Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2002, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2002, Page 28
28 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 Helgarblað DV * Asama tíma og þjóðin hyllir minningu Halldórs Lax- ness á hundrað ára afmæli hans er Auður Laxness að kveðja Gljúfrastein sem verið hefur heimili hennar í 56 ár. Ríkið hef- ur keypt húsið ásamt ýmsum munum úr eigu Auðar og Hall- dórs Laxness. Auður flytur á dvalarheimili í Mosfellsbæ þar sem hún fær rúmgóða íbúð. Hún er 82 ára, segist vera sæmilega heilsuhraust og hafa ekki yfír neinu að kvarta. Reyndar ber hún það með sér að vera kona sem sé ekki vön að kvarta. Hún er glæsi- leg, með sérlega góða nærveru og full af hlýju og jákvæðni. „Hér áttum við Halldór gjöful ár en það er ekki erfitt að kveðja Gljúfra- stein,“ segir hún. „Nú á ríkið þetta allt saman. Það þarf reynd- ar ýmislegt að gera fyrir þetta hús, enda 56 ár síðan það var byggt, og ég treysti Davíð bara fyrir því.“ Þau Halldór fluttu að Gljúfra- steini árið 1945 og Auður viður- kennir að fyrstu árin hafi verið erfið. „Það kom mér mjög á óvart þegar ég átti allt í einu að flytja upp í sveit. Ég hélt að Halldór hefði bara verið að byggja hér sumarbústað. Svo var maður allt í einu kominn hingað og átti ekki neitt til neins, fékk lánað héðan og þaðan. Pabbi var okkur mikill styrkur og gerði mikið hér í hús- inu, bjó til dæmis til lampa, lukt- ir og kertastjaka. Það var svo lít- ið til á þessum árum. Og fyrstu tvö árin höfðum við ekki einu sinni rafmagn. Svo kom þetta nú smám saman." Langaði ekki í neinn annan mann Auður kynntist Halldóri fyrst á Laugarvatni áriö 1936 þegar hún var í sumarfríi. Þá sátu þau sam- an til borðs. Þremur árum síðar hittust þau aftur á Laugarvatni og Halldór bauð henni i spássértúra með sér. „Mér fannst hann svo skemmtilegur og kátur, hann hló og gantaðist og sagði sögur. Ég varð mjög ástfangin af honum og mig langaði ekki í neinn annan mann, hvorki þá né síðar.“ AuöurLaxness „Það getur vel verið að einhverjir líti svo á að ég hafi fórnað mér fyrir Halldór. Ég lít ekki á það þannig. Mér fannst ég aldrei glata sjálfstæði mínu. En það er skrýtið að allt umtaliö um Halldór undan- fariö hefur leitt til þess aö nú er mig far- ið að dreyma hann. “ DV-MYND E.ÓL. Samband Auðar og Halldórs stóð í fimm ár áður en þau gift- ust. „Hann bjó á Vesturgötunni og ég á Bárugötunni og hann hringdi alltaf í mig á mínútunni fjögur þegar ég var búin að vinna á Landspítalanum. Þá fór ég heim til hans og hitaði kaffi handa okk- ur en ég var sjaldan með honum á kvöldin, ekki nema þegar við fórum eitthvað. Hann var mikið í Unuhúsi en ég var ekki mikið þar. Á þessum árum var ég með Halldóri án þess að velta því fyr- ir mér hvort ég myndi giftast honum. Það var ekki fyrr en hann fór að tala um að byggja Gljúfrastein sem ég var nokkuð viss um að við myndum giftast." Þau giftu sig á aðfangadag 1945. Tvö fyrstu árin í hjónbandi þeirra vann Auður á Landspítal- anum en fór síðan í Handíða- og myndlistarskólann þar sem hún lærði til handavinnukennara. Hún þótti einkar góð handa- vinnukona og vann mikla handa- vinnu sem hún seldi. Einn vetur- inn hannaði hún skotthúfur sem komust í tísku í Reykjavík og svo að segja hver einasta stúlka í Kvennaskólanum gekk með slíka húfu. Þessa miklu handavinnu vann Auður til að auka tekjur þeirra hjóna en fjárhagurinn var ekki sterkur fyrstu árin. Þegar fjárhagurinn batnaði gerðist Auð- ur heimavinnandi húsmóðir. Hún hafði nóg að gera því gestagangur Gjöful ár á Gljúfrasteini I viðtali við Kolbrúnu Bergþórsdóttur ræðir Auður Laxness um lífið með Halldóri Laxness og árin á Gljúfrasteini - En voru ekki einhverjir að vara þig við því að þetta væri stórhættulegur maður og þar að auki giftur? „Ég man eftir að vinkona mömmu, fngibjörg Benediktsdótt- ir sem var i eina tíð tengdamóðir Kristmanns Guðmundssonar, hringdi í hana og sagðist hafa heyrt þau slæmu tíðindi að ég væri með Halldóri. Mamma svar- aði: „Ef það gengur ekki þá kem- ur hún bara aftur heim.“ „Menn voru að rœða það að hann hefði verið mik- ill kommi. Hann var það á tímabili. Það er ekkert Ijótt við það. Halldór skipti oft um skoðanir og fannst það normalt, eins og það er. Maður getur haft mikla skoðun á ein- hverju en svo missir maður áhugann og snýr sér að öðru. Það er ekkert óeðlilegt við það.“ var mikill og hún gestrisin hús- freyja. Hún segir að Halldór hafi hvatt fólk til heimsókna. „Halldór hafði þann sið að segja við alla sem buðu honum í heimsókn: „Komið þið til mín.“ Þannig varð það og gestagangur var geysimik- ill. Ég bara tók því. Það var ekk- ert annað að gera. Fyrir vikið kynntist ég líka alls konar fólki. Ég er félagslynd og kann vel við mig innan um fólk.“ Maður með sterkan vilja Auður og Halldór voru gift í rúm fimmtíu ár. Hjónabandið var einkar gott en engin samskipti eru alveg laus við átök og ég segi við Auði að einhvem tíma hljóti þau Halldór að hafa rifist. „Já, við rifumst stundum en ekkert að ráði. Hann gat rokið upp og svo var það bara búiö. Ég var rólegri en ef ég reiddist sat það lengur í mér. En þetta voru aldrei deilur sem orð var á ger- andi. Okkur kom vel saman. Það var gaman hjá okkur, enda höfð- um við svipaða kímnigáfu. Hall- dór var mér alltaf óskaplega góð- ur en hann vildi ráða. Ég skipti mér ekkert af því sem hann vildi gera. Aldrei. Hann réð sér alveg sjálfur." - Fannst þér í góðu lagi að gefa honum þetta mikla frelsi eða var það erfitt? „Það var ekkert annað hægt. Halldór var þannig maður. Hann hafði sinn vilja og réð algjörlega sínu lífi.“ Auður og Halldór eignuðust tvær dætur, Sigríður fæddist 1951 og Guðný þremur árum síðar. Hvemig faðir var Halldór? „Ég hef aldrei vitað jafn góðan foður. Við vorum gift í fimm ár áður en við eignuðumst bam. Mig langaði mikið til að eignast bam en Halldór var ekki eins áhugasamur. En þegar stelpurnar fæddust sá hann ekki sólina fyrir þeim. Hann var afskaplega góður við stelpurnar og þegar hann var í útlöndum geymdi hann myndir af þeim í veskinu sínu og alltaf keypti hann eitthvað handa þeim. Þegar við mættum til að taka á móti honum þegar hann kom að utan lifnaði hann allur þegar hann sá okkur og leit ekki af okk- Síðasta myndin saman Ein af síöustu myndunum sem var tekin af Halldóri og Auði saman viö Gljúfrastein á níræöisafmæli skálds- ins. Þann dag stóðu Bandalag ís- lenskra listamanria og Rithöfunda- samband íslands að blysför að heim- III skáldsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.