Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2002, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2002, Side 29
37 MIÐVKUDAGUR 22. MAÍ 2002 Sport Rúmlega 100 keppendur kepptu á mótinu á Kirkjubæjarklaustri og þótti mótiö takast afar vel. 103 keppendur á fyrstu OffRoad Challenge-keppninni á Islandi: Haukur Þorsteinsson sem var að keppa einn var svo þreyttur að hann varð að standa síðustu 4 hringina, því ef hann settist niður fékk hann krampa í vöðva bæði í siöunum og lærunum. Á síöustu 4 hringjunum datt hann úr 10. sæti yfir heildina í þaö 18. og var hann af mörgum talinn sigurvegari dagsins. Björgvin Guöleifsson á TM 300 hjóli flýtti sér svo mikið að koma hjólinu í gang eftir einn hringinn að hann braut startsveifina í látunum. Elli pipari er hann kallaður, en hann var með tvo syni sína í keppn- inni, en þeir voru hvor í sínu liöinu, pabbinn hlaupandi á milli drengj- anna allan daginn og var sennilega þreyttastur af þeim feðgum eftir dag- inn. Kjartan keppnisstjóri hefur veriö i 2 mánuði aö leggja brautina og fóru í hana 2000 stikur og miðaö við aö 5 högg hafi þurft á hverja eru þetta 10.000 hamarshögg. Keppendur voru með spjald um háls- inn og var það gatað eftir hvern hring til að telja hringina. 1 lok keppninnar fóru margir keppendur á eftir liðsfélaganum til að tryggja að síðasti hringur yrði örugglega talinn með. Höröur Daviösson, landeigandi á landinu þar sem keppnin fór fram, var mjög ánægður með daginn og taldi miklar likur á að þarna yrði keppni aftur að ári, en hann rekur ferðaþjónustuna að Efri-Vík. Sjaldan hafa veriö svona margir i sundi á Kirkjubæjarklaustri, en svitalyktin i karlabúningsklefanum mun hafa verið svo óbærileg að hörö- ustu karlmenn þoldu ekki við. Sjónvarpsmyndatökuliöiö sem tók upp keppnina notaði m.a. flugvél við upptökumar fyrir Ríkissjónvarpið og Eurosport. Þaö slasaöist enginn af öllum þess- um keppendum meðan á keppni stóð, en að sögn keppnisstjóra frétti hann af einum keppanda sem skar sig á fmgri við að setja hjóliö á kerru eftir keppnina. Þaö voru keppendur af öllu landinu auk 5 útlendinga sem mættu i þessa keppni, en þeir sem lengst höföu ekiö komu frá Húsavík og voru þar á ferö Birkir Viðarsson og Gísli Arnar Guð- mundsson. Brautarstarfsmenn keppninnar voru útbúnir með band með krók á endanum við bröttustu brekkurnar. Þessi búnaöur var til að húkka í hjól- in og draga þau upp þegar keppend- ur duttu í miöjum brekkunum eða 'r áttu í erfileikum með að komast upp. Eitt helsta vandamál keppenda var að keppnisstjórn hafði notað bagga- bandsspotta við að marka brautina, en þegar á keppnina leið voru bönd- in úti um alla braut og hjólin gripu böndin með grófum dekkjunum og þau flæktust í gjörðinni. Þá kom sér vel að vera með skæri og hníf í verk- færatöskunni. Það var erfitt að fá gistingu i ná- grenni við keppnissvæöiö og má áætla að þessum 103 keppendum hafi fylgt um 500 manns, og að á keppnis- svæðinu hafi verið um 1000 manns þegar mest var. Heiöar Jóhannsson var elsti kepp- andinn og var einn að keppa. Hann ók 11 hringi þrátt fyrir að vera orð- inn 48 ára gamall og spurður hvort hann væri þreyttur kvað hann ekki svo vera, bara gaman enda gekk allt upp. Hondan virkaði vel og brautin hentaði honum þrátt fyrir að sandur- inn hafi verið fjandi erfiður, en yfir 30 ára reynsla á mótorhjóli hlýtur að hafa hjálpað eitthvað. Karl Gunnlaugsson, sem flestir landar kannast viö úr formúluþátt- unum í Rikissjónvarpinu, var þarna með vini sínum, Stephen Hague frá Bretlandi, en Stephen þessi hefur tneðal annars keppt í Paris Dakar rallinu og verið Bretlandsmeistari í mótorkrossi með hliðarvagni. Þeir félagar voru þarna aðallega ánægj- unnar vegna og enduðu í 33. sæti með 12 ekna hringi. Þaö voru ú ferð tveir breskir blaöa- menn á mótinu á Klaustri, þeir Sean Leawless og Robin Bayman frá Breska mótorhjólablaðinu Dirt Bikemagasine. Voru þeir að reynslu- aka Honda CRV 450 og með þeim ók Þórir Kristinsson, ritstjóri og flug- maður. Keppendur sýndu mikil tilþrif á mótinu á Klaustri eins og þessi mynd ber meö sér. Keppendur óku í sex klukkustundir en algengast var aö tveir liös- menn væru í hverju liöi. Yngsta keppnisliöiö var meö samanlagðan aldur 28 ár. Þeir voru Kári Jónsson, 14 ára, á TM 125 hjóli og Ágúst Viggósson, einnig 14 ára, en hann ók Honda CR 125. Þeir enduöu í 24. sæti meö 13 ekna hringi. Einar og Helgi Valur uröu fyrstir eftir mikla spennu „OffRoad Challenge“-keppnin á Is- landi fór fram á Kirkjubæjarklaustri um liðna helgi. Þar voru 103 keppend- ur mættir í 6 klukkutíma þolaksturs- keppni á torfærumótorhjólum. Mun þetta vera fjölmennasta akstursíþrótta- keppni á íslandi í a.m.k. 20 ár og alla- vega langfjölmennasta mótorhjóla- keppni frá upphafi hér á landi. Keppnisform var þannig að tveir voru í liði og skiptust á að aka í braut sem lá um holt, hæðir og út á sand i landi ferðaþjónustunnar á Efri-Vik. Einnig voru nokkrir harðjaxlar sem voru ekki með neinn til að leysa sig af og óku því einir alla 6 tímana. Það var Kjartan Kjartansson, keppn- isstjóri og aðalskipuleggjandi keppn- innar, sem ræsti keppenduma og með þrumugný eins og orrustuþota í lág- flugi þustu keppendur af stað í sinn fyrsta hring. Sú upplifun að fmna hvemig jörðin skalf og nötraði þegar 55 mótorhjól, öll með bensíngjöfma í botni, æddu af stað samtímis var ein- faldlega þannig að ekki er hægt að lýsa á prenti. Það var Einar Sigurðarson sem kom fyrstur eftir 1 hring en hann keppti með Helga Vali Georgssyni í liði og var forysta þeirra strax orðin rúm mínúta. í öðru sæti var Reynir Jónsson, en með honum í liði var Þorvarður Björgúlfs- son. Þriðji var svo Viggó Viggósson og ók hann með Sölva Ámasyni. Eftir 2 hringi var forysta Einars og Helga komin í rúmar 3 mín. og var þá um klukkutími liðinn af keppninni. Svona var staða efstu manna allt fram í miðja keppni, en þá sóttu Reynir og Þorvarður nokkuð á og var forasta Einars og Helga minnst um 30 sek. Þegar um klukkustund var eftir af keppninni hafði Sölvi náö Þorvarði og var þar með kominn upp í 2. sætið, en þá tók Reynir við af Þorvarði og náði Sölva fljótlega og byrjaði að pressa á hann. Sölvi gerði þá mistök og datt í tvígang og missti Reyni fram úr sér. Það var mikil spenna við endamark- ið, á slaginu 6 var Kjartan keppnis- stjóri mættur með lokaflaggið, en eftir að fyrsti keppandi var flaggaður út var ljóst að aðeins 3 efstu liðin vom á 16. hring og baráttan var verulega spenn- andi. Fyrir síðasta hring skipti Sölvi við Viggó og ætlaði hann að freista þess að ná Reyni á lokasprettinum, en Reynir með sína reynslu lét hann ekki ná sér og kom sínu liði í mark aðeins 2,36 mín á eftir Einari c “ Helga. 40 sek á eftir þeim kom svo Viggó og voru þessi þrjú lið þau einu sem náðu að aka 16 hringi. í 4. sæti voru svo þeir Steini Tótu og Ragnar Ingi Stef- ánsson á Kawa- saki með 15 hringi. Hraðasta hring keppninnar átti Einar Sigurðar- son, 21,39 mín. í einstak- lingskeppninni vora 7 keppend- ur og var Haukur Þorsteinsson ef- laust hetja dagsins á Yamaha. Hann var allan tímann með örugga forystu og ók hann hringi. Annar var Þorgeir Ólason með 12 hringi, en í þriðja sæti var elsti keppand- inn, Heið- ar Þ. Jó- hanns- son, 48 ára gam- S ail með * 11 ekna w 4 14 Að sögn keppanda var brautin veru- lega krefjandi og erfið, en hún bauð upp á allt er góð braut á að gera. Hún var hæg, hröð, beygjur, hólar, börð, - brekkur, þungur sandur og fleira. Að keppni lokinni voru keppendur sammála um að brautin hefði verið mjög erfið en keppnin afar skemmtileg. Einar Sigurösson náöi hraöasta hring og sigr- aöi á Klaustri ásamt Helga Vali Ge- orgssyni. hringi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.