Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2002, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2002, Blaðsíða 8
8 Útlönd LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 DV Nelson Mandela. Nelson Mandela kallar á hjálp Nelson Mandela, fyrrum forseta Suður-Afríku, er mjög umhugað um að afla upplýsinga sem varpað gætu ljósi á morð unga drengsins sem líkamsleif- arnar fundust af í Thames-ánni í London í september i fyrra. Það var vegfarandi sem átti leið um Tower- brúna sem uppgötvaði illa famar lík- amsleifamar í ánni og er talið að þær séu af suður-afrískum dreng sem fóm- að hafi verið við afríska trúarathöfn. Að sögn Mandela hefur þetta hræði- lega mál hvílt þungt á honum aö und- anfórnu og á fréttamannafundi í gær hvatti hann heimsbyggðina, og þá sér- staklega Afríkubúa, til að sameinast í því að upplýsa málið. „Það litur út fyr- ir að drengurinn hafl komið frá Suð- ur-Afriku og ef einhver fjölskyida saknar sonar á þessum aldri, þá endi- lega látið lögregluna hér eða i London vita. Við getum ekki látið það viðgang- ast að lífi bamanna okkar sé fómað á svo grimmilegan hátt og verðum koma í veg fyrir að svona nokkuð gerist aft- ur,“ sagði Mandela. IRA-leyniskjöl valda áhyggjum Lögreglan á Norður-írlandi fann nýlega við húsleit leyniskjöl sem rak- in hafa verið til írska lýðveldishers- ins, IRA og hafa þau m.a. að geyma nöfn nokkurra þekktra forystumanna í breska íhaldsflokknum auk upplýs- inga um breskar herstöðvar. Skjölin fundust í rassíu sem gerð var eftir innbrot í lögreglustöð í Belfast í síðasta mánuði, en að sögn lögreglunnar var ekki um að ræða skjöl sem hurfu í innbrotinu. Stjórnvöld hafa af þessu miklar áhyggjur og sagði Quentin Davies, talsmaður íhaldsflokksins á Noröur- Irlandi, að þetta sannaði að IRA-menn væru alls ekki hættir hryðjuverkum þrátt fyrir gefm loforð og afvopnun. Skjölin gæfu til kynna að þeir væru að skipuleggja árásir bæði á fólk og og hemaðarmannvirki. Unnlð að björgunaraögeröum Sonurinn heldur fram sjálfsmorði Lögregluyfirvöld á Italíu útiloka ekki að um sjálfsmorð hafi verið að ræða þegar Svisslendingurinn Luigi Fasulo, 67 ára, flaug vél sinni á Pirelli-skýjakljúfinn í Mílanó í fyrradag, með þeim afleiöingum að tvær konur létu lífið auk flug- mannsins. Sonur Fasuios segir i viðtali við i ítalska dagblaðinu La Repubblica í gær að hann sé viss um að faðir hans hafi framið sjálfsmorð. „Þetta var sjálfsmorð, það er enginn vafi á því. Það var fólk sem vildi koma honum á kné fjárhagslega og þetta eru afleiðingamar," segir sonurinn. Ófriðurinn fyrir botni Miðjarðarhafs breiðist út: Hörðustu átök á Gaza- svæöinu í heilan mánuð Ófriðurinn fyrir botni Miðjarðar- hafs hefur nú breiðst út til Gaza- svæðisins en í gær blossuðu þar upp hörðustu átök sem orðið hafa á svæðinu síðasta mánuðinn þegar ísraelsk skriðdrekasveit réðst inn í Rafah-búðimar á Suður-Gazasvæð- inu. Að sögn sjúkrahúsyfirvalda í Rafah munu að minnsta kosti þrír Palestínumenn hafa fallið í inn- rásinni sem gerð er á sama tíma og ísraelsmenn halda áfram brottflutn- ingi liðssveita sinna frá bæjum á Vesturbakkanum. Þá bárust fréttir af því að tveir Palestínumenn hefðu verið skotnir til bana nálægt Netzarim-landnema- byggðinni en að sögn talsmanna ís- raselshers vom þeir dulbúnir sem ísraelskir hermenn. Annar palest- ínskur byssumaður var í fyrrinótt skotinn til bana við Dugit-landnema- byggðina á Norður-Gazasvæðinu og sögðu ísraelsmenn að hann hefði verið með sprengiefni innanklæða. I Gush Katlif-landnemabyggðinni sprengdi palestínskur sjálfs- Fööurmlssir í Jenln Ungur drengur í Jenin kveöur fallinn föö- ur sinn hinstu kveöju. morðsliði sig í loft upp í bíl sínum með þeim afleiðingum að tveir ísra- elskir hermenn slösuðust alvarlega. íslömsku Jihad-samtökin hafa þegar lýst ábyrgð á sjálfs- morðsárásinni og mun hún sú fyrsta sem samtökin standa fyrir síðan kona sprengdi sig í loft upp á markaðstorgi í Jerúsalem i síðustu viku þar sem sex manns fómst. Þá handtóku ísraelskir hermenn Khalid al-Tafesh, háttsettan foringja í Hamas-samtökunum, en hann náð- ist á heimili sinu í Betlehem í fyrri- nótt. Tafesh er grunaður um að vera einn helsti skipuleggjandi hryðju- verkaárása Hamas og hafði áður verið í haldi palestínskra stjóm- valda að kröfu ísraela. I Jenin-flóttamannabúðunum voru liðsmenn alþjóðlegra hjálpar- stofnana komnar til starfa i gær til að grafa lík úr rústunum og aðstoða heimilislausa sem margir hafa misst allt sitt í aðgerðum ísraels- manna síðustu daga. ísraelsmenn em enn þá með búðimar í strangri gæslu og er svæðið enn skilgreint sem lokað átakasvæði en það gerir fréttaöflun erfiöa. REUTERSMYND Daglegur vlöburöur í palestínskum flóttamannabúöum Þrjú fórnarlömb árása ísraeismannna á Rafah-flóttamannabúöirnar á Gaza-svæöinu í gær voru borin samdægurs til grafar. Forsetakosningarnar í Frakklandi á morgun: Vart mælanlegur mun- ur á Chirac og Jospin Samkvæmt nýrri skoðanakönnun, sem birt var í Frakklandi í gær, að- eins þremur dögum fyrir fyrstu um- ferð forsetakosninganna sem fram fer á morgun, hefur heldur betur dregið saman með þeim Jacques Chirac Frakklandsforseta og Lionel Jospin forsætisráðherra í kapphlaupinu um forsetaembættið. Miðað við skekkju- mörk er forskot Chiracs vart mælan- legt en hann hlaut rúm tuttugu pró- sent í könnuninni á móti átján pró- sentum Jospins. Óvissan er þó enn mikil þar sem þriöjungur aðspurðra sagðist ekki ætla að kjósa og þar að auki var hópur óákveðinna stór. Fjórtán aðrir frambjóðendur, víðs vegar úr litrófi stjómmálanna, fengu saman upp undir tvo þriðju atkvæða í könnuninni og sýnir það viðtæka óánægju með báða toppmennina. Þegar spurt var um aðra umferð kosninganna, sem fram fer 5. maí, fékk Chirac 51 prósent á móti 49 pró- sentum Jospins. Jacques Chirac Sumirsegja Chirac ofgamlan í forseta- stólinn ogJospin ofdaufan. I þriðja sæti könnunarinnar varð þjóðemissinninn Jean-Marie Le Pen, en hann hefur verið að sækja í sig veðrið að undanfomu og er kominn í fjórtán prósent. Hans stuðningur gæti þó í raun verið mun meiri þar sem fólk hefur verið feimið við að viður- kenna stuðning við hann vegna öfga- stefnu hans. Stjómmálaskýrendur segja mjög óljóst hvemig mál muni þróast í ann- arri umferð kosninganna en að und- anfómu hefúr aukin harka færst í kosningabaráttuna milli þeirra Chiracs og Jospins sem hamast við að koma stefnumálum sínum á framfæri. Chirac réðst með látum að Jospin á miðvikudaginn og sagði öfgar ein- kenna allan málflutning hans og i gær var komið meinyrt dreifibréf í gang sem þrir sérfræðingar em látnir vima um hrakandi geðheilsu Chiracs vegna skjaldkirtilssjúkdóms. Kosningastjórar Jospins viidu ekk- ert við bréfið kannast og sögðu það dæmigerða kosningabrellu ihalds- manna í örvæntingu þeirra. En þrátt fyrir spennuna taka kjós- endur lífmu létt og heyrst hefur að mörgum fmnist Chirac of gamall og Jospin og daufúr. Amnesty krefst þvingana Alþjóðlegu mannúðarsamtökin Am- nesty International hafa hvatt forystu- menn Evrópusambandsins til þess að beita stjómvöld í Alsir efnahagslegum þvingunum vegna sifellt fleiri póli- tískra morða í landinu. Þessi krafa AI kemur fram þegar ESB undirbýr við- skiptasamning við alsírsk stjómvöld sem væntanlega verður undirritaður í næstu viku. Mótmæli í Jemen Lögreglan í Sanaa, höfuðborg Jemens, notaði táragas og skaut við- vörunarskotum upp i loftið þegar þús- undir manns mótmæltu meintum fjöldamorðum Israelsmanna á palest- ínskum borgurum í Jenin-flótta- mannabúðunum á Vesturbakkanum og stuðningi bandarískra stjómvalda við máistað Israelsmanna. Brúður af Bush og Sharon voru brenndar og far- ið fram á að sendiráðinu verði lokað. Að minnsta kosti Qórir slösuðust í að- gerðum lögreglunnar. Sættir á Madagaskar íbúar á eyjunni Madagaskar fógnuðu í gær samkomulagi þeirra Didiers Ratsi- raka, fyrrum forseta landsins, og helsta keppinautar hans, Marcs Ravaloman- ana, sem krefst emb- ættisins, um að binda enda á hat- rammar deilur sem staðið hafa síðan umdeildar forsetakosningar fóru fram í landinu í desember sl. Samkomulag náöist um endurtalningu atkvæða undir eftirliti þriðja aðila og að aðrar kosningar fari fram innan hálfs árs hafi annar frambjóðenda ekki náð hreinum meirihluta. Geimskutlan til baka Geimskutlan Atlantis lenti heilu og höldnu við Kennedy-geimrann- sóknarstöðina í Flórída í gær eftir ellefu daga geim- leiðangur til alþjóð- legu ISS-geimstöðv- arinnar þar sem sjö manna áhöfn vann við uppsetningu burðarvirkis utan á geimstöðina. Hollendingar tilbúnir Hollenski herinn er tilbúinn tii að taka við stjóm friðargæslu í Make- dóniu í sumar þrátt fyrir klúðrið við friðargæsluna í Bosníu sem kostaði afsögn hollensku rikisstjórnarinnar fyrr í vikunni. NATO hafði fyrr á ár- inu farið fram á það við Hollendinga að þeir tækju við stjóm friðargæsl- unnar í júní og eru stjómvöld tilbúin til þess að senda alit að 400 hermenn á svæðið. á írak Bandarískar orr- ustuþotur gerðu í gær loftárásir á loftvarnar- virki í Irak eftir aö miðunartækjum hafði verið beint að vest- rænum flugvélum sem flugu eftirlitsflug á flugbannssvæðinu yfir Norður-írak fyrr um daginn. Að sögn talsmanna bandaríska hersins var sprengjum varpað á loftvarnar- virki íaustur af borginni Mosui. Bandarískar F-16 þotur gerðu árásim- ar og sneru þær allar heilu og höldnu til bækistöðva sinna í Tyrklandi. Breskar og bandarískar orrustuþot- ur gerðu einnig árásir á mannvirki í Suður-írak á mánudaginn eftir að skotið hafði verið á eftirlitsvél. Engin viðbrögð höfðu í gær borist frá irösk- um yfirvöldum. Loftarasir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.