Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2002, Qupperneq 30
30
LAUGARDAGUR 9. MARS 2002
Helgarblað
DV
Dauði ræningjadrottningar
Berbrjósta
heimilishjálp
Útlaglnn
Phoolan Devi á þeim árum þegar hún var foringi ræningjaflokks. Hún leit ekki
á sig sem lögbrjót heiúur baráttukonu fyrir réttlæti.
körlum úr bófaflokknum. Síðar lét hún
reiði sína í ljós þegar þeim var sleppt
lausum en henni haldið eftir vegna
þess að hún var kona af lægstu stétt.
Henni var loks sleppt lausri 1994 og
var hún á skilorði til æviloka þótt hún
hafi aldrei fengið að stíga fram fyrir
dómara alla sína brösóttu tíð.
Úr fangelsi á þjóðþing
Kvikmyndin The Bandit Queen
gerði Devi heimsfræga þegar hún var
sýnd skömmu eftir að hún hlaut frels-
ið. Sýningar á myndinni voru bannað-
ar á Indlandi. Hún var harðlega gagn-
rýnd af æðri stéttar fólki og Devi
sjálfri, sem féll illa sýningar á ofbeldis-
verkum og kynlífi.
Þótt Devi sjálf neitaði að hafa
framið þau glæpaverk sem henni voru
eignuð kom það fyrir lítið. Henni var
líkt við gyðjuna Durga og við Kali sem
er illvíg karlmannaæta. Með þessu trú-
arlega ívafi voru glæpir hennar rétt-
lættir.
Eftir að Devi hún var laus úr fang-
elsi snerist hún til búddatrúar og var
kosin á þing 1996 í kjördæmi þar sem
stéttleysingjar eru í miklum meiri-
hluta. í kosningabaráttunni lofaði hún
að berjast fýrir réttindum hinna lægst
launuðu og sérstaklega fyrir réttindum
kvenna. Hún beið ósigur í kosningum
1998 og varð að fara í felur þegar séð var
fyrir að það átti að ákæra hana fyrir
gömlu glæpaverkin. En hún var aftur
kosin á þing 1999 og naut þá þinghelgi.
Heimili þingkonunnar í Nýju Delhi
varð fundarstaður kvenna sem voru
fómarlömb nauðgana, heimilisoíbeldis
eða mismununar á vinnustað.
Phoolan Devi var brennd á bakka
Ganges og kom til átaka við útfór
hennar á milli andstæðinga hennar og
stuðningsmanna sem héldu því fram
að morð hennar væri af pólitískum
toga og að morðingjamir væm útsend-
arar öryggislögreglu stjómvalda. Einn
stuðningsmannanna lést í átökunum
og funm lögreglumenn særðust.
Um 100 þúsund manns fylgdust með
þegar fyrrverandi eiginmaður hinnar
myrtu, Umed Singh, sem hún skildi
við 1995, kveikti í bálkestinum. Glæpa-
drottningin, sem barðist fyrir jafimétti
og réttlæti, varð að ösku sem kastað
var í heilagt fljót hindúa.
Gagnstætt myndinni sem bíógerðar-
menn gáfu af Devi var hún lágvaxin og
þétthholda og heldur hversdagsleg í út-
liti. Sjálf sagði hún að það væri enginn
glæsibragur á lifi útlaga og ætti enginn
að sækjast eftir slíku hlutskipti.
Hún leit á sjálfa sig sem baráttu-
konu gegn óréttlæti en ekki lögbrjót.
Hún varaði einnig við því að þeir sem
tækju sér vopn í hönd til að berjast við
stjómvöldin settu ekki aðeins sjálfa sig
í hættu heldur leiddu þeir einnig ógn
yfir fjölskyldur sínar. Útlaginn verður
að búa í hrjóstrum eða undir fijám og
matmálstímar era aðeins þegar eitt-
hvað er til að borða.
Eitraður hundur
Eigandi bolabits í Boston er ákærð-
ur fyrir að vera ábyrgur fyrir dauða 30
trjáa í skemmtigarði. Trén steindrep-
ast af óþekktri ástæðu og stóðu skóg-
fræðingar ráðalausir gegn ósköpunum
og gátu enga skýringu gefið á hvað
gekk að trjánum. Svo sá vegfarandi
hvar bolabítur hékk á neðstu grein á
vænu tré. Hann kærði og hundaeig-
andinn var kallaður fyrir.
Skýring var gefm og er hún sú að
hundurinn skerpti tennur sína með
því að bíta í trén og skemmdi með því
börkinn sem aftur leiddi til dauða
trjánna. Hvort sem skýringin stenst
eða ekki var eigandi bolabítsins gerð-
ur ábyrgur fyrir skemmdunum í garð-
inum. En hann afsakaði hund sinn
með því að það væri skömminni
skárra að hann skerpti tennur sínar á
trjágreinum heldur en fótleggjum
manna.
I sjóinn með vaminginn
Smyglari í Miami á Florida er kall-
aður Fyrir borð. Viðumefnið hlýtur
hann af því að auk eiturefna smyglar
hann ólöglegum innflytjendum til
landsins. Þegar hann er kominn það
nærri ströndinni að sjórinn nær full-
orðnum upp að höku skipar hann fólk-
inu að stökkva fyrir borð. Guð og lukk-
an ræður svo hvort það kemst lifandi
á land.
Náunginn var staðinn að því að
smygla fíkniefnum og lenti i einni ferð-
inni i skotárás við lögreglu á báti en
slapp. Nokkra siðar var hann gripinn
við að skipa fólki að stökkva fyrir
borð.
Siðgæðisnefnd Santa Fe í Kalifomíu
stendur fammi fyrir nýju vandamáli.
Þriggja bama móðir í borginni hefur
sótt um leyfi til að útvega berbijósta
heimilisaðstoð. Hún rekur eitt af mörg-
um fyrirtækjum sem útvega konur til
að fara í hús og taka til og þrífa.
Hún er löghlýðin og sækir því um
starfsleyfi fyrir þessa tegund þjónustu.
Siðgæðisnefndin telur að leyfa skuli
þjónustuna, en með skilyrðum, en ekk-
ert í lögreglusamþykkt borgarinnar
bannar að konur megi ryksuga og
þurrka af með brjóstin ber.
Til. þessa hefur nefndin ekki haft
annan starfa en að fylgjast með hvað
sýnt er í bíóum borgarinnar og hvaða
blöð era sett í rekka á almennum blað-
sölustöðum. En engum dónaskap má
stilla út þar sem hætta er á að böm
eigi leið um. Dónabannið nær í kíló-
metra radíus frá þeim stað sem vaf-
sömu efhi er stillt út.
Sé tillit tekið til svona bamavemdar
er liklegt að berbrjósta stofustúlkum
verði bannað að taka til í húsum þar
sem böm eiga heima.
Ólögleg kynfræðsla
Húsmóðir í
bænum Fort
Worth í Texas
var dæmt í 10
ára fangelsi
fyrir kynlífs-
fræðslu. Kon-
an er þrítug
og á tvær dæt-
ur,14 og 15 ára
gamlar. Fyrir
réttinum við-
urkenndi
móðirinn að
hafa veitt
dætram sín-
um kynlífs-
fræðslu með
þeim hætti að
láta þær horfa á þegar hún og stjúpi
dætranna, 34 ára gamall, höfðu í
frammi ástarleiki þar sem ekkert var
skilið undan.
Konan staðhæfði að kennslustund-
irnar væra nauðsynlegur liður í upp-
eldisfræðslunni og að það sem færi
fram innan veggja heimilisins kæmi
heimafólki einu við.
Önnur stúlknanna bar að móðir
hennar og stjúpi hafi neytt þær systur
til að horfa á þau maka sig og hafi þær
verið hvattar til að æfa sig líka sjálfar.
Stjúpfaðirinn hlaut 99 ára fangelsis-
dóm fyrir kennslustundimar.
Þegar indverska bófadrottningin
Phoolan Devi var myrt fyrir utan
heimili sitt 25, júlí 2001 vakti það
heimsathygli. Þá var búið að skrifa
nokkrar bækur um ævintýralegt lífs-
hlaup þessarar undarlegu konu og
nokkrar kvikmyndir höfðu verið gerð-
ar um þau ár sem hún var útlagi og
foringi ræningaflokks. Þekktasta
myndin er The Bandit Queen sem
samt er tilbúin og fólsuð lýsing á kon-
unni og því umhverfi sem hún lifði í.
En ræningjadrottningin var kosin á
þing eftir að hafa dvalið nokkur ár í
fangelsi við illa aðbúð. Devi náði 38
ára aldri.
Heimili þingkonunnar var vel gætt
enda átti hún marga óvini og þeirra á
meðal fólk sem átti harma að hefna.
Þrátt fyrir öryggisgæsluna tókst þrem
grímuklæddum mönnum að komast að
konunni og skutu þeir hana mörgum
kúlum í höfuðið. Lífvörður hennar og
einn árásarmanna særðust en tilræðis-
mönnunum tókst að komast undan.
Hafa þeir enn ekki náðst og enginn
hefur lýst morðinu á hendur sér eða
tilkynnt hver tilgangurinn var.
Devi var kosin á þing 1996 þrátt fyr-
ir að hún var ásökuð um fjölda glæpa.
Meðal þeirra var morð á 22 körlum og
drengjum af hárri stétt hindúa í þorp-
inu Behami. Sagt er að verkin hafi ver-
ið unnin í hefndarskyni fyrir
raðnauðganir þar sem Devi var fómar-
lamb. En aldrei hafa verið færðar
bbm.
sönnur á hverjir frömdu fjöldamorðin
þótt bófadrottningin og flokkur hennar
séu sterklega grunuð.
Ævi Phoolan Devi var umbrotasöm
og ekki hefúr tekist að fylla í allar eyð-
ur sögu hennar þrátt fyrir bækur og
greinar sem um hana hafa verið skrif-
aðar. Hún var fædd í fylkinu Uttar
Pradesh 1964 og þar lifði hún og starf-
aði mestalla ævina. Hún var
næstyngst sex systkina og var fjöl-
skyldan í lægstu stétt eða stéttleysingj-
ar og var bundin við að puða á fljóta-
bátum. 11 ára gömul var hún gefin
manni sem var 20 árum eldri. Hann
átti aðra konu fyrir. Eftir nokkurra
mánaða þrældóm, svelti og barsmíðar
strauk hún aftur heim í foreldrahús.
Faðir hennar sendi hana umsvifalust
til manns síns aftur. Hún strauk aftur
og tók saman við yngri mann og þótt
hún væri enn á unglingsárum var
Devi hörð af sér og lét sér ekki allt fyr-
ir brjósti brenna. Hún hélt aftur til for-
eldranna og varð faðir hennar að
brjóta odd af oflæti sínu og taka við
henni.
Innan tíðar lenti stúlkan í fangelsi
vegna þess að fjölskyldan lenti í ná-
grannadeilum um landamerki. Þegar
hún losnaði lenti stúlkan, sem enn var
innan við tvítugt, í slagtogi með ræn-
ingjaflokki. Næstu árin var útlagahóp-
urinn ýmist í felum í hrjóstragu fjall-
lendi eða á ferð við að ræna þorp og á
flótta undan lögreglunni.
Devi hét að hefna sín og
þegar hún slapp tók hún
aftur saman við rœn-
ingjaflokk og varð innan
tíðar foringi hans. Þau
fóru um fylkið ríðandi á
hestum og rœndu og
rupluðu með lögregluna
á hælunum. Þau tóku
syni rikra landeigenda í
gíslingu og heimtuðu
launsargjöld. 1981 var
gerð árás á þorpið þar
sem Devi var misþyrmt.
Þar voru 22 karlar og
drengir af œðri stétt
teknir af lífi.
í fangelsi án dóms
Foringi bófaflokksins nauðgaði Devi
en næstráðandi hans, Vikram Mallah,
myrti yfirboðarann og varð brátt elsk-
hugi stúlkunnar. Nokkra síðar var
hann felldur af ibúum þorps sem verið
var að ræna og Devi var handtekin. í
þrjár vikur var hún nakin því fötin
vora tekin frá henni og tveir bræður
skiptust á að nauðga henni sem vora
algeng örlög stúlkna af hennar stétt.
Devi hét að hefna sin og þegar hún
slapp tók hún aftur saman við ræn-
ingjaflokk og varð innan tíðar foringi
hans. Þau fóra um fylkið ríðandi á
hestum og rændu og rapluðu með lög-
regluna á hælunum. Þau tóku syni
ríkra landeigenda í gíslingu og heimt-
uðu launsargjöld. 1981 var gerð árás á
þorpið þar sem Devi haföi verið mis-
þyrmt. Þar vora 22 karlar og drengir af
æðri stétt teknir af lífi.
Ræningjadrottningin neitaði ávallt
að hafa staðið að morðunum. 1983 var
henni veitt sakarappgjöf og var það
pólitískur leikur valdhafanna í fylkinu
til að ná í atkvæði stéttleysingja í
kosningum. Hún lagði niður vopn í
bænum Bhind þar sem þúsundir fögn-
uðu henni og hylltu sem þjóðhetju.
Auk morðanna sem nefnd era var
Devi sökuð um 48 aðra alvarlega glæpi
auk mannrána og árása á þorp þar
sem allt fémætt var hirt af íbúunum.
Ekki var staðið betur við skilmála
en svo að Devi var stungið í fangelsi og
þar sat hún í 11 ár án þess að vera
nokkra sinni færð tyrir dómara. Fyrst
í stað deildi hún klefa með nokkram
Þlngkonan
Fyrrum útlagi á heimili sínu 1998. Henni var slepþt úr fangelsi eftir 11
ára vist þar og var skömmu síöar kosin á þing i Nýju Dehli.