Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2002, Blaðsíða 20
20
LAUGARDAGUR 9. MARS 2002
Helgarblað
DV
170
SELTJARNARNES
Draumahverfið
DV kannaði hvert væri draumahverfi Reykvíkinga:
101 draumur
101 rís
Miöbærinn er oröinn draumahverfi
Reykvíkinga í staö Vesturbæjarins
sem hrapar niöur í 5.-6. sæti.
Kópavoginn og hina nýju verslunar-
miðstöð Smáralind. Ef þú nennir
ekki að flytja í miðbæinn þá skaltu
bíða eftir því að miðbærinn flytji
heim til þín!
Grafarvogur hefur verið í örri
þróun undanfarin ár og tekur hann
stökk í vinsældum núna. í fyrra
vildu 7,6% Reykvikinga eiga heima
í Grafarvoginum sem var nokkru
minna en á heima í hverfinu. Nú
vilja hins vegar 13,3% eiga heima I
nýjasta úthverfmu. Slær Grafarvog-
urinn þar með út vinsæl hverfi eins
og svæði 105 með sínum hlíðum og
mýrum og tekur Vesturbæinn í nef-
ið.
Skýrir draumar
Þegar fólk á sér skýra drauma er
enginn vandi að vera nákvæmur.
Fólk nefndi sérstaklega Fossvoginn,
Laugarnesiö, Skerjafjörð og Þing-
holtin þegar það var spurt um
draumahverfi. Þetta verða að teljast
ólík svæði. Fossvogurinn er rómað-
ur fyrir veðursæld og flokkast vana-
lega sem „bamvænt" hverfi, Laug-
arnesið og Skerjaijörðurinn hafa
sjávarsíðuna og einbýlin en í Þing-
holtunum ríkir annar veruleiki þótt
vissulega sjáist þar sums staðar til
sjávar.
Það hlýtur að vekja nokkra at-
hygli að af þeim sem spurðir voru
hvar í Reykjavík þeir vildu helst
búa svöraðu þrír Hafnarfjörður,
þrír Kópavogur, einn vildi búa í
Garðabæ, einn á Álftanesi en eng-
inn nefndi Mosfellsbæ.
-sm
Höfuðborgarbúar hafa síðustu
misserin verið fasteignaóðir. Segja
má að einhvers konar þjóðflutning-
ar hafi átt sér stað. Þekktur er flótti
af landsbyggð til borgar og innan
borgarmúranna eru allir á sífelldu
iði eins og Fasteignablað Morgun-
blaðsins ber vitni um. í tengslum
við flutningana hefur frægðarsól
Völu Matt risið sem aldrei fyrr þar
sem hún valsar í þvi sem næst
beinni útsendingu um frambærileg-
ar stofur og salemi.
Vesturbærinn hrapar
Fyrir um það bil ári gerði DV
könnun á því hvert væri drauma-
hverfi Reykvíkingsins. Þar bar helst
til tíðinda að Vesturbærinn átti
gríðarlegu fylgi
að fagna en 22,5
prósent Reyk-
víkinga vildu
helst búa í Vest-
urbænum. Það
sem reyndar
gerir Vesturbæ-
inn erfiðan er að
hann er í tveim-
ur póstnúmer-
um. Þótt flestir
líti á Vesturbæ-
inn sem 107
Reykjavík er
elsti hluti hans í
101. Nokkru á
eftir Vesturbæn-
um kom 101
Reykjavík, mið-
bærinn sjálfur,
siðan Breiðholt
og svo koll af
kolli.
Nokkrar
sviptingar hafa orðið í draumum
Reykvíkinga hvað varðar búsetu.
Miöbærinn, 101 Reykjavík, hefur
skotist á toppinn og vilja 18,4%
Reykvíkinga búa þar. Nokkru neðar
kemur Seljahverfið, siðan Grafar-
vogur, svæði 105 og þá loks 107
Reykjavík í fimmta sæti sem Vest-
urbærinn deilir með Árbæ.
Fall Vesturbæjarins er nokkuð og
spurning hvort hægt sé að bein-
tengja vinsældir hverfisins við
gengi Knattspymufélags Reykjavík-
ur. Árið 2000 varð KR meistari og
Vesturbærinn vinsælasta hverfið en
sumarið 2001 var Vesturbæingum
nokkru þyngra í skauti því KR lenti
í sjöunda sæti. Tómas Guðmunds-
son og kvæöi hans um Vorkvöld í
Vesturbænum sækir því minna á
fólk þegar það les fasteignayfirlitin
en áöur. í stað þess er komin inn
stemning fyrir miðbænum.
Vesturbærinn á niðurleið
KR landaöi meistaratitli áriö 2000 og þaö geröi Vesturbærinn í
skoöanakönnun snemma árs 2001. Hvort tveggja er á hraöri niöurleiö.
Miðbærinn víða
Við viljum ekki versla í miðbæn-
um en það er fint að búa þar eru
skilaboð sem hægt er að lesa út úr
könnun DV. Á því ári sem liðið er
hefur verið mikil umræða um
skipulagsmál og þá sérstaklega um
miðbæinn. Kannski málið sé að
Reykvíkingar hafi gert upp við sig
að þeir vflji búa í borg þar sem
húsalengjur, mannlíf og þægileg
þrengsli einkenna lífið og þar sem
stutt er á krána ef svo ber undir.
Ekki er hægt að segja annað en
að Seljahverfið komi sterkt inn í
þessari könnun. í síðustu könnun
var Breiðholtið aflt með 11,9% vin-
sældir en nú vilja 13,5% borgarbúa
eiga heima í Seljahverfinu. Líklegt
er að þar komi inn nálægðin við
„Miöbærinn" fór annað
Seljahverfiö er oröiö næstvinsælasta hverfi Reykjavíkur ef marka má skoöanakönnun DV.
Kannski vinsældirnar megi á einhvern hátt skýra meö nálægöinni viö Kópavog og Smáralind.
Arnold
erfiður í
sambúð
Fyrir skömmu var Premiere-
tímaritið með frétt um vöðva-
tröllið Arnold Schwarzenegger þar
sem því var
haldið fram að
hann væri ráð-
ríkur, yfirgangs-
samur auk þess
sem hann hefði
haldið fram hjá
konu sinni,
Mariu Shriver.
Eftir að greinin
birtist ruku
margir upp til
handa og fóta til
varnar Arnoldi og var í þeim hópi
James Cameron og Jamie Lee
Curtis. Þótti nokkuð draga úr
málsvörn Arnolds að kona hans
þagði þunnu hljóði á meðan lætin
stóðu.
Maria Shriver hefur nú í fyrsta
sinn tjáð sig um samband þeirra. í
viðtali viðurkennir hún að hjóna-
band þeirra hafi ekki alltaf verið
„slétt og fellt“. Húsbóndi hennar
pirri hana bæði og hvetji til dáða.
Hún segir einnig: „Það eru mistök
að halda að eiginmaðurinn geti
verið besta vinkonan, besti elsk-
huginn, besti stuðningsaðilinn,
umhyggjusamastur og sá besti.
Það er of mikið lagt á eina mann-
eskju að ætlast til þess.“ Hún við-
urkennir að hún hafi alltaf búið
um rúmið sitt. En þau ummæli
sem sérstaklega vöktu athygli
voru þessi: „Af hverju varð ég
ekki hrifinn af stráknum í næsta
húsi? Ég á margar vinkonur sem
eiga menn sem eru mun auðveld-
ari í sambúð en sé sem ég valdi.“
Kannski er þetta ekki jafn ótvíræð
stuðningsyfirlýsing og sú sem
James Cameron sendi frá sér.
Arnold
Schwarzenegger.
Kominn
með
spangir
Sennilega finnst engum gaman
að vera með spangir en það er
huggun harmi gegn að flestir af-
plána þær þjáningar í takmarkað-
an tíma á ung-
lingsárum. Það
er þó ekki svo
með alla. Leikar-
inn heimsfrægi,
Tom Cruise, fékk
nýlega þann úr-
skurð að hann
væri með afskap-
lega skakkt bit
og þarf kappinn
nú að ganga með
spangir á tönn-
unum í alflangan
tíma til þess að
rétta þetta af. Tom verður fertugur
á þessu ári svo mörgum finnst
þetta eflaust heldur seint.
Þessi tannlýti leikarans fræga
sem virðast hafa farið fram hjá
milljónum kvikmyndahúsgesta
uppgötvuðust að sögn þegar hann
fór með böm sín tvö á fund tann-
réttingasérfræðings. Sérfræðingur-
inn sannaði eftirminnilega að
hann þekkir góðan kúnna þegar
hann sér hann og það fór öll fjöl-
skyldan út með spangir. Rétt er að
rifja upp að hér er utn að ræða tvö
fósturbörn sem Tom og Nicole Kid-
man tóku að sér meðan þau voru
gift.
Spangir Toms era ekki þessar
dökku með kubbunum á heldur
glær útgáfa sem ber ekki mikið á
hversdagslega. Hann getur tekið
þær út úr sér meðan á tökum
stendur en þarf að ganga með þær
þess utan. Við verðum að vona að
spangimar trufli ekki náin sam-
skipti hans við Penelope Cmz en
spangir hafa aldrei þótt mjög kyssi-
legar.
Tom Cruise
Hann er kominn
meö spangir á
tennurnar.