Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2002, Blaðsíða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2002, Blaðsíða 60
FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREISEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 5M 5555 FRJÁLST, ÓHAÐ DAGBLAÐ LAUGARDAGUR 13. APRIL 2002 Uv-MYND HILMAR Koma sér fyrir í nýju húsi Þorbjörg Albertsdóttir þjónustufulltrúi og Ólafur Teitur Guðnason blaðamaöur koma sér fyrir í DV-húsinu, Skaftahjíð 24, í gær. Sjá bls. 31 Einkaaðili annast hönnun, byggingu, fjármögnun og rekstur ráðstefnumiðstöðvar: Ekki Ijóst hver muni eignast mannvirkin Ekki liggur fyrir hver verður eigandi mannvirkjanna sem hýsa munu nýja tónlistar- og ráðstefhumiðstöð í Reykja- vík. Ákvörðun á að liggja fyrir áður en framkvæmdin verður boðin út. Stefht er að útboði fyrir lok þessa árs. Framkvæmdin verður boðin út sem einkaframkvæmd. Einkaaðili mun ann- ast hönnun mannvirkja, byggingu þeirra, fjármögnun og loks sjálfan rekst- urinn. Við slíka framkvæmd tekur hið opinbera þátt i kostnaði verksins, til dæmis með jöfhum innborgunum í til- tekinn árafjölda, gjaman 25 ár. Allur gangur er hins vegar á því hvað gerist að þeim tíma liðnum. Þannig er gert ráð fyrir að Hvalfjarðargöngin verði eign Vegagerðarinnar þegar samningur- inn við Spöl hf. rennur út. Hins vegar verður Iðnskólinn í Hafharflrði áfram eign Nýsis hf., sem byggði skólann og rekur hann, eftir að 25 ára einkafram- kvæmdarsamningur rennur út. Stoftikostnaður tóniistarhúss og ráð- stefhumiðstöðvar er áætlaður rétt tæpir 6 milljarðar króna, að meðtöldum bíla- stæðum, lóðum og fjármagnskostnaði á byggingartíma. Við þessa upphæð bætist svo fjármagnskostnaður eftir að rekstur hefst en leigutekjur sem nýtast til endur- Ekkert liggur fyrir um hvernig tónlistar- og ráöstefnumiöstöðin mun líta út. Myndir sem birtar hafa verið af mannvirkinu í fjölmiðlum eru vinningstillaga í hugmyndasamkeppni um skipulag hafnarsvæðisins. Sú tillaga lýtur því ein- göngu að skipulaginu - ekki útliti mannvirkja. greiðslu stofnkostnaðar koma til lækk- unar. í samkomulagi ríkis og borgar um bygginguna, sem undirritað var i fyrradag, kemur fram að 54% af hlut- deild þessara aðila i verkinu falla á rík- issjóð en 46% á borgarsjóð. Borgin losi hlut í Landsvirkjun „Ef þetta verður hefðbundin einka- framkvæmd er gert ráð fyrir að hún verði fjármögnuð að öllu leyti af fram- kvæmdaaðilanum og hann fái svo greiðslur fyrir það á einhveiju árabili með fóstu framlagi, annaðhvort í formi leigu eða fóstu framlagi sem leiðir til eignar,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóri. Ingibjörg Sólrún segir vel koma til álita að borgin eignist mannvirkið. „Það má til dæmis kanna hvort borgin geti flutt hluta af þeim fjármunum sem nú eru bundnir í Landsvirkjun inn i svona mannvirki. Þegar uppbygging virkjana hófst var ekki öðrum til að dreifa en opinberum aðilum. Núna stöndum viö frammi fýrir öðrum veru- leika. Og ef það reynist nauðsynlegt vegna umfangs þessa verkefnis að borgin fjárfesti í því með beinum hætti gæti verið eðlilegt að gera það með þvi að losa um eignir í Landsvirkjun." Leitað verður að rekstraraðila og fjárfesti að hóteli sem rísi í tengslum við tónlistarhúsið og ráðstefnumið- stöðina. Heildarstofhkostnaður hótels- ins er áætlaður 5,5 milljarðar króna. -ÓTG 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 Hæstaréttardómur í amfetamínmálinu: „Þetta er Salómonsdómur" „Þama virðist mér Hæstiréttur vera að fara nokkuð torsótta leið til að gæta hagsmuna ríkisins. Þetta er Salómons- dómur,“ sagði Karl Georg Sigurbjöms- son hdl., verjandi mannsins sem hand- tekinn var í janúar sl. vegna innflutn- ings, vörslu og sölu á alls fimm kílóum af amfetamíni. Hæstiréttur hefur úr- skurðað að samkvæmt 3. grein laga um ávana- og fíknieftii hafi umsvif manns- ins með efhið verið refsiverð þótt í gildi hafi verið reglugerð heilbrigðisráðu- neytisins þar sem ekki hafði verið merkt við amfetamín sem fíkniefhi á bannlista. Hins vegar staðfesti Hæsti- réttur úrskurð héraðsdóms um að hafna kröfu lögreglustjórans í Reykja- vík um gæsluvarðhald yfir manninum á þessum tíma. Karl Georg sagði að Hæstiréttur nálgaðist málið frá nýju sjónarhomi, þ.e. 3. grein í lögum um ávana- og fikni- efni. Héraðsdómur hefði skoðað málið út frá 2. grein laganna og komist að þeirri niðurstöðu að varsla amfetamíns hefði veriö leyfileg í átta mánuði á síð- asta ári vegna gallans í reglugerðinni. „Krafa umbjóðanda míns um að hann yrði látinn laus úr gæsluvarð- haldi náði fram að ganga," sagði Karl Georg. „Ég get þó ekki séð að hann eigi rétt á skaðabótum. Það verður þó að koma í ljós hvort menn vilja láta reyna á þetta með einhverjum skaðabótakröf- um eða slíku. Sú refsing sem umbjóðandi minn fær hugsanlega verður liklega mun vægari en ella vegna þessarar breyting- ar á reglugerðinni. Ef varslan er óheimil þá varðar brotið sem hann fremur að hámarki sex ár. Mér finnst vera álitamál hvort varsla efnisins hafi verið bönnuð á þessu tímabili. Hafi hún ekki. verið bönnuð þá hefur hún varla verið refsi- verö. Líklega hefur inn- og útflutningur verið bannaður en ekki varslan. “ -JSS Morfínsprenging Sprenging hefur á síðustu misser- um orðið í neyslu fikla á morfini sem þeir sprauta í æð. Hópur ungra neyt- enda fer stækkandi og á meðferðar- stofnunum eru í dag unglingar allt niður í fimmtán ára aldur sem eru sprautufíklar morfins. „Núna er mor- finið í tísku og þetta á eftir að aukast. Við höfum enn ekki riðið á öldufald- inum,“ segir einn heimildarmanna DV sem vel þekkir til á fíkniefna- markaðnum. Sá segir efnin yfirleitt fengin í gegnum lækna. Um tiu lækn- ar séu öðrum drýgri við útgáfu lyf- seðla á morfin og fólk í neyslu viti þar af haukum í homi. Margrét Frímannsdóttir hefur ósk- að eftir utandagskrárumræðu um málið' Sjá fréttaljós bls. 14 Iðnó í kvöld: Kokkurinn steikir - norskar dúfur Ámi Gylfason, matreiðslumeist- ari í Iðnó, steikir norskar dúfur í Dúfnaveislu sem haldin verður á veitingastað hans í kvöld til heiðurs Halldóri Laxness. Er mat- arveislan haldin í tengslum við leikmunasýn- SIíBHmwbmIÍPhBH ingu sem verður Ámi Gylfason. opnuð í Iðnó í dag og tengist á margvíslegan hátt ritstörfum nóbelskáldsins. Ámi hef- ur aldrei áður steikt dúfur og kaus að flytja þær inn frá Noregi frekar en að veiða á þaki Iðnós því.ég myndi ekki treysta þeim“, eins og hann segir sjálfur. Sjá bls. 67. Risaskjá stolið úr húsi DV Flötum stórum sjónvarpskjá var stolið úr húsnæði DV í Þverholti, væntanlega aðfaranótt fimmtudags. Verknaðurinn krafðist töluverðrar fyrirhafnar þar sem skjárinn var festur við súlur og þurfti nokkum tíma til verksins. Ljóst er að þjófamir hafa nýtt sér flutninga á ritstjóm og skrifstofum DV. Verð- mæti skjásins, sem er 42ja tomma stór flatur plasmaskjár, er talið vera á um 900 þúsund krónur. Þjófnaðurinn hefúr þegar verið kæröur til rannsóknarlögreglunnar sem hefur tekið málið til skoðunar. -aþ MA'&ARA FLUTTUR! Verð stöðugra Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækk- aði mikið í gær en í upphafi vikunnar var það um 27 Bandaríkjadalir á tunnu en var í gær komið niður í 23. Þetta þarf þó ekki að leiða til lækkaðs olíuverðs fyrir hinn almenna borgara enda ganga slikar lækkanir yfirleitt skjótt til baka. Sérfræðingar telja hins vegar að framundan sé mun stöðugra oliuverð en verið hefur á síðustu mánuðum og verð- ið á hráolíu verði í kring um 23-24 dali það sem eftir lifir árs. Þetta kemur með- al annars til vegna breytinga á stjómar- háttum í Venesuela sem er einn stærsti olíuframleiðandi heims og hefur verið leiðandi afl innan OPEC, samtaka olíu- framleiðsluríkja. Að öllum líkindum verða hækkanir og lækkanir á bensín- verði því litlar næstu mánuði. -áb IBrother PT-2450 merkivélln er MðgnuAvél sem, meö þinni hjálp, hefur hlutina (röö ogreglu. Snjöll og góö lausn á óreglunni. Rafport Nýbýlavegi 14 • simi 554 4443 •
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.