Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2002, Blaðsíða 20
>
28
Islendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2002
DV
ára_____________________________
Sigríður Árnadóttir,
Skagfirðingabraut 43, Sauðárkróki.
80 ára______________________________
Birna Björnsdóttir,
Ægisgötu 15, Akureyri.
75 ára______________________________
Helgi Kolbeinsson,
Mávahlíð 10, Reykjavík.
ísleifur Jónsson,
Hlíðargerði 14, Reykjavík.
Svava Friðjónsdóttir,
Bjarmastíg 7, Akureyri.
Ásgeir Sæmundsson,
^Selparti, Árnessýslu.
70 ára______________________________
Gréta Jóhannesdóttir,
Austurbrún 26, Reykjavík.
Kristján Halldórsson,
Orrahólum 7, Reykjavík.
Sigrún I. Gísladóttir,
Fagrabergi 28, Hafnarfiröi.
Haukur Bergmann,
Faxabraut 35b, Keflavík.
Kjartan Björnsson,
Hraunkoti 1, Húsavík.
60 ára______________________________
Ásta María Gunnarsdóttir,
Sóltúni 9, Reykjavík.
Victor J. Jacobsen,
Gnípuheiði 17, Kópavogi.
Jóhanna Sigurðardóttir,
Eyrarholti 6, Hafnarfirði.
■pvavar Geir Tjörvason,
Langholti 19, Keflavík.
Margrét Bragadóttir,
Stóra-Hrauni, Borgarnesi.
Ingibjörg Steinunn Einarsdóttir,
Hjallavegi 16, ísafirði.
Oddfríður Jóna Guðjónsdóttir,
Litlagerði 17, Vestmannaeyjum.
50 ára______________________________
Guðmundur Gelr Gunnarsson,
Laugarásvegi 22, Reykjavík.
Pétur Stephensen,
Laugarásvegi 22, Reykjavik.
Baldvin Már Frederiksen,
-iNjörvasundi 1, Reykjavík.
Guðiaug Guðmundsdóttir,
Fálkagötu 34, Reykjavík.
Guðbjartur Lárusson,
Heiðnabergi 5, Reykjavík.
Jón Magnússon,
Vesturfold 37, Reykjavík.
Alma Möller,
Háulind 27, Kópavogi.
Ingibjörg Ágústa Guðnadóttir,
Bergvegi 13, Keflavík.
Helga Gunnarsdóttir,
Vogabraut 48, Akranesi.
Anna Fríða Kristinsdóttir,
Hjallalundi llg, Akureyri.
Johnny Símonarson,
Laufhaga 4, Selfossi.
Helgi Vilberg Jóhannsson,
Arnardrangi, Vestur-Skaftafellssýslu.
- j*0 ára______________________________
Guðmundur B. Ingólfsson,
Bólstaðarhlíð 40, Reykjavík.
Hrund Hauksdóttir,
Þrastargötu 7b, Reykjavík.
Sólrún Laufey Karlsdóttir,
Rauðási 21, Reykjavík.
Steinunn K. Guðmundsdóttir,
Starengi 86, Reykjavík.
Guðný Sif Jónsdóttir,
Álfatúni 19, Kópavogi.
Vignir Kristmundsson,
Hlíðarhjalla 12, Kópavogi.
Hermann Hermannsson,
Stuðlabergi 100, Hafnarfirði.
Jón Þorgeir Einarsson,
Höfðastíg 14, Bolungarvík.
Sonja Elín Thompson,
Aðalstræti 55, Þingeyri.
Jóhann Gunnar Sævarsson,
'lviúlasíðu 5a, Akureyri.
Þórdís Jónsdóttir,
Hraunbæ, Húsavík.
Arnór Hreiðar Ragnarsson,
Þóristúni 7, Selfossi.
Helgi Jóhannesson,
Garði, Árnessýslu.
Andiát
Unnur Jónsdóttir Bjarklind,
Laugarnesvegi 58, Reykjavík, lést á
gjörgæsludeild Landspltala viö
Hringbraut að kvöldi fimmtud. 16.5.
•^Hulda Guðmundsdóttir, Úthlíð 15,
Reykjavík, lést að Sóltúni 2 hinn 18.5.
Gísli Pálsson frá Skálafelli I Suðursveit,
slðast til heimilis á Hrafnistu,
Hafnarfiröi, lést mánud. 6.5. Jarðarförin
hefur farið fram I kyrrþey að ósk hins
látna.
>
Níræður
Guðmundur G. Guðmundsson
rithöfundur í Kópavogi
Guðmundur Guðni Guðmunds-
son rithöfundur, Skjðlbraut la,
Kópavogi, er níræður í dag.
Starfsferill
Guðmundur fæddist á ísafirði en
ólst upp í Súðavík fyrstu tíu árin.
Hann stundaði nám við Kvöldskóla
iðnaðarmanna á ísafirði 1928-30, við
Héraðsskólann í Reykjanesi 1935,
við KÍ 1937-38 og við Kvöldskóla
iðnaðarmanna í Keflavík 1953.
Guðmundur var vinnumaður á
Hafrafelli í Skutulfirði 1928-29,
verkamaður á ísafirði 1930, farkenn-
ari í Kaldrananeshreppi og sjómað-
ur á sumrin 1931-40. Hann flutti til
Reykjavíkur 1940 þar sem hann bjó
til 1984 en hefur síðan verið búsett-
ur í Kópavogi. Guðmundur starfaði
hjá setuliðinu 1940-45 og síðan við
smíðar til 1984, lengst af í trésmiðj-
unni Víði.
Meðal rita Guðmundar eru Vask-
ir menn, 1968; Saga Fjalla-Eyvindar,
1970, og Svignaskarð 1975. Þá hefur
hann skrifað þætti í Alþýðublaðið,
Tímann og Morgunblaðið. Birst
hafa eftir hann vísur og ljóð í blöð-
um, auk þess sem hann hefur skrif-
að sögu Vatnsfjarðar fram að siða-
skiptum og skráð Djúpmannatal og
vann mikið í Vigurættinni. Loks
hefur Guðmundur safnað og skrá-
sett persónufræðisafn úr dagblöð-
um, alls átján þúsund og sjö hund-
ruð greinum, sem varðveitt er á
Bókasafni Kópavogs.
Guðmundur var stofnandi Verka-
lýðsfélags Kaldrananess 1934, stofn-
aði þar góðtemplarastúku og stóð
fyrir leiksýningum þar, sat í stjóm
Iðju í ellefu ár og var fulltrúi henn-
ar á ASÍ-þingum og fyrir iðnkynn-
ingu í Reykjavík 1977, sat í fulltrúa-
ráði Sjálfstæðisflokksins 1966-84,
var meðstofnandi Ættfræðifélagsins
og er heiðursfélagi þess og með-
stofnandi Rithöfundasambands ís-
lands. Hann hlaut fræðimannastyrk
1959, starfslaun úr Launasjóði 1976,
var sæmdur gullmerki frá Iðnaðar-
ráðuneytinu fyrir störf að þágu iðn-
hreyfingar 1977 og gull- og silfurpen-
inga frá Reykjavíkurborg.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist 12.7. 1941
Ástu Svanhvíti Þórarinsdóttur, f.
26.8. 1913, d. 30.8. 1997, húsmóður og
hannyrðakonu. Hún var dóttir Þór-
arins Bjarnasonar frá Syðri-Þverá í
Húnavatnssýslu, jámsmiðs í
Reykjavík, og k.h., Unu Jónsdóttur
frá Bala í Steinsholti í Ámessýslu,
húsmóður.
Börn Guðmundar og Ástu Svan-
hvítar eru Þórarinn Bjarki, f. 18.8.
1942, skrifstofumaður, var kvæntur
Kristínu Líndal kennara og eiga
þau tvær dætur en seinni kona hans
er Álfheiður Alfreðsdóttir hár-
greiðslukona; Anna Sigrún, f. 7.7.
1946, d. 17.4. 1990, kennari og rithöf-
undur í Noregi, en maður hennar
var Johan Jullnes, skólastjóri og rit-
höfundur, og eignuðust þau þrjú
börn.
Sonur Guðmundar frá því fyrir
hjónaband, með Guðmundínu
Bjarnadóttur, er Úlfar Snæfjörð
Ágústsson, f. 3.7.1940, kaupmaður á
ísaftrði, en kona hans er Jósefma
Guðrún Gísladóttir deildarstjóri og
eignuðust þau fjóra syni.
Alsystir Guðmundar var Guðrún,
f. 23.11. 1906, d. 16.8. 1984, húsmóðir
í Reykjavík.
Hálfbræður Guðmundar voru
Sveinn Ólafsson, f. 10.9. 1890, d.
24.12. 1961, vélstjóri í Reykjavík;
Auðun Guðmundur Ámason, f.
14.10. 1901, d. 30.6. 1991, bóndi á
Dvergasteini í Álftafirði við Djúp.
Foreldrar Guðmundar voru Guð-
mundur Guðnason frá Geirsstöðum
i Bolungarvík, f. 27.11. 1876, formað-
ur á Isafirði, og Anna Þórðardóttir,
f. 20.12. 1873, d. 6.5. 1956, verkakona
og saumakona, síðast í Reykjavík.
Ætt
Guðmundur formaður var sonur
Guðna, b. á Geirastöðum í Bolung-
arvík, Sveinssonar, b. í Hattardal,
Sveinssonar. Móðir Guðna var El-
ísabet Brynjólfsdóttir, Jónssonar af
Kvíanesætt þeirra Gils Guðmunds-
sonar og Ólafs Þ. Kristjánssonar
skólastjóra.
Móðir Guðmundar formanns var
Guðrún Ámadóttir, b. í Árbæ i Bol-
ungarvík, Árnasonar, af Hólsætt og
frá Magnúsi prúða, sýslumanni í
Ögri. Guðrún var auk þess af Eyra-
rætt Ólafs Jónssonar lögsagnara.
Anna var systir Þórðar, langafa
Ólafs Helga Kjartanssonar, sýslu-
manns á Selfossi. Anna var dóttir
Þórðar, alþm. í Hattardal, Magnús-
sonar, pr. í Ögurþingum, Þórðar-
sonar, pr. þar, ÞorsteinssonEir, pr. á
Stað í Súgandafirði, Þórðarsonar,
pr. á Grenjaðarstað Guðmundsson-
ar. Móðir Þorsteins var Halldóra
Hjaltadóttir, pr. og listmálara í
Vatnsflrði, Þorsteinssonar. Móðir
Þórðar alþm. var Matthildur, systir
séra Jóns Ásgeirssonar skyggna í
Amarflrði. Matthildur var dóttir
Ásgeirs, pr. i Holti, og Rannveigar
Matthíasdóttur, stúdents á Eyri,
Þórðarsonar, ættfoður Vigurættar,
Ólafssonar, ættfoður Eyrarættar,
Jónssonar en meðal afkomenda
hans eru Jón Sigurðsson, tíu ráð-
herrar, þar af fjórir forsætisráð-
herrar og forseti íslands, Ásgeir Ás-
geirsson.
Móðir Önnu var Petrína Jónsdótt-
ir, b. í Hattardalskoti, Ólafssonar, b.
í Svarfhóli, Ásgrimssonar, hrepp-
stjóra í Amardal, Bárðarsonar, ætt-
föður Amardalsættar Rlugasonar.
Móðir Petrínu var Margrét Péturs-
dóttir, b. í Unaðsdal á Snæfjalla-
strönd.
Sjötugur
Eyþór Guðmundsson
málarEimeistari í Kópavogi
Fjölskylda
Eyþór Guðmundsson málara-
meistari, Selbrekku 12, Kópavogi, er
sjötugur í dag.
Starfsferill
Eyþór fæddist á Efstu-Grund í
Vestur-Eyjafjallahreppi í Rangár-
vallasýslu og ólst þar upp fyrstu ár-
in en í Reykjavík eftir það. Hann
lærði málaraiðn hjá Agli Marberg
Guðjónssyni í Reykjavík 1949-53,
lauk prófi frá Iðnskólanum i
Reykjavík, sveinsprófi 1954 og fékk
meistarabréf þremur árum síðar.
Eyþór starfaði við iðn sina þar til
fyrir fáum árum er hann hætti
störfum.
Eyþór var meðeigandi í bygging-
arfyrirtækjunum Borgarsteini sf. og
Vogasteini hf. á áttunda áratugnum.
Eyþór kvæntist 27.12.1959 Þórdísi
Sigurðardóttur, f. 19.1. 1939, hjúkr-
unarfræðingi. Foreldrar hennar:
Sigurður Ólafsson, f. 1908, d. 1967,
múrarameistari og Guðbjörg Guð-
brandsdóttir, f. 1910, d. 1982, hús-
móðir.
Böm Eyþórs og Þórdísar: Grétar
Þór, f. 29.9. 1959, stjómmálafræðing-
ur og framkvæmdastjóri Rann-
sóknastofnunar HA, en sambýlis-
kona hans er Lára Ósk Garðarsdótt-
ir skrifstofustjóri og eru böm þeirra
Þórey Anna, f. 1983, Svavar Kári, f.
1995, og Guðmundur Ásgeir, f. 1997;
Sigurður, f. 5.8. 1965, málarameist-
ari í Reykjavík, og er kona hans
Jórunn Ámbjörg Magnadóttir skrif-
stofustjóri en dóttir Sigurðar af
fyrra hjónabandi er Þórdis f. 1989,
og böm Jórunnar af fyrra hjóna-
bandi eru ívar Trausti, f. 1982,
Eyrún Arna, og Elísabet Eir, f. 1984;
Guðrún Hulda, f. 10.2. 1974, mann-
fræðingur, en sonur hennar er Úlf-
ur Snær Guðmundsson, f. 1995; Guð-
mundur Bjöm, f. 19.8. 1975, við-
skipta- og rekstrarfræðingur.
Bræður Eyþórs: Arinbjöm (tví-
burabróðir), f. 22.5. 1932, rennismið-
ur í Brisbane í Ástralíu, en eigin-
kona hans er Ragnheiður Jónsdóttir
og eiga þau tvö börn; Ásmundur, f.
20.9. 1945, menntaskólakennari í
Reykjavík, og á hann eina dóttur.
Foreldrar Eyþórs: Guðmundur
Ásgeir Bjömsson, f. 10.12. 1906, d.
3.9. 1976, frá Efstu-Grund, verka-
maður hjá SS, og Guðmunda
Ágústsdóttir, f. 12.4. 1908, d. 23.7.
1999, fædd í Kálfadal í Svínavatns-
hreppi i Austur-Húnavatnssýslu,
húsmóðir og verkakona hjá SS.
Fertugur_________________________________________
Einar Sebastian Ólafsson
ljósmyndari í Reykjavík
Einar Sebastian Ólafsson ljós-
myndari, Blönduhlíð 16, Reykjavík,
er fertugur í dag.
Starfsferill
Einar fæddist í Revkjavík og ólst
þar upp. Hann stundaði nám í ljós-
myndun við Academic voor Bield-
enda Kunste í Haag í Hollandi og
síðan hjá Grími Bjamasyni 1992-94
og lauk prófi sem Ijósmyndari 1995.
Einar hefur veriö starfsmaöur
hjá Air Atlanta frá 1996 auk þess
sem hann hefur stundað ljósmynd-
un.
Einar hefur tekiö þátt í fjölda
samsýninga hér á landi og i
Hollandi. Þá hélt hann einkasýn-
ingu á Horninu í Reykjavík 1998.
Fjölskylda
Dætur Einars eru Sigrún Einars-
dóttir, f. 12.11. 1984, nemi í Reykja-
vík; Sara Sebastian Einarsdóttir, f.
12.2. 1998.
Albróðir Einars er Kjartan Ólafs-
son, f. 17.6. 1967, veitingamaður í
Helsinki í Finnlandi.
Hálfbróðir Einars, sammæðra, er
Indriði Einarsson, f. 19.3. 1957.
Hálfsystir Einars, samfeðra, er
Valgerður Ólafsdóttir, f. 4.10. 1951,
sálfræðingur í Reykjavík.
Foreldrar Einars eru Ólafur
Ólafsson, f. 20.6. 1925, lögfræðingur,
og Elsa Einarsdóttir, f. 16.7. 1935,
húsmóðir.
Jarðarfarir
Útför Sigrúnar Bárðardóttur,
Snekkjuvogi 12, fer fram frá Garðakirkju
miðvikud. 22.5. kl. 13.30.
Lilja Sigriður Guölaugsdóttir,
Suöurhólum 26, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Kópavogskirkju miðvikud.
22.5. kl. 13.30.
Gunnar Halldórsson, Skeggjastöðum,
lést miðvikud. 15.5. Jarðsungið verður
frá Hraungerðiskirkju fimmtud. 23.5. kl.
13.30.
Sigurveig Árnadóttir verður jarösungin
frá Akureyrarkirkju miðvikud. 22.5. kl.
13.30.