Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2002, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2002, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2002 Helgarblað_________________________________________________________________________________________________x>V Skipulagðar aftökur konu og stjúpbarna Hvarf Lesley Ford og fjögurra bama hennar var lögreglunni í Comwall hulinn leyndardómur. Það var 29. september árið 2000 sem bróð- ir hennar tilkynnti lögreglunni að hún og fjögur böm hennar frá fyrra hjónabandi hefðu ekki sést síðan 31. ágúst og 4. október var enginn neinu nær um hvarf konunnar og bamanna í smáþorpi þar sem allir fylgdust meö öllum. Þá var maður hennar loks yf- irheyrður. Lee Ford vann sjálfstætt við þakviðgerðir. Hann sagðist ekki hafa neina ástæðu til að tilkynna hvarf konu sinnar né fjögurra bama henn- ar frá fyrra hjónabandi, þar sem þau hafl rifist heiftarlega um fjármál sín Sérstæð sakamál og hún hafi yfirgeflð hann eftir 10 ára hjónaband og tekið bömin með. Frú- in var líka orðin þreytt á drykkju- skap bónda síns en hann vandi sig á að drekka sig fullan daglega eftir vinnu. Það vakti þegar athygli lögreglunn- ar að konan hefði tekið elstu bömin með sér en skilið tvö þau yngstu, sem Lee var faðir að, eftir. Kona sem hleypur á brott úr hjónabandi reynir yfirleitt að taka yngstu bömin með sér. Lesley Ford hafði ekki bílpróf og ekki var vitað með hvaða hætti hún og bömin yfirgáfu þorpið. Hún var meðalmanneskja á hæð, grönn með axlarsítt ljóst hár. Horfnu bömin vom Sarah Jane, 17 ára, Anne Marie, 16 ára gömul og strákamir Steven, 14 ára og Craig, 13 ára. Sara Jane hafði ekki tiikynnt veikindi eða uppsögn hjá McDonalds þar sem hún vann og hin bömin mættu ekki í skóla vikum saman. Þann 4. október var Lee Ford hand- tekinn á heimleið en hann hafði kom- ið bömum sínum og Lesley fyrir hjá ættingjum. Þau vora 3 og 9 ára göm- ul. Hann var handtekinn vegna gruns um að hafa misnotað bam kynferðis- lega og einnig var hann grunaður um morð. Heimili hans var innsiglað og tækniliö rannsóknarlögreglu kom um miðnætti. Haft er eftir nágrannakonu að hún trúði varla að glæpur hefði verið framinn í næsta húsi og að lögreglu- þjónn hefði ekki sést í nágrenninu í þá tvo áratugi sem hún hafði búið þar. í viðarskúmum Rannsóknarlögreglumenn ein- beindu sér í fyrstu að því að leita í ösku bálkastar sem kveiktur hafði verið bak við hús þeirra hjóna og að steyptum skúr á baklóðinni. Undir morgun fundust fyrstu líkin og öll umferð í og úr þorpinu var stöðvuð. Þrjú lík, sem farin voru að rotna, fundust undir viðarstafla í skýli á baklóðinni. Líkin sem fyrst fundust vora leif- amar af Lesley og tveim bama henn- ar. Síðar fundust tvö lík, grafin í hag- anum nærri húsi hinnar myrtu og morðingjans. Lögreglumenn ályktuðu að líkin undir viðarstaflanum væra líkams- leifar þeirra sem fyrst vora myrt en bömin tvö sem grafin vora í nágrenn- inu vora myrt síðar. Lesley hafði geinilega verið lamin með barefli og síðan kyrkt. Bömin vora öll kyrkt og allar líkur bentu til að öli morðin hefðu verið framin innan eins sólar- hrings í septemberbyrjun. Foreldrar Lesley vora harmi slegn- ir vegna missis dóttur sinnar og bamabama. Fyrrverandi eiginmaður hennar ekki síður þar sem fjögur bama hans vora myrt á villimannleg- an hátt. Hann bar fyrrverandi eigin- konu sinni hið besta orð og sagði hana hafa verið yndislega manneskju og góða móður. Nemendur í skólan- um þar sem þijú bamanna stunduðu nám fengu áfallahjálp. Lee Ford var ákærður fyrir að myrða konu sína og fjögur stjúpböm. Hann svarði engum spumingum lög- reglu eða saksóknara um glæpina, en sagði aðeins til nafns við yfirheyrslur og gaf upp heimilisfang og fæðingar- dag. Sjö mánuðum síðar játaði hann fyrir héraðsdómi í Bristol að hafa myrt konu sína og fjögur böm henn- ar. Örugg handtök Við réttarhöldin kom fram að Lesley grunaði bónda sinn um að eiga í ástarsambandi við elstu dóttur sína. Hún hafði í hótunum um að skilja við Lee og taka öli bömin með sér. I maí 2000 ráðfærði hún sig við lögmann hvemig taka ætti á hjúskaparbroti manns sins og sifjaspellum sem áttu sér stað á heimilinu. Eftir að hafa kynnt sér málið nánar lét lögmaður- Bakgaröurinn Þrjú lík fundust í þessum skúr. Tjald yfir ösku bálkastar. Lögreglumaöur viö skúrinn sem líkin fundust í og innviöir skúrsins. Böðullinn gerði aldrei skýra grein fyrir því hvemig hann tók konu sína og böm hennar af lífi eða hvað honum kom til að fremja slik illvirki í stundarœði. En rann- sóknarmenn drógu þær ályktanir að morðin hefðu verið vandlega undirbúin og fram- kvœmd af manni sem vissi vel hvað hann var að gera. Hver aftaka fór fram án þess að þau sem á eftir komu vissu hvem- ig komið var fyrir þeim sem á undan fóru. Enda komst rétturinn að því að ekki hefði verið um ástríðuglœpi að ræða, sem framdir voru í ann- arlegu hugarástandi, heldur vel útreiknuð at- burðarás. inn viðkomandi yfirvöld vita af ástandinu. En hvorki félagsmála- stofnun né lögregla skiptu sér neitt af málinu. Lesley var myrt fyrst í svefnher- bergi þeirra hjóna eftir heiftarlegt rifrOdi. Hún var barin meö hafna- boltakylfu og síðar kyrkt með kaðal- spotta sem eiginmaðurinn átti í bO- skúmum. Síðar vora bömin kyrkt hvert af öðra á sama hátt í eldhúsinu. Meinafræðingur bar við réttarhöldin að kunnáttusamlega hefði verið að verki staðið. Kyrkingin var öragg af- tökuaðferð og kaðaUinn skOdi lítO fór eftir á hálsin- um, en Lee stóð að baki fómarlömb- um sínum þegar hann ffamdi morð- in. BöðuOinn gerði aldrei skýra grein fyrir hvemig hann tók konu sína og böm hennar af lífi eða hvað honum kom tU að fremja slík illvirki í stundaræði. En rannsóknarmenn drógu þær ályktanir að morðin hefðu verið vandlega undirbúin og fram- kvæmd af manni sem vissi vel hvað hann var að gera. Hver aftaka fór fram án þess að þau sem á eftir komu vissu af hvemig komið var fyrir þeim sem á undan fóra. Enda komst réttur- inn að því að ekki hafi verið um ástríðuglæpi að ræða, sem framdir vora í annarlegu hugarástandi, held- ur vel útreiknuð atburðarás. Ofsafengin afbrýðisemi Lesley og Lee gengu í hjónaband árið 1990. Þau skUdu síðar en tóku aftur saman 1993. Þau fluttu í þorpiö þar sem þau bjuggu síðast 1998. Þeir sem tO þekktu minntust þess hve strangur stjúpfaðir Lee var. Einkum lét hann sér annt um elstu dótturina, Sarah, og reyndi að stjóma henni með harðri hendi. Sú ályktun var dregin af þeirri framkomu að hann ætti í ástarsambandi við stjúpdóttur sína. Eftir að hún varð 17 ára í mars 2000, færðist Lee aUur í aukana gagn- vart stúlkunni og reyndi ekki að leyna ofsafenginni afbrýðisemi sem greip hann ef stúlkan hafði minnsta samband við stráka á sínum aidri. Sá ákærði sagði síðar að þau hjón- in hefðu rifist i svefnherberginu út af drykkjusiðum hans og að hún hafi reynt að stjóma lífi hans, sem hann þoldi ekki. Krakkamir aftur á móti vOdu oft horfa á aðrar sjónvarps- stöðvar en húsbóndinn á heimUinu og svikust um að taka upp efni sem hann langaði að skoða síðar. En hann sagðist samt ekkert skOja i hvaða vit- leysa hafi gripið sig þegar hann tók sig tU og myrti fjölskylduna. En þeir sem rannsökuðu málið telja samt að morðin hafi verið framin skipulega að yfirlögðu ráði. Eftir aftökumar tOkynnti hann í skóla bamanna að þau væra farin á brott með móður sinni. Samt hélt hann áfam að krefjast fjölskyldubóta hjá félagsmálastofnun og reyndi að ná út ógreiddum launum sem Sarah átti inni hjá McDonalds. Daginn eftir að hann framdi glæpaverkin hafði hann samband við fyrrum ást- konu sína og stakk upp á að þau endumýjuðu samband sitt og sagðist viss um að kona sín kæmi ekki aftur. Einnig kom hann fyrir eftirlitskerfi í húsinu tU að fylgjast með grun- samlegum mannaferðum ef einhver kynni að fara að grennslast fyrir um hvað varð af konu og böm- um. í fyrstu vora öU líkin falin í viðar- staflanum í steypta skúmum. Snemma í október tók Lee lík tveggja stúlkna og gróf þau í haganum utan við þorpið. Þar ætlaði hann að husla öU likin en var handtekinn áður en því var komið í verk. Skipulagðar aftökur Verjandi Lees sagði að umbjóðandi sinn hafi einangrast frá fjölskyldunni og dvaldi löngum í bílskúmum og horfði þar á sjónvarp. Hann óttaðist að Lesley færi frá honum og tæki hans eigin böm með. Vömin byggðist á að morðinginn væri ekki sjálfráður gerða sinna og ekkert ráðið við sig þegar drápsæðið rann á hann. En dómstóUinn tók ekkert slíkt tO greina. AUur verknaðurinn var vel skipulagður og ekki unninn í stund- arbrjálæði. Um sambandið við stjúp- dótturina vUdi rétturinn ekki fjaUa þar sem hún var orðin 17 ára þegar rannsóknin hófst. Hins vegar var hann ekki fríaður af því að hafa átt mök við stúlku á bamsaldri og væri sekur um blóðskömm vegna náinna tengsla við stjúpdótturina. En þau tengsl era að öUum líkindum orsök fjöldamorðanna í litlu þorpi í ComwaU. Lee Ford var dæmdur í fimm sinn- um lífstíðarfangelsi. Morðinginn og aftökustaðurinn Lee Ford vann kunnáttusamlega aö aftökunum. Rannsóknarmenn utan viö húsiö sem moröin voru framin í. Þau myrtu Lesley Ford og fjögur barna hennar sem myrt voru. Lesley er efst, þá Sarah og síöan Anne, Steven og Craig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.