Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2001, Blaðsíða 26
42
FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2001
íslendingaþættir________________________________________________________________________________________________________py
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
90 ára___________________________
Hermann Guöjónsson,
Fornhaga 22, Reykjavík.
* Óskar Lárusson,
Hvassaleiti 58, Reykjavík.
85 ára___________________________
Margrét Kristjánsdóttir,
Lönguhlíö 3, Reykjavík.
80 ára___________________________
Bryndís Sveinsdóttir,
Sunnuvegi 9, Selfossi.
75 ára___________________________
Halldóra Guömundsdóttir,
Lönguhlíö 3, Reykjavík.
Ingibjórg Axelsdóttir,
Hjaröarhaga 62, Reykjavík.
Þorgerður Guðmundsdóttir,
Eyrarholti 6, Hafnarfiröi.
70 ára___________________________
Kristín María Grímsdóttir,
Gullsmára 11, Kópavogi.
Kristín Stefánsdóttir,
Vallengi 6, Reykjavík.
Þóra Sigríður Sigfúsdóttir,
Hólagötu 17, Sandgerði.
60 ára___________________________
Jón Reynir Hilmarsson,
Fannarfelli 10, Reykjavík.
Ólöf Sigurborg Ólafsdóttir,
. Hlemmiskeiöi 5, Selfossi.
50 ára __________________________
Guölaugur Árnason,
Bragagötu 29a, Reykjavík.
Gunnar Bjarnason,
Hlaöhömrum 38, Reykjavík.
Jóhannes Sigfússon,
Suöurvangi 8, Hafnarfirði.
Magnea Antonsdóttir,
Aöallandi 1, Reykjavík.
Málfríður Sigurðardóttir,
Grashaga 6, Selfoss.
Óskar Siguröur Einarsson,
Sæbólsbraut 49, Kópavogi.
- Svana Hafdís Stefánsdóttir,
Hjarðarhaga 11, Reykjavík.
Þorleifur Frímann Guðmundsson,
Ránarvöllum 7, Keflavík.
40 ára__________:________________
Benjamín Axel Árnason,
Hraunbæ 78, Reykjavík.
Guðmundur Halldór Torfason,
Kvistalandi 11, Reykjavík.
Hafliði S. Sívertsen,
Stapaseli 9, Reykjavík.
Helga Ingólfsdóttir,
Hellubraut 8, Hafnarfirði.
Magnea Richardsdóttir,
Faxastíg 20, Vestmannaeyjum.
Matthildur Guðmundsdóttir,
Skólatúni 6, Bessastaðahreppi.
Óskar E. Aðalsteinsson,
«' Kambaseli 85, Reykjavík.
Páll Rúnar Pálsson,
Strembugötu 6, Vestmannaeyjum.
Snorri Goði Hermannsson,
Hrafnhólum 6, Reykjavík.
Aðventu-leiðiskrossar
12V-34V
Sent í póstkröfu, sími 898 3206
Haukur Níelsson
bóndi að Helgafelli í Mosfellsbæ
Haukur Níelsson, bóndi á Helga-
felli í Mosfellsbæ, er áttræöur í dag.
Starfsferill
Haukur fæddist í Reykjavík en
ólst upp á Helgafelli. Hann stundaði
nám viö íþróttaskólann í Haukadal
1938-39 og lauk búfræðiprófi frá
Bændaskólanum á Hvanneyri 1941.
Haukur var verkstjóri hjá Hita-
veitu Reykjavíkur 1945-53 er hann
geröist bóndi á Helgafelli. Hann var
skipaður fangavörður við Hegning-
arhúsið í Reykjavík 1971 og dró þá
jafnframt úr búskap.
Haukur sat í hreppsnefnd Mos-
fellssveitar 1966-86, var formaður
Búnaðarfélags Mosfellshrepps
1969-94, var kosinn í stjórn Kaup-
félags Kjalarnesþings 1971 og var
stjórnarformaður þess 1974-94, sat í
skólanefnd Bændaskólans á Hvann-
eyri 1976-84, var formaður fram-
sóknarfélags Kjósarsýsiu um langt
árabil auk þess sem hann sat í
stjórnum fleiri félaga, s.s. hesta-
mannafélagsins Harðar.
Fjölskylda
Haukur kvæntist 24.10.1942 Önnu
Sigríði Steingrímsdóttur, f. 18.4.
1919, d. 23.5. 1993, húsfreyju. Hún
var dóttir Steingríms Davíðssonar,
skólastjóra á Blönduósi, og k.h.,
Helgu Jónsdóttur húsmóður.
Börn Hauks og Önnu Sigríðar er
Níels Unnar Hauksson, f. 29.12.1942,
verktaki á Helgafelli III en kona
hans er Steinunn Elíasdóttir hús-
móðir og eiga þau fjögur böm;
Marta Hauksdóttir, f. 27.4. 1951,
sjúkraliði í Mosfellsbæ, gift Hauki
Högnasyni, f. 1.8. 1950, vélvirkja og
eiga þau tvo syni auk þess sem
Marta á son frá því áður.
Böm Níelsar Unnars og Stein-
unnar er Haukur Níelsson, f. 8.11.
1960, dýraeftirlitsmaður hjá Mos-
fellsbæ, búsettur í Mosfellsbæ en
kona hans er Sesselja Guðmunds-
dóttir hárgreiðslumeistari og eiga
þau þau fjögur börn auk þess sem
hann á dóttur frá því áður; Dís Ní-
elsdóttir, f. 26.6. 1962, þroskaþjálfi,
búsett í Mosfellsbæ en maður henn-
ar er Jón Ægir Jónsson vélstjóri og
eiga þau þrjú börn; Anna Níelsdótt-
ir, f. 28.2. 1964, húsmóðir í Mosfells-
bæ en maður hennar er Helgi Þór
Eiríksson húsasmíðameistari og
eiga þau tvö börn; Elías Níelsson, f.
21.12. 1967, íþróttafræðingur en
kona hans er Halla Karen Kristjáns-
dóttir íþróttakennari og eiga þau
tvö börn auk þess sem hann á einn
son frá fyrra hjónabandi.
_ Synir Mörtu og Hauks eru Am-
ar, f. 12.4. 1975, nemi við KHÍ, bú-
settur að Helgafelli en kona hans er
Harpa Jóhannesdóttir, nemi við HÍ;
Högni Snær, f. 30.5.1980, lagerstjóri,
búsettur í Mosfellsbæ en kona hans
er Marta Gíslrún Ólafsdóttir sjúkra-
liðanemi. Auk þess er sonur Mörtu
og Guðmundar Ævars Snorrasonar
frá því áður Steingrímur Davíð
Guðmundsson, f. 20.1. 1970, verka-
maður að Skriðufelli.
Systkini Hauks: Marta Nielsdótt-
ir, f. 1.4. 1914, d. 19.10. 1940, var gift
Emil Ulrich Richter verslunar-
manni; Sverrir Jón Nielsson, f.
14.11. 1916, var kvæntur Edith Rik-
arðsdóttur, f. 15.6. 1928 en þau
skildu og eru börn þeirra Ríkarður,
f. 10.9.1950, og Unnur, f. 8.6.1953, en
kona Sverris Jóns er Nanna Möller
og eru dætur þeirra Iris, Erna og
Auður.
Foreldrar Hauks voru Níels Guð-
mundsson, f. 1.7. 1887, d. 29.3. 1963,
húsasmiður í Laxárholti i Hraun-
hreppi og síðar á Helgafelli í Mos-
fellssveit, og k.h., Unnur Guð-
mundsdóttir, f. 12.3. 1881, d. 24.1.
1947, húsfreyja.
Ætt
Níels var sonur Guðmundar, b. í
Miklaholti Sigurössonar, b. á Hró-
bjargarstöðum Helgasonar. Móðir
Guðmundar var Kristín Árnadóttir.
Móðir Níelsar var Guðný Jóns-
dóttir, b. og smiðs á Hreggstöðum í
Kolbeinsstaðahreppi Jónssonar og
Guðrúnar Sigurðardóttur.
Unnur var dóttir Guðmundar, b. í
Útskálahamri og á Eyri í Kjós
Gestssonar, af ætt Hallgríms Péturs-
sonar sálmaskálds.
Móðir Unnar var Kristín Ólafs-
dóttir, af ætt Árna Ketilssonar Skál-
holtsritara, forföður Fremra-
Hálsættar og Deildartunguættar.
Haukur heldur upp á þessi tima-
mót með fjölskyldu sinni.
Sextugur
Emanúel Ragnarsson
húsvörður, ökukennari og verslunarmaður í Ólafsvík
Emanúel Ragnarsson, húsvörð-
ur, ökukennari og verslunarmaður,
Sandholti 8, Ólafsvík, er sextugur í
dag.
Starfsferill
Emanúel fæddist í Reykjavík og
ólst upp á Jófríðarstöðum við
Kaplaskjólsveg í Reykjavik. Hann
lauk gagnfræðaskólanámi við Gagn-
fræðaskólann við Hringbraut.
Emanúel stundaði ýmsa vinnu í
Reykjavík til 1962 en flutti þá til
Ólafsvíkur.
í Ólafsvík hefur Emanúel stundað
ýmsa vinnu m.a. við verslunarstörf
hjá kaupfélaginu Dagsbrún, af-
greiðslustörf í Sindrabúðinni og
Litabúðinni. Hann starfaði í Lands-
bankanum 1981-96. Seinni árin hef-
ur hann séð um rekstur Félags-
heimilisins á Klifi og stundað öku-
kennslu í Snæfellsbæ.
Emanúel hefur unnið mikið að fé-
lagsmálum í Ólafsvík m.a starfað í
leikfélagi ÓMsvíkur og var formað-
ur þess í mörg ár, í Lionsklúbbi
Ólafsvíkur frá stofnun og verið for-
maður hans þrisvar sinnum ásamt
mörgum öðrum trúnaðarstörfum
fyrir klúbbinn. Þá hefur hann verið
virkur félagi í Björgunarsveitinni
Sæbjörgu og var formaður í samtals
sextán ár. Hann var umboðsmaður
Útsýnar í tuttugu og tvö ár, um-
boðsmaður Flugfélags íslands og
síðar Flugleiða i tuttugu og niu ár
og umboðsmaður Samvinnutrygg-
inga G.T frá 1978 þar til VÍS var
stofnað.
Starfsferlll
Emanúel kvæntist 1.12. 1961 Guð-
rúnu Magnúsdóttur, f. 29.6. 1937, d.
9.6. 2001, húsmóður. Hún var dóttir
Magnúsar Einarssonar og Guðnýjar
Oddsdóttur, bænda á Búðum á Snæ-
fellsnesi, sem bæði eru látin.
Börn Emanúels og Guðrúnar eru
Magnús Guðni, f. 15.11.1961, kvænt-
ur Arndísi Þórðardóttur og eiga þau
þrjá syni, Emanúel Þórð, Jón Þór og
Guðlaug; Unnur, f. 28.3. 1965, hús-
móðir en sambýlismaður hennar er
Aðalsteinn Kristófersson og eiga
þau tvo syni, Magna Jens og Eman-
úel Kristófer; Theodór Árni, f. 18.6.
1973, búsettur í Ólafsvík.
Systkini Emanúels: Guðlaugur
Emanúel, dó í frumbernsku; Jófríð-
ur, húsmóöir á Hellu; Rebekka,
húsmóðir í Hafnarfirði; Guðlaugur,
vélsmiður í Reykjavík; Sæunn, hús-
móðir að Hvasahrauni, sunnan
Hafnarfjarðar.
Hálfbróðir Emanúels, sammæðra,
er Þorsteinn Karl Guðlaugsson
kennari.
Hálfsystir Emanúels, samfeðra, er
Guðrún Ragnarsdóttir, húsmóðir í
Reykjavík.
Foreldrar Emanúels: Ragnar Sig-
urður Jóhannesson, f. 4.7. 1910, nú
látinn, bifvélavirki, og Unnur
(Emanúelsdóttir) Júlíusdóttir, f.
17.9. 1917, húsmóðir.
Ætt
Föðurfoldrar Emanúels voru Jó-
hannes Kristjánsson skósmiður og
Málfríður Ólafsdóttir en þau bjuggu
lengst af á Jófríðarstöðum í Reykja-
vík.
Móðurforeldrar Emanúels voru
Emanúel Júlíus Bjamason smiður
og Jóhanna Jóhannesdóttir verka-
kona en þau bjuggu lengst af að
Fossvogsbletti 22 í Reykjavík.
Upplýsingar vegna afmælisgreina í jólablað DV þurfa að
berast ættfræðideild eigi síðar en miðvikudaginn 19.12.
Upplýsingar vegna afmælisgreina í áramótablað DV þurfa
að berast ættfræðideild eigi síðar en fimmtudaginn 27.12.
Anna Maria Hansen hjúkrunarkona,
Hæðarbyggö 20, Garöabæ, lést á hjúkr-
unarheimilinu Sólvangi, Hafnarfirði,
mánud. 10.12.
Ragna Sylvía Haraldsdóttir lést á elli-
og hjúkrunarheimilinu Grund mánud.
3.12. Útförin hefur fariö fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Jón B. Kristbjörnsson húsasmíöameist-
ari, Mávahlíö 46, Reykjavík, andaöist
sunnud. 2.12. Jaröarförin hefur fariö
fram í kyrrþey.
Merkír íslendingar
Gunnar Bjamason ráðunautur hefði orðið
áttatíu og fimm ára í dag. Hann fæddist á
Húsavík, sonur Bjarna Benediktssonar, kaup-
manns og útgerðarmanns, og Þórdísar Ás-
geirsdóttur, hótelstjóra og bónda.
Gunnar lauk búfræðiprófi frá Hvann-
eyri, B.Sc.-prófi frá Den kongelige Veter-
inær- og Landbohejskole og námi í ali-
fugla- og svínarækt við Búnaðarháskól-
ann í Kaupmannhöfn. Hann var ráðu-
nautur Búnaðarfélags íslands í hrossa-
rækt og hestaverslun 1940-61, í alifugla- og
svínarækt 1963-78 og í hestaútflutningi hjá
landbúnaðarráðuneyti og Búnaðarfélagi ís-
lands 1965-87, var forstöðumaður Fóðureftir-
lits ríkisins 1973-80, kennari við Bændaskólann
á Hvanneyri og skólastjóri Bændaskólans á Hólum
Gunnar Bjarnason
1961-62. Gunnar rakst illa á meðal spilltra og staðn-
aðra möppudýra íslensks landbúnaðar. Hann var
hrakinn úr skólastjórastöðunni á Hólum enda
var framlag hans til íslensks landbúnaðar á
við mörg landbúnaðarráðuneyti. Hann átti
drjúgan þátt í að koma á nútima alifugla- og
svínarækt hér á landi, lét hanna jám-
ristaflóra sem ollu byltingu í fjósagerð
víða erlendis og var frumkvöðuÚ að út-
flutningi íslenska hestsins.
Gunnar var fluggreindur, afkastamikill,
kappsamur og geislandi af lífsgleði, hlýr
persónuleiki og óendanlega skemmtilegur.
Bók hans, Líkaböng hringir, útg. 1982, er
ádeilurit á landbúnaöarkerfið en ævisaga hans,
Kóngur um stund, kom út 1995. Hann lést 15.
september 1998.
Jarðarfarir
Þóróur Sigurösson, fyrrv. skipstjóri frá
Súöavík, síöast til heimilis á Hrafnistu í
Hafnarfirði, veröur jarösettur frá Hafnar-
flaröarkirkju fimmtud. 13.12. kl. 15.
Óðinn Bjöm Jakobsson, Dísarási 4,
Reykjavík, veröur jarösunginn frá Lang-
holtskirkju fimmtud. 13.12. kl. 10.30.
Höröur Ragnarsson frá Nýja Bæ, Þing-
eyri, til heimilis á Hrafnistu í Hafnarfirði,
veröurjarösunginn frá Víöistaðakirkju í
Hafnarfiröi fimmtud. 13.12. kl. 13.30.
Sigrún Jónsdöttir kirkjulistakona verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
föstud. 14.12. kl. 10.30. Jarösett verö-
ur í Víkurkirkjugaröi í Mýrdal síðdegis.
Erla Traustadóttir veröur jarösungin frá
Dómkirkjunni 14.12. kl. 13.30.
Ásdís Þórhallsdóttir, Fálkagötu 1,
Reykjavík, veröur jarösungin frá Foss-
vogskirkju föstud. 14.12. kl. 13.30.