Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2002, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002
DV
Fréttir
Fulltrúar stærsta álfyrirtækis heims hér á landi til að ræða álver í Reyðarfirði:
Hugsanleg þátttaka
Alcoa skýrist í maí
- segir Valgerður Sverrisdóttir. Samstarfi þó ekki slitið við Norsk Hydro að svo stöddu
Fulltrúar frá fjölþjóðlega álrisan-
um Alcoa hafa verið á íslandi undan-
farna daga til að kynna sér möguleika
á byggingu álvers i Reyðarfirði sem
nýti orku frá Kárahnjúkavirkjun.
Valgerður Sverrisdóttir segir að full-
trúar fyrirtækisins hafl verið áhuga-
samir og hún hafl fulla trú á því að
áhugi þeirra sé raunverulegur, enda
bendi skjót viðbrögð þeirra ein og sér
til þess að þeir telji þetta spennandi
verkefni. Hún segist ánægð með þessi
viðbrögð en vOl ekki hrósa neinum
sigri, enda ekkert handfast í málinu
enn þá og ekki búið að undirrita
neinar áætlanir eða samninga. „Nei,
þetta þýðir ekki að við séum búin að
slíta samskiptum okkar við Norsk
Hydro. Það tímabil sem er fram und-
an, næstu vikur, felur í sér
að við munum vinna málið
með fyrirtækinu og sjá til
þess að það fái allar þær upp-
lýsingar sem það telur nauð-
synlegar til að taka sínar
ákvarðanir. En hins vegar
erum við ekki bundin því á
neinn hátt þannig að við gæt-
um ekki talað við fleiri aðila
ef svo ber undir,“ segir Val-
gerður. Hins vegar segir ráð-
herra ljóst að ráðuneytið
muni ekki undirrita samninga við
neina nýja aðila meðan á þessu við-
ræðutímabili við Alcoa stendur.
Valgerður segir að áhugi Alcoa og
tilboðið til þess felist í því að koma
inn í álversframkvæmdir fyrir austan
og er fyrirtækið opið fyrir
ýmsum útfærslum á málinu,
þar á meðal að halda áfram á
grundvelli Reyðarálsáætlun-
arinnar. Varðandi tíma-
ramma þessara viðræðna
sagði Valgerður að áformað-
ar væru frekari viðræður
milli Alcoa og Fjárfestinga-
stofu orkusviðs á næstu vik-
um og því mætti reikna með
að seint í maí myndu málin
fara að skýrast. Aðspurð
hvort menn væru e.t.v. að gera sér
vonir um að fyrri tímaáætlanir um
framkvæmdir kynnu eftir allt saman
að raskast litið sagði Valgerður: „Það
er í sjálfu sér ekkert útilokað í því
sambandi en það liggur heldur ekkert
fyrir um slíkt. Við töluðum jafnan um
það í sambandi við Noral-verkefnið
að i júní myndu mál skýrast og mér
sýnist það eiga við enn þá.“ Ráðherra
segir hins vegar of snemmt að spá
neitt í það hvenær eða hvort menn
gætu hugsanlega farið af stað í undir-
búningsvinnu fyrir virkjun. Reynslan
sýndi jú að vissara væri að halda
væntingum innan skynsamlegra
marka.
Alcoa er stærsta fyrirtæki í áliðn-
aði á Vesturlöndum og er með starf-
semi á öllum sviðum þess iðnaðar,
þ.e. súrálsframleiðslu, álframleiðslu
og úrvinnslu. Starfsmenn fyrirtækis-
ins eru 129 þúsund í 38 löndum og
velta þess er um 2.300 milljarðar
króna. -BG
Valgerður Sverr-
isdóttlr Iðnaðar-
ráðherra
Rússar vilja byggja
súrálver á íslandi
Herra Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti íslands, ræddi stuttlega við
forseta Rússlands, Vladimír Pútín, í
gær en forsetinn er þar I opinberri
heimsókn ásamt fylgdarliði. Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra
ræddi þá við Kasyanov, forsætisráð-
herra Rússlands, og Igor Ivanov ut-
anríkisráðherra en þar kom m.a.
fram að Rússar hafa mikinn áhuga
á að reisa súrálver hér á landi. Við-
ræður munu hefjast um byggingu
álversins á næstunni. Einnig kom
fram að gengið yrði frá samkomu-
lagi um öryggismálasamvinnu
Rússa og NATO-ríkjanna á fundi ut-
anríkisráðherra NATO, Evrópu-
sambandsins og Austur-Evrópu-
þjóða í Reykjavík nú á vormánuð-
um.
Forsetar hittast
Ólafur Ragnar ásamt Dorrit
Moussaieff viö upphaf fundar meö
Pútín forseta og konu hans.
Reiðtygjum stolið:
Trillukarl á Suðureyri:
Biðst afsökunar á að
hafa reynt að bjarga sér
- það olli því að þorpið varð af byggðakvóta
Mikiö tilfinn-
ingalegt tjón
Brotist var inn í hesthús í Víðidal í
fyrrakvöld og stolið þaðan töluverðu af
reiðtygjum. Þau eru öll í eigu stórrar
fjölskyldu en hestar hennar voru
geymdir í þessu sama húsi.
Gunnhildur Viðarsdóttir, einn eig-
enda reiðtygjanna, segir að öll reiðtyg-
in sem geymd voru í húsinu séu horf-
in. „Þama voru m.a. fjórir hnakkar,
söðull, um 20 beisli, pískar, jáminga-
sett og leðurskálmar," segir hún og
giskar á að verðmætið sé á bilinu hálf
til ein milljón króna.
Gunnhildur segir tjónið ekki siður
tilflnningalegt en fjárhagslegt. „Þama
hurfu m.a. sérsaumaðar töskur, 20 ára
gamlar. Þá átti amma min söðulinn
sem hvarf. Þetta er alveg ömurlegt,"
segir Gunnhildur. Hún vill biðja alla þá
sem kunna að hafa orðið varir við þessi
reiðtygi að hafa samband við sig í síma
897 2420. Lögreglan fer með rannsókn
málsins. -HI
Guðni A. Einarsson á Suðureyri,
sem undanfarin ár hefur rekiö hausa-
þurrkunarfyrirtækið Klofning, biður
Súgfirðinga afsökunar á að hafa reynt
að bjarga sér á eigin spýtur í kvóta-
kerfinu. Sú viðleitni hafi greinilega
komið í veg fyrir að Súgfirðingar
fengju eðlilega hlutdeild í byggða-
kvótanum.
„Ég er mjög ósáttur við að það sem
ég er að reyna að gera til að bjarga
mér sé látið bitna á öðrum," sagði
Guðni A. Einarsson í samtali við DV.
Hann segist ekki reikna með að þetta
verði lagfært en aðeins um 19 tonn
féllu í hlut báta í plássinu.
í bréfl í héraðsfréttablaðinu Bæj-
arins besta segir Guðni m.a.:
„Fyrir viku var síðan úthlutað
byggðakvóta til þeirra byggðarlaga
sem verst þóttu hafa fariö út úr áður-
nefndri kvótasetningu. Þá gerast þau
undur og stórmerki að Suðureyri er
nánast ekki með í þeirri úthlutun.
Staður, sem hefur átt allt sitt undir
veiðum smábáta síðan upp úr 1990!
Frá Suöureyri
Brölt sumra trillukarla til aö afla sér
kvóta hefur oröiO til þess aö aörir í
plássinu fá minna úr úthlutuöum
byggöakvóta en ella.
Og hver er ástæðan? Jú, mismunur-
inn á veiðinni í fyrra og úthlutuninni
i ár náði ekki ákveðinni viðmiðunar-
tölu sem einhvers staðar hafði verið
fundin út. Það þýðir að þær aflaheim-
ildir sem ég hef verið að eignast á
undanfömum árum, til að búa mig
undir aö lögin taki gUdi, veröa bein-
línis tU þess að byggðakvóti tU ann-
arra báta á staðnum er lækkaður sem
því nemur.
Ég vU því hér með biðja ykkur
innUega afsökunar á þessu frum-
hlaupi og því að minnka samkeppn-
ishæfni okkar á Suðureyri með því
að eyða peningunum í það sem við
hefðum eUa fengið og aðrir fá frítt.
Ekki svo að skUja aö við séum ekki
vanir svona trakteringum hér, því
ekki höfum við séð svo mikið sem
einn sporð af þeim byggðakvóta sem
var úthlutað tU okkar síðast, þá var
það bæjarstjóm ísafjarðarbæjar og
Byggðastofnun sem sáu um að færa
hann öðrum.“
Guðni segist tU margra ára hafa
reynt að vinna með því fiskveiði-
stjómarkerfi sem í gUdi er í það og
það skiptið. Árið 1999 voru sett lög
um aö aukategundir í þorskaflahá-
markinu yrðu settar í kvóta. Reyndi
hann að búa sig undir að þessi lög
tækju gUdi og fjárfesti í hlutdeUd á
ýsu og steinbít og flutti á bát í sinni
eigu. Eftir endurtekna frestun tóku
þessi lög gUdi 1. september í haust.
-HKr.
Blnftift í dn£
0-
Forseti, skáld
og stríðsmaður
Erlent fréttaljós
Framsóknar-
genin eru
sterk
Mikil
uppsveifla -
enn meira fall
Innlent fréttaljðs
50
Vinsæl á
veitingastöðum
Rauðspretta
Kaup á ísfugli staðfest
Gengið var endanlega í gær frá
kaupum Kaldbaks, Norðlenska og
Sparisjóðs Norðlendinga og Spari-
sjóðs Svarfdæla á kjúklingafyrir-
tækinu íslandsfugli í Dalvíkur-
byggð. Að sögn framkvæmdastjóra
Norðlenska, var ákveðið að ganga
frá málinu eftir að jákvætt svar
barst frá Byggðastofnun um að-
komu að þessu dæmi. Á borði
stofnunarinnar liggur umsókn um
60 miUjóna króna fyrirgreiðslu
vegna íslandsfugls.
Fagnar verðlækkun
Verðlækkun á
erlendum bókum
er kjarabót fyrir
nemendur á fram-
halds- og háskóla-
stigi sem árlega
kaupa erlendar
bækur fyrir tugi
þúsunda. Bryndís
Loftsdóttir, verslunarstjóri Penn-
ans - Eymundsson, fagnar að sam-
ræma eigi reglur á þann veg að all-
ar bækur beri 14% virðisauka-
skatt.
Grafa í Skálholti
Fornleifastofnun íslands mun í
næsta mánuði, fyrir tilstyrk
Kristnihátíðarsjóðs, hefja fomleifa-
uppgröft í Skálholti. Unnið verður
eftir fimm ára áætlun. Fomleifa-
fræðingar binda vonir við þennan
uppgröft vegna þess að Skálholts-
staður var stórbýli og höfðingjaset-
ur í 700 ár.
Kanni breytta heilsugæslu
Bæjarstjórn Garðabæjar hefur
samþykkt að fela bæjarstjóra að
kanna hug starfsmanna heilsu-
gæslunnar í Garðabæ og heilbrigð-
isráðherra til breytts rekstrar-
forms heilsugæslustöðvarinnar. í
tillögu segir að skoða megi til
dæmis beina aðild starfsmanna að
rekstrinum.
Staðfestir sameiningu
Páll Pétursson
félagsmálaráð-
herra hefur stað-
fest sameiningu
Hólmavíkur- og
Kirkjubólshreppa,
en í slðamefnda
sveitarfélaginu
hafa veriö færri en
50 íbúar síðustu þrjú ár. Þar með
er ljóst að sveitarfélögin í landinu
verða 105 í komandi kosningum.
Gengið í hámarki
Gengi krónunnar hækkaði um
rúm 0,7% í gær. Það hefur hækkað
um rúm 6% frá áramótum, en um
13% frá því gengið var lægst í lok
nóvember á síðasta ári. Gengið hef-
ur ekki verið eins hátt siðan um
mánaðamótin apríl og maí í fyrra.
Síminn hefur sagt
upp sjö starfsmönn-
um húslagnadeildar
sirmar a Akureyri.
W ” Samið verður við
verktaka um að taka að sér verk-
efni deildarinnar. Að sögn
Heiðrúnar Jónsdóttur, upplýsinga-
fulltrúa Símans, stendur hins veg-
ar til að efla starfsemi nyrðra að
öðru leyti eins og kostur er.
Slæm magapest
Slæm magapest herjar nú á
landsmenn. Henni fylgir niður-
gangur, slæmir verkir og jafnvel
hiti. Það getur tekið 2-3 daga að
hún gangi yfir. í sumum tilvikum
hefur hún orðið svo svæsin að fólk
hefur leitað læknis og talið að það
væri komið með matareitrun.
Fólki er bent á að taka það rólega
meðan magapestin er að ganga
yfir- -sbs/JSS