Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2002, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2002, Qupperneq 27
27 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 DV Leiddist á lyftaranum og fór aö selja plötur - DV heimsækir skrýtnustu plötubúö landsins á Norðfirði Pjetur Hallgrímsson, kaupmaður og trommari. „Ég ætlaöi upphaflega aö opna billiardstofu en af því aö enginn var aö selja tónlist í bænum þá var ætlunin aö hafa nokkrar plötur á boöstólum líka. En svo hætti ég einhverra hluta vegna viö þessar áætlanir og opnaöi þess í staö þessa plötuverslun. Ég var bara oröinn leiöur á því aö vinna á lyftara í frystihúsinu. “ „Ég er löngu hættur að nenna að af- saka draslið héma,“ segir Pjetur Hall- grímsson, eða Pjetur í Tónspil, eins og Norðfirðingar kalla hann, þegar hann býður mér sæti í litlu bakherbergi fyr- ir aftan afgreiðsluborðið í hijómplötu- versluninni Tónspil í Neskaupstað. Hér vantar ekkert nema troðfullan öskubakka og sigarettustybbu en svo er ekki þvi Pjetur hætti að reykja fyr- ir þremur árum. Ég hef lengi hlakkað til að eiga gott spjall við þennan ágæta mann sem hefur þegið dágóðan hluta af laununum mínum undanfarin fimmtán ár. Við eigum eitt sameigin- legt: Við erum báðir tónlistarfíklar. Eini munurinn er sá að hann lét draum allra plötusafiiara rætast og opnaði plötubúð. Ég hef ekki einu sinni unnið í slíkri. Óhóflega bjartsýnn Pjetur hefúr lagað sér te og bíður greinilega eftir fyrstu spumingunni, enda ekki eftir neinu að bíða. Það er líklega eins eðlilegt og hvað annað að spyija hann fyrst hvemig í ósköpun- um honum hafi dottið í hug opna hljómplötuverslun með jafn miklu úr- vali af tónlist í 1500 manna sjávarþorpi á Austfjörðum. „Jú, jú, þetta var óhófleg bjartsýni, en það bjuggu nú um 1700 manns héma þegar búðin var opnuð,“ segir Pjetur og glottir. „Ég ætlaði upphaflega að opna billi- ardstofú en af því að enginn var að selja tónlist í bænum þá var ætlunin að hafa nokkrar plötur á boðstólum líka. En svo hætti ég einhverra hluta vegna við þessar áætlanir og opnaði þess í stað þessa plötuverslun. Ég var bara orðinn leiður á því að vinna á lyftara í frystihúsinu. En auðvitað hef- ur þetta verið mikið basl.“ Pjetur lék á trommur með hljóm- I sveitinni Amon Ra, einni fárra aust- firskra hljómsveita sem rötuðu í rokk- söguna hans dr. Gunna, en hljómsveit- in starfaði með miklum mannabreyt- ingum frá 1971 til vordaga 1981. „Það var ég sem stjómaði tónlist- arsmekk Austfirðinga á áttunda ára- tugnum," segir Pjetur og skellihlær en bætir við að þetta megi ég ekki hafa eftir honum. „Ég er nú bara að ljúga en ég átti mikið af tónlist og ég hafði mikið fyrir því að ná í tónlist sem ég kynnti svo á æfmgum Amon Ra. Ég bjó fyrir sunn- an i fjögur á, þegar ég var í Mennta- skólanum í Reykjavík, og þá eignaðist ég gríðarlegt magn af tónlist. Ég man eftir því að ég heimsótti oft skólabróð- ur minn sem átti stórt og mikið safn og tók upp heilan helling af tónlist hjá honum. Heimsóknir minar fóm óskap- lega í taugamar á honum man ég. Svo var bókasafhið í Hafnarfirði með plöt- ur og ég gleymi þvi aldrei hvað ég var spenntur á fimmtudögum en þá kom ný sending," segir Pjetur og kímir þeg- ar hann rifjar þessi ár upp. Ég skil upp á hár hvað hann er að tala um. Sá þriðji besti á landinu „Við munum ræða um plötusöfnun síðar,“ hugsa ég með sjálfiim mér og núna vil ég ræða um árin sem Pjetur var í „bransanum". Daginn áður hafði góðvinur Pjeturs sagt mér að á áttunda áratugnum hefðu fair trommarar stað- ist Pjetri snúning. Hann var ekki eftir- bátur neins, nema þá kannski Jökuls- ins og Sigga Karls, en þetta vora báðir menn sem höfðu lifibrauð sitt af trommuleik. Amon Ra starfaði ein- göngu yfir sumarið. Pjetur gefur lítið fyrir þessar fúll- yrðingar vinar síns en er þó greinilega skemmt. „Ég þótti ansi „beijinn" í æsku og ætli ég hafi ekki byijað að tromma í kringum fermingaraldurinn og svo keypti ég mitt fyrsta sett árið 1967. Ég man að ég stillti upp trommun- um mínum hjá ömmu að þar barði ég húðimar látlaust. Síðan spilaði ég í nokkrum grúppum þar til við stofiiuð- um Amon Ra. Þetta vora afskaplega skemmtileg ár og við spiluðum eigin- lega það sem okkur datt í hug, sem var aðaUega þungt rokk, og ég held að við höfúm haft töluverð áhrif á tónlist- arsmekk fólks héma á fjörðunum." Með Kalla Sighvats „Þú spilaðir nokkrum sinnum með Karli Sighvatssyni heitnum, orgelleik- ara í Trúbrot og fleiri hljómsveitum. Hvemig kom það til?“ spyr ég. „Það var nú reyndar, held ég, bara í einum sjónvarpsþætti. Og þó, ætli ég hafi ekki spilað á einu eða tveimur böllum líka. Ég hef ekki skilið það enn þá hvemig þetta kom til. Ég var í Iðn- skólanum og var að labba eitthvað nið- ur i bæ og allt í einu stoppar mig mað- ur sem reyndist vera Karl Sighvats- son, og hann spurði mig hvort ég vildi ekki spila með honum í einum sjón- varpsþætti eða svo. Ég kom alveg af fjöllum og vissi ekki mitt ijúkandi ráð en sagði honum svo eftir litla umhugs- un að ég væri til í þetta, en ég hafði aldrei komið nálægt því að spila í hljóðveri, hvaö þá í sjónvarpi. En þetta vora bara þessi fau skipti og þannig séð ekkert merkilegt," segir Pjetur og ég fæ það á tilfinninguna að hann hafi enga hugmynd um hvað hann þótti góður trommari. Tónspil er Pjetur og Pjetur er Tonspil Við erum komnir fram í búð aftur og allt virðist vera orðið eðlilegra, þ.e. ég skoða plöturekkana og Pjetur er eitt- hvað að bardúsa fyrir aftan afgeiðslu- borðið. Við erum einfr í búðinni og hér er mun notalegra andrúmsloft en 1 stór- verslunum Skífunnar i Reykjavík. Einn fastakúnni rak inn nefið áðan en fór rakleitt út aftur þegar hann sá að Pjetur var upptekinn. Kúnnamir eru nefnilega vanir því að hann veiti þeim óskipta at- hygli. Á meðan ég fletti í gegnum rekkana átta ég míg strax á því að þetta er sér- vitrasta plötubúð landsins. Úrvalið seg- ir meira um eigandann en nokkuð ann- að. Hér fást ótal titlar með löngu gleymdum hljómsveitum sem bera nöfh eins og Audience, Tempest og Chase. Markaðshyggjan hefur ekki hafið inn- reið sina í Tónspil. Pjetur segist hafa eina vinnureglu: „Ég fer ekki niður fyrir fimmtán Zappa-titla. Það má bara ekki gerast og reyndar er ég kominn hættulega nálægt lágmarkinu núna. Verð að bæta úr þessu sem fyrst,“ segir Pjetur og kannar lagerinn. Ég spyr hann hvort hann hafi ein- hvem tímann séð eftir því að selja ákveðna plötu úr búðinni. „Jú, það gerö- ist einu sinni en það var þekktur plötu- safiiari hér í bæ sem keypti hana og ég fæ hana lánaða þegar mér hentar," svar- ar Pjetur um hæl og ég hugsa með sjálf- um mér hvort það sé einhver annar kaupmaður á landinu sem hugsar svona. „En er þetta ekki hættulegt í við- skiptalegu tilliti, þ.e. að hlusta ekki á markaðinn?" spyr ég um leið og ég rekst á einn disk sem ég vil eignast undireins. „Uppistaðan í því sem hér er til era plötur sem ég hef gaman af og annað er það sem fólk biður mig sérstaklega um að panta. Ástæðan fyrir þessu er praktísk. Mér gengur miklu betur að selja tónlist sem ég hef gaman af og mér finnst óskaplega gaman að selja fólki góða tónlist. Þess vegna streittist ég gegn danstónlistinni og rappinu. Maður verður að hafa áhuga á þvl sem maður gerir. Ég vona að það verði grafskriftin mín.“ Hefurðu heyrt um þessa? Það er draumur allra alvöra plötu- safiiara að vera spurður um hver uppá- haldsplatan sé af blaðamanni - í það minnsta er það minn draumur - og ég Helgarblað Pétur er magnaður trommarl Hér sést hann á fullri ferö bak viö settiö einhvem tímann á áttunda áratugnum. bauna þessari erfiðu spumingu á Pjet- ur. Eins og alvöra tónlistarfíkli sæmir fer hann í dálitla flækju en segir svo að hann geti gefið upp nafn á plötu en slær þann vamagla að þetta sé svona „heat of the moment“-val. Pjetur á jú fleiri hundrað platna heima hjá sér, upprað- aðar í stafrófsröð. „Ef þú spyrðir mig á morgun myndi ég sennilega nefha ein- hverja aðra plötu en ætli ég segi ekki „Lamb Lies Down on Broadway," með Genesis. Því miður fór Phil Collins að gaula eftir þessa, segir Pjetur um leið og hann heldur fyrir framan mig diski með hljómsveit sem heitir Klaatu og spyr mig ákveðinn hvort ég hafi heyrt um þessa. Ég neyðist til að svara neitandi en ég bið hann um að fmna einhvem disk í snarheitum því ég ætli ekki að fara tómhentur héðan út. Hann tekur sér góðan tima og loks dregur hann fram disk með hljómsveit sem heitir Retum to Forever og skellir honum í spilarann. „Aðra eins fmgraleikfimi hef ég ekki heyrt,“ segir Pjetur, en orðin drukkna í bassadrun- unum sem koma út úr hátölurunum þegar fyrsta lagið kemst í gang. „Þvílík- ar „fraseringar“, ha?! Þú þarft að hlusta á þennan ansi oft áður en þú verður „hooked", kallar Pjetur í gegnum hávað- ann með bros á vör og slær taktinn með löppunum. En hann þarf ekki að hafa áhyggjur. Ég er þegar orðinn „hooked" og labba heim með enn einn diskinn í safnið. Pjetur hefur skorað aftur sem er kannski lítið mál þegar kúnninn er jafn veikur fyrir freistingum og ég er. DV, Neskaupstaö: Jón Knútur Ásmundsson "the pe :rfect pizza" John Bákcr Nýttu þér formútuna Dekkin frá Bridgestone, sem þérbjóðast undir bíiinn þinn, eru byggð á sömu formúlu og dekkin undir kappakstursbíium meistaranna í Formúlu 1. Uttu við á næsta alvöru dekkjaverkstæði og fáðu þér meistaradekk undir bílinn þinn. 520 3500 w Gnoðavogur Brekkuhús JMSl' • Hjólbarðaverkstæði Gunna Gunn Hafnargötu 86 - Keflavík • Smurstöðin Klöpp V/Vegmúla - Reykjavík • Smur, bón og dekk Sætúni 4 - Reykjavík • Smur og dekkjaþjónustan Jafnasel 6 - Reykjavík • Gfsli Stefán Jónsson Dalbraut 20 - Akranesi jJniUQESTOílE Betri akstur • B.O. Dekkjaverkstæði Ármúla 1 (bakvið) - Reykjavík Lágmúla 8 • Slmi 530 2800 ZllllUUESTOIIE UHlOliESTQIIE UlllUUESTOllE ZtlllUUESTUIIE HlllUUESTOIIE JlllUUESTUIIE ítltlUUESTUIIE itlllUUESTUIIE itlllUUESTUIIE itlllUUESTOIIE JIIIIUUESTOIIE itlllOUESTOIIE JlllUUESTOIIE JlllUUESTOIIE JlllUUESTUIIE

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.