Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2002, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2002, Síða 29
37 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 PV___________________________________________________________________________________________________Helgarblað hafa ekki látið hann hafa blýant til að teikna því hann var góður teiknari. Það var hugsunarleysi hjá mér að gera það ekki. Ég gætti hans í átta ár áður en hann fór á Reykjalund. Þar var vel hugsað um hann. Ég heimsótti hann á hverjum degi og hann var alltaf glaður.“ Eðlilegt að skipta um skoðun - Lestu bækurnar hans enn þá? „Já, það geri ég. Reyndar er ég núna að lesa bók um hann á þýsku eftir Halldór Guðmunds- son. Hún er góð og skemmtileg." - Áttu þér uppáhaldsbók eftir Halldór? „Ég er afskaplega hrifln af Ljós- víkingnum, ætli ég sé ekki bara hrifnust af henni.“ - Er einhver bók eftir Hall- dór sem þér leiðist? „Ekki man ég eftir því, en núna er ég svo sem ekkert að lesa Vef- arann mörgum sinnum." - Fyrir síðustu jól og fram á þetta ár voru miklar umræður um pólitík Halldórs. Fylgdistu með þeim? „Nokkuð og ég tók þær ekkert nærri mér. Menn voru að ræða það að hann hefði verið mikill kommi. Hann var það á tímabili. Það er ekkert ljótt við það. Hall- dór skipti oft um skoðanir og fannst það normalt, eins og það er. Maður getur haft mikla skoð- un á einhverju en svo missir mað- ur eftir það. Þetta voru endur- fundir sem okkur þótti öllum svo skemmtilegir." Vélritaði Gerplu sex sinnum - Hafði HaUdór fastar vinnu- venjur? „Hann fór snemma á fætur, borðaði og leit i blöðin og um hálfníu var hann farinn að vinna. Hann var að til klukkan eitt og fór þá út að ganga í klukkutíma. Það skipti engu máli hvemig veðrið var, alltaf fór hamn út að ganga. Hann undi sér vel hér úti i náttúrunni og var ekta dýravinur og viðþolslaus ef hann varð var við að farið væri illa með dýr. Fólk hér í sveitinni var með hross og hann fylgdist vel með þvi að vel væri hugsað um hrossin og ef það var ekki gert þá kærði hann undir eins. Hann var hrifinn af fuglum og hermdi svo listavel eft- ir þeim að þeir eltu hann. I þess- um daglegu gönguferðum sínum hafði hann alltaf með sér blað og blýant og skrifaði hjá sér. Þegar hann kom heim borðuðum við klukkan tvö. Stundum hélt hann áfram að vinna eftir matinn en oft fór hann í bæinn til að sinna er- indum í sambandi við prófarkir eða hitta fólk.“ Halldór fékk nóbelsverðlaunin árið 1955 og hafði þá verið sjö ár á tilnefningarlistanum. Halldór var staddur í Gautaborg hjá vini sinum Peter Hallberg þegar einn af fulltrúum akademíunnar hringdi í hann og sagði honum tiðindin. Auður var á Gljúfra- steini: „Ég var með breska út- varpið I gangi en var ekkert sér- staklega að hlusta. Allt í einu heyrði ég þulinn segja „Laxness". Mér brá nokkuð og reyndi að hringja í Halldór en náði ekki í hann. Örstuttu seinna hringdi síminn og það var Hersteinn Páls- son sem sagði mér að Halldór hefði fengið nóbelsverðlaunin. Ég man að ég ætlaði að skipta um kjól en komst ekki til þess því síminn hringdi stanslaust í fjóra klukkutíma. Vinur minn, Stefán á bamum, kallaður svo vegna þess að hann vann á bamum á Gull- fossi, kom með nóg af vini og við slógum upp veislu sem hundrað manns mættu í. Það var óskap- lega gaman þótt Halldór væri víðs fjarri. Nokkru fyrir verðlaunaaf- hendinguna fór ég til Kaup- mannahafnar og keypti mér fimm kjóla. Athöfnin í Stokkhólmi var mjög hátíðleg og kvöldið eftir var veisla í konungshöllinni. Þar sat ég við hlið Bertils prins og ég man að við töluðum um mat og ég sagði honum hvernig ég steikti rjúpur. Hann var mjög geðugur maður og ég hitti hann oftar og það fór vel á með okkur. Þetta var ákaflega skemmtilegur tími, ég hitti margt fólk og allir tóku mér vel.“ f hjónabandi þeirra Halldórs vélritaði Auður handrit að bókum hans. „Hann handskrifaði með blýantsstubbum og ég vélritaði og stundum sat hann í stól og las mér fyrir. Ég vélritaði stundum mörgum sinnum sömu bókina. Ég held ég hafl vélritað Gerplu sex sinnum. Ég gerði eiginlega aldrei athugasemdir við það sem hann skrifaði nema á seinni árum þeg- ar fór að bera á villum og endur- tekningum." - Var ekki erfitt að sjá hann tapa andlegum þrótti? „Það gerðist smám saman. Mað- ur tók þvi og fann að það var ekk- ert við því að gera. Ég man að Halldór sagði einu sinni við mig: „Hvað get ég gert?“ Ég spurði hann hvort hann vildi spila á pínaóið en það vildi hann ekki. Ég sá dálítið eftir því seinna að „Okkur kom vel saman. Þad var gaman hjá okk- ur, enda höfðum við svip■ aða kímnigáfu. Halldór var mér alltaf óskaplega góður en hann vildi ráða. Ég skipti mér ekkert af því sem hann vildi gera. Aldrei. Hann réði sér al- vegsjálfur.“ ur áhugann og snýr sér að öðru. Það er ekkert óeðlilegt við það.“ - Umræðurnar kviknuðu eft- ir útkomu skáldsögu Hallgríms Helgasonar, Höfundur íslands? Lastu þá bók? „Ég er ekki búin að þvi en ætla að gera það.“ - Það hafa ekki verið nein sárindi í þinni fjölskyldu út af þeirri bók? „Nei, alls engin. Er þetta góð bók?“ - Mér finnst hún ansi góð, já. „Það hef ég heyrt og ætla að lesa hana. Mér finnst Hallgrímur skemmtilegur. Þetta er sá timi þegar ég les mest en nú er ég svo upptekin af öllu sem fylgir afmæli Halldórs. Bráðum er það búið og þá fer ég að lesa.“ Dreymir Halldór Auður segir það koma sér á óvart hversu mikið sé við haft vegna hundrað ára afmælis Hall- dórs. Sýningar eru í gangi, mara- þonupplestur á dagskrá og þriggja daga Laxnessþing og tilheyrandi móttökur og veislur. „Þetta er óvænt,“ segir Auður. „Ég átti ekki von á að það yrði svona mik- ið um veislustand. Ég er undrandi á hvað búið er að gera mikið. Ég er reyndar ekki mikið fyrir veisluhöld lengur, en ég var ansi mikil skvísa héma áður fyrr.“ í tilefni af hundrað ára afmæl- inu sýnir Þjóðleikhúsið Stromp- leik, leikrit Halldórs frá árinu 1961 og talið berst að þeirri sýn- ingu. „Mér fannst gaman en samt svolítið skrýtið," segir Auður. - En var Halldór ekki líka dá- litið skrýtið leikritaskáld? „Kannski, en mér fannst mörg leikritin hans betri en fólki al- mennt fannst, og ég stend alveg við þá skoðun mína að þau séu góð.“ - Þú varst gift Halldóri í rúm fimmtíu ár og í hugum fólks ertu ekkja Halldórs Laxness. Það er eiginlega eins og að hafa titil, finnst þér það ekkert ein- kennilegt? „Veistu, ég hugsa aldrei um mig þannig. Það getur vel verið að einhverjir líti svo á að ég hafi fómað mér fyrir Halldór. Ég lít ekki á það þannig. Mér fannst ég aldrei glata sjálfstæði mínu. En það er skrýtið að allt umtalið um Halldór undanfarið hefur leitt til þess að nú er mig farið að dreyma hann. Áður dreymdi mig hann lít- ið. Ég man ekki þessa drauma ná- kvæmlega, man bara að hann er í þeim.“ Ekkja skáldsins Hann gat rokiö upp og svo var paö bara búiö. Ég var rólegri en ef ég reiddist sat þaö ieng- ur í mér. En þetta voru aldrei deilur sem orö var á gerandi. Okkur kom vel saman. Þaö var gaman hjá okkur, enda höfö- um viö svipaöa kímnigáfu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.