Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2002, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2002, Blaðsíða 10
10 Útgáfufélag: Útgáfufélagið DV ehf. Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson Aöatritstjóri: Óli Björn Kárason Rítstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aöstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson Fróttastjóri: Birgir Guðmundsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsia, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Græn númoR Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerö og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgialds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fýrir myndbirtingar af þeim. Fjölgun innflytjenda Sögur innflytjenda á íslandi eru margvislegar - og mis- gamlar. Nokkrar þeirra nýjustu lýsa rikri útþrá og sömu- leiðis gríðarlegum umskiptum. Ein þeirra fjallar um hjón sem bjuggu við lítil efni í Manila, höfuðborg Filippseyja. Þau áttu ekki kost á mikilli grunnmenntun í æsku, hvað þá að þau ættu möguleika á framhaldsmenntun. Þau vissu sem var að heima biði þeirra fátækt og fáir kostir og stop- ul ef nokkur vinna. Og það sem meira var; börnum þeirra yrði búin sama snauða framtíðin. Þetta fólk afréð að freista gæfunnar og fara úr landi. Því tókst með útsjónarsemi og staðfestu að spara sér fyrir farareyri til Evrópu. Það hafði heyrt sögur af mörgum landa sinna sem tókst að koma ár sinni vel fyrir borð í gamla heiminum. Hjónin þekktu meðal annars fólk sem hafði flutt alla leið til íslands og þar hefði þvi líkað vistin svo vel að vant var orða; varla væri hægt að ímynda sér öruggara og heiðarlegra samfélag en ísland. Jafnvel veðr- ið væri mildara en því hafði verið sagt. Hjónin frá Manila komu til íslands fyrir þremur árum. Þrjú börn þeirra, 8,14 og 16 ára, urðu eftir hjá ömmu sinni og afa, enda dugði farareyririnn ekki fyrir allri fjölskyld- unni. Hjónin leigðu sér lítið herbergi með aðgangi að eld- húskrók og salerni í kjallara i vesturbæ Reykjavíkur og fengu þegar i stað vinnu við ræstingar á sjúkrahúsi og elliheimili. Þau tóku að sér alla aukavinnu sem bauðst og unnu myrkranna á milli, enda var gleðin yfir þvi að fá vinnu meiri en svo að hægt væri að hafna henni. Á íslandi töldu þessi hjón sig kynnast miklu manngildi. Þau kynntust nýju lífi, nýjum gildum og nýjum möguleik- um. í fyrsta skipti á ævinni sáu þau að þeim voru flestir vegir færir. Þau sáu framtíð barna sinna í hillingum; víð- tæka möguleika þeirra til menntunar, fjölbreytta vinnu- kosti og háar lífslíkur. Þetta var þeim opinberun. í fyrsta sinn á ævinni kynntust þau þjóðfélagsgerð sem gerði ráð fyrir þvi að allir menn ættu jöfn tækifæri og það sem meira var; gert var ráð fyrir öllum í þessu sama samfélagi. Filippeysku hjónin festu kaup á þrettán ára gömlum bílgarmi nokkru eftir að þau fluttu hingað til lands, en bíll var þeim nauðsyn til að komast á milli heimila sem þau voru að þrífa utan sinnar fóstu atvinnu. Og þeim heimil- um fjölgaði ört. Rösku ári eftir að þau komu til landsins keyptu þau nýlegan bíl og nú í dag aka þau um á nýjum japönskum jepplingi. í millitíðinni gerðust þau tíðindi í lífi hjónanna að börnin komu til íslands, fyrst það yngsta, síðar þau eldri. Og leigð var 120 fermetra íbúð. Þessi fimm manna fjölskylda býr í Reykjavik og sinnir störfum sínum og námi af miklum þrótti og ætlar sér að nýta þau fjölbreyttu tækifæri sem ísland býður þeim. Þessi fimm manna fjölskylda er dæmi um þann mikla fjölda útlendinga sem hefur á síðustu árum valið sér eina veðramestu eyju heims sem framtíðarland. Og ástæðan er falin í gildum sem íslendingum þykir sjálfsagðari en svo að þeir séu að ræða þau mikið sín á milli. Ástæðan er manneskjuleg þjóðfélagsgerð - og möguleikar. Síðustu daga hefur DV birt fréttaröð um innflytjendur á íslandi. Þar hafa komið fram tölur sem sýna að æ fleiri útlendingar kjósa að setjast að á íslandi. í ljósi sögu þessa fólks frá Filippseyjum kemur ekki á óvart að alþýðufólk sé tilbúið að fara um langan veg og brjóta af sér bönd ólíkrar arfleifðar til að eygja tækifæri til lífshamingju. Viða um land hafa kraftar þessa fólks skipt sköpum fyrir byggðarlög. Við eigum að taka á móti því eins og við vilj- um að okkur sé tekið í útlöndum. Sigmundur Ernir r ________________________________________LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2002 DV Kílóin og öfundin „Ég er 75 kíló, fiflið þitt,“ svaraði hún með þjósti og barmur hennar reis og hneig af þeirri ofsareiði sem barðist um í brjóstum henni. Hann fékk samviskubit þar sem starfs- systirin strunsaði í burtu. „Enn einn félaginn hefur snúið við mér baki,“ hugsaði hann án þess þó að örvilnast. „Ég er bara að grínast,“ kallaði hann á eftir konunni sem leit ekki um öxl. Maðurinn sat einn eftir í vægum ilmvatnsilmi sem gufaði smám saman upp. Hann hafði verið í megrun í þrjá mánuði og hélt upp á 20 kílóa af- mæli sitt með því að varpa fram uppáhaldsspurningunni sinni. Hann vissi ekkert skemmtOegra en að tala um megrun sína. Þetta tal jókst í réttu hlutfalli við að kílóin fuku. í fyrstu fannst starfssystkin- um þetta skemmtilegt og hann fékk næga viðmælendur og samúð með aðdáunarívafi sem sprottin var af þeirri athygli sem feitt fólk fær í samfélagi sem þolir ekki spik. Þegar hann hélt upp á 15 kúóa af- mælið umkringdur misfeitum vinnufélögum fann hann að tónn- inn var að breytast. Margir hans dyggustu stuðningsmanna voru hættir að hrósa honum og voru jafnvel pirraðir þegar hann varpaði fram uppáhaldsspumingunni sinni. „Hvað ertu þungur?" Reyndar var þessi spuming hon- um svo hjartfólgin vegna þess að sjálfur hafði hann um funm ára skeið ekki þolað að óviðkomandi væru að spyrja hann svo persónu- legrar spurningar sem hann hafði heldur engin svör við. Um árabO sniðgekk hann baðvogina og frysti í huga sér tölu um eigin þunga sem „losaði 100 k0ó“ um árabO. Hann þoldi ekki magurt fólk og sneri gjaman út úr spumingum um eig- in þunga. Maðurinn móðgaðist af minnsta tOefni og jafnvel þegar einhver vOdi hrósa honum með því að segja þvert ofan í eigin sannfæringu að hann hefði ábyggOega grennst. Erfiðir tímar Þetta höfðu sumpart verið erfiðir tímar. Strax og bera fór á því að vömbin minnkaði þannig að sjónar- munur varð spruttu fram ótal ráð- gjafar sem í fyrstu spurðu um að- ferðafræðina. Hann útskýrði hamstrakúrinn sem væri helst í því fólginn að henda út öOum syk- urvörum og fitu og borða ómælt kál og annað grænmeti. Þá sagði hann þeim sem hlýddu að ein helsta meinsemdin í neyslu Vesturlanda- búa væri kartöflur sem hann hefði fleygt út af matseðli sínum. Þetta oOi miklum deOum heima og á vinnustað. „Ertu vitlaus, maður?" spurði sálfræðimenntaður starfs- maður á fimmtugsaldri og hélt langa ræðu um að kartöflur hefðu bjargað stórum hluta mannkyns frá því að deyja úr hungri. „Kartaflan er hoO og engin ástæða tO að sleppa henni," sagði sálfræðingurinn og tók af sér gleraugun til að undir- strika orð sín. Fleiri lögðu orð í belg og fram- söguræður um hina og þessa megrun- arkúra voru fluttir. Hann fékk að heyra um vetnakúrinn" sem byggðist upp á því að honum skildist að borða sem mest af beikoni og eggjum á morgnana og fram eftir degi. Þá kom ræða um „vatns- kúrinn" sem hafði þá einstöku kosti að meðfram honum mátti borða eins og fólk vOdi. Aðalatriðið var að drekka ómælt vatn; marga lítra á dag. Svo var það Herbalife og Nupo-kúramir sem sumir töldu vera svarið við offituvandanum. Megrunarmaðurinn hlustaði grannt á aOa fyrirlestrana og hóf síðan eigin tölu um hamstrakúrinn sem byggðist upp á því einu að spegla mataræði svo- nefndra dýra og fara eftir því í meg- inat- rið- Að þrýsta á vini sína Guðlaugur Bergmundsson blaöamaður yr Igggfj Sjónarhorn ■■ Mikið hlýtur valdamesta manni heimsins að líða Ola. Er það annars kannski eintómur misskilningur að George W. Bush Bandaríkjafor- seti ráði meiru og hafl meiri áhrif á jörðu hér en nokkur annar mað- ur, dauðlegur að minnsta kosti? í fljótu bragöi verður aOa vega ekki séð að orð hans vegi þungt austur í Jerúsalem hjá Ariel Sharon, for- sætisráðherra ísraels, og herfor- ingjum hans sem hafa farið ham- förum gegn Palestínumönnum á Vesturbakkanum síðan í marslok. Bush hefur síðustu daga skorað á Sharon, og jafnvel krafist þess, að kaOa hersveitir sínar tafarlaust heim frá palestínsku landi. Forset- inn sá meira að segja ástæðu tO þess að taka það sérstaklega fram við fréttamenn um daginn að hann hefði meint það sem hann sagði. Svo var nefnOega komið að margir voru farnir að efast stórlega um að Bandaríkjaforseti meinti nokkuð af því sem hann sagði um nauðsyn þess að ísraelar hypjuðu sig á brott frá heimastjórnarsvæöunum. AÖ- eins væri um leiksýningu af hans hálfu að ræða, Sharon hefði á bak við tjöldin fengið boð um það, bein eða óbein, að hann mætti halda áfram að haga sér eins og hann teldi réttast tO aö ganga endanlega mOli bols og höfuðs á palesínskum hryðjuverkamönnum. Hvort slíkar vangaveltur eiga við einhver rök að styðjast er erfítt að fuOyrða. Hitt er deginum ljósara að Sharon hefur hunsað öO tilmæli bandarískra stjórnvalda, og ann- arra (íslensk stjómvöld sendu frá sér harðorð mótmæli gegn hemaði ísraela á miðvikudag og því ber að fagna), um að láta af hemaöarað- gerðum sínum. Þvert á móti hefur hann eflst og gengið fram af sífeUt meiri grimmd og hörku gegn palestínsku þjóðinni, látið her- menn sina drepa og særa saklausa borgara og koma svo í veg fyrir að sjúkir geti leitað læknishjálpar. Nú síðast á miðvikudag hafnaði Sharon að fara að áskorunum bandarískra stjómvalda, Kremlar- bænda, Sameinuðu þjóðanna og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.