Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2001, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2001, Qupperneq 29
45 FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2001 !OV Tilvera S tj örnubrúðkaup Það verður enginn annar en Mich- ael Jackson sern leiða mun Lizu Minnelli upp að altarinu þegar hún leggur þangað upp í sína fjórðu ferð í febrúar nk., til að giftast sínum heittelskaða, David Gest. Þetta verður ekki eina hlutverk Jacksons við at- höfnina, sem fram fer í St. Patriks dómkirkjunni í New York, því hann verður einnig svaramaður brúð- gumans. Jackson mun leiða MinneOi inn kirkjugólfið undir söng Whitney Houston, sem auðvitað syngur lagið "Here Comes the Bride". Elizabeth Taylor, besta vinkona Jacksons, hefur einnig fengið hlutverk við athöfnina og verður hún sérstök heiðursbrúðar- mær. Cruise sannkall- aöur kavalér Stórleikarinn Tom Cruise sýndi það svo ekki verður um villst á dög- unum að hann er sannkallaður séntilmaður. Tom fórnaði nefnilega jakkanum sínum og setti hann yflr axlirnar á ástkonu sinni, spænsku þokkadísinni Penelope Cruz, þegar þau mættu til frumsýningar kvik- myndarinnar Vanilla Sky vestur í Hollywood. Óvenjukalt var þennan dag, mun kaldara en Penelope gerði sér grein fyrir. Því reyndist lítið gagn að næfurþunnum silkikjól hennar. Tommi fór þá úr jakkanum og lagði hann yfir axlir hennar. Og sagði nú allt í stakasta í lagi þó að sér væri dálítið kalt. Sönn hetja. Arnold datt af mótorhjólinu Hasarhetjan Arnold Schwarz- enegger braut í sér nokkur rifbein um helgina þegar hann datt af mótorhjól- inu sínu. Gert var að sárum hans á sjúkrahúsi. Talsmaður leikarans segir að hann sé alvanur vélhjólamaður og langt frá því að vera glanni. Slysin geri hins vegar ekki boð á undan sér. Þrátt fyrir óhappið var Arnold í fínu formi og ekkert fær breytt áformum hans um að fara á skíði með fjölskyldunni yfir jólin. Kappinn, frú- in og börnin ætla til Sólardals í Idaho þar sem ríka og fræga fólkið skemmt- ir sér gjarnan hvað með öðru. Filmundur: Goðsögnin Ham í kvöld frumsýnir Filmundur heimildarmyndina Ham: Lifandi dauðir. Að mati þeirra sem hafa hvað mest álit á hljómsveitinni er Ham goðsögn í íslenskri tónlistar- sögu á meðan aðrir telja hana hafa verið ofmetna. Fjallað er ítarlega um Ham, í hávaða, máli og mynd- um í heimildarmyndinni sem er í fullri lengd. Ham: Lifandi dauöir er, að því er næst verður komist, fyrsta íslenska mynd þeirrar tegundar heimildar- mynda sem Qalla um rokkhljóm- sveitir, en margar athyglisverðar kvikmyndir hafa verið gerðar í þessum flokki og var kominn tími til að slík mynd yrði gerð hér á landi. Frægasta íslenska heimildar- myndin þar sem eingöngu var fjall- að um tónlist er Rokk í Reykjavík sem var frekar heimildarmynd um tíðarandann og tónlistina sem þá réð ríkjum en beint um hljómsveit- irnar. Saga sveitarinnar er skrautleg og henni er reynt að gera skil í mynd- inni. Sýnt er efni frá löngu tímabili í sögu sveitarinnar og viðtöl eru við fjölda fólks sem hefur álit á Ham auk viðtala við sjálfa meðlimi hljómsveitarinnar. Ham: lifandi dauðir verður frum- sýnd í Háskólabíói í kvöld og verð- ur sýnd eins mikið og eins lengi og aðsókn krefur, en í þaö minnsta fram yfir helgina. Ham 1988 Hljómsveit sem allir höfðu álit á. Halló, krakkar! Jólasveinunum fjölgar með hverjum deginum enda mikið að gera hjá þeim þessa dagana: skór úti í öllum gluggum sem þarf að setja gjafir í. Þessir tveir tóku forskot á sæluna og fóru bæjarferð og gengu niður Laugaveginn, börnum til mikillar ánægju. Sauðárkrókur: Markaðsdagur handverksfólks Um tuttugu seljendur tóku þátt í markaðsdegi handverksfólks í Skagafirði fyrir skömu. Efnt var til söludags á veitingastaðnum Kaffi Króki á Sauöárkróki og var fjöl- menni meðan markaðurinn stóð yfir. Seljendur, sem fréttamaður tók tali, voru ánægðir með sinn hlut. Gríðarlega fjölbreyttur varningur var í boði og allir gátu fundið eitt- hvað sem þeir höfðu not fyrir. Ómar Bragi Stefánsson, menningarfulltrúi hjá Sveitarfélaginu Skagafirði sem undirbjó markaðsdaginn, sagði að talsverður fjöldi fólks í héraðinu væri að framleiða vöru en hefði misgóða aðstöðu til að koma henni á framfæri. „Það er því sjálfsagt að aðstoða fólkið við að koma á lagg- irnar sérstökum söludegi, það kost- ar sáralítið en skapar stemninguna í bænum og gefur fólki tækifæri til að hittast. Þetta er vissulega hluti af menningu Skagfirðinga og slíkt vildi sveitafélagið styðja eins og hægt er.“ -örn DV-MYND ÓRN Systurnar Bergþóra og Sólveig Pét- ursdætur Þær voru meðal þeirra sem seldu varning á Kaffi Króki. Víkurprjón íVík, elsta prjónastofa landsins: Selja sokka á vefnum Víkurprjón ehf. í Vík er eitt af elstu og stærstu prjónafyrirtækjum landsins. Lengi voru þar eingöngu framleiddir sokkar en á seinni árum hefur starfsemin beinst í auknum mæli að framleiðslu á aUs konar vör- um úr íslenskri ull sem seldar eru til erlendra ferðamanna og einnig flutt- ar út til Norður-Ameríku og Noregs. Vikurprjón rekur verslanir í Vík og Hafnarstræti 3 í Reykjavík. Þórir N. Kjartansson fram- kvæmdastjóri segir að framleiðsla og sala á sokkunum hafi á undanfórn- um árum heldur verið að dragast saman, enda ójafndeikur að keppa við Asíubúana sem margir eru með daglaun sem nemur einum dollar. Til að svara þessu hefur fram- leiðslan verið að færast meira i þykka sokka, s.s. útivistarsokka, sokka úr íslenskri ull, að ógleymd- um sokkum úr blöndu af lambsull og angóraull sem eiga sífellt meiri vin- sældum að fagna. Umboðsmenn Víkurprjóns í Nor- DV-MYNDIR SIGURÐUR K. HJÁLMARSSON Pakka sokkum Sigríður Guðmundsdóttir t.v. og Áslaug Kjartansdðttir, starfskonur hjá Víkur- prjóni, pakka sokkum sem fara til útlanda. Fjær sér yfir hluta af verksmiðju- sainum. egi fóru í haust að kynna þessa fram- leiðslu þar og það er ekki annað að % sjá en frændur okkar ætli að taka henni opnum örmum. Til að búa sig betur undir aukna eftirspurn erlend- is frá keypti Víkurprjón ehf. nýlega sokkaverksmiðjuna Leistaprjón í Grímsnesi sem sérhæfði sig í fram- leiðslu á alls konar þykkum sokkum. Sl. vor opnaði Víkurprjón net- verslun með slóðina www.vikur- prjon.is og að sögn Þóris hefur þess- ari netverslun verið mjög vel tekið. í netversluninni eru seldir sokkar bæði innanlands og út um allan heim. Nú er hafin vinna við að gera netverslun þar sem allar fram- leiðsluvörur fyrirtækisins verða til sölu og eftir fyrirspurnum sem ber- ast utanlands frá á pósthólf og heimasíðu Víkurprjóns www.vikwool.is virðist vera full ástæða til að leggja í þá fjárfestingu að sögn Þóris. -SKH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.