Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2002, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 9. MARS 2002
Fréttir
DV
Lögreglan leitaði eiganda Lykilhótela í gær en fann ekki:
Reyndu handtöku
án árangurs
- lögmenn eru meö samtals fimmtán kröfur á hendur honum
Stuttar fréttir
■
Lögreglan í Reykjavlk hugöist í
gærmorgun handtaka Jón Ragn-
arsson, eiganda Lykilhótela, þar
sem hann hefur ekki sinnt ítrekuð-
um boðunum í fjárnám. Fór að-
gerðin fram að boði sýslumanns-
embættisins i Reykjavík, Lögregl-
unni tókst ekki að hafa uppi á Jóni
þrátt fyrir eftirgrennslanir sam-
kvæmt upplýsingum DV.
Ástæða þessara lögregluaðgerða
er sú að Lögmannsstofa í Reykja-
vík hefur í þrígang árangurslaust
fyrir hönd skjólstæðinga sinna far-
ið fram á fjárnám hjá Lykilhótel-
um í kjölfar dóma sem
falliö hafa á fyrirtækið.
Lögmannsstofan er með
níu kröfur á hendur Jóni.
Aðrir aðilar eru með sex
kröfur á hendur honum.
Að meginstofni til er um
að ræða kröfur vegna
launa, sem og vangoldinna
lifeyrissjóðsiðgjalda.
Eins og DV hefur greint
frá hefur Jón verið dæmdur til að
greiða fjölmörgum fyrrverandi
starfsmönnum bætur vegna ým-
issa vinnuréttarbrota en skjólstæð-
Jón Ragnarsson.
ingar hafa enn ekki fengið
krónu í sinn vasa.
Brot Jóns áttu sér einkum
stað á tveimur hótelum sam-
kvæmt dómunum, á Hótel Val-
höll og á Lykilhóteli við Mý-
vatn. Dæmt var í fjölda mála í
október og höfðu verkalýðsfé-
lögin miiligöngu í hluta mál-
anna. Elstu brotin ná aftur tii
ársins 1999 og snúast um mis-
háar fjárhæðir. í nokkrum tilfellum
var dæmt að vanefndir hefðu orðið á
kjarasamningum, s.s. að lögbundnir
fridagar hefðu ekki verið veittir. Þá
var í öðrum tilvikum dæmt að umsam-
in laun hefðu ekki verið greidd og í
einhver skipti var samkvæmt dómun-
um borgað eftir töxtum sem voru und-
ir lágmarkslaunum.
Jón Ragnarsson sagði í samtali við
DV fyrir skömmu að þessi mál yrðu
gerð upp á næstu dögum og að sjálf-
sögðu myndi ekki koma til þess að
hann yrði hnepptur í bönd. Hann
sagðist óhress með dómana og óá-
nægja starfsmannanna hefði komið í
bakið á honum. DV tókst ekki að ná i
Jón Ragnarsson í gær, þrátt fyrir ít-
rekaðar tilraunir. -hlh
Fyrri undanúrslit:
MR áfram á
sigurbraut
- sigraði lið MH
„Það er bara góður undirbúning-
ur sem er að skila sér í góðri frami-
stöðu í keppninni," sagði Snæbjörn
Guðmundsson, einn keppenda
Menntaskólans í Reykjavík, eftir
keppnina í gær. „Okkur gekk mjög
vel i dag en það sama verður ekkert
endilega upp á teningnum næst. Nú
er bara að halda sér á jörðinni og
fara að huga að úrslitaviðureign-
inni sem verður eftir tvær vikur.“
Lið MR náði strax í upphafi góöri
forystu á lið Menntaskólans við
Hammrahlíð og þegar keppnin var
yfirstaðin stóðu leikar 38-19 fyrir
lið MR. Hin undanúrslitaviðureigin
verður eftir tæpa viku en þar mun
Menntaskólinn við Sund etja kappi
við Verkmenntaskóla Austurlands í
Neskaupstað. Það lið sem sigrar
mætir MR í úrslitum. -áb
Börn í meðferö:
Engir styrkir
Foreldrar bama á meðferðarheimil-
um hljóta lítinn sem engan styrk frá
ríkinu vegna feröakostnaðar. Þetta
kom fram í fyrir-
spumatíma á Al-
þingi þegar Ásta R.
Jóhannesdóttir og
fleiri bám saman
hagi foreldra lang-
veikra bama og
foreldra meðferð-
arbama. Ásta
Ásta R. sa£Öi að í síðara
Jóhannesdottir tOvikinu þekkti
hún fólk sem hefði
þurft að greiða hundrað þúsunda
króna árlega í ferðakostnað. En foreldr-
ar langveikra fengju ferðir greiddar.
Páll Pétursson félagsmálaráðherra
sagði aö vistun bams væri gerð aö beiðni
foreldra og fagaðOa og foreldrar bama á
meðferðarheimOum slyppu við kostnað
sem annars hlytist af því að hafa þau
heima. í reglum segði að foreldrar ættu
að bera ferðakostnað. Þeir gætu þó leitað
tO bamavemdamefndar eða Bamastofu
um sérstaka fjárhagsaðstoð. -BÞ
Blíiöift í da/í
Oruggur sigur
MR-ingar sigruöu MH-inga öruggiega í Gettu betur í gærkvöld og voru aö vonum kampakátir.
Deilur milli Eðalvara og Samkeppnisstofnunar:
Ný ákvörðun skal
tekin í málinu
- umboðsmaður Alþingis fellst á sjónarmið Eðalvara
„Ég er mjög
ánægður með
þessa niðurstöðu
og ég fagna henni
sem sigri litla
mannsins á kerf-
inu,“ segir Sigurð-
ur Þórðarson hjá
fyrirtækinu Eðal-
vörum. Hann hef-
ur lengi eldað grátt
sOfur við Sam-
keppnisstofnun vegna málefna fyrir-
tækis sins en nú síðast reyndi HeOsu-
verslun íslands, sem er dótturfyrir-
tæki Lyfjaverslunar íslands, að koma
óorði á fyrirtæki Sigurðar að hans
Sigurður
Þórðarson.
sögn. Auglýsingar birtust í fjölmiðlum
þar sem því var slegið fóstu
að ákveðið ginseng sem
verslun Sigurðar var með
tO sölu innOiéldi mOtið af J
skordýraeitri og kemísk
um efnum sem röskuðu
örverufræðOegu jafh-
vægi í vörunni. Þetta
segir Sigurður ekki ein-
ungis vera rangt heldur
hrein og bein öfugmæli þar sem það
var staðfest af erlendum rannsóknar-
stofum auk HoOustuvemdar ríkisins
að ginseng HeOsuverslunar íslands
innihéldi skordýraeitur en ekki öfugt.
Sigurður leitaði tO Samkeppnis-
stofhunar vegna meintra auglýsinga
sem hann taldi að kæmu óorði á fyrir-
. tæki sitt og kostuðu það
I milijónir í tap. „Þetta er
I ekki í fyrsta skipti sem
I ég á í deOum við Sam-
keppnisstofnun og þeir
vora ekki lengi að leggja
blessun síria yflr þessa
aðfor,“ segir Sigurður.
Hann leitaði þess vegna tO
umboðsmanns Alþingis sem
féllst á sjónarmið hans og lagði fyrir
áfrýjunamefnd samkeppnismála að
taka nýja ákvörðun í málinu. Sigurður
segir það vera mikinn sigur fyrir sig
og Eðalvörur. -áb
Fordómar
innbyggðir í
kerfið
Líkti
þingmanni við
fóstur
EIR-síöan
Svipaður góðum sportbíl
DV-Bílar
Áætlanir fjarri lagi
Náttúraverndarsamtök Islands
telja að arðsemisáætlanir Landsvirkj-
unar vegna Kárahnjúkavirkjunar séu
fjarri lagi. RÚV greindi frá.
Hlutafélag um rafmagið
Valgerður Sverr-
isdóttir iðnaðarráð-
herra hefur mælt
fyrir frumvarpi um
stofnun hlutafélags
sem taki viö rekstri
Rafmagnsveitna
ríkisins. Gert er ráð
fyrir að nýtt hluta-
félag í eigu ríkisins taki við eignum
og skuldbindingum Rafmagnsveitn-
anna. RÚV greindi frá.
Engin vaxtalækkun
Birgir ísleifur Gunnarsson seðla-
bankastjóri telur ekki tOefni tO
vaxtalækkunar að sinni. Hann segir
að forsendur í efnahagsmálum geti
breyst hratt og þróun og horfur í
gengis- og verðlagsmálum á næstu
vikum og mánuðum hafi mikið að
segja um vaxtamálin.
Túristatekjur
HeOdargjaldeyristekjur af erlend-
um ferðamönnum voru um 38 mOlj-
arðar króna í fyrra, rúmlega sjö
mOljörðum meira en árið 2000.
Laxnesshátíð
H Laxnesshátíð
' “ verður haldin i Kult-
urhúsinu í Stokk-
hólmi 20. mars en
sama dag verður sér-
stök sýning með tO-
vitnunum í verk
skáldsins opnuð í
borginni. Laxness-
hátíðir verða síðan haldnar í Gauta-
borg, Örebro, Umeá, Huskvama,
Jönköping, Malmö og Lundi síðar á
árinu. Mbl. greindi frá.
Tvö ný hótel
Áform eru um að reisa tvö hótel
við Aðálstræti í Reykjavík. Annað
yröi á lóðinni Aðalstræti 16 en hitt í
Aðalstræti 4. RÚV greindi frá.
Kaupa í Securitas
Tryggingafélagið Sjóvá-Almennar
hefur eignast meirihluta í öryggis-
gæslufyrirtækinu Securitas.
Gögn til saksóknara
Fulltrúar ríkislögreglustjóra af-
hentu ríkissak-
sóknara gögn sín í
máli Árna John-
sens klukkan eitt í
dag. Gögnin voru
flutt í tveimur stór-
um pappakössum
og öðrum minni.
Afhending þeirra
hefur dregist vegna þess að starfs-
menn ríkislögreglustjóra þurftu að
taka af þeim fjölda afrita. Vísir.is
greindi frá.
Risatrukkur út af
Björgunarsveitin Vikverji var
köUuð út um klukkan átta í morgun
þegar 10 hjóla fiskflutningabíU fór
út af þjóðvegmum við bæinn Brekk-
ur í Mýrdal. Björgunarsveitarmenn
fóru á 15 tonna trukki sem björgun-
arsveitin á og drógu bflinn upp á
þjóðveg aftur með aðstoð veghefils
frá Vegagerðinni. -hlh
Leiðrétting
í frétt blaðsins í fyrradag um lok
rannsóknar ríkislögreglustjórans á
málum Árna Johnsens, fyrrverandi
alþingismanns, var sagt að Flugráð,
sem Ámi á sæti i, færi með stjóm
flugmála í landinu. Þetta er rangt.
Flugráð er ráðgefandi ráð en stjóm
flugmála er í höndum Flugmála-
stjórnar og samgönguráðherra. Beðist
er velvirðingar á mistökunum.