Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2002, Blaðsíða 32
ÍÍÍLL ÍL'i£jJÍJ£3 2^^ II J^JiJJJd]
J j-EJjJjJjJfrJuJlllJ
MIÐVIKUDAGUR 22. MAI 2002
Sími: 533 5040 / www.allianz.is
Listi fólksins í stórsókn á Akureyri:
Barátta fólksins
w - segir Oddur Helgi Halldórsson
„Ég er mjög
ánægður og þakka
þetta einkum rétt-
um viðbrögðum og
vel heppnuðu
átaki sem við sett-
um af stað. Allir
sem einn hafa unn-
ið vel þannig að
það er fyrst og
fremst barátta
fólksins sem er að
skila þessu,“ segir
Oddur Helgi Hall-
dórsson, efsti mað-
ur L-listans, lista
fólksins á Akur-
Oddur Helgi
Halldórsson.
Kristján Þór
Júlíusson.
Valgeröur
Bjarnadóttir.
eyri.
Listi fólksins á
Akureyri er í stór-
sókn samkvæmt
nýrri skoðana-
könnun Gallups.
Samkvæmt henni
fengi Sjálfstæðisflokkurinn fimm full-
trúa í bæjarstjóm, Framsóknarflokkur
tvo, Listi fólksins einnig tvo en Sam-
fylking og Vinstri grænir aðeins einn
bæjarfulltrúa hvort.
„Könnunin bendir til þess að við eig-
um góðan möguleika á að ná yfirlýstu
markmiði okkar fyrir þessar kosning-
ar. Ég minni hins vegar á að hefðin
segir að við fáum hærra skor í könnun-
um en kosningum og ég segi að 5. mað-
urinn er besta tryggingin fyrir því að
við verðum áfram
í meirihluta bæjar-
stjómar og veitum
Akureyri áfram þá
forystu sem þaif.
Það er jafhframt
trygging fyrir þvi
að ég gegni starfi
bæjarstjóra,“ segir
Kristján Þór Júll-
usson, oddviti D-
listans.
Oktavía Jóhannesdóttir, 1. maður
Samfylkingarinnar, segir ljóst að sam-
fylkingarfólk verði að bretta upp
ermamar þá daga sem eftir em. Hún
hafl búist við betri útkomu en vonist til
að síðustu dagar kosningabaráttunnar
muni skila árangri. „Við höldum okkar
striki en leggjum okkur meira fram,“
segir Oktavía og getur þess að árangur
Odds Helga komi mest á óvart í könn-
uninni.
„Þetta em auðvitað vonbrigði þótt
um sé að ræða skoðanakönnun en ekki
úrslit kosninganna. Niðurstaðan kem-
ur á óvart því okkur finnst við hafa
haft meðbyr en nú er ekki annað að
gera en sýna okkar sterkustu hliðar
svo kjósendur átti sig á að VG-framboð-
ið er góður valkostur í þessum bæjar-
stj ómarkosn ingum, ‘ ‘ segir Valgerður
Bjamadóttir, efsti maður VG-framboðs-
ins.
Ekki náðist í leiðtoga Framsókn-
arflokksins. -BÞ
Gantast í Elllöarárvogi
Það er alþekkt aö kríumar eru fjörugir fuglar, ekki hvaö síst þegar marmfólkiö er nálægt. Þaö má svo sannarlega segja um
þessar kríur sem uröu á vegi Ijósmyndara DV viö smábátahöfnina í Elliöaárvogi í gær. Þaö getur veriö gott fyrir þennan
verndara annarra fugla aö taka sér einstaka sinnum frí frá skyldustörfum og þaö gera þær svo um munar hér.
/
„Dapurlegar
hótanir"
„Ég held að forsenda fyrir því að Is-
lendingar geti hafið hvalveiði í ein-
hverri sátt við viðskiptalegt umhverfi
sitt sé innganga í Alþjóða hvalveiðiráð-
ið og mér fmnst afskaplega dapurlegt að
heyra af opinberum hótunum íslenskra
stjómmálamanna - jafnvel fyrir fund-
inn í Japan - í garð virtra þjóða eins og
til dæmis Svía. Ég skil ekki svona mál-
flutning," segir Hörður Sigurbjamarson,
framkvæmdastjóri hvalaskoðunarfyrir-
tækisins Norðursiglingar á Húsavík.
Hörður telur að sendinefndin íslenska
og stjómvöld hafi farið fram með
nokkm offorsi í málinu og telur að lík-
urnar á hvalveiðum í atvinnuskyni hafi
minnkað eftir atburði síðustu daga. -BÞ
Sjá fréttaljós bls. 6
Umboðsmenn Reykjavíkurlistans:
Oska svara um per-
sónueftirlit á kjörstað
aðeins D-listi mun hafa þar fulltrúa
FRETTASKOTIÐ
SIMINN SEM ALDREISEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Samkvæmt upplýsingum DV
hyggst aðeins eitt framboð i Reykja-
vík, D-listi, vera með sína starfs-
menn í kjördeildum til að merkja
við hverjir mæti á kjörstað. Á skrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins fengust
þær upplýsingar að fulltrúar flokks-
ins myndu að sjálfsögðu fylgjast
með þessu og nýta þennan rétt eins
og verið hefur undanfarnar kosn-
ingar. Fulltrúar annarra framboða
segjast ekki ætla að framkvæma
slíkt eftirlit, ýmist af andúð við eft-
irlit af þessu tagi og/eða að þeir hafi
hreinlega ekki mannskap til að
sinna þvi. Kom þetta reyndar einnig
fram á fundi yfirkjörstjórnar í
Reykjavík fyrir helgina.
Umboðsmenn R-listans i Reykja-
vík, þau Jón
Sveinsson hrl. og
Lára V. Júlíus-
dóttir hrl., fóru
ffarn á það skrif-
lega 17. mai að
Persónuvemd
tjái sig um hvort
það samrýmist
lögum um per-
sónuvernd og
meðferð persónu-
upplýsinga nr. 77/2000 að fulltrúar
einstakra stjórnmálaflokka eða
samtaka sitji inni í kjördeildum.
Skrái þar niður þátttöku einstak-
linga og miðli þeim upplýsingum út
úr kjördeildinni og inn í persónu-
greinanlegan gagnagrunn eða
Lára V.
Júlíusdóttir.
gagnasafn sem varðveitt sé af þriðja
aðila án samþykkis hluthafandi.
Er óskað álits Persónuvemdar
með vísan til laga sem tóku gildi 1.
janúar 2001 um persónuvemd og
meðferð persónuupplýsinga.
Lára V. Júlíusdóttir lögfræðingur
segir deildar meiningar um hvort
það sé hlutverk yfirkjörstjómar að
banna eða heimila eftirlit flokkanna
í kjördeildum. Hún segist þó telja að
yfirkjörstjóm fari með slíkt vald.
Þvi sé nú leitað álits Persónuvemd-
ar. Lára sagðist ekki vilja tjá sig um
lögin sjálf, en full ástæða sé þó til að
Persónuvemd skeri úr um málið.
Ekki náðist í Kjartan Gunnarsson,
framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins,
áður en blaðið fór í prentun. -HKr.
Slagsmal i ^
Melgerði
Fjórir lentu í slagsmálum í Mel-
gerði í Reykjavík um fimmleytið í
gær og lyktaði þeim með því að
tveir lágu óvígir eftir, annar
a.m.k. með brotna tönn eftir að
hafa verið skallaður. íbúar köll-
uðu til lögregluna en þegar hún
kom á vettvang voru allir horfnir.
Engar kærur bárust en talið er að
um uppgjör í fikniefnaheiminum
hafi verið að ræða.
Hálftíma síðar stöðvaði lögregl-
an svo bifreið á mótum Kringlu-
mýrarbrautar/Miklubrautar og
voru tveir menn handteknir þar
og handjámaðir. Þar voru komnir
„sigurvegaramir“ í slagsmálun-
um.
Með þeim i för var stúlka, topp-
laus, en hún var ekki handtekin
en að sögn varðstjóra lögreglunn-
ar er það eitt og sér ekki sak-
næmt. Handtakan á Kringlumýr-
arbraut olli nokkrum umferðartöf-
um enda á miklum annatíma í
umferðinni.
-GG
/
/
/
/
/
/
/
/
/
FJOLMENNI I
KJÖRKLEFANUM!
Hveragerðisárásin:
Kærði meinta mannræn
ingja og hótunarmenn
Liðlega tvítugur piltur kærði í
gær þrjá unga menn fyrir mannrán,
líkamshótanir og bílstuld til lögregl-
unnar í Hafnarfirði. Piiturinn var
að taka út peninga í hraðbanka i
Hveragerði á mánudagskvöld þegar
þremenningamir tóku hann inn í
bfl tfl sín. Einn þeirra tók bU fóm-
arlambsins.
Þegar ekið var Krýsuvíkurleið tU
Hafnarfjarðar segir maðurinn að árás-
armennimir, sem höfðu limt líkama
hans að hluta með límbandi, hefðu
hótað honum með hamri. Ástæða þess
að þeir réðust að unga manninnum
var sú að þeir vUdu komast að dvaiar-
stað kunningja hans.
Þegar komið var í Hafnarfjörð
tókst unga mannimnn að komast út
úr bílnum. Hann fór í nærliggjandi
hús þar sem hann komst í síma og
lét lögregluna vita. BUl mannsins
hafði enn ekki fundist í morgun.
Lögreglan leitar hans en málið var
kært tU hennar síðdegis í gær. Vit-
að er hverjir tveir af árásarmönn-
unrnn eru og er búist við að lögregl-
an mimi hafi upp á þeim fljótlega tU
að yfirheyra þá. Ekki liggur fyrir
hvað býr í raun að baki þessum at-
burðum. í máium sem þessum er
það hins vegar ekki talið aðalatriði
af hálfu löggæslukerfisins heldur
hvort árásarmenn hafi með sannan-
legum hætti brotið gegn öðrum.
-Ótt
^aJdarar
Sportvörugerðin
Skipholt 5, s. 562 8383