Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2002, Qupperneq 12
12
LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002
Helgarblað
DV
Xanana Gusmao, frelsishetja Austur-Tímors, í sviðsljósinu á ný:
Forsetinn, skáldið
og stríðsmaðurinn
„Orðspor hans sem leiðtoga er
næstum þvi ofurmannlegt. Fólk lít-
ur upp til hans eins og hann væri
goðsagnaleg vera.“
Maðurinn sem Colin Stewart, for-
stöðumaður stjómmáladeildar Sam-
einuðu þjóðanna á Austur-Tímor,
lýsir þannig er að sjálfsögðu Xan-
ana Gusmao, frelsishetja og nýkjör-
inn fyrsti forseti þessa litla lands
sem hefur loks losaö sig undan alda-
langri erlendri stjóm.
Sögur um ofurmannlega náttúru
Gusmaos spunnust þegar hann
stjórnaði skæruliðum í baráttunni
gegn yfirráðum Indónesa á Austur-
Tímor og fór huldu höfðu í frum-
skógum landsins. Samkvæmt einni
slikri sögusögn var Gusmao gæddur
þeim hæfileikum að geta breytt sér
í dýr til að sleppa imdan hermönn-
um indónesískra stjórnvalda.
Gusmao sigraði keppinaut sinn
um embættið, Francisco Xavier do
Amaral, með miklum yfirburðum í
forsetakosningunum síðastliðinn
sunnudag. Gusmao fékk rúmlega
áttatíu prósent greiddra atkvæða en
Amaral tæplega tuttugu prósent.
Reyndar sagöist Amaral aðeins hafa
boðið sig fram til að kjósendur
hefðu eitthvert val. Hann vissi sem
var að hann ætti ekki nokkra mögu-
leika á sigri, slíkar eru vinsældir
Gusmaos.
„Xanana hefur verið leiðtogi
minn og allra á Austur-Tímor, allt
frá andspyrnunni til sjálfstæðisins,“
sagði 42 ára gamall fisksali, Manuel
Coreira, við fréttamann Reuters í
höfuöborginni Dili nokkrum dögum
fyrir kosningamar.
í skóla hjá jesúítum
Hinn 55 ára gamli Gusmao var þó
ekki alltaf mjög áhugasamur um að
bjóða sig fram til forsetaembættis-
ins, þótt flestir hefðu fyrir löngu
verið famir að gera því skóna að
hann yrði fyrsti forseti landsins.
Hann sagði oft aö hann vildi miklu
heldur stunda húsdýrarækt og taka
ljósmyndir. Hann lét þó til leiðast
að lokum og lofaði löndum sínum
að gera sitt besta ef hann settist á
forsetastólinn.
José Alexandre Gusmao, eins og
maðurinn heitir réttu og fullu nafni,
fæddist í bænum Manatuto þann 20.
júní 1946, eitt níu barna foreldra
sinna.
Gusmao var fjóra vetur við nám í
skóla jesúíta í Dare en gekk síðan i
framhaldsskólann í Dili, án þess þó
að taka þaðan lokapróf.
Ungi maðurinn gegndi þriggja
ára herskyldu í nýlenduher Portú-
gala, sem á þessum tíma stjómuðu
Austur-Tímor. Að herþjónustunni
lokinni fór hann að vinna fyrir ný-
lendustjómina.
í dýflissum Indónesa
Indónesar lögðu Austur-Timor
undir sig árið 1975 og gekk Gusmao
þá þegar til liðs við skæruliða og
barðist í samfleytt sautján ár við
indónesíska setuliðið, eða þar til
hann var handsamaður árið 1992.
Gusmao var dreginn fyrir rétt og
dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir
frelsisbaráttu sína. Sá dómur olli
þvílíkum úlfaþyt víða um heim aö
Suharto Indónesíuforseti, sem þá
var á hátindi valdaferils síns, átti
ekki annars úrkosti en að breyta
dóminum i tuttugu ára tukthúsvist.
í fangelsinu fór Gusmao aö yrkja
ljóð og mála myndir og hlaut þá við-
umefniö „skáldið og stríðsmaður-
inn“.
Frelsishetjunni var sleppt úr
fangelsi í september 1999, skömmu
eftir að áttatíu prósent íbúa Austur-
Tímors ákváðu í þjóðaratkvæða-
greiöslu að losa sig undan ógnar-
REUTERSMYND
Xanana Gusmao
íbúar Austur-Tímors, svo og samfélag þjóöanna, binda miklar vonir viö frelsis-
hetjuna og skærutibaforingjann Xanana Gusmao sem var kjörinn fyrsti forseti
landsins um síöustu helgi. Hann lofar aö gera sitt besta.
stjóm Indónesa og stefna að sjálf-
stæði landsins. Indónesar höfðu þá
stjómað landinu með harðri hendi í
tæpan aldarfjórðung. Tvö hundruö
þúsund manns, eða um fjórðungur
allra íbúa Austur-Tímors, létu lífið
á þessum tíma.
Guölaugur
Bergmundsson
blaöamaöur
Ekki vildu allir una niðurstöðu
þjóðaratkvæðagreiðslunnar 1999.
Vígasveitir hliðhollar indónesísk-
um stjómvöldum fóra með eldi og
brennisteini yfir landið og urðu
rúmlega eitt þúsund manns að
bana. Þá lagði þriðjungur lands-
manna á Qótta undan vígamönnun-
um og hélt til vestari hluta Tímors,
sem var og er enn undir stjóm
Indónesíu.
Maður fyrirgefningarinnar
Austur-Tímor hefur verið undir
stjóm Sameinuðu þjóöanna frá því
þjóðaratkvæðagreiðslan fór fram
fyrir tæpum þremur árum. KaQa-
skipti verða hins vegar í sögu lands-
ins þann 20. maí næstkomandi, eftir
nákvæmlega einn mánuð, þegar
Gusmao og stjóm hans taka við
völdum og hefjast handa við að
reyna að bæta kjör alþýðu manna.
Gusmao hefur lýst því yfir að
hann vQji að þeim verði veitt sakar-
uppgjöf sem hafa verið sakaðir um
að hafa staöið fyrir ofbeldisverkun-
um 1999. Þar er hann á öndverðum
meiði við fyrrum stjómmálaQokk
sinn, Fretilin, sem hefur meirihluta
í þinginu sem kosið var til í ágúst í
fyrra.
„Ég er fylgjandi því að menn ræði
saman, ég er maður sátta og fyrir-
gefningarinnar, þegar rétQætinu
hefur verið fullnægt. Eftir tíu ár eða
svo munum við verða þess megnug
að geta sagt: þetta tilheyrir fortíð-
inni,“ sagði Gusmao í viðtali við
fréttamann franska dagblaðsins Le
Monde fyrir skömmu.
Þar benti hann á að á bemsku-
heimilinu hefði honum verið inn-
rætt að fyrirlíta strið, en ekki Jap-
ana, þótt rúmlega áttatiu þúsund
manns hefðu látið lífið í voðaverk-
um Japana á Austur-Tímor í heims-
styrjöldinni síðari.
Stjómmálaskýrendur segja að
stjórnkerQð sem verður á Tímor,
þar sem völd forsetans eru takmörk-
uð, sé eins og klæðskerasaumað fyr-
ir Gusmao.
Eins og dekurkrakki
„Þessi náungi dvaldi í frumskóg-
inum í meira en tíu ár og sat í fang-
elsi í sex ár. Hann hefur hvorki
mikinn skilning á né þolinmæði fyr-
ir öll þau smáatriði sem þarf til að
styðja undir hin breiðu grundvallar-
atriði," sagði vestrænn sérfræðing-
ur í málefnum Austur-Tímors í við-
tali við Reuters.
Mörgum þótti Gusmao haga sér á
stundum eins og dekurbarn þegar
hann gat ekki gert upp við sig hvort
hann æQaði að bjóða sig fram til
forsetaembættisins eður ei. Menn
eiga hins vegar ekki von á öðru en
að hann muni axla þá ábyrgð sem
fylgir starfmu sem hann hefur nú
verið kjörinn tQ.
„Ég er á því að þegar hann hefur
náð kjöri verði embættiö tQ þess að
hann muni sýna sanna forustuhæQ-
leika sína og byggja brýr miQi
manna, eins og hann var vanur að
gera í eina tíð,“ sagði José Ramos
Horta, sem fékk friðarverðlaun
Nóbels ásamt Carlosi Belo biskupi í
DQi fyrir baráttima fyrir sjálfstæði
Austur-Tímors.
Friðarins vin
Það eru einmiQ þessir hæQleikar
og róandi áhrif Gusmaos á fólk sem
menn telja að æQu að geta QeyQ
honum langt i að græða þau sár sem
enn rista svo djúpt.
„Ef ég verð kjörinn forseti mun
ég halda áfram að gefa gaum að lýð-
ræðisferlinu, að aðstoða fólk við að
laga sig að gQdum lýðræðisins,“
sagði Gusmao fyrir kosningarnar.
„Ég æQa að leggja fólki lið við að
ræða vandamálin, ekki einungis á
þeim forsendum hvað þjóðinni sé
fyrir bestu, heldur með því að vekja
fólk tQ vitundar um að það haQ réQ
tQ þess að krefjast betra lífs á frið-
samlegan hátt.“
Frá því í nóvember í fyrra hefur
Gusmao, ásamt eiginkonu sinni,
hinni áströlsku Kirsty Sword, og
átján mánaða gömlum syni þeirra,
Alexandre, búið í liQu húsi uppi á
hæð með útsýni yfir DQi.
„ÞeQa er friðarvhi okkar,“ sagði
Kirsty við blaðamann Le Monde.
Hún gengur nú með annað bam
þeirra hjóna undir belti.
Byggt á efni frá Reuters, BBC og
Le Monde.
REUTERSMYND
Nýl forsetlnn og fjölskylda hans
Xanana Gusmao, nýkjörinn forseti Austur-Tímors, Kirsty Sword, áströlsk
eiginkona hans og aöstoöarmaöur, og átján mánaöa sonurinn Alexandre
á kjörstaö í Dili, skömmu eftir aö þau greiddu atkvæöi f forsetakosning-
unum síöastliöinn sunnudag. Kirsty gengur meö annaö barn undir belti.
Erlendar fréttir vikunna
Powell tómhentur heim
Colin PoweQ, ut-
anrikisráðherra
Bandaríkjanna, hélt
heimleiðis tQ Was-
hington um miðja
vikuna án þess að
hafa tekist að fá
_______ stríðandi fylkingar
fyrir botni Miðjarðarhafs tQ að slíðra
sverðin og faQast á vopnahlé. Hroða-
legar aQeiðingar hemaðar ísraela á
Vesturbakkanum undanfarna daga
og vikur hefur nú komið æ betur í
ljós. Terje Rod-Larsen, fuQtrúi Sam-
einuðu þjóðanna, sagði eftir heim-
sókn I Qóttamannabúðimar í Jenín á
Qmmtudag að ástandið þar væri svo
hroðalegt að það væri lyginni líkast.
Talið er að Israelar hafi drepið mörg
hundruð manns í búðunum. ísraelski
herinn hvarf á brott frá Jenín og
Qóttamannabúðunum á föstudags-
morgun. Israelar æQa að sitja áfram
um höfuðstöðvar Arafats og Fæðing-
arkirkjuna í BeQehem.
Einkaflugvél á háhýsi
Italska lögreglan var engu nær á
fóstudag um ástæður þess að lítQli
einkaQugvél var Qogið á hæsta skýja-
kljúQnn í MQanó á Qmmtudag með
þeim aQeiðingum að Qugmaðurinn
lést og tvær konur tQ viðbótar. Tugir
manna slösuðust. Flugmaðurinn var
67 ára gamaQ Svisslendingur. Mikil
skelQng greip um sig í MQanó eftir
óhappið, enda öQum í fersku minni
hryðjuverkaárásirnar á Bandarikin í
september í fyrra þegar farþegaþot-
um var Qogið á World Trade Center
og Pentagon. ítölsk yfirvöld tilkynntu
þó QjóQega að ekki hefði verið um
hryðjuverk að ræða.
Gusmao kjörinn forseti
Frelsishetjan og skæruliðaforing-
inn fyrrverandi Xanana Gusmao
vann yiirburðasig-
ur í forsetakosning-
unum á Austur-
Tímor um liðna
helgi, eins og fyrir
fram var búist við.
Gusmao fékk lið-
lega áttatíu prósent
atkvæða en keppinautur hans tæp-
lega tuttugu prósent. Austur-Tímor
hefur verið undir stjórn Sameinuðu
þjóðanna frá árinu 1999 þegar lands-
menn kusu sjálfstæði frá Indónesíu. I
kjölfarið fylgdi mikQ skálmöld þar
sem vígamenn á snærum Indónesa
drápu meira en þúsund manns. Aust-
ur-Timor verður formlega sjálfstætt
r&i 20. maí næstkomandi.
Kóngur heim úr útlegð
Zahir Shah, fyrrum konungur
Afganistans, sneri heim tQ Kabúl á
flmmtudag eftir 29 ára úQegð. Miklar
öryggisráðstafanir
voru gerðar við
heimkomu konungs
og munu ítalskir
hermenn gæta hans
næstu mánuðina.
Hamid Karzai, for-
sætisráðherra
bráðagirðastjómarinnar, fylgdi kon-
ungi heim frá Ítalíu. AbduQah
Abdullah, utanrikisráðherra
Afganistans, sagði að heimkoma kon-
ungs væri merkisdagur í sögu lands-
ins.
Bush beið ósigur
George W. Bush Bandaríkjaforseti
beið ósigur á Qmmtudag þegar meiri-
hluti demókrata í öldungadeQd þings-
ins feQdi frumvarp sem áQi að heim-
Qa olíufélögum að bora eftir olíu á
náttúruvemdarsvæði í Alaska. Bor-
unaráformin á þessum slóðum vora
hryggjarstykkið í orkustefnu Bush og
fylgismenn þeirra sögðu málið varða
öryggi þjóðarinnar.
Leiðinleg kosningabar-
átta
Frakkar ganga að Kjörborðinu á
sunnudag í fyrri umferð forsetakosn-
inganna. Sextán karlar og konur era
i framboði en ekki er búist við öðru
en að þeir Chirac forseti og Jospin
forsætisráðherra fái Qest atkvæða á
sunnudag og keppi í síðari umferð-
inni 5. maí. Kosningabaráttan hefur
þóQ með endemum leiðinleg og hefur
almenningur lítinn áhuga á kosning-
unum.