Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2002, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2002, Qupperneq 15
14 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2002 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2002 19 Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson Aöatritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aðstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson Fréttastjórí: Birgir Guömundsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: Þvorholti 11,105 Rvík, síml: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Qræn númer. Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, s!mi: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf. Plötugerö og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiöir ekki viðmælendum fyrir viðtöl viö þá eöa fýrir myndbirtingar af þeim. Trausti rúnir ríkisforstjórar Skýrsla Ríkisendurskoðunar um stjórnsýslu en einkum íjársýslu Þjóðmenningarhúss og forstöðumanns þess sér- staklega er dæmi um óreiðu, siðblindu og sjálftöku á pen- ingum. Forstöðumaðurinn stendur eftir rúinn trausti. Sama gildir um þjóðskjalavörð. Skattgreiðendur standa orðlausir frammi fyrir enn einni afhjúpuninni þar sem fram kemur að háttsettir opinberir embættismenn um- gangast fjárhirslur stofnana sinna eins og sínar eigin, maka krókinn og láta eins og öðrum komi ekki við hvern- ig farið er með þá fjármuni. í skýrslu Ríkisendurskoðunar koma fram alvarlegar at- hugasemdir vegna greiðslna fyrir verk sem forstöðumaður Þjóðmenningarhússins annars vegar og þjóðskjalavörður hins vegar unnu fyrir stofnanir hvor annars fyrir milljón- ir króna. Óhætt er að átelja alvarlega það gagnkvæma sam- komulag sem þeir komu einir að og ákvörðuðu kaup hvor af öðrum. Þjóðskjalavörður sat í stjórn Þjóðmenningar- hússins en hefur nú sagt sig úr henni. Ríkisendurskoðun bendir á að kjaranefnd ákvarðar fóst laun fyrir dagvinnu og kveður á um önnur starfskjör þess- ara embættismanna. Henni ber að úrskurða hvaða auka- störf tilheyra aðalstarfi og hver beri að launa sérstaklega og á það við um öll störf og verkefni embættismanna sem undir hana heyra. Fyrir liggur að kjaranefnd fjallaði ekki né úrskurðaði um greiðslur til forstöðumanns Þjóðmenn- ingarhússins. Hann leitaði ekki eftir samþykki forsætis- ráðuneytis, en Þjóðmenningarhúsið heyrir undir það, til þess að sinna aukastörfunum samhliða aðalstarfinu. Fleira gefur Ríkisendurskoðun tilefni til athugasemda og meðal annars ráðning eiginkonu forstöðumanns Þjóð- menningarhússins sem hann gekk sjálfur frá. Þar er upp- lýst að eiginkonan innti vinnuskyldu sína ekki af hendi í stofnuninni á hefðbundnum vinnutíma eins og þó var um samið. Ríkisendurskoðun bendir á að ráðningarsambönd af þessu tagi stuðli undantekningalítið að tortryggni, vegna hættu á hagsmunaárekstrum. Því beri að forðast að stofna til þeirra. Akstursbók forstöðumanns Þjóðmenningarhúss lá ekki fyrir þótt hann hafi fengið greiðslu fyrir rúmlega 24 þús- und kílómetra akstur undanfarin tvö ár. Ríkisendurskoðun fékk síðan ófullkomna akstursbók með skýringum sem hvorki töldust nægjanlega traustar né trúverðugar. Fram kemur í skýrslunni að akstur var skráður hér á landi á sama tíma og forstöðumaðurinn var í opinberum erinda- gjörðum í útlöndum. Þá skráði hann akstur á bíl sinn á sama tíma og hann fór erinda í þágu safnsins á bílaleigu- bíl. Alvarlegar athugasemdir hafa og verið gerðar við akst- ursnótur þjóðskjalavarðar. Menntamálaráðuneytið, sem hann heyrir undir, hefur gert honum að endurgreiða hluta þeirra. Ríkisendurskoðun getur þess og að forstöðumaður Þjóð- menningarhússins hafi blandað saman persónulegum ferðakostnaði við útgjöld Þjóðmenningarhússins og var honum gert að endurgreiða þann kostnað. í lok skýrslunn- ar eru gerðar alvarlegar athugasemdir við lántöku for- stöðumannsins úr sjóði Þjóðmenningarhússins og bent á að slíkt er í algerri andstöðu við reglur. Þessi embættisfærsla er með endemum og eðlilegt að rík- issaksóknari skoði íjárreiður forstöðumanns Þjóðmenning- arhússins, eins og fram kom í fréttum í gærkvöld, og kanni hvort hann hafi gerst sekur um refsiverða starfsemi. í bréfi forsætisráðherra til forstöðumannsins fellst ráðuneytið á niðurstöður Ríkisendurskoðunar og telur að í mörgum til- vikum sé um ámælisverða framkvæmd að ræða. Það er vægt til orða tekið miðað við aðstæður. Jónas Haraldsson DV Skoðun Nú þyrftu verkin að tala Sá skóli sem hefur verið og á að vera nokkurs konar flaggskip tæknimenntunar- innar í landinu og hefur vakið athygli fyrir fagleg vinnubrögð og háan gæðastandard í námi og kennslu, Tækniskóli Is- lands, hefur á undanförnum mánuðum átt mjög í vök að verjast. Það er að vísu ekki ný bóla að fjárveitingar til skólans hafi verið naumt skammtaðar og oftar en ekki litið fram hjá mjög góðum greinargerðum sem borist hafa til fjárlaganefndar og mennta- málanefndar um íjárþörf skólans og honum skammtað eitthvað sem er á allt öðrum nótum. En skólinn rataði í óvænta erfið- leika þegar átti að fara að breyta honum í Tækniháskóla og á því stigi er hann óumdeilt rekinn að stærst- um hluta, þótt einnig hafl þar verið reknir aðfararáfangar sem hafa gefið mjög góða raun og eru þá á fram- haldsskólastigi. Engum boðið Um það leyti er menn væntu þess Sigríður Jóhannesdóttir þingmaöur Samfylkingarínnar að frumvarp til laga um Tækniháskóla yrði lagt fram fóru að koma fram hugmyndir um að einka- væða skólann með einhverj- um hætti. Fyrst fóru fram umfangsmiklar viðræður um framtíð skólans við Samtök iðnaðarins um að þeir rækju skólann, þær viðræður sigldu í strand því viðkomandi fannst heiman- mundur sá er þeir áttu að fá frá ríkinu of naumur. Þar næst var rætt við Háskól- ann um að sameina skólann verk- fræðideild. í kjölfar þeirra viðræðuslita töldu forsvarsmenn skólans að málið væri í höfn og höfðu þeim meira að segja borist drög að frumvarpi um Tækni- háskóla sem þeir voru nokkuð sáttir við. Þá bárust aftur fréttir um að við- ræður stæðu yfir um að sameina Tækniháskólann Margmiölunarskól- anum. Að því viðræðuborði var eng- um af stjórnendum skólans boðið, ekki heldur fulltrúa ráðherrans í skólanefnd. Nú hefur slitnað upp úr þeim viðræðum og fréttir hafa mér nú nýlega borist um að nú á næstu „Það er ekki boðlegt að reka Tækniháskóla íslands áfram í því húsnœði sem hann hefur hingað til haft til umráða. Yfir hann þarf að byggja nýtt, glœsilegt skóla- húsnœði. í því þjóðþrifamáli þyrftu verkin að tala. “ dögum muni þetta langþráða frum- gjaman láta minnast sín sem þess varp verða lagt fyrir þingið og er það sem lét verkin tala þá er ekki úr vegi vel. að minna á að því miður hefur En af því að ráðherrann viil nú Tækniháskólanum enn ekki verið Eyðilegging í Berserkjahrauni Vegna lagningar nýs vegar um Kolgrafarfjörð milli Berserkseyrar og Vindáss í Eyrarsveit og Helga- fellssveit á Snæfellsnesi er gert ráð fyrir að vinna úr Mjósundsnámu í Berserkjahrauni grjót til rofvama vegna brúargerðar yfir Kolgrafar- fjörð. Áætlað er að vinna úr námunni 100.000 rúmmetra af fastri hraunklöpp. Vegagerðin metur það besta og hagkvæmasta kostinn að opna þama námu þar sem yfirborði hraunsins hafi þegar verið raskað og þangað muni vera styst að sækja not- hæft efni i þessa vegagerð. Ég hef harðlega mótmælt þessari fyrirhuguðu grjóttekju, bæði við Vegagerðina, sem er framkvæmda- aðili,og einnig við Skipulagsstofnun ríkisins. Það er vissifiega búið að raska yfirborði hraunsins þarna, um 17.000 fermetrar, að mati Vegagerð- arinnar. Og þaö er óþolandi að níð- ast frekar á þessu svæði í stað þess að hlúa að því. Berserkjahraun er á náttúruminjaskrá og Mjósunds- hraun, þar sem fyrirhugað er að taka efni úr, er á jaðri svæðis sem var friðað með lögum nr 53/1995. Fyrir rúmlega fjögur þúsund árum rann hraun út í Hraunsfjörðinn og nær stíflaði hann og er Mjósund nefnt eftir því þrönga sundi sem eftir stóð. Þetta er eini fjörðurinn á ís- landi þar sem hraun hefur runnið út í fjörð. Jaðar hrauns- ins er dásamlega fal- legur með sinrnn fal- legu víkum og hraun- pollum. Árið 1963 var byggð brú yfir Mjósund. Var það mikil bylting í sam- göngumálum á norð- anverðu Snæfellsnesi og styttist þá leiðin verulega á milli staða. Þá þurfti ekki lengur að aka lélegan vegar- slóða fyrir Hrauns- fjörðinn. Mjósunds- brúin var nefnilega fyrsta brúin sem byggð var yfir ijörð á íslandi. Og fólk sem keyrði yfir þessa brú á ferð sinni á ljúfar minningar um mikilfengleik þessara jarð- myndana. Friðland eða eyðiiegging? Oft var stoppað þarna, leikið sér, farið í gönguferðir eða rennt fyrir silung. Þetta varð fljótlega sérstök vin og annáluð nátt- úruperla. Það hefur lengi verið skoðun mín að stofnsetja ætti þarna sérstakan fólkvang eða friðland fyrst þetta svæði er á náttúruminjaskrá og friðað. Hrauns- fjörðurinn, Berserkjahraun og nálæg vötn, Selvallavatn, Baulárvallavatn og Hraunsfjarðarvatn, sem eru einnig á náttúruminjaskrá, mundu falla inn í friðlandið. Það væri verðug gjöf til bamanna okkar að skila þessu landi í betra ásigkomulagi og með verðugri framtíð í stað þess að eyðileggja það eins og Vegagerðin ætlar sér að gera með leyfi Skipulagsstofnunar og fleiri aðila. Upp úr hraunbreiðunni rís hár hraundrangur, Arnarklettur. Þar verpti haföm eitt sinn. Hann mun lenda í útjaðri tilvonandi námu. En nú eru Mjósundsbrúin gamla og Amarkletturinn í mikilli hættu. í matskýrslu Vegagerðarinnar um Mjósundsnámu til Skipulagsstofnun- ar er lítið sem ekkert minnst á hvemig náman verði unnin, nema að hún verði að framkvæmd lokinni löguð að landslagi. Og í matskýrsl- unni er ekkert minnst á hvaða leiö efnið verði flutt að hinu nýja brúar- stæði í Kolgrafarfirði. Er ég spurði umdæmisstjóra Vegagerðarinnar sagðist hann flytja efnið,100.000 rúmmetrana, yfir gömlu brúna. Að mínu áliti mun brúin ekki þola þetta álag og ég spyr um vemdargildi hennar. Einnig vil ég benda á að Amarklett- urinn mun ekki þola þessar miklu spreng- ingar við námuvinnsl- una og höggbylgjur og mim hann fljótlega hrynja. Brúin er t.d. í innan við 100 metra fjarlægö og verður einnig fyrir miklum höggbylgjum. Það er greinilegt að inni í Mjósundum eru að byrja mikl- ar hamfarir af mannavöldum, hér á norðanverðu Snæfeflsnesi þar sem umhverfisvitund og umhverfisvemd eru ekki í hávegum höfð. Það er ekki einkamál Vegagerðarinnar hvemig hún fer með landið og sveitarfélög og ýmsir verktakar eru ekki saklausir í þeim efnum. Ég hef orðið fyrir mikl- um vonbrigðum með þátt Náttúru- vemdar ríkisins, sem með umsögn sinni var hlynnt námurekstri, og einnig Breiðafjarðamefnd sem vill ekkert kannast við að hafa lögsögu yfir þessu svæði sem er þó við ströndina. En samt getur hún leyft sér að veita umsögn í kjölfar úr- skurðar Skipulagsstofnunar sveitar- stjórnum Eyrarsveitar og Helgafells- sveitar þegar Vegagerðin mun afla sér framkvæmdaleyfis. Eigandi Mjósunds fær dágóðan skilding fyrir námuvinnsluna. Það er kannski tilvfljun að hann er ná- frændi forstjóra Skipulagsstofnunar sem með úrskurði sínum leyfir fram- kvæmdir námuvinnslu í Mjósund- um. Ég spyr um vanhæfi í þessum úrskurði. Úrskurð Skipulagsstofnun- ar vegna námuvinnslu í Mjósundum hef ég kært tfl umhverfisráðherra. Gunnar Njálsson „Eigandi Mjósunds fœr dágóðan skild- ing fyrir námuvinnsluna. Það er kannski tilviljun að hann er náfrœndi forstjóra Skipulagsstofnunar sem með úrskurði sínum leyfir framkvœmdir námuvinnslu í Mjósundum.“ - Amar- klettur í Berserkjahrauni. boðið upp á þannig starfsumhverfi að hægt sé við að una. Ríkið reki skólann Allt námsumhverfi sem nemend- um og kennurum er boðið upp á í skóla eins og Tækniháskóla íslands sem ríkið rekur þarf að vera að minnsta kosti sambærilegt við það sem tíðkast í öðrum háskólastofnun- um. Þar skortir nú nokkuð á og þyrfti nú menntamálaráðherra og hans ráðuneyti að taka sig á hvað það snertir. Það er okkur íslendingum mjög mikilvægt að sem flestir góðir náms- menn velji tækninám og því á ríkið að reka slíkan skóla með myndar- brag. Það á að leggja honum til glæsi- legt húsnæði. Það á líka að leggja honum tfl nægilegt fjármagn til kynningar á náminu svo að slíkur skóli geti keppt við einkareknu há- skólana. Það er ekki boðlegt að reka Tækniháskóla Islands áfram í því húsnæði sem hann hefur hingað til haft til umráða. Yfir hann þarf að byggja nýtt, glæsflegt skólahúsnæði. í því þjóðþrifamáli þyrftu verkin að tala. Sigríður Jóhannesdóttir Ummæli Klúðrið mikla „Hrakfallasögu einkavæðingar Landssímans má hiklaust kálla stjóm- málaklúður aldarinnar. Það finnst sjálfsagt einhverjum segja lítið í ljósi þess að öldin er nýhafm en málið er aflt þannig vaxið að nafngiftin gæti átt lengi við. í umræðum vill brenna við að sá möguleiki gleymist að einka- væða fyrirtækið alls ekki. Mest er rætt um klúður í framkvæmdinni, ranga tímasetningu, ráðningarsamn- ing forstjóra, mislukkaðar fjárfesting- ar, þóknun tfl einkavæðingamefndar o.s.frv.... Við vildum, og viljum enn, beita styrk fyrirtækisins til að bæta fjarskiptakerfíð og tryggja að aflir landsmenn, hvar sem þeir búa, geti notið góðrar og ódýrrar þjónustu af bestu gæðum á jafhréttisgrundvelli.11 Steingrímur J. Sigfússon á vg.is Markmiðið var óraunsætt „Markmiðið með stofhun Samfylkingar- innar var að fylkja saman öllum vinstri- mönnum á íslandi en það hefur ekki tekist eins og kunnugt er. Það er umhugsunarvert að margir töldu um áratugaskeið að ágreiningurinn mifli Alþýðubandalagsins og Alþýðu- flokksins ætti eingöngu rætur að rekja til mismunandi afstöðu til Sovét- ríkjanna. Nú hefur komið í ljós - sem við reyndar mörg héldum fram - að svo var alls ekki. Margt fleira skilur menn að og kannski var þetta gamla inarkmið um sameiningu allra í ein- um flokki einfaldlega óraunsætt þegar allt kom til alls. Svo mikið er víst að viljann skorti á endasprettinum. Min skoðun er sú að unnt hefði verið að komast nær markinu en gert var. Nú eru íslendingar aftur komnir með fjögurra flokka kerfi." Svavar Gestsson í viötali viö Mannlíf Sigurður Karlsson, verktaki á Selfossi: Veiðileyfi á sjálftöku „Hjá Símanum hafa menn i póli- tísku skjóli stundað sjálftöku af verstu tegund. Það ber vott um sið- gæðisbrest hjá stjórnmálamönnum að ósköpin skuli hafa verið varin af þeim, en þeir menn verða að fara á und- an með góðu fordæmi. Ella verða þegnarnir ekki betri. Það er merkilegt að stjómarformaður Símans geti selt fyrirtækinu góð ráð fyrir hálfa milljón í hverjum mán- uði, á sama tíma og það hefur tapað um 500 milljónum á bréfabraski úti í heimi. Stóra spurningin er sú hver hafi veitt Friðriki Pálssyni veiðileyfi á sjálftöku, sem kveðst raunar hafa ráðherrabréf upp á. Ég ætla að vona að stjórn Símans sjái sóma sinn í afsögn, enda er ráðslagið hjá fyrirtækinu sóðaskapur frá fyrstu hendi.“ Kristjana Vagnsdóttir, húsmóðir á Þingeyri: Stjómin er úti á þekju „Sfjómin öll á að segja af sér - og ráðherrar líka. Finnst þér eðlilegt að stjómin viti ekki hvað formaðurinn er að gera? Og af hverju er stjórnin úti á þekju? Og það eru borgaðar milljónir af okkar peningum til þessara manna fyrir símagjöldin okkar og ærin em þau. Það að maður geti ekki lyft upp tóli nema það kosti stórfé er undarlegt. Nú skal ég ekki segja hvernig menn við þurfum í stjórn þessa fyrirtækis, en þeir þurfa að vita hvað þeir eru að gera. Venjulegir íslendingar mega ekki fá sér kókflösku og snúö öðravísi en vera reknir með tapaða æra, eins og pepsi-drengurinn. En seinna kom Ámi Johnsen og stal - en var í kjölfarið falið í sinni heimabyggð að halda útihátíð með glans!" Sigurjón Benediktsson, tanrilœknir á Húsavík: Völdin sœt og sœtindi óholl „Ég held að hálf þjóðin þurfi að segja af sér, enda gjörspillt. En auðvitað mun þjóðin ekki sjá sóma sinn í því. Stjóm Símans er auðvitað eins og Karíus og Baktus í munni fyrirtæksins, en þeir félagar eru víða á ferð þegar vel er að gáð. Og allir vita að völdin eru sæt og sætindi eru óholl. Það þarf að bursta munn þjóðarinnar til að ná óhollustunni út og þá efast ég um að munnskol og tannþráð- ur dugi einir og sér. Og talandi um skemmdimar; þá er það svo skrítið að stundum þarf krónur í fyllingar til þess að bæta þann skaða sem orðið hefur.“ Óskar Bergsson, varaborgarfulltrúi í Reykjavík: Sturlu mislagð- ar hendur „Ég er ekki alveg viss um að slíkt sé sterkasti leikurinn í stöðunni. Hins vegar kemur mér á óvart að stjómarandstaðan á Alþingi skuli ekki bera upp vantrauststillögu á sam- gönguráðhema. Þá er ég ekki viss um að marg- ir félagar mínir í Framsóknarflokknum gætu stutt ráðherrann. Sturlu hafa verið mislagðar hendur í flestum ef ekki öllum málum sem hann hefur komið nærri. Þar ber mörg mál viðvíkj- andi Símanum hátt, en þar fyrir utan trúnaðar- lækni Flugmálastjórnar og rannsókn flugslyss- ins í Skerjafirði - svo einhver af vandræðamál- um Sturlu séu nefnd.“ Q Hvert furöulega máliö á fætur ööru hefur komiö upp hjá Símanum undanfariö. Aöal- og varafulitrúar Samfylkingar í stjórn fyrirtækisins hafa þegar sagt af sér. Fjölmiðlun og pólitík Ekki mun ótitt að Mör- landi á heimleið til gamla Fróns, eftir langa eða skamma útivist, grípi ís- lensku dagblöðin fegins- hugar eftir flugtak, fletti þeim og upplifi þesskonar notakennd sem tengist endurfundi við gamla kunningja. En samtímis finnur hann vísast til ónotakenndar þegar hann í huganum ber hérlend blöð saman við blaðakost- inn sem í boði var erlend- is. Að minnstakosti verð- ur mér ósjaldan hálfómótt þegar ég er kominn í loftið með íslensku blöð- in milli handanna og hugsa til blað- anna sem ég hef verið að lesa hvort heldur í Kaupmannahöfn, Osló, Stokkhólmi, London, París, Berlin eða Aþenu. Að sönnu eru íslendingar fáir og smáir og hafa takmörkuð efni til að keppa við fjölmennar þjóðir um vandaðan og fjölbreytilegan blaða- kost, en kannski skiptir stærðin ekki öllu máli, heldur sá aflóga hugsunar- háttur sem er rótfastur í þjóðarþel- inu og ljær allri hérlendri fjölmiðlun svip útnárans. Fyrr og nú Breytingar sem urðu við tilkomu sjónvarps og síðar einkarekinna út- varpsstöðva voru róttækar en ekki að öflu leyti gæfulegar. Vissulega urðu þær til þess að hefðbundin flokksblöð hurfu smámsaman af vettvangi og máttu að margra dómi missa sig. En þarmeð hvarf sú snarpa, litríka og stundum óvægna blaðamennska sem setti sterkan svip á þjóölífið fyrir þremur eða fjórum áratugum. Umfjöllun um menningar- mál var líka snöggtum um- fangsmeiri og líflegri, fimm tfl sex blaðadómar um hverja leiksýningu og ijöldi ritdóma um helstu bækur. Nú mega leiksýningar þakka sínum sæla fyrir tvo dóma og úrvalsbækur hið sama. Stjórnmálaumræða var sömuleiðis hressilegri og all- ar línur miklu skýrari. Kost- imir við flokksblöðin voru þeir að lesendur vissu hvar þeir höfðu hvert og eitt þeirra og lásu þau með hlið- sjón af því. Þótt Morgunblað- ið og Vísir væru í einkaeign, vom þau dygg málgögn Sjálfstæðisflokks- ins og Vísir reyndar stundum dygg- ari en Mogginn! Við þessar aðstæður var ekki óeðlilegt að blaðamenn holt og bolt væru flokksbundnir og litu á sig sem boðbera tiltekinna pólitískra við- horfa. Ríkisútvarpið átti i orði kveðnu að vera yfir flokkapólitík hafið, en það var einber fyrirsláttur. Útvarpsráð var rammpólitískt og misbeitti valdi sínu hvað eftir annað í þágu flokkspólitískra hagsmuna, enda voru formenn ráðsins að jafn- aði ritstjórar Morgunblaðsins, Tím- ans eða Alþýðublaðsins!! Á þessum ámm var hérlend fjölmiðlun semsé á svipuðu róli og við þekkjum í ríkjum Afríku, Asíu og Suður-Ámríku. Alvörufjölmiðlar? Allt hefði þetta átt að gerbreytast þegar flokksblöð hurfu og Ríkisút- varpið fór að keppa við einkareknar sjónvarps- og útvarpsstöðvar. En þær breytingar sem áttu sér stað voru allar í skötuliki. Fréttamönn- um, ritstjórum og forstöðumönnum ljósvakamiðla þótti eftir sem áður ekkert athugavert við að bera flokks- skírteini. Æðsti maður og margir helstu deildarstjórar Rikisútvarps- ins voru flokksbundnir. Fréttamenn á öllum fjölmiðlum voru á uppboði og seldust stórfyrirtækjum fyrir vænar fúlgur. Viðhorfið var að fréttamenn væru í engu frábrugðnir framagosum hins nýríka íslenska uppasamfélags. Þeir áttu enga sam- leið með erlendum kollegum. Ég hef það eftir fyrstu heimildum að norrænir, þýskir, breskir og bandarískir fjölmiðlamenn líta svo á að þeir séu fjórða valdið í samfélag- inu og störf þeirra geti því aldrei samrýmst flokksaðild. Þeir geta vita- skuld átt sínar pólitísku skoðanir, en hlutverk þeirra krefst þess að þeir af- sali sér þeim munaði að starfa í þágu sljórnmálaflokka. „Hvernig getur flokksbundinn fjölmiðlamaður varð- veitt trúverðugleik sinn?“ spurði mig danskur blaðamaður. „Það er ekki hægt.“ Hann vildi ekki trúa því að ritstjórar íslenskra dagblaða og for- stjórar fjölmiðla væru formlega bundnir stjórnmálaflokkum. Fréttamenn austanhafs og vestan, sem ég hef haft kynni af, minna mig aö því leyti á góða presta, að þeir telja sig hafa heilaga köllun. Hvergi nema á íslandi þykir við hæfi að prestar vasist í pólitík, þó þeir megi auðvitað hafa sínar prívatskoðanir á þjóðmálum. Ég veit um eitt dæmi þess að maður segði sig úr stjóm- málaflokki þegar hann tók við opin- beru embætti; Þegar Heimir Steins- son varð útvarpsstjóri sagði hann sig úr Sjáifstæðisflokknum og varð þannig einn allrafyrsti fjölmiðlamað- ur hérlendis sem tók starf sitt svo al- varlega, að hann vissi hvað tfl síns friðar heyrði. Sigurður A. Magnússon Sígurður A. Magnússon ríthöfundur „Ekki mun ótítt að Mörlandi á heimleið til gamla Fróns, eftir langa eða skamma útivist, grípi íslensku dagblöðin feginshugar eftir flugtak, fletti þeim og upplifi þess- konar notakennd sem tengist endurfundi við gamla kunningja. “

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.