Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2001, Side 24
40
FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2001
néiiiilif
tölvui tfkni og vísinda
Vefsvæði uppfært
hvar og hvenær sem er
- meö upplýsingakerfinu SOLO frá Capio AB
Tölvu og hug-
búnaðarfyrir-
tækið Capio AB
í Uppsölum, Sví-
þjóð, sem er í ís-
lenskri eigu,
markaðssetur
þessa dagana upplýsingakerfið SOLO.
Markmiðið með kerfinu er að einfalda
skipulagningu og markvissa dreifingu
á rafrænum upplýsingum fyrirtækja,
stofnana eða opinberra aðila um vör-
ur sínar eða þjónustu. Kerfið minnkar
þörfina á sérhæfðu tæknifólki og
dregur þar með úr kostnaði. Það gerir
eiganda upplýsinganna kleift að sjá
sjálfur um sitt vefsvæði á hraðvirkan
og markvissan hátt, án mikillar tölvu-
kunnáttu.
Kerfi í þremur einingum
Kerfið samanstendur af þremur
grunneiningum; Síðustjórnun (Site
Management), Ritstjórn (Newsdesk)
og Fréttabréf (Newsletter). Fyrsti hlut-
inn hefur með uppfæringar og skipu-
lagningu á síðum vefsvæða að gera og
er síðum vefsvæðisins skipað upp í
graflsku viðmóti þar sem allar breyt-
ingar uppfærast samstundis. Innihald
ÚílJJííðiJ/
■'A
TMJEWSOESK
Piage Jtsttng
■iVaiEjai:
U O l'^grlC I I □ □ NCrt-ott-d □ uuflor O V*v$ni ImL
" k s iazs&ss ;
*j & Í Pía-ÍOS-Af- 3 ’Mí-iWi **<
í ki s* tíxútc !
~3F~3ii
Notendaviömót SOLO er haft einfalt þannig að ekki þarf mikla tölvukunnáttu til aö upp-
færa efni á heimasíður eða setja saman fréttabréf. Hér gefur að líta Ritstjórnarhluta
SOLO.
unni á fyrir fram ákveðn-
um stað. Einnig er mögu-
legt að setja inn allar
helstu tegundir hljóð- og
myndskjala. Lendir þetta
efni á þar til gerðu svæði á
vefnum, t.d. fyrir miðjum
skjánum eða e-ð slíkt.
I fréttabréfshlutanum fæst
stjórnandi vefsins við að
hafa samskipti við við-
skiptavini á markvissan
og hraðvirkan hátt. Mót-
takandi fréttabréfa í tölvu-
pósti fær aðeins þær upp-
lýsingar, og tengla þeim
tengda, sem hann hefur
látið í ljósi áhuga á að fá.
Kerfið er sniðið að þörfum
hvers fyrirtækis fyrir sig
þar sem upplýsingaþarflr
fyrirtækja eru mismun-
andi.
síðanna er skrifað í þessum hluta og
allskyns myndefni (ljósmynd-
ir/hreyfimyndir) settar með eftir þörf-
um.
I ritstjómarhlutanum er um að
ræða textavinnslu á fréttum/upplýs-
ingaefni, sem kerfið síðan uppfærir
sjálfvirkt og kemur fyrir á heimasíð-
Ferskt flæði upp-
lýsinga
Notandi SOLO getur unnið hvar og
hvenær sem er, óháð tíma og rúmi.
Það eina sem þarf er aðgangur að Net-
inu, t.a.m. heima, á hótelherbergi eða
Noiandi SOLÖ getur
unnið hvarog hvenær
sem ert: óháð tíma og
rúmt Það etna sem
'þarí er aðgangur að
Netími, t&mi heima, á
hótefherbergi eða nei-
kaffíhúsi Þá ræður
notandínn hvort upp-
iýsingarnar fara á vef
innan fy rirtækisms eða
utan þess, þ.e. hið op-
mhera vefsvæðL
netkaffihúsi. Þá ræður notandinn
hvort upplýsingarnar fara á vef innan
fyrirtækisins eða utan þess, þ.e. hið
opinbera vefsvæði. Með þessu móti er
hægt að halda fiæði upplýsinga
stöðugt fersku, bæði til starfsmanna
og viðskiptavina. Þetta er þó háð því
að til staðar séu ákveðin lokuð svæði
á vefsvæðinu og er sem aukaval í
pakkanum.
SOLO hvílir á gagnagrunni og styð-
ur bæði Windows 2000 og Unix/Linux
stýrikerfi. Kerflð krefst ekki eigin vef-
þjóns og hægt er að setja það upp á
þeim vefþjóni sem kaupandinn velur.
Því er hægt að setja það upp á hvaða
vefhóteli sem er. í Windows er not-
endaviðmótið hannað i ASP (Active
Server Pages) og í Unix/Linux í PHP
(Hypertext Preprocessor). Einnig er
hægt að hnýta við kerfið bókunar-
kerfi og greiðslukerfi fyrir greiðslu-
kort svo eitthvað sé nefnt.
Mótefni úr kamel-
dýrum í menn
Vísindamenn
frá Sameinuðu
arabísku fursta-
dæmunum hafa
lagt til að farið
verði að rann-
saka hvort ekki megi vinna mótefni
gegn ýmsum sjúkdómum sem hrjá
menn úr kameldýrum. Skip eyði-
merkurinnar, eins og kameldýrin
hafa gjarnan verið nefnd, eru ein-
hver harðgerðustu spendýr sem lifa
á jörðinni. Þau geta lifað án vatns í
langan tima, sem og án matar, og
mjólk þeirra geymist mun lengur en
mjólk annarra spendýra.
Dr. Sabah Jassim, sem stjórnar
hópi vísindamanna sem nú ætla að
hefja rannsóknir í þessum efnum,
segir að þau þoli m.a. marga veiru-
sjúkdóma og að mögulegt sé að nýta
vamir dýranna tíl hjálpar mönnum.
Þau eru t.d. ónæm fyrir gin- og
klaufaveiki og fleiri veirusjúkdóm-
um. Að sögn dr. Jassims er upp-
bygging mótefna kameldýranna
mjög einföld, mun einfaldari en
manna, og með rannsóknum sé
möguleiki á að nýta þau sem
mótefni handa mönnum. Helsti
kosturinn við þetta er að sameindir
mótefnanna eru mjög smáar og geta
því dreift sér f jafnvel minnstu
frumur. Rannsóknir á þessum
möguleika eru rétt að hefjast og því
enn langt í land með að sannreyna
þessa kenningu.
Yfirleitt tengja óvanir sjóveiki viö skip eyöimerkurinnar, eins og kameldýr
hafa oft verið nefnd, en svo viröist sem þau geti nú bjargað fólki frá sjúk-
dómum í framtíðinni.
|
Forsvarsfólk ANZA hf. og fasteignafélagsins Hús.is skrifar undir samning
um hýsingu ANZA á fasteignavefnum www.hus.is.
Falar fasteignir
á einu vefsvæði
Fasteignafélagið
hús.is og ANZA
hf. undirrituðu
fyrir stuttu
samning um hýs-
ingu á fasteigna-
vefnum hus.is
sem er miðlægur upplýsingamiðill
fyrir fasteignasölur. Fasteignasölurn-
ar Ásbyrgi, Bifröst, Fasteignamarkað-
urinn og Fasteignamiðlun, sem að
þessu standa í byrjun, munu tengjast
gagnagrunninum yfir Netið. Gagna-
grunnurinn er í eigu þessara fast-
eignasala og hugbúnaðarhússins
Kuggs og er ætlað að vera leiðandi á
íslenskum fasteignamarkaði. Viðræð-
ur standa yflr við fleiri fasteignasölur
um að tengjast grunninum. ANZA hf.
rekur upplýsingakerfi fjölmargra fyr-
irtækja og hýsir heil upplýsingakerfi,
auk einstakra gagnagrunna og vefja
fyrir viðskiptavini sína.
Hér er um að ræða nýjung á fast-
eignamarkaði sem ætti að vera til
mikils hagræðis bæði fyrir kaupend-
ur og seljendur fasteigna. Þær eignir
sem skráðar verða til sölu hjá einni
hinna framangreindu fasteignasala
verða jafnóðum skráðar í. gagna-
grunninn og boðnar til sölu hjá öllum
hinum fasteignasölunum sem tengjast
gagnagrunninum. Þetta ætti að flýta
fyrir sölu eigna þar sem fleiri vinna
að því að selja þær, þó svo að þær séu
aðeins skráðar til sölu á einni af þeim
fasteignasölum sem aðild eiga að
gagnagrunninum.
Upplýsingamiðillinn hus.is hefur
að geyma skráðar eignir allra þeirra
fasteignasala sem honum tengjast og
ætti það að auðvelda kaupendum að
flnna réttu eignina þannig að þeir
þurfi ekki að leita langt yfir skammt.
Vefslóðin er www.hus.is og er áætl-
að að taka grunninn og vefinn í notk-
un í byrjun árs 2002.
Þráðlaus fjarskipti hundrað ára
í gær, 12. desem-
ber, var haldið
upp á hundrað
ára afmæli þráð-
lausra fjarskipta
á jarðarkringl-
unni. Tólfta des-
ember fyrir hundrað árum stóð Gugli-
elmo Marconi á Signal Hill (í. Merkja-
hæð) á Nýfundnalandi og tók við
morsmerkinu S (þrjú stutt) sem sent
var með uppfinningu hans gegnum
loftið frá Cornwall í Englandi í um
2700 kílómetra fjarlægð.
í tilefni af þessum tímamótum
sendi barnabarn Marconis og alnafni,
Guglielmo Marconi, sama skeyti frá
Cornwall til Signal Hill klukkan ná-
kvæmlega fjögur síðdegis sem er sami
tími og Marconi eldri tók við sínu
skeyti. Verkfræðingar í Konunglega
breska sjóhernum settu saman fyrir
þetta tilefni nákvæmlega eins búnað
og Marconi gerði á sínum tíma. Hátíð-
arhöld fóru fram á báðum stöðum og
er ætlunin að þau standi í um viku-
tíma á Nýfundnalandi.
Framfarir á sviði þráðlausra fjar-
skipta hafa verið miklar síðustu
hundrað árin eins og á flestum öðrum
tæknisviðum. Nú er flest sem viðkem-
ur samskiptum hægt að gera með
þráðlausum fjarskiptum og skiptir þá
ekki máli hvort verið er að senda
myndefni eða símtal milli vina sem
staddir eru sinn í hvorri heimsálf-
unni.
Mikil framþróun hefur orðið f
þráölausum fjarskiptum og
getur fólk nú verið í ótak-
mörkuöu sambandi viö aðra
hvar sem það er statt á jörð-
inni, sem og í geimnum.