Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2002, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 9. MARS 2002
Fréttir
Mikil samlegðar- og hagræðingaráhrif af kaupum Orkuveitu á Landssímanum
Vert að skoða nánar
- þótt síðar verði, segir Alfreð Þorsteinsson. Fráleitt, segja sjálfstæðismenn
Alfreð Þorsteinsson, formaður
stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, seg-
ir að það standi nú upp úr eftir að
Guðmundur Þóroddsson skilaði
greinargerð til stjórnarinnar um
kosti þess og galla að Orkuveitan
keypti kjölfestuhlutinn í Landssím-
anum að veruleg samlegðaráhrif
gætu verið fólgin í slíkum kaupum.
Alfreð segir að á sama tíma og TDC
vildi í viðræðum um kaupin á Sím-
anum bæði lægra verð fyrir fyrir-
tækið og setti fram kröfu um að það
fengi að hækka gjöld fyrir þjónust-
una hljóti menn að spyrja sig að því
hvers vegna slíkt kapp sé lagt á að
semja við erlenda fjárfesta þegar
flest bendi til, eins og fram komi í
greinargerðinni, að með því að selja
Orkuveitunni þurfi ekki að hækka
gjöldin. Málið var rætt á stjórnar-
fundi Orkuveitunnar í gær þar sem
umrædd greinargerð forstjóra var
lögð fram en á þeim fundi bókuðu
þau Jóna Gróa Sigurðardóttir og Vil-
hjálmur Vilhjálmsson, fullrúar D-
lista, að þeim þætti sú hugmynd að
selja hiutafélagið Landssímann ein-
okunarfyrirtækinu Orkuveitunni
„fráleit". Auk þess myndi það hækka
orkugjöld á borgarhúum að fara út í
slíkt. Alfreð Þorsteinsson visar því á
bug að þessi kaup myndu hækka
orkugjöld og segir sjálfstæðismenn
ekki bestu ráðgjafa sem hægt sé að fá
varðandi málefni Landssímans.
Hann viðurkennir þó að þetta
mál sé í bið á meðan einkavæðing-
arnefnd eigi enn í samskiptum við
útlendinga.
Vilhjálmur
Vilhjálmsson.
Alfreð
Þorsteinsson.
Guömundur Jóna Gróa
Þóroddsson. Sigurðardóttir.
í greinargerð Guðmundar Þór-
oddssonar er gert ráð fyrir því að
ná fram hagræðingu með því að
reka bæði Orkuveituna og Lands-
símann áfram sem sjálfstæð fyrir-
tæki með þá grunnstarfsemi sem
þau stunda í dag en stofna sameig-
inlegt þjónustufyrirtæki utan um
stoðsviðin. Þannig gætu bæði fyrir-
tækin líklega haldið sínu félags-
formi og séreinkennum en notið
þeirrar hagræðingar sem felst í
sameiningu stoðsviðanna.
BG
R-listinn kynnir óflokksbundna frambjóðendur:
Læknir og prestur fá sæti
- Dagur B. Eggertsson í 7. sæti og Jóna Hrönn Bolladóttir í því tólfta
Dagur B. Eggertsson læknir og
Jóna Hrönn Bolladóttir miðbæjar-
prestur verða frambjóðendur á R-list-
anum utan flokka og setjast í 7. og 12.
sæti listans. Þetta er sameiginleg niö-
urstaða kjörnefndar flokkanna sem
að listanum standa og Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra.
Dagur hafði um nokkurt skeið verið
orðaður við þetta sæti og um skeið
virtist það standa í veginum að sam-
eina framboð og framhaidsnám sem
hann hyggur á í smitsjúkdómalækn-
ingum í Sviþjóð. Það mál leystist
þannig að Dagur mun stunda námið
að verulegu leyti hér heima. Dagur
segist í samtali við DV telja að næstu
ár ráði úrslitum um það hvernig
Reykjavik og íslendingar fari út úr
samkeppninni við útlönd um fólk og
fyrirtæki. „í því sambandi skipta,
held ég, fimm málaflokkar miklu
máli. I fyrsta lagi þarf að vera fyrir
hendi metnaðarfull skólastefna. í
öðru lagi þarf að vera hér alþjóðlegur
borgarbragur. í þriðja lagi þarf at-
vinnulífið að vera framsækið. I
fjórða lagi þarf þjónustan við borgar-
ana að vera skilvirk og góð. Og í
fimmta lagi þurfa að vera í borginni
nútímalegir stjórnunarhættir. Sjálfur
hef ég mestan áhuga á og mun beita
mér mest í verkefni sem kallast
þekkingarþorp í Vatnsmýrinni þar
sem leiða þarf saman háskólafólk,
sprotafyrirtæki og fleiri aðila til að
búa til nýsköpunarumhverfi sem
gæti orðið afl í hagkerfi framtíðar-
innar,“ segir Dagur. Aðspurður
hvort hann telji þá að flugvöllurinn
og flugvallarstarfsemin þurfi að víkja
segist Dagur ekki telja nauðsynlegt
að flýta þeim áformum sem þegar eru
uppi um takmörkun á þeirri starf-
semi. Hitt sé ljóst að þegar til lengri
tíma sé litið, 25-50 ára, muni þessi
starfsemi þó væntanlega fara.
Jóna Hrönn Bolladóttir miðbæjar-
prestur hefur til þessa ekki verið
virk í pólitísku starfi en starf hennar
sem miðbæjarprests hefur vakið
mikla athygli en þar hefur hún starf-
að með ýmsum hópum, jafnt ungling-
um, almennum borgurum sem utan-
garðsmönnum. Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri lét þau orð
falla þegar listinn var kynntur í gær
að R-listinn vildi sjá fyrir öllum þörf-
um, bæði andlegum og líkamlegum,
og því væru komnir bæði læknir og
prestur á listann.
-BG
Ný á llsta
Dagur B. Eggertsson, 7. maöur R-listans í Reykjavík, og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri ræöast viö. Jóna Hrönn Bolladóttir miöbæjarprestur,
sem sést til hægri, veröur í 12. sætinu.
Skjálftar halda áfram við Mýrdalsjökul:
Taka ber niðurstöðu sjálf-
virkra mælinga með fyrirvara
- segir Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur
„Það ber að taka upplýsingamar
á vefnum með þeim fyrirvara að þar
eru bráðabirgðaniðurstöður úr sjálf-
virkri mælingu sem eftir á að fara
yfir til að fá endanlega útkomu,"
sagði Ragnar Stefánsson jarðeðlis-
fræðingur við DV.
Margir fylgjast með jarðskjálfta-
vef Veðurstofunnar til að sjá hreyf-
ingar sem þar koma fram á landinu.
Skjálftavirkni er enn nokkuð stöðug
undir Mýrdalsjökli, helst í honum
vestanverðum, í og við Goðabungu.
í gær komu fram á vefnum tveir
skjálftar skammt austan Skóga und-
ir Eyjafjöllum á 11 og 15 kílómetra
dýpi.
„Vegna skekkju í frumniðurstöð-
unum koma þeir fram á þessum
stað. Óregluleg bygging jarðlagana
gerir það að verkum að þeir stað-
setjast utan upptakanna. Þessir
skjálftar hafa verið ofar, á Fimm-
vörðuhálsinum eða í Goðabungunni
sjálfri," sagði Ragnar.
Vlð skjálftamælana
Ragnar Stefánsson vill taka mælingum sjálfvirkra skjálftamæla meö fyrirvara.
Hann segir að það komi
ekki á óvart aö sjá skjálfta á
10-15 kílómetra dýpi við
Mýrdalsjökul en yfirleitt séu
þeir grynnri. Hann bætir við
að þær hreyfingar sem í jökl-
inum eru núna séu ekki
öðruvísi en það sem menn
þekkja.
„Það er mikið ið á þessu
svæði. Það sem sker sig úr
núna er hve lengi fram eftir
vetri þetta stendur. Við höf-
um verið að sjá með ná-
kvæmum mælingum þenslu
á svæðinu fyrri partinn í vet-
ur. Hlaup úr jöklinum fyrir
tæpum þrem árum sýnir að
svæðið er lifandi. Við erum á
verði vegna Mýrdalsjökuls
en höfum enn ekki fengið
vísbendingar um að gos sé í
vændum á svæðinu," sagði
Ragnar Stefánsson. -NH
Hrasaði um rör:
Tvær milljónir
í bætur
Hæstiréttur hefur dæmt Lands-
símann til að greiða konu tvær
milljónir króna í miska- og örorku-
bætur vegna óhapps sem varð við
Rofabæ í Reykjavík sumarið 1997.
Plaströr sem leggja átti undir gang-
stétt var um stund lagt þvert yfir
hana án þess að viðvaranir væru
veittar til vegfarenda. Konan kom
skokkandi eftir gangstéttinni, féll
um rörið og fótbrotnaði. Varanlegur
miski konunnar var metinn 15% og
varanleg örorka hennar jafnhá. Sök
var skipt til hálfs á milli konunnar
og fyrirtækisins þar sem aðstæður á
staðnum hefðu að mati dómsins átt
að vara konuna við, hefði hún sýnt
aðgát. -ÓTG
Tveir Litháar:
Dæmdir fyrir
falsaða
dollaraseðla
Tveir menn frá Litháen hafa ver-
ið dæmdir í þriggja mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir að
hafa selt verslunum og veitingahús-
um í Reykjavík falsaða dollaraseðla
í janúar. Hér var um að ræða tíu
seðla sem hver var að upphæð 50
dollarar. Mönnunum er gefið að sök
að hafa vitað „eða haft grun“ um að
seðlamir hafi verið falsaðir. Þeir
hafi fengið þá í viðskiptum eða
keypt þá í borginni Kaunas i Lit-
háen og flutt þá með sér til íslands
ásamt tíu öðrum sams konar seðl-
um. Fyrirtækin sjö fara öll fram á
bætur frá ákærðu, á bilinu frá
4.200-10.000 krónur. -Ótt
Bandaríska sendiráðiö
Veggimir loguðu.
Ákærðir fyrir að
varpa bensín-
sprengju
Þrir ungir menn hafa verið
ákærðir fyrir að varpa bensín-
sprengju á aðsetur bandaríska
sendiráðsins og sendiherrans við
Laufásveg aðfaranótt 21. apríl á síð-
asta ári. Þeim er gefið að sök að
hafa smánað erlenda þjóð og erlent
riki opinberlega.
Þegar bensínsprengjunni var
hent á húsið blossaði upp eldur á
framhlið þess. Ríkissaksóknari
ákærir þremenningana fyrir að
hafa sammælst um nóttina að varpa
bensínsprengju á sendiráðið. Einn
þeirra hafi útbúið sprengjuna - gler-
flösku fyllta af bensíni með kveik á
stútnum. Eftir það er þeim gefið að
sök að hafa farið saman að sendi-
ráðinu. Sá sem útbjó sprengjuna
setti þá á sig húfu og jakka af hin-
um tveimur, bar eld að kveiknum
og hljóp síðan úr húsagarði rétt hjá
með logandi sprengjuna að sendi-
ráðinu og kastaði henni í vegg við
anddyri hússins. Eldur blossaði upp
en öryggisvörður sendiráðsins kom
brátt og slökkti. Nokkrar skemmdir
urðu á framhlið hússins, samkvæmt
ákæru ríkissaksóknara.
Brot þremenninganna getur varð-
að fangelsi allt að sex árum séu sak-
ir miklar. -Ótt