
samstarfsmenn hans, þeir Sulaiman
bu Ghaith og Abu Hafs, berjist enn
með lismönnum sínum í fjalllendi
Tora Bora.
Bandarísk yfirvöld eru þó á því að
bin Laden sé ennþá í Afganistan en að
sögn Ari Fleischers, talsmanns Hvíta
hússins, hefur ekki verið hægt að slá
neinu föstu um dvalarstað hans. „Ef
við vissum það hefðum við þegar
handtekið hann,“ sagði Fleischer.
REUTER-MYND
Eftir dómsuppkvaðninguna
Foreldrar myrtu stúlkunnar Söruh
Payne ræöa við fréttamenn eftir aö
moröingi stúlkunnar hlaut dóm.
Lífstíðarfangelsi
fyrir stúlkumorð
Liðlega fertugur breskur verka-
maður, Roy Whiting, var dæmdur í
lífstíðarfangelsi í gær fyrir að ræna
og síðan myrða átta ára gamla
skólatelpu, Söruh Payne, í júli í
fyrra. Dómarinn mælti með því að
Whiting fengi aldrei aftur að fara
frjáls ferða sinna.
Whiting var handtekinn eftir
margra mánaða leit lögreglu að
sökudólgnum. Hann lýsti yfir sak-
leysi sínu fyrir rétti. Hann hafði áð-
ur setið inni fyrir alvarlegan kyn-
ferðisglæp gagnvart barni en verið
sleppt áður en afplánun lauk.
Sarah Payne hvarf þegar hún var
að leika sér með systkinum sínum
skammt frá heimili ömmu sinnar og
afa. Nakið lík hennar fannst tveim-
ur vikum síðar, 25 kílómetra frá
þeim stað þar sem síðast sást til
hennar. Þegar dómarinn kvað upp
dóminn sagði hann Roy Whiting
vera martröð allra foreldra lifandi
komna.
Jonatan Motzfeldt
Grænlendingar vilja að stórveidin
vinni áfram saman aö afvopnun.
Grænlendingar
harma örlög ABM
Jonathan Motzfeldt, formaður
grænlensku heimastjórnarinnar,
segir Grænlendinga harma að Geor-
ge W. Bush Bandaríkjaforseti hafi
ákveðið að segja upp svokölluðum
ABM gagnflaugasamningi við
Rússa. Bush tilkynnti leiðtogum á
Bandaríkjaþingi i gær að hann
hefði ákveðið að falla frá ABM.
1 samtali við dönsku fréttastofuna
Ritzau leggur Motzfeldt áherslu á að
ABM-samningurinn skuli áfram
vera i gildi ef herstöð Bandaríkja-
manna í Thule eigi að vera hluti
fyrirhugaðs eldflaugavarnarkerfis.
„En ég geri mér vonir um að stór-
veldin tvö haldi samvinnu sinni
áfram og komist að nýjum afvopn-
unarsamningi. Það er mikilvægt
fyrir ojckur að kalda stríðinu ljúki
og að stórveldin vinni sarnan," seg-
ir Jonathan Motzfeldt.
REUTER-MYND
Pia Kjærsgaard
Leiötogi Danska þjóöarflokksins
tetur aö danska ríkisstjórnin eigi aö
taka flokk hennar alvarlega.
Sígræna jólatréð
— ÆÍW dw eptw
Sígraent eðaltré í hæsta gaeðaflokki frá
skátunum prýðir nú þúsundir íslenskra heimila.
-
REUTER-MYND
Múrsteinum safnaö saman
Hinn sex ára gamli Zabi safnar saman múrsteinum í lítitli múrsteinsfabrikku nærri flugvellinum í Kabúl, höfuðborg
Afganistans, þar sem hann vinnur. Barnavinna er mjög útbreidd í Afganistan þar sem áratugalöng átök, langvinnir
þurrkar og önnur óöld hafa valdiö því aö landið er eitt hið fátækasta í heiminum.
Beöið eftir svari al-Qaeda liða
Liðsmönnum at-Qaeda samtaka Osama bin Ladens hefur veriö gefinn frestur
til klukkan 15.00 í dag til aö leggja niöur vopn oggefast upp. Að öörum
kosti veröi þeir aö taka afleiöingunum.