Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2001, Síða 27
FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2001
43
DV
Tilvera
æbmes
Fertugur
:_____________
Christopher Plummer 72 ára
Leikarinn Christoph-
er Plummer fæddist í
Toronto í Kanada. Plum-
mer, sem hóf sinn feril í
leikhúsum og þótti af-
burða Shakespeare-túlk-
andi á yngri árum, hef-
ur átt farsælan feril í kvikmyndum og
eru myndirnar orðnar eitthvað á ann-
að hundrað sem hann hefur leikið í.
Frægasta hlutverk hans er tvímæla-
laust hlutverk Trapps baróns i Sound
of Music. Af öðrum myndum má
nefna The Insider, Dolores Claibour-
ne, Malcolm X og Twelve Monkeys.
Plummer er þrígiftur en núverandi
kona hans heitir Elaine Taylor.
Gildir fyrir föstudaginn 14. desember
Vatnsberinn (20. ian.-is. fehr.):
, Réttast væri fyrir þig
að halda vel á spöðun-
um á næstunni. Gefðu
þér þó nægan tíma með
fjölskyldunni, hún hefur orðið dá-
lítið útundan hjá þér undanfarið.
Fiskarnir (19. febr,-20. mars):
Sjálfstraust þitt er með
leira móti um þessar
mundir. Þess vegna
er einkar heppilegt
að ráðast í verkefni sem hafa
beðið lengi.
Hrúturinn (21. mars-19. aoril):
l Þú færð ekki mikinn
’ tíma til umhugsunar
áður en þú verður að
taka ákvörðun.
Þess vegna skaltu leita þér
ráðleggingar.
Nautið (20. april-20. maí):
Vinir þínir koma þér
reglulega á óvart með
undarlegu uppátæki.
Satt best að segja
rekur þig í rogastans.
Happatölur þínar eru 6, 16 og 23.
Tvíburarnir (21. maí-21. iúní>:
Draumar þínir rætast
'á næstunni og þú verð-
ur í skýjunum. Það er
sennilega leitun að
hamingjusamari manneskju.
Happatölur þínar eru 16, 21 og 33.
Krabbinn (22. iúni-22. iúií>:
Þú verður fyrir ein-
\ stöku láni í fjármálum,
líklega gerir þú ein-
staklega góð kaup.
Samningamálin í kringum það allt
saman gætu hins vegar tekið á.
Ljónið (23. iúlí- 22. ágúst):
Heimilislífið á hug
þinn allan og þú hugar
að endurbótum á
heimilinu. Allir
virðast reiðubúnir til þess að
leggja sitt af mörkum.
Mevian (23. áeúst-22. seoU:
Þú grynnkar verulega
á skuldimum, það er
itað segja ef þú skuldar
^ f eitthvað, þvi að þér
græðist óvænt meiri upphæð en
þú áttir von á.
Vogin (23. sept.-23. okt.):
^ Þú sérð ekki eftir þvi
að leggja dálitið hart
að þér um stundar-
r f sakir. Það borgar
sig svo sannarlega.
Happatölur þínar eru 6, 9 og 20.
Sporðdreki (24, oKt.-2i. nóv.):
Þér bjóðast ný tæki-
færi og það reynist þér
■dálitið erfltt að velja á
milli þeirra. Þú fæst
við flókin samningamál.
Happatölur þínar eru 1, 19 og 36.
Bogmaðurinn (22. nóv.-2l. des.l:
.Breytingar verða í
’kringum þig og þú
fagnar þeim svo
sannarlega. Það
verður heídrn- rólegra hjá þér
en verið hefur undanfarið.
Stelngeitin i22. des.-19. ian,):
Einhver misskilningur
gerir vart við sig milli
ástvina. Mikilvægt
er að leiðrétta hann
sem fyrst, annars er hætta á
að hann valdi skaða.
Ásgeir Margeirsson
aðstoðarforstjóri Orkuveitu Reykjavíkur
Tvíburarnir (2
7H <
Ásgeir Margeirs-
son, aðstoðarfor-
stjóri Orkuveitu
Reykjavíkur, til
heimilis að Dofra-
bergi 11, Hafnar-
flrði, er fertugur í
dag.
Starfsferill
Ásgeir fæddist í
Keflavík og ólst þar
upp. Hann stundaði
nám við Fjöl-
brautaskóla Suður-
nesja og lauk þaðan
stúdentsprófi 1980,
stundaði nám í
byggingarverfræði
við HÍ og lauk B.Sc.-prófi þaðan 1985
og lauk Lic.Techn.-prófi í fram-
kvæmdafræði frá Tækniháskólanum í
Lundi í Svíþjóð 1989.
Ásgeir var tæknistjóri Jarðborana
hf. á árunum 1995-2000. Hann hóf
störf hjá Orkuveitu Reykjavíkur árið
2000 og hefur verið þar aðstoðarfor-
stjóri síðan.
Ásgeir sinnti ýmsum félagsstörfum
á skólaárunum. í seinni tíð hefur
hann sinnt ýmsum félagsstörfum á
sviði tennisíþróttarinnar og auk þess
á sviði hestamennsku.
Fjölskylda
Ásgeir kvæntist
22.3. 1986 Svein-
björgu Einarsdótt-
ur, f. 20.12. 1955,
hjúkrunarfræðingi.
Hún er dóttir Einars
Jónssonar og Guð-
rúnar Einarsdóttur
í Reykjavfk.
Synir Ásgeirs og
Sveinbjargar eru
Margeir Ásgeirsson,
f. 15.1. 1986, nemi;
Einar Ásgeirsson, f.
31.10. 1987, nemi;
Ólafur Ásgeirsson, f.
27.2.1992, nemi.
Systkini Ásgeirs:
Ámi Margeirsson, f. 29.10. 1957, d.
1997; Ragnhildur Margeirsdóttir, f.
10.6.1961, skrifstofumaður sem búsett
er í Njarðvfk; Veigar Margeirsson, f.
6.6. 1972, tónlistarmaður en hann er
búsettur f Los Angeles f Banda-
ríkjunum.
Foreldrar Ásgeirs: Margeir Ásgeirs-
son frá Hnffsdal, f. 12.8. 1931, d. 1993,
fiskmatsmaður, og Ásthildur Árna-
dóttir, frá ísafirði, f. 2.9.1938, húsmóð-
ir.
Þorbjörg Alexandersdóttir
starfsmaður við Sjávariðjuna Rif
Þorbjörg Alexand-
ersdóttir, Háarifi 5,
Snæfellsbæ, er sex-
tug í dag.
Starfsferill
Þorbjörg fæddist í
Hvammi í Mikla-
holtshreppi en flutti
með foreldrum sín-
um að Stakkhamri
1944 og ólst þar upp.
Hún stundaði nám
við Húsmæðraskól-
ann að Varmalandi
1960-61.
Þorbjörg hefur bú-
ið í Rifi frá 1964. Hún
og fjölskylda hennar
stofnuðu Sjávariðjuna Rif hf. 1994 og
hefur hún starfað við fyrirtækið sið-
an.
Þorbjörg hefur verið ötull þátttak-
andi í felagsstarfi í Snæfellsbæ.
Fjölskylda
Þorbjörg giftist 6.6. 1964 Kristni J.
Friðþjófssyni, f. 24.7. 1941, útgerðar-
manni. Hann er sonur Friðþjófs Guð-
mundssonar, útvegsbónda í Rifi, og
Halldóru Kristleifsdóttur húsmóður
en þau eru bæði látin.
Börn Þorbjargar og Kristins: Berg-
þór, f. 28.3. 1964, d.
4.7. 1971; Erla, f. 5.7.
1965, gift Erni
Tryggva Johnsen og
eiga þau fjögur
böm; Kristjana, f.
21.6.1969 en sambýl-
ismaður hennar er
Magnús R. Guð-
mundsson; Berg-
þóra, f. 3.10. 1972 en
maður hennar er
Kristinn Steinn og
eiga þau eina dótt- ‘
ur; Halldór, f. 15.4.
1975 en eiginkona
hans er íris Ösp
Hreinsdóttir og eiga
þau tvær dætur; Al-
exander Friðþjófur, f. 2.4.1976 en sam-
býliskona hans er Guðný Jóna Þórs-
dóttir og eiga þau eina dóttur.
Foreldrar Þorbjargar: Alexander
Guðbjartsson f. 5.3. 1906, d. 21.4. 1968,
bóndi og kennari að Hjarðarfelli,
Hvammi en lengst af á Stakkhamri, og
Kristjana Bjarnadóttir, f. 10.11.1908, d.
25.11. 1982, húsfreyja.
Kristinn, eiginmaður Þorbjargar,
varð sextugur 24.7. sl. Af tilefni af-
mælanna taka þau á móti gestum í fé-
lagsheimilinu Röst, Hellissandi, laug-
ard. 15.12. kl. 19.00.
» *■* -
****'»#*, #
________________
Victoria kryddpía nærri úrkula vonar
Kryddpían Victoria Adams og
Beckham er orðin svo úrkula von-
ar um að meika það upp á eigin
spýtur í tónlistinni að hún er far-
in að íhuga að syngja á frönsku.
Hún heldur nefnilega að það muni
bjarga frama hennar og frægð.
Tunga Fransmanna kann þó að
reynast söngkonunni bresku erfið-
ur hjalli, rétt eins og flestum öðr-
um Bretum sem við hana reyna.
Victoria lærði frönsku á sinum
tíma þegar hún var í skóla. Núna
getur hún hins vegar ekki gert sig
skiljanlega þegar hún bregður sér
út í búð.
En stúlkan ætlar ekki að gefast
upp að óreyndu. Hún er á því að
eina leiðin til að tala frönsku eins
og innfæddur sé að fá sér einka-
kennslu og það ætlar hún að gera.
Til stendur að söngkonan syngi
lagið Mind Of Its Own á frönsku
og að sú útgáfa komi út í febrúar.
Ólíklegt má hins vegar telja að
stúlkan nái aö pólera framburð-
inn nóg fyrir þann tíma en það má
alltaf reyna.
Jólagetraun i
Vinningar í jólagetraun DV eru glæsilegir að
vanda og til mikils að vinna með því að taka þátt
_ í henni.
veröiaun Vmningamirerufrá Sjónvarpsmiðstöðinni,
Brœðrunum Ormsson og Aco-Tœknivali.
FujitsuSiemens tölva
Önnur verðlaun eru FujitsuSiemens- tölva frá Aco-Tækni-
vali. Tölvan er FUJITSUSIEMENS T-BIRD 1000MHZ með In-
tel Celeron örgjörva, 1GHz vinnsluminni, 128Mb. Henni fylg-
ir 40Gb harður diskur, sautján tommu FujitsuSiemens há-
gæða skjár, TV-Out tengi. Innbyggt 3 * disklingadrif, DVD-
drif, 16 hraða, tólf hraða geislaskrifari, 32MB Geforce2 skjá-
kort, AC * 97 innbyggt hljóðkort. íslenskt lyklaborð, skrun-
mús, 56Kbps fax/módem. Stýrikerfi
Windows XP - Home Edition. Leikir
Midtown Madness, Crimson
Skies. Tveggja ára ábyrgð.
Vinningur að verð-
mæti 159.700 krónur.
7. hluti Svarseðitt
Við hvem er
jólasveinninn að tala?
DV-jólasveinninn er forvitinn eins og
blaðamenn DV. Hann er á ferðinni þessa
dagana og ætlar að taka þjóðþekkta íslend-
inga tali. Hann er ekki alveg viss um hvað
fólkið heitir og ætlar því að 'biðja ykkur að
hjálpa sér. Til að auðvelda valið eru gefn-
ir þrír svarmöguleikar.
Ef þið vitið svarið eigið þið að krossa við
rétt nafn, klippa seðilinn út og geyma
hann á öruggum stað. Þegar þið hafið safn-
að saman öllum tíu svarseðlunum eigið
þið að senda þá á DV, Þverholti 11, 105
Reykjavík, eða koma með þá á afgreiðslu
blaðsins í umslagi, merktu „Jólagetraun
DV 2001“.
Munið að senda ekki inn lausnir fyrr
en allar þrautirnar hafa birst.
Jólagetraun DV - 7. hluti
□ Ingvi Már Guðmundsson □ Kristján Jóhannsson □ Karl Jónsson
Nafn: _____________________ ______________
Heimilisfang:
Staður:
Sími:
Sendist til: DV, Þverholti 11,105 Reykjavík.
Merkt: Jólagetraun DV