Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2002, Qupperneq 23
35
FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002
DV Tilvera
Joel Grey sjötugur
Leikarmn, söngvarinn
og dansarinn Joel Grey á
stórafmæli í dag. Joel
hefur löngum verið ein
helsta stjarnan i söng-
leikjum á Broadway.
Þekktastur er hann þó fyrir hlutverk
sitt í kvikmyndinni Cabaret frá árinu
1972 þar sem hann lék sviðsstjórann
og fékk óskarsverðlaun fyrir. Grey
hefur auk þess að vera fræg Broad-
waystjama verið vinsæll „stand-up“
gamanleikari. Grey leikur ekki mikið
í kvikmyndum en lét sig þó hafa þaö
að leika á móti Björk í Dancer in the
Dark. Hann á tvö böm og er annað
þeirra leikkonan Jennifer Grey.
Gildir fyrir föstudaginn 12. apríl
Vatnsberinn (70. ian.-18. febr.l:
I Þú ert tilbúinn að
gera breytingar sem
hafa lengi verið
á dagskrá. Dagurinn
verður í rólegri kantinum.
Happatölur þínar eru 22, 33 og 37.
Flskarnir (19. febr.-20. mars):
Einhver hjálpsamiu-
I maður bjargar þér úr
minni háttar vanda.
Þú færð góðar fréttir
af ættingjum þínum.
Happatölur þínar eru 8, 9 og 31.
Hrúturinn (21. mars-19. april):
. Þó að dagurinn byiji
' óvenjulega og ekki
eins og þú vilt fer
allt að ganga betur
er líður á daginn.
Happatölur þínar eru 4,13 og 16.
Nautlð (?0. anril-20. maB:
Gættu þess að verða
ekki of kærulaus,
ákveðin persóna
treystir á þig. Þetta á
sérstaklega við um viðskipti.
Happatölur þínar eru 1, 6 og 7.
Tvíburarnir (21. maí-21. iúní):
Farðu varlega í
fjármálunum, þetta
— f f er ekki góður tími til
að tjárfesta. Þú átt
skemmtilegt kvöld í vændum
með vinum og vandamönnum.
Krabbinn (22. iúní-22. iúií):
Þú færð óvænta heim-
i sókn eða sendingu sem
krefst réttra við-
bragða. Hlustaðu á ráð
þeirra sem þú þekkir vel.
Happatölur þínar eru 9, 17 og 38.
Uonið (23. iúlí- 22. ágúst):
Þetta er rólegur dagur
og þú getur notaö
hann til að safna
kröftum fyrir verkefni
sem bíður þín í vinnunni.
Happatölur þínar eru 13,14 og 23.
Mevian (23. áeúst-22. sept.):
iw Vinur þinn þarf á þér
-Avft að halda og þú þarft að
^^^lgefa honrnn meiri tima
^ I en þú hefur gert. Þér
gengúr vel að vinna í hóp og þá
sérstaklega á þínum vinnustað.
Vogin (23. sept.-23. okt.l:
J Þú afkastar mestu í
ryy dag ef þú skipuleggur
\ f verk þitt vel fyrir
r / fram og nýtir tímann
vel. Þú þarfhast hjálpar við
ákveðin atriði er liður á kvöldið.
Sporðdrekinn (24. okt.-2l. név.):
■Atvik sem á sér stað
snemma dags gæti sett
þig út jafhvægi en þú
_____ færð fljótlega um ann-
að að hugsa. Þú þarft ekki að
hafa neinar áhyggjur.
Bogmaðurinn (22. nóv-21. des.l:
[Þú lendir í samræðum
rsem snerta stóran hóp
jj fólks og færð líklega
tækifæri til að leggja
þitt af mörkum. Það mun þó
kosta þig töluverða vinnu.
Stelngeltin (22. des.-19. ian.):
Dagurinn verður
ánægjulegur og þá
einkum seinni hluti
hans. Heimilislifið er
gott og ættingjar þínir verða þér
ofarlega í huga í dag.
Yogi Shanti Desai staddur á íslandi:
Byggir kennslu sína
á eigin reynslu
- fyrirlestur í kvöld og námskeið fyrir verðandi og núverandi jógakennara
Hér á landi er staddur Yogi
Shanti Desai sem hefur kennt mörg
þúsund nemendum og útskrifað
fjöldann allan af jógakennurum í
gegnum tíðina, jógakennara sem
starfa nú úti um allan heim. Hann
er best þekktur á íslandi fyrir sam-
starf sitt við Yogastudio ehf. Þar
hefur hann ásamt Ásmundi Gunn-
laugssyni staðið fyrir jógakennara-
þjálfun síðastliðin ár. í þetta skipti
kemur Shanti til landsins á vegum
Guðjóns Bergmann jógakennara.
Meðan á dvöl hans stendur mun
hann halda námskeið fyrir verðandi
jógakennara, framhaldsnámskeið í
hugleiðslu og hugmyndafræði fyrir
núverandi jógakennara og helgar-
námskeið fyrir áhugafólk sem hefur
takmarkaða þekkingu en vill læra
meira. Öll námskeiðin verða haldin
í jógastöðinni Jóga hjá Guðjóni
Bergmann, Ármúla 38.
Yogi Shanti Desai heldur einnig
fyrirlestur fyrir almenning á Grand
hótel í kvöld kl. 20.30. Þar mun
hann verða með fyrirlestur um
áhrif jógaheimspeki á daglegt líf,
sýnikennslu og verja miklum tíma í
að svara spumingum viðstaddra.
Yogi Shanti Desai er fæddur í
Gujurat-héraði á Indlandi árið 1940.
Hann fæddist inn á trúarlegt heim-
ili og var ungur innvígður af Swami
Kripalu, meistara sínum í jógafræð-
unum. Shanti fluttist síðar tU
Bandaríkjanna og útskrifaðist með
meistaragráðu i efnafræði frá Drex-
el-háskólanum árið 1964. Samhliða
náminu og vinnu sinni sem efna-
fræðingur kenndi hann jóga en það
var ekki fyrr en árið 1972 sem
Shanti ákvað að helga sig algjörlega
jógafræðunum og kennslu í þeim.
Árið 1974 opnaði Shanti jógastöð í
Ocean City, New Jersey, sem hann
starfrækir enn þann dag í dag. Yogi
Shanti Desai byggir aUa sina
kennslu á eigin reynslu. Hann hefur
skrifað fjórar bækur um jógafræðin
og er að skrifa nýja bók sem er
væntanleg á þessu ári.
DV vantar blaðbera
í Keflavík.
Segir ekki neitt
um barn Hurley
Ameríski kvik-
myndaframleiðandinn
Steve Bing viU ekkert
tjá sig um nýfætt bam
bresku leikkonunnar
Liz Hurley. Þau Liz og
Steve vom saman þar
tU hún tilkynnti hon-
um að hún væri ólétt.
Þá stakk minn maður
af og hefúr síðan dreg-
ið stórlega í efa að
hann sé faðirinn. Hann
gaf meira að segja í
skyn að leikkonan
hefði ekki verið við
eina fjölina feUd þegar
ástir eru annar vegar.
Liz tók léttasóttina á
sjúkrahúsi í London í
síðustu viku og eignað-
ist dreng sem var gefið
nafnið Damian
Charles. Ekki er annað
vitað en að móður og
bami heUsist vel.
„Ég vU ekkert láta
hafa eftir mér um bam-
ið. Ég hef ekkert að
segja,“ segir Steve Bing
í viðtali við breska blaðið
Sun.
Vinir Liz hafa talað Ula um
Steve frá því hann stakk af í fyrra
og tU marks um hvað þeir höfðu
hann í UUum metum köUuðu þeir
kappann gjaman Bing Laden,
nánast í höfuðið á mesta óþokka
síðari tíma.
Uz Huriey
Leikkonan og fyrirsætan geöþekka er nú oröin ein-
stæö móðir.
The
Kona ein sem var með Steve í
fimm mánuði eftir að hann stakk
af frá Liz ber honum heldur ekki
vel söguna. Kærastan sú segir að
kappinn hafi einnig látið sig
hverfa um leið og eitthvað bjátaði
á. Fram að þeim tíma hafi hann
aftur á móti verið sjarminn upp-
málaður.
Upplýslngar veitir
umboðsmaður
DV í síma 421 3053.