Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2002, Blaðsíða 1
REUTERSMYND
Græningjar minna á málstaöinn
Þýskir og austurrískir grænfriöungar mótmæltu hvalveiöum í gær meö því aö koma fyrir sextíu metra langri mynd af hval inni á Gottlieb-Daimler leikvanginum
í Stuttgart. Skilaboöin á vellinum, Byijiö aö sparka, hættiö hvalveiöum, eru í tilefni þess aö vika er þangaö til heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu
hefst í Japan og Suöur-Kóreu.
Óveðursský á fundi Alþjóða hvalveiðiráðsins í Japan í morgun:
Hvöss orðaskipti um
hvalveiðar frumbyggja
Hvöss orðaskipti urðu á árs-
fundi Alþjóða hvalveiðiráðsins í
Shimonoseki í Japan í morgun
þegar hvalveiðisinnar og andstæð-
ingar hvalveiða héldu málstað sín-
um á lofti. Deilumar í morgun
snerust meðal annars um endur-
nýjun hvalveiðileyfa til handa
frumbyggjaþjóðum, þar á meðal
nokkrum í Bandaríkjunum.
Valdabaráttan á fundi hval-
veiðiráðsins hefur harðnað mjög
síðustu daga, ekki hvað síst í kjöl-
far útgöngu íslensku sendinefnd-
arinnar í gær eftir að meirihluti
þingfulltrúa samþykkti tillögu for-
manns ráðsins um að hafna fullri
aðild íslands.
Hvalveiðisinnaðar þjóðir eins
og Norðmenn og Japanar segja að
hvalveiðar indíána við norðvest-
urströnd Bandaríkjanna og eski-
móa í Alaska séu til marks um tví-
skinnung stjórnvalda í Was-
hington. Norðmenn og Japanar
segja að bandarísku frum-
byggjamir veiði hvalategundir
sem séu i útrýmingarhættu og
halda þvi fram að af þeim sökum
ætti að heimila þeim að stunda
hvalveiðar.
„Við viijum að það komi skýrt
fram að við teljum þetta vera tví-
skinnung," sagði Masayuki Kom-
atsu, háttsettur embættismaður í
japanska sjávarútvegsráðuneyt-
inu, á fundi hvalveiðiráðsins 1
morgun.
Japanar era líka reiðir vegna
þess að óskum þeirra um að fá að
veiða fimmtiu hrefniu- var hafnað
í gær.
Deilumar snemst einnig um
óskir eyríkisins St. Vincent og
Grenadines í Karíbahafi um að fá
að tvöfalda kvóta sinn á hnúfu-
baki og veiða fjögur dýr í stað
tveggja áður. Margar Evrópuþjóð-
ir hafa lýst sig andvígar þeim ósk-
um.
Þá stefndi í annað uppgjör i dag
þar sem japönsku fulltrúarnir
hvöttu til að greidd yrðu atkvæði
um að leyfa að nýju hvalveiöar í
ábataskyni. Þær voru bannaðar
fyrir fimmtán ámm. Ekki var
talið líklegt í morgun að tillagan
fengi þrjá fjórðu hluta atkvæða
eins og nauðsynlegt er til að fá
hana samþykkta.
■ NÁNARI UMFJÖLLUN
Á BLS. 6 í DAG
Fylgið
sveiflast
„Það var ljóst frá upphafi að
Reykjavíkurlistinn gat ekki
keppt við Sjálfstæðisflokkinn í
auglýsingabirtingum, enda höf-
um við ekki yfir sama fjár-
magni að ráða og þeir. Okkar
barátta, meðal annars með aug-
lýsingum, hófst í raun ekki fyrr
en í síðustu viku. Og nú höfum
við jafnað á metunum og okkar
sjónarmið hafa verið að ná í
gegn. Þessi könnun sýnir það
glögglega. Við stefnum á stóran
sigur,“ sagði Einar Skúlason,
einn af kosningastjórum
Reykjavíkurlistans.
„Það hafa verið sveiflur í
könnunum alla kosningabarátt-
una. Við stefnum hins vegar að
því að fá góða niðurstöðu í
kosningrmum á laugardaginn.
Við erum með sterkan fram-
boðslista, höfum rekið jákvæða
kosningabaráttu og höfum ekki
verið með hræsni í okkar mál-
flutningi," sagði Bjöm Bjarna-
son, oddviti lista Sjálfstæðis-
flokksins. Aðspurður hvort ekki
væri áfall að fá tvær kannanir
sem sýndu meira en tiu pró-
senta mun á fylgi R- og D-lista
nú hálfri viku fyrir kosningar
„Það hafa verið sveifl-
ur í könnunum dlla
kosningabaráttuna.
Við stefnum hins veg-
ar að því að fá góða
niðurstöðu í kosning-
unum á laugardag-
inn“.
vildi Bjöm undirstrika að fylgið
hefði samkvæmt könnun verið
að sveiflast til milli fylkinga
alla baráttuna.
„Ég tek lítið mark á þessum
skoðanakönnunum, ekki síst
hjá Talnakönnun. Þær hafa ver-
ið óeðlilega sveiflukenndar og
þar með ótrúverðugar og skoð-
anamyndandi. Ég er hins vegar
þeirrar skoðunar að það ætti að
banna skoðanakannanir um
fylgi framboða síðustu vikuna
fyrir kjördag," segir Margrét
Sverrisdóttir, framkvæmda-
stjóri Frjálslynda flokksins, en
hún skipar 2. sæti listans.
■ NÁNARI UMFJÖLLUN
Á BLS. 2 í DAG
í BRÉFASKIPTUM VIÐ
NORSKA KRAKKA:
Kynntust
gegnum
flöskuskeyti
29
KYNNING Á ÚRVALSDEILD
KVENNA 2002:
Ógnar
einhver
KR?
17-24
Aðeins eitt símtal! 8001111
punktur'nn Íslandssími
islandssimi.is