Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2002, Blaðsíða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2002, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 DV 59 EIR á laugardegi ✓ Islenskt/danskt íslending- ar, búsettir í Árósum í Dan- mörku, standa að sjónvarps- visi sem þar er gefinn út að íslenskri fyrirmynd. Þarna eru á ferðinni félag- arnir Tómas Ingi Tómasson og Magnús Karlsson. Danski sjón- varpsvisirinn heitir tjek d’ og er dreift ókeypis í Árósum. Telst blað íslendinganna til nýmæla ytra. í leið- ara fyrsta tölublaðs segir að hug- myndin komi frá Islandi og sé raun- ar stolið þaðan: „Faktiskt er tjek d’s konsept tyvstjálet. Pá Island har man í mange ár haft to TV-guides, hvoraf den störste, „Dagskrá vikunnar“, bliver læst dagligt af 52% af befolkningen.“ Alls starfa 13 manns á ritstjómar- skrifstofum íslenska sjónvarpsvísis- ins í Árósum en hann er pentaður og dreift í 101 þúsund eintökum. 107 ára lagnir Meðólík- indum þykir að vatns- og ofnalagnir sem lagðar voru í hús Ottós Wathne Hús Ottós Wathne á Seyðisflrði Lagnir í lagi áriö 1895 eru enn í notkun og duga vel. Eru þær orðnar 107 ára gamlar og sýna svo ekki verður um villst að það stendur lengi sem vel er vandað. Hús Ottós Wathne var hið fyrsta hér á landi sem í voru lagðar heildstæðar lagnir sem þessar. Þær eru allar sýnilegar og enginn raki kemst að þeim til að skemma. í nýjasta fréttabréfi Lagnafélags íslands kemur fram að í dag séu þess dæmi að lagnir séu famar að leka og stórskemma ný hús áður en þau ná eins árs aldri. Skýringin sé sú að í dag séu lagn- imar faldar inni í veggjum, loftum og gólfúm þar sem raki gerir út af við þær á skömmum tíma. Annað sé uppi á teningmun í húsi Ottós Wathne á Seyðisfirði. Sólheimar - Hátíð hafsins Björn Her- mannsson, fyrr- um fram- kvæmdastjóri Sólheima í Grímsnesi, hefur tekið að sér framkvæmda- stjóm við Hátíð hafsins sem hald- in verður á Reykjavíkurhöfn i byrjun júní. Þar slá menn saman sjómannadeginum og hafnardegi í eina hátíð. Bjöm sinnir þessu verk- efni ásamt öðrum en hann var sem kunnugt er rekinn frá störfum sem framkvæmdastjóri Sólheima eftir ágreining við yfirboðara sinn þar, Pétur Sveinbjamarson. tjek d’ íslensk hugmynd í Árósum. Leiðrétting Vegna frétta af eldingu sem laust niður í flugvél forseta íslands á leið hans til gömlu Ráðstjómarríkjanna skal tekið fram að hárgreiðsla for- setans riðlaðist ekki við höggið. Hún er enn sú sama og 1984. Gefstu upp! Loks nær Bush tökum é bin Laden - á leikfangasviöinu. Bush gómar bin Laden í tindátaleik - íslendingar hunsa stríðsleikföng, segir hafnfirskur leikfangainnflytjandi Bandariski leikfangaframleiðandinn Herobuilders hefúr komið George Bush, forseta Bandaríkjanna, til hjálp- ar í árangurslausri leit hans að Osama bin Laden og hafið framleiðslu á tind- átum í gervi þeirra beggja. I þeim leik leggur Bush bin Laden eins og ekkert sé; Bush með skammbyssu og rýting á lofti en bin Laden á hnjánum að biðjast vægðar. Tindátar þessir hafa vakið töluverða athygli vestra og selst vel. Is- lenskir leikfangainnflytjendur era þó ekki eins hrifiiir: „Islendingar vilja ekki stríðsleikfóng ef frá era taldar hvellhettubyssur. Fyr- ir því hef ég langa reynslu,” segir Páll Pálsson, leikfangainnflytjandi í Hafnar- firði, sem er nýkominn af leikfangasýn- ingu í Hong Kong þar sem hann kynnti sér það nýjasta í leikfangabransanum. Þar voru Bush / Laden-tindátamir ekki í öndvegi. „Það era gagnvirk tölvuleikfóng sem nú ráða rikjum. Við íslendingar fórum hins vegar að mestu á mis við þau vegna þess að það er of kostnaðarsamt að íslenska hljóð og skipanir sem fylgja þessum leikfongum Páll meö sumarsmelllna í ár Nýkominn frá Hong Kong á kengúru- priki meö Bratz-dúkkuna. nútímans. Það þarf að framleiða minnst 18 þúsund stykki af hverju til að framleiðendur taki í mál að íslenska leikfangið,“ segir Páll sem veðjar á kengúraprikið sem sumarsmellinn á íslenskum leikfangamarkaði. Einnig horfir hann mjög til Bratz-dúkkunnar sem er bandarísk að uppruna en hefúr slegið í gegn á Norðurlöndum svo eftir hefiír verið tekið: „I Danmörku hafa selst yfir 60 þús- und Bratz-dúkkur og ég held að þær eigi einnig eftir aö falla í góðan jarðveg hér heirna," segir Páll en Bratz-dúkk- umar era sérstæðar að því leyti að þær era með ofurstór höfúð og vinalegar á svip. Þær era andstæða Bush / Laden- tindátanha sem seljast ekki verr og þá helst á Netinu. Eða eins og framleið- andi þeirra orðar það: „Hvers vegna að gefa bömum action-mann þegar þau geta fengið raunverulegar hetjur?" og átti þar við Bush með byssuna og hníf- inn. Einnig er hægt að fá Tony Blair í hermannabúningi Rudi Giuliani, fyrr- um borgarstjóra í New York. Allt „sannar hetjur". Kolla og karlamir Ólafur Ragnar Grímsson Varö fyrir evrópskri eldingu. Davíð Oddsson Tekur Víetnam fram yfir Evrópu. Steingrímur J. Sigfússon Hræddur viö Evrópu. Guðni Ágústsson Of íslenskur fyrir Evrópu. Einar Oddur r- Kristjánsson ' Aldrei komiö til Evrópu. Bjöm Bjarnason Verður sendiherra í Evrópu? <3 Toppsex-listi Kollu bygglr á greind, útgeislun og andlegu menntunarstigl þelrra sem á honum eru. Nýr llstl næsta laugardag. Sprautan Full af stressi. Stress í sprautu Hópur lækna og læknanema í Reykjavík vinnur nú að rannsókn á áhrifum stresshormónsins kortisóls á blóðfitu. Kortisól er hormón sem myndast í nýmahettum við stress- ástand. Er efninu sprautað í vöðva þátt- takenda tilraunarinnar sem era sjálf- boðaliðar en þiggja 40 þúsund krónur hver fyrir vikið. Rannsóknin stendur yfir og er stress í þeim sem þátt taka margfalt á við það sem eðlilegt getur talist. Kvarta þeir helst yfir því að vera uppstökkir og fá bjúg í útlimi en neita því þó ekki að viss vellíðan fylgi þvi að vera betur vakandi en ella. Einn sofii- aði ekki fyrr en klukkan fimm í fyrri- nótt og hafði þó farið á fætur klukkan sex morguninn áður. hunarost i notn f Kringlunni og Smáralind. Kvóti breytist í tískuverslanir Kvóti Húnarastarinnar, sem gerð var út frá Homafirði, hefur umbreyst í fjölda tískuverslana sem nú era reknar í Kringlunni og Smáralind undir einum hatti af fyrirtækinu HS ehf. Þar er Há- kon Hákonarson framkvæmdastjóri en það var einmitt íjölskylda hans sem gerði út Húnaröstina og seldi kvótann. Fyrirtækið rekur nú Herragarðinn, Hanz, Blues, Mango auk þess að hafa náð undir sig bæði Lloyds- og Boss-um- boðunum. Nú síðast bættist tískuversl- unin Sand í hópinn. „Annaðhvort stækkar maður eða hættir,” segir Hákon um útþenslu fyrir- tækis síns á tískufatasviðinu. „Síðasta ár var hryllilega erfitt, gengis- og vaxta- málin óhagstæð og kaupgeta almenn- ings minnkaði. En það er ekki um ann- að að raaða en bíta á jaxlinn og halda áfram. Þetta er bardagi en án hans væri ekkert gaman," segir Hákon sem sér fram á að þurfa að hagræða í verslunar- rekstri sínum og jafnvel sameina versl- anir þótt hann kjósi að hafa þær marg- ar og litlar frekar en fáar og stórar. Rétta myndin DVWND HARI Markmaöurinn Fram hjá honum fer ekkert. En netiö bíöur fengsins í líki bolta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.