Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2002, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2002, Blaðsíða 50
62 LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2002 íslendingaþættir________________________________________________________________________________________________________DV Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 80 ára___________________ Heidi Jaeger Gröndal, Hjallalandi 26, Reykjavík. Þorvaldur Guömundsson, Blikahólum 6, Reykjavík. Hann veröur aö heiman á afmælisdaginn. Bjarni Pálsson, Ólafshúsi, Blönduósi. Evlalia Sigurgeirsdóttir, Holtastíg 8, Bolungarvík. Margrét Gunnarsdóttir, Bakkárholti, Selfossi. Þóroddur Eiösson, Eyrarvegi 13, Akureyri. 75 arg 70 ára_________________________ Auöur Björnsdóttir, Holtateigi 50, Akureyri. Einína Einarsdóttir, Lækjarsmára 4, Kópavogi. 60 gra_________________________ Guöjón Guðmundsson, Grundargerði 4b, Akureyri. Guörún St. Sigurbjörnsdóttir, Bakka, Sauöárkróki. Helgi Óiafsson, Hvammi, Mosfellsbæ. Kristín H. Vigfúsdóttlr, Sólheimum 27, Reykjavík. Krlstþóra Auöur Bárðardóttir, Lágholti 8, Stykkishólmi. Óskar Hallgrímsson, Stelkshólum 8, Reykjavík. 50 árg_________________________ Elín Margrét Jóhannsdóttir, Bræöraborgarstíg 34, Reykjavík. Halldór Úlfarsson, Prestbakka 3, Reykjavík. Helga Jóna Andrésdóttir, Seljabraut 84, Reykjavík. Jóhann Guömundsson, Bakkaseli_34, Reykjavík. Margrét Árnadóttir, Granaskjóli 6, Reykjavík. Sigurjón Gunnarsson, Asparfelli 12, Reykjavík. Þorsteinn Þorsteinsson, Bakkastöðum 41, Reykjavík. 4Qárs__________________________ Anna Einarsdóttir, lllugagötu 8, Vestmannaeyjum. Helga R. Kristjánsdóttir, Sunnuhlíð 15, Akureyri. Hólmfríöur S. Haraldsdóttlr, Ránargötu 30, Akureyri. Ingi Ingason, Berjarima 34, Reykjavík. Ingibjörg Sævarsdóttir, Austurbyggð 16, Akureyri. Kristinn Ingvarsson, Flétturima 33, Reykjavík. Olga Pálsdóttlr, Krummahólum 4, Reykjavík. Steinunn Guörún Harðardóttir, Seilugranda 3, Reykjavík. Svelnn Berg Hallgrímsson, Árbakka 4, Hvammstanga. Víöir Bergþór Björnsson, Ægisbyggð 2, Ólafsfirði. ■ n g a r r>v © 550 5000 tf) (5) vísir.is •OD FAX 3 550 5727 cc 'CU | ■ | E Þverholt 11, 105 Reykjavík (/) Attræður Marías Þ. Guðmundsson fyrrv. framkvæmdastjóri á Isafirði Marías Þórarinn Guðmundsson, Skipholti 54, Reykjavík, er áttræður i dag. Starfsferill Marías fæddist í Hnífsdal og ólst þar upp og á ísafirði. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskól- anum á ísafirði 1941 og útskrifaðist frá Samvinnuskólanum í Reykjavík 1943. Auk þess hefur hann sótt nokkur stjómunarnámskeið. Marias var einn af stofnendum Útgerðarfélagsins Hf. Vörður í Hnífsdal 1938, var útibússtjóri Kaupfélags ísfirðinga í Súðavik 1943-47, framkvæmdastjóri Útgerð- arfélagsins Andvara hf. í Súðavík 1943-46, bókari hjá Shell-umboðinu á Ísíifírði, þ.e. Verslun J.S. Edwald, 1948-52, bókari Olíusamlags útvegs- manna á Isafirði 1947-64, fram- kvæmdastjóri Síldarsöltunar ísfirð- inga á Siglufirði 1957-66, fram- kvæmdastjóri íshúsfélags ísfirðinga hf. 1963-74, stundakennari viö Gagnfræðaskóla Ísaíjarðar 1949-62 og við Iðnskóla ísafjarðar um skeið, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Vestfirðinga 1975-80 og fulltrúi Fiskifélags íslands 1981-94. Marías sat í ilokksráði Alþýðu- flokksins 1944-48, miðstjóm flokks- ins 1946-48, var forseti SUJ 1946-48, sat í flokkstjóm Alþýðuflokksins, var varabæjarfulltrúi á ísafirði 1950-54 og bæjarfulltrúi þar 1954-58. Marías sat í stjómum Sjómanna- félags ísfirðinga í tólf ár og er heið- ursfélagi þess, var formaður Sjó- mannadagsráðs á ísafirði í ellefu ár, sat í stjóm Alþýðusambands Vest- fjarða, Leikfélags ísafjarðar, skáta- félagsins Einherja og fleiri félaga, var formaður skólanefndar hús- mæðraskólans Óskar á ísafirði í tólf ár, sat í stjórn Kaupfélags ísfirðinga og var þar stjórnarformaður 1962-74, stjómarformaður Mjöl- vinnslunnar hf. í Hnífsdal, sat í stjórn útgerðarfélagsins Hrannar hf. frá stofnun 1955—97, í stjórn Fiskiðj- unnar hf. á ísafirði, í stjóm Lífeyr- isþegadeildar SFR, var formaður Sambands lífeyrisþega ríkis og bæja, sat í stjórn Fiskifélags íslands 1971-80, sat í verðlagsráði sjávarút- vegsins 1966-84, sat flest Fiskiþing frá 1968 og einnig nokkur þing ASÍ og BSRB, situr í stjóm Félags eldri borgara i Reykjavík og nágrenni og nú varaformaður þess. Fjölskylda Eiginkona Maríasar er Málfríður Finnsdóttir, f. 22.11. 1923, hjúkrun- arfræðingur. Hún er dóttir Finns Finnssonar og Guðlaugar Sveins- dóttur, bænda í Hvilft í Önund- arfirði. Dóttir Marías- ar og Ingibjarg- ar Ólafsdóttur frá Súðavík er Hildur, f. 25.9. 1944, húsmóðir i Kopavogi, gift Þórði Oddssyni skipstjóra og er dóttir þeirra Linda Bára. Börn Marías- ar og Málfríðar eru Guðmundur Stefán, f. 3.10. 1954, verslunar- maður í Reykja- vík, en kona hans er Kristín Jóns- dóttir verslunamaður og eru börn þeirra íris María og Sara Jóna; Ás- laug, f. 11.4. 1956, sjúkraliði á Akra- nesi, maður hennar er Skúli Lýðs- son byggingarfulltrúi og eru böm þeirra Fríða Björk, Brynhildur og Marías Þór; Bryndís Hlíf, f. 3.5.1960, húsmóðir í Reykjavík, maður henn- ar er Kristján Einarsson bygginga- meistari og em böm þeirra Amdís, Ármann og Rut; Ámi, f. 1.12. 1969, sambýliskona hans er Guðrún Oddsdóttir sálfræðingur og er sonur þeirra Oddur Mar en dóttir Guðrún- ar er Sunna Sigurmarsdóttir. Systkini Maríasar eru Ingibjörg Guðmundsdóttir, f. 27.10. 1922, hús- móðir í Hnífsdal; Guðmundur Guð- mundsson, f. 11.4.1916, skipstjóri og útgerðarmaður á ísafirði. Foreldrar Maríasar voru Guð- mundur Stefán Guðmundsson, f. 28.12.1877, d. 22.2.1936, lengst af for- maður og útgerðarmaður í Hnífsdal, og Jóna Salomonsdóttir, f. 5.5. 1885, d. 22.5. 1952, húsmóðir. Fertug Anna Halla Friðriksdóttir Anna Halla Friðriksdóttir frá Svaðastöðum í Skagafírði, sambýl- inu Fellstúni 19, Sauðárkróki, er fertug í dag. Fjölskylda Anna Halla fæddist á Sauðár- króki en ólst upp á Svaðastöðum. Hún er nú búsett á sambýlinu í Fellstúni á Sauðárkróki. Bræður Önnu Höllu vom Pálmi Friðriksson, f. 21.12. 1943, d. 8.1. 1998, var búsettur á Sauðárkróki, kvæntur Svölu Jónsdóttur, f. 22.2. 1945; Friðrik Hansen Friðriksson, f. 1.6. 1950, d. 27.11. 1977, bóndi á Svaðastöðum. Foreldrar Önnu Höllu voru Frið- rik S. Pálmason, f. 19.8. 1918, d. 27.7. 2001, bóndi og hrossaræktandi á Svaðastöðum, og Ásta Hansen, f. 6.6. 1920, d. 17.10. 1993, húsfreyja á Svaðastöðum. Ætt Friðrik var sonur Pálma, b. á Svaðastöðum, Símonarson- ar, b. í Brim- nesi, Pálma- sonar. Móðir Pálma var Sigurlaug Þorkelsdóttir, b. á Svaðastöðum, Jónssonar, og Rannveigar Jóhannes- dóttir, b. á Hofi í Dölum, Jónssonar, harðab. í Mörk, Jónssonar. Móðir Friðriks var Anna, dóttir Friðriks, b. og alþingismanns í Málmey, Stefánssonar. Móðir Frið- riks var Sigurbjörg Jónsdóttir Reykjalín, prests á Ríp, Jónssonar, prests á Breiðabólstað i Vesturhópi, Þorvarðssonar. Móðir önnu var Hallfríður Björnsdóttir, dbrm. og hreppstjóra á Skálá í Sléttuhlíð, Þórðarsonar, af Stóru-Brekkuætt- inni. Ásta Hansen var dóttir Friðriks Hansen frá Sauðá og Jósefinu Er- lendsdóttur frá Stóru-Giljá. Anna Halla tekur á móti ættingj- um og vinum að Ljósheimum í Skagafirði laugard. 13.4. kl. 16.00. Fimmtugur Magnús Jónsson rafvirki og verksmiðjustjóri á Akureyri Magnús Jónsson, raf- virki, verksmiðjustjóri og sýningarstjóri, Melasíðu 8G, Akureyri, er fimm- tugur í dag. Starfsferill Magnús fæddist á Siglufirði og ólst þar upp. Hann var í Barnaskóla Siglufjarðar og Gagn- fræðaskóla Siglufjarðar, stundaði nám við Iðnskólana á Siglufirði og Akureyri, lauk sveinsprófi í raf- virkjun 1978 og síðan meistarprófi í sýningarstjómun. Á unglingsárunum vann Magnús í fiskvinnslu á Siglufirði. Hann fór til Keflvikur og starfaði þar í mötu- neyti hjá íslenskum aðalverktökum um skeið, fór síöan aftur til Siglu- fjarðar 1973 og stofnaði þá, ásamt fleirum, fyrirtækið Húseiningar á Siglufirði. Hann starfaði við Hús- einingar í eitt og hálft ár en fór þá til Akureyrar og lauk þar sveins- prófi hjá Ingva Rafiii Jó- hannssyni í Raftækni og starfaði þar í níu ár. Hann starfaði hjá Raf í þrjú ár og vann síðan hjá Ljósgjafanum á Akureyri í þrjú ár til 1989. Þá hóf hann störf hjá Fóðurvöru- deild KEA sem nú nefnist Bústólpi. Þar starfar hann enn og er þar verksmiðju- stjóri. Magnús er nú sýningarstjóri hjá Sambíóunum á Akureyri. Fjölskylda Bróðir Magnúsar er Hjálmar Jónsson, f. 16.5. 1950, kona hans er Ambjörg Lúðvíksdóttir og búa þau á Stóru-Brekku í Skagafirði. Foreldrar Magnúsar voru Jón Hjálmarsson, f. 27.3. 1909, d. 29.4. 1989, skósmiður á Siglufirði, og Sigríður Albertsdóttir, f. 18.7. 1916, d. 22.7. 1993, húsmóðir. Fimmtugur Magnús B. Jónsson sveitarstjóri Höfðahrepps Magnús Bjöm Jónsson sveitar- stjóri, Sunnuvegi 1, Skagaströnd, verður fimmtugur á morgun. Starfsferill Magnús fæddist á Skagaströnd og ólst þar upp. Hann lauk stúdents- prófi frá MR 1974. Magnús stundaði sumarvinna við vegagerð á vinnuvélum 1971-85, var kennari við barnaskóla Sauðár- króks og grunnskóla á Skagaströnd 1974-86, framkvæmdastjóri verk- takafyrirtækisins Hvítserks hf. 1985-87, starfsmaður Búnaðarbank- ans á Skagaströnd 1988-90 og hefur verið sveitarstjóri Höfðahrepps frá 1990. Magnús hefur setið í hreppsnefnd Höfðahrepps 1982-2002, í Héraðs- nefnd og héraðsráði Austur-Húna- vatssýslu 1990-2002, í námsstyrkja- nefnd 1992-2002, formaður Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum frá stofnun þeirra 1997, í stjóm Skag- strendings 1994-2002, var varaþm. Framsóknarflokksins í Norður- landskjördæmi vestra 1995-1999 og hefur sinnt ýmsum stjómunar- og trúnaðarstörfum á vegum sveitarfé- laga. Þá hefur hann setið í ritnefnd Húnavökurits 1983-2002. Fjölskylda Magnús kvæntist 26.12. 1977 Guð- björgu Bryndísi Viggósdóttur, f. 1.4. 1954, húsmóður. Hún er dóttir Viggós Brynjólfssonar, f. 3.5. 1926, vinnuvélstjóra, og Amdisar Ólafar Arelíusdóttur, f. 19.10.1936, húmóð- ur. Börn Magnúsar og Guðbjargar eru Viggó Magnússon, f. 14.8. 1971, húsgagnasmiður, kona hans er Magnea Ingigerður Harðardóttir, f. 21.6.1971, og eru dætur þeirra Telma Rán Viggósdóttir, f. 29.7. 1993, Glódís, Perla Viggósdóttir, f. 27.6. 1995, og Bára Bryndís Viggós- dóttir, f. 20.11.1998; Baldur Magnús- son, f. 3.8. 1974, verkamaður, kona hans er Þórunn Valdís Rúnarsdótt- ir, f. 29.6. 1980; Jón Atli Magnússon, f. 29.7.1988, nemi. Systkini Magnúsar eru Fjóla Jónsdóttir, f. 10.10. 1947, búsett á Skagaströnd; Gunnar Jón Jónsson, f. 23.12. 1956, búsettur í Garðabæ; Ragnar Hlynur Jónsson, f. 28.12. 1963, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Magnúsar: Jón Jóns- son, f. 21.5. 1921 í Asparvík í Strandasýslu, d. 9.7.1991, verslunar- maður og framkvæmdastjóri Rækjuvinnslunnar á Skagaströnd, og Maria Magnúsdóttir, f. 1.5.1919 á Syðra-Hóli í Vindhælishreppi, kenn- ari og verslunarmaður. Ætt Jón var sonur Jóns, b. á Svans- hóli og í Asparvík, Kjartanssonar, b. á Skarði í Bjarnarfirði, Guð- mundssonar, frá Klúku í Bjamar- firöi, Guðmundssonar, b. á Klúku, Guðmundssonar. Móðir Kjartans var Helga Jónsdóttir, b. á -Ásmund- arnesi í Nessveit, Andreassonar. Móðir Jóns frá Svanhóli var Guð- rún Sigfúsdóttir frá Skarði, Guð- mundssonar, b. í Asparvík, Jóns- sonar, b. að Felli, Jónssonar, frá Kirkjubóli í Langadal við Djúp, Egg- ertssonar. Móðir Guðmundar í Asp- arvík var Sólveig Bjarnadóttir, „koparhauss" að Felli, Jónssonar. Móðir Sigfúsar var Ólöf Jónsdóttir, b. í Steinadal, Hlíð og Broddadalsá, Ólafssonar. Móðir Ólafar var Ólöf Kráksdóttir, að Stöpum á Vatns- nesi, Einarssonar. Móðir Guðrúnar Sigfúsdóttur var Agata Jónsdóttir. Móðir Jóns framkvæmdastjóra var Guðrún Guðmundsdóttir, b. frá Kjós í Ámeshreppi, Pálssonar, b. að Skarði, Goðdal og Kaldbak, Jóns- sonar, hreppstjóra að Bæ í Víkur- sveit, Pálssonar. Móðir Guðmundar Pálssonar var Sigríður Magnúsdótt- ir. Móðir Guðrúnar Guðmundsdótt- ur var Sigurrós Magnúsdóttir, b. að Veiðileysu og Kjós, Andreassonar. Móðir Sigurrósar var Margrét Bjamadóttir. María er dóttir Magnúsar Bjöms- sonar, b. og fræðimanns að Syöra- Hóli, og Jóhönnu Albertsdóttur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.