Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2002, Qupperneq 50
58
LAUGARDAGUR 9. MARS 2002
FLÓAMARKAÐUR
Marex 290 Sun Cruiser árg. 2001
til sölu, Volvo Penta 260 hp.,bógskrúfa,ankerisspil,
tvær miðstöðvar, GSP, radar.dýptarmælir o.fl. o.fl.
Uppl. í síma 892 7922
Dekkja- og
smurþjónustan,
Hellu,
fæst nú til sölu.
Lionsklúbburinn Engey
heldur árlegan flóamarkað sinn
laugardaginn 9. mars
Sala á flóamarkaðnum hefst kl. 13 og stendur til kl. 16.
Einnig verðum við með tombólu, engin núll.
Fullt hús af góðum fatnaði og munum.
Gerið góð kaup og lítið inn í Lionsheimilið.
Við tökum vel á móti þér!
Allur ágóði rennur til líknarmála.
Lionsklúbburinn Engey
—
Marex 290 Sun Cruiser
Bilaraf
Auðbrekku 20 (ádur Borgartúni 19)
Sími: 564-0400 Fax:564-0404
netf: bilaraf@isl.is
Til Sölu
Húsnæóið skiptist í tvö meginrými, annars vegar
rými þar sem smurþjónusta fer fram og hins vegar
rými þar sem dekkjaviógeróir og þjónusta, tengd
henni, fer fram. Þeim megin sem smurþjónustan
fer fram er góð gryfja, aðstaða fyrir smursíur og
smurolíudælur og stórar innkeyrsludyr. Góðar
hirslur eru fyrir dekk, gott pláss í kringum
umfelgvmarvélina og aðkoma góð. Tilvalið
tækifæri til að eignast sitt eigið fyrirtæki.
Fasteignasalan Bakki,
Sigtúnum 2, Selfossi, simi 482 4000.
Truematic-gasmiöstöövar, þrjár stœröir. Fiita upp
rýmiö meö blœstrl, halda stöðugu hitastigi. Mjög
fyrirferðarlitlar Fyrir bíla, báta, húsbíla, vinnuvélar,
vörubíla, byggingarkrana.
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmwmmmmmmtBsmmsí *
Olíumiöstöövar meö blœstri, tvœr stœröir.
Einnig olíumiðstöövar sem hita bœði
kœlivatnið á vélinni og rýmiö. Klukka fylgir,
billinn heitur á morgnana.
Alternatorar, startarar f flesta bíla, báta,
vinnuvélar, vörubíla.
12 volta örbylgjuofnar, kaffivélar, pizzagrill, ofnar, ísskápar og fleira.
Spennubreytar fyrlr 12 V í 220 V.
wi,.:irmsmmmmmmmmmMwmmiiMB[^n
Baksýnismyndavél, aukið öryggi. Skjár og
myndavél til að sjá t.d aftur fyrir sendi-
/flutningabílinn, vinnuvélar, bindi-/sláttuvél
aö störfum.
Atvinna
Innheimta áskriftar
Útgáfufélagið DV leitar að starfsmanni til framtíðarstarfa á
innheimtudeild áskriftar. Leitað er eftir áreiðanlegum og stund-
vísum starfsmanni með einhverja bókhaldsþekkingu, almenna
kunnáttu á helstu tölvuforrit og faerni í mannlegum samskiptum.
Þarf að geta byrjað strax. Vinnutími er milli kl. 9 og 17.
Alla tíð hefur DV verið lifandi hluti af lifi þjóðarinnar með ábyrgri
og kjarkmikilli fróttamennsku, vönduðum skrifum og þjónustu
við lesendur sína. Hjá DV starfar öflugur og samstilltur hópur
starfsmanna sem litur til framtlðar með sóknarhug.
Vilt þú starfa með okkur? Sendu þá skriflega umsókn með
almennum uppl. og lýsingu á fyrri störfum til:
Útgáfufélagsins DV,
Þverholti 11,
105 Reykjavík,
merkt „Askrift"
eða á netfangið seima@dv.is
EEE2
Helgarblað
I>V
j íslandsmót skákfélaga:
U tlendingahersveit
Hróksins sigraði
Skákfélagið Hrókurinn vann
mjög öruggan sigur á íslandsmóti
skákfélaga en síöari hluti keppninn-
ar fór fram um síðustu helgi. Hrók-
urinn hlaut 47 1/2 vinning af 56
mögulegum. Taflfélagið Hellir varð
í 2. sæti með 41 vinning og Taflfélag
Reykjavikur í 3. sæti með 38 1/2
vinning. Taflfélag Kópavogs féll í 2.
deild. B-sveit Skákfélags Akureyrar
ávann sér sæti í 1. deild með naum-
um sigri í 2. deild. B-sveit Hróksins
sigraði í 3. deild og Skáksamband
Austurlands sigraði í 4. deild. Teflt
var í glæsilegum húsakynnum
Brimborgar.
Hins vegar skil ég illa að þeir
Hróksmenn sjálfir geti kallað sig Is-
landsmeistara því að í liði þeirra
voru eingöngu erlendir stórmeistar-
ar. Það er eins og að kaupa sér sæl-
gætisbúð. Hins vegar er það einnig
skoðun min að þrátt fyrir allt hafi
þetta framtak auðgað íslenskt skák-
lif. Það kallar fram ýmsar spurning-
ar. Stjóm Sí, sem og allir íslenskir
skákmenn, verða að athuga hvort
þetta sé sú framtíð sem við viljum.
Það þýðir lítið að sitja fastir og
koma ekki með nýjungar i takt við
tímann. Þá gera stórhuga einstak-
lingar eins og Hrafn Jökulsson það
og með stæl!
Að mörgu leyti voru þetta tíma-
mót í íslenskri skákhreyfingu.
Spumingin er þó sú hvort þessu
verði fylgt eftir sem ég á von á. Það
er alltaf skemmtilegt þegar hlutirn-
ir eru brotnir upp á jákvæðan hátt
og Hrafn stóð i þessu að mestu leyti
einn, þó að auðvitað hafi margir
lagt hönd á plóginn. Hann á alla-
vega aðdáim mína fyrir að fram-
kvæma hugmyndir sinar. Og allt
gekk snurðulaust upp! Gott að vita
til þess að enn koma fram á sjónar-
sviðið stórhuga menn sem hafa góð-
an og lifandi skákáhuga sinn að
leiðarljósi. Mótið vakti mikla at-
hygli í fjölmiðlum, þó að sú umfjöll-
un hafi ekki alltaf verið af mikilli
þekkingu um íslandsmót skákfé-
laga. Það kemur upp í hugann að
knattspymuáhugamenn tala oft um
að sínir menn, heima og erlendis,
hafi sigrað. Það er þægilegt að sitja
á hliðarlínunni eða uppi í sófa og
láta sig dreyma.
Linares
Þaö er eins og spænski rannsókn-
arrétturinn svifi yfir skáksalnum í
Linares. Yfirdómari, sækjandi, verj-
andi og böðull er „numero uno“
Kasparov. Ivanchuk segir að illar
vættir fylgi honum eftir einvígið við
Ponomariov. Þó má hann þokkalega
við una, hann er í 3. sæti eins og er.
Shirov er eins og dagur og nótt á
milli umferða. Sá eini sem hefur
verið ákærður af Kaspa en ekki
dæmdur er Ponomariov, heims-
meistari FIDE. En það kemur að
honum fljótlega. í 13. og næstsíð-
ustu umferð hefur hann svart gegn
goðinu og þá verður látið sverfa til
stáls og hnífar brýndir! Anand og
Adams hafa átt á brattann að sækja
miðað við oft áður og Spánverjinn
ungi er i harðasta skákskóla sem til
er. Staðan eftir 11. umferð: 1. Garry
Kasparov (2683) 5 1/2 af 9; 2. Ruslan
Ponomariov (2727) 5 af 9; 3. Vassily
Ivanchuk (2717) 5 af 10; 4.-5. Vishy
Anand (2757) og Michael Adams
(2742) 4 1/2 af 9; 6. Alexei Shirov
(2715) 4 1/2 af 10; 7. Francisco Val-
lejo Pons (2698) 4 af 10.
Hvitt: Alexei Shirov (2715)
Svart: Vassily Ivanchuk (2717)
Spánski leikurinn.
Linares (9), 04.03. 2002
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7.
Bb3 0-0 Næsti leikur kemur í veg
fyrir Marshall-árásina og þykir ’
mjög traustur. Honum var fyrst
beitt af Romanovsky gegn Mexíkó-
anum Torre í Moskvu 1925! 8. a4
Bb7 9. d3 He8 Næsti leikur er und-
Kaspi og Poni
Þeir voru látnir sitja hliö viö hliö viö
upphaf skákmótsins í Linares og
yrtu ekki hvor á annan.
an rifjum Kasparovs sem beitti hon-
um tvisvar gegn Nigel Short í
heimsmeistaraeinvígi þeirra í
London 1993 og hafði sigur í bæði
skiptin! 10. Rbd2 BfB 11. c3 Ra5
12. Ba2 c5 13. d4 d6 14. b4
Ivanchuk hugsaði sig vel og vand-
lega um hér. Það hefur verið ljóður
á taflmennsku hans undanfarið að
hann lendir í miklu timahraki og þá
fara stundum góðar stöður í súginn.
Annars er þetta þekkt staða með
hvíta biskupinn á c2, á a2 stefnir
hann á f7-peðið en á móti kemur að
e4-peðið er ekki eins traustlega
valdaö. Sem sagt skemmtileg
mannsfórn verður niðurstaðan,
peðakássa mikil er það sem svartur
fær fyrir riddarann. 14. - exd4 15.
bxa5 dxc3 Fyrir manninn fær
svartur 3 peð og þessi spænsku peð,
grá fyrir jámum, tryggja Ivanchuk
öfluga stöðu. 16. Rfl Rxe4 17. axb5
axb5 18. a6 Bc6! Ekki gengur 18 -
Hxa6? 19 Bxf7+ Kxf7 20 Hxa6 Bxa6
21 Dd5+ Kg6 22 Rg3! Rxg3 23 Hxe8
Bb7 (eða 23. - Dxe8 24 Rh4+ KfB 25
Bg5+ og mát!) 24 Re5+ dxe5 25 Dxd8
og hvítur vinnur. 19. Hxe4 Eina
von hvíts 19. - Bxe4
Skemmtileg örvænting og ráð-
snilld grípur nú Shirov. Hann ætlar
ekki að láta Ivanchuk valta yfir sig.
Næstu leikir eru þvingaðir. 20.
Bxf7+! Kxf7 21. Rg5+ Kg8 22.
Rxe4 Dc8 23. Rxc3 Hxa6 24. Hbl
b4 25. Rd5 Ha7 26. Hb3? Betra var
26. Rfe3 fylgt af Db3 og Bb2 var betri
möguleiki til að halda stöðunni.
Ivanchuk er nú með unnið tafl, en
klukkan tifar. 26. - Hal! 27. h3?!
Hér var e.t.v. betri tilraun 27. Hh3!?
He5 (27. - He4 28. Dh5 h6 29. Rf6+!
gxfB 30. Hg3+ Kh8 31. Df7 Hg4 32.
Hxg4 Dxg4 33. Dxf8+ Kh7 (eða 33. -
Dg8? 34. Dxh6+ Dh7 35. Dxf6+ Dg7
36. Dxg7+ Kxg7 37. Bb2+ og hvítur
vinnur) 34. Dxh6+ og hvítur stendur
betur) 28. f4 Hf5 og svartur hefur
gott svigrúm með peð sín á drottn-
ingarvængnum. En vegna hins gíf-
urlega tímahraks sem Ivanchuk var
kominn í forðast Shirov lymskulega
þvingaðar leikjaraðir. Það getur
borgað sig í tímahraki! 27. - He5
28. Rf4 De8 29. Hf3 c4 30. Kh2 b3
31. Dd2.
Hverjum klukkan glymur! Aum-
ingja Ivanchuk - enn einu sinni
verður vænleg staða að rjúkandi
rúst. Hér vinnur 31. - Hc5! 32. Dc3,
annars vinnur c3 skjótt 32. - De5! 33.
Rg3 Dxc3 34. Hxc3 d5 og tjaldið fellur
ofan á spænska nautabanann Shirov!
31. - d5 32. Re3 Bd6 33. g3 Dc6 34.
Rg4 d4?? Óheppni (?) Ivanchuks er
algjör. Með 3 sekúndur á klukkunni
gleymir hann að hrókurinn á al er
valdlaus. Annars getur hann enn þá
unniö með 34. - Hf5 35. Dc3 eða 35.
Bb2 Ha2 36. Dd4 Hxb2! 37. Dxb2 Db7
og peð svarts renna upp 35. - Hxcl
36. Dxcl Db7 og vinnur! 35. Dxd4
He4 36. Dxal 1-0.
Minningarmótíð um
Dan Hansson
Það mót var rúsínan í pylsuend-
anum á skemmtilegri heimsókn er-
lendu stórmeistaranna og var frá-
bærlega skipulagt af Hrafni Jökuls-
syni. Að halda svona skemmtilegt
mót verður lengi í minnum haft og
það sem best var að áhorfendur fjöl-
menntu og fylgdust með af lífi og
sál. Sigurvegari varð Tomas Oral
frá héraðinu Moraviu (Mæri) í
Tékklandi. Hann og landi hans, Jan
Votava, lögðu í undanúrslitunum
þá sem ég bjóst við að tefla myndu
úrslitaeinvígið, Jóhann Hjartarson
og Ivan Sokolov.
Alþjóðlega Reykjavíkur-
skakmótið
Mótið hófst á fimmtudag og er
öðruvísi skipað en oft áður. Stór-
meistaramir eru um 14 talsins og 11
konur taka þátt. Mótið er vonandi
kjörið til þess að ná lokaáföngum að
alþjóðlegum meistaratitlum en1
a.m.k. 3 íslenskir keppendur geta
náð þeim áfanga nú, þeir Amar E.
Gunnarsson, Bragi Þorfinnsson og
Stefán Kristjánsson. Einnig gefst
hér ágætur möguleiki til að efla ís-
lenska kvennaskák og margir ungir
menn hafa tækifæri til að bæta við
skákstyrkleikann.
Hraðskákmót íslands
Helgi Ólafsson er íslandsmeistari
í hraðskák 2002 en hann hafnaði í
2.-4. sæti á íslandsmótinu sem fram
fór á Kjarvalsstöðum. Ivan Sokolov
sigraði en hann gat eðli málsins
skv. ekki orðið íslandsmeistari.
Þátttaka var góð en keppendur voru
69. Það var Skákfélagið Hrókurinn
sem hélt mótið í umboði Skáksam-
bands íslands. Landssíminn var að-
alstyrktaraðili mótsins en verðlaun-
in voru óvenju glæsileg.
íslandsmeistari í hraðskák 2002,
Helgi Ólafsson, fékk 12 vinninga af
16 mögulegum. í 2.-3. sæti urðu Jón
Viktor Gunnarsson og Róbert Harð-
arson með 11 vinninga.
Nýbakaðir Islandsmeistarar
skákfélaga, Hrókurinn, sáu um
framkvæmd og undirbúning móts-
ins í samvinnu við Skáksambandið.
Útkoman var stórskemmtilegt mót.