Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2002, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2002
DV
Fréttir
DV MYND NJÓRÐUR HELGASON
Auður stóll
Stóll bæjarstjóra Árborgar er sem
fyrr auöur og yfirgefinn og bíöur eftir
nýjum notanda.
Árborg:
Segir pólitísk
átök skaða
bæjarfélagið
Á fundi bæjarráðs Árborgar í gær-
morgun var samþykkt tillaga for-
manns bæjarráðs um að hafna öllum
umsóknum um starf bæjarstjóra Ár-
borgar eins og sagt var frá í DV í gær.
Var samþykkt að fela forseta bæjar-
stjómar og formanni bæjarráðs að
leita annarra leiða við val á bæjar-
stjóra.
Ingunn Guðmundsdóttir, áheymar-
fulltrúi minnihluta, lagði fram bókun
vegna málsins. Þar segir að bæjarfull-
trúar minnihluta hafi ekki fengið að
sjá lista yfir umsóknir um starf bæjar-
stjóra fym en tíu dögum eftir að um-
sóknarfrestur rann út. Þá segir í bók-
un Ingunnar að samkvæmt bæjar-
málasamþykkt Árborgar ráði bæjar-
stjóm bæjarstjóra. Meirihlutinn getur
því ekki afgreitt umsóknir um stöðu
bæjarstjóra bak við tjöldin án þess að
leggja þær fyrir bæjarstjórn.
Að lokum segir í bókun Ingunnar:
„Ég geri alvarlegar athugasemdir við
þessi ólýðræðislegu vinnubrögð Sam-
fylkingar og Framsóknarflokks í mál-
inu. Ég tel að pólitísk átök um ráðn-
ingu bæjarstjóra skaði hagsmuni bæj-
arfélagsins. Slík átök em auk þess
ekki traustvekjandi fyrir íbúana sem
byrjun á samstarfi nýs meirihluta."
Fulltrúar meirihlutans bókuðu á
móti að ekki hafi verið óeðlilegur
dráttur á vinnu við umsóknir um
embætti bæjarstjóra. Aldrei hafi ann-
að staðið til en að bæjarstjóri yrði ráð-
inn af bæjarstjórn Árborgar sam-
kvæmt bæjarmálasamþykkt. -NH
Framburður framkvæmdastjóra BYKO um timburkaup Árna Johnsens:
Annað hljóð í strokk-
inn eftir að DV hringdi
- saksóknari segir svikin hafa verið fullframin - verjandi Árna mótmælir
Skömmu áður en fyrsta fréttin
birtist um meint misferli Áma
Johnsen síðasta sumar, spurði
framkvæmdastjóri BYKO Áma að
því hvort hann hefði þá verið nýbú-
inn að taka út timbur fyrir Þjóðleik-
húsið eða hvort það átti að vera til
einkanota. Framkvæmdastjórinn
sagði fyrir dómi í gær að hann hefði
tjáð Áma að blaðamaður DV væri
þá búinn að hringja í sig og spyrja
hins sama. Framkvæmdastjórinn
sagöi viðbrögð Áma hafa verið á þá
leið að slæmt væri að fjölmiðlar
„væru komnir í þetta“. Árni hefði
svarað því til að timbrið og ýmsar
aðrar vörur fyrir rúma milljón
króna væru til einkanota þó svo að
starfsmenn BYKO beri að efnið
hefði átt að skuldfæra á Þjóðleik-
húsið.
Framkvæmdastjórinn segir að
einn af þeim starfsmönnum BYKO
sem afgreiddu Áma hefði gert at-
hugasemdir við úttektina - sá
starfsmaöur hefði „fullyrt það alveg
klárt og hvitt“ að Ámi hefði ætlast
til að vörumar yrðu skuldfærðar á
Þjóðleikhúsið.
Fjármálastjóri BYKO sem einnig
kom fyrir dóminn í gær sagðist hafa
hringt sérstaklega í Þjóðleikhúsið
vegna þessarar úttektar til að kanna
Verjandi og sakbomingur
Jakob R. Möller lögmaöur og Árni
Johnsen í réttarsalnum
Óttar Sveinsson blaöamaöur
hvort Ámi hefði heimild til að taka
út vörur fyrir bygginganefnd Þjóð-
leikhússins. Því hefði verið svarað
játandi.
Fullframiö eða ekki?
Framkvæmdastjórinn sagði dóm-
inum frá því í gær að þegar hann
hefði greint Áma frá hringingu og
fyrirspum blaðamanns DV, og þing-
maðurinn þá sagt að vörumar væm
til einkanota, hefði framkvæmda-
stjórinn spurt hvort Ámi myndi
ekki greiða fyrir vörumar. Það
hefði Árni svo gert með tékka sem
geyma átti fram i tímann. Þegar
hann var svo leystur út reyndist
hann innstæðulaus og upphæðin
færð á fit-reikning Árna. Nokkrum
dögum síðar greiddi Ámi upphæð-
ina til bankans.
Bragi Steinarsson vararíkissak-
sóknari sagði að í þessu tilviki sé
ljóst að um fullframinn verknað
hefði verið að ræða, fjárdrátt - Árni
hefði beöið um að efhið yrði skuld-
fært á Þjóðleikhúsið og það hefði
verið gert. Engu breytti að Áma
hefði snúist hugur er hann fékk
upplýst að DV hefði hringt. Verj-
andi Árna, Jakob Möller, sagðist al-
gjörlega ósammála þessu - vöramar
hefðu ekki verið skuldfærðar á
Þjóðleikhúsið, umbjóðandi hans
hefði einfaldlega greitt þær. Því
hefði ekki verið um fullframið brot
að ræða.
Dómarinn, Guðjón St. Marteins-
son, óskaði sérstaklega eftir að fá
framangreinda tvo starfsmenn
BYKO, til að taka allan vafa af um
framburð þeirra. Hér var þó einung-
is um aö ræða einn lið af þeim 27
sem Ámi er ákærður fyrir. Dómur
gengur í máli hins fyrrum þing-
manns og fjögurra annarra sakbom-
inga á miðvikudag klukkan tíu.
Úthafskarfaveiðar á Reykjaneshrygg:
Reynt að stöðva meintar
ólöglegar veiðar Belise-togara
Landssamband íslenskra útvegs-
manna hefur farið þess á leit við ís-
lensk stjómvöld að þau leiti allra leiða
til þess að stöðva ólöglegar úthafskarfa-
veiðar fimm togara á Reykjaneshrygg
sem skráðir eru undir hentifána frá
Belise. íslensk stjómvöld em hvött til
þess að að fá því framgengt innan
NEAFC, Norðaustm-Atlantshafsfisk-
veiðiráðsins, að veiðar skipanna verði
stöðvaðar. LÍÚ óttast að skipum á
Reykjaneshrygg, sem skráð em undir
Belise-fána, eigi eftir að fjölga.
Friðrik Amgrímsson, forstjóri LÍÚ,
segir að LÍÚ hafi ekki nein úrrræði
sem þau geti bent stjómvöldum á og
það skorti lagaheimild til þess að taka
þessa togara og færa þá til hafhar. Þjóð-
arréttur bjóði ekki upp á það í dag.
Þessir togarar muni ekki landa í aðild-
arríkjum NEAFC heldur selja aflann í
sérstök flutningaskip sem komi vænt-
anlega á Reykjaneshrygg en það verði
fylgst með löndun þessara flutninga-
skipa og reynt að rekja hvert karfmn
fari og hvort reynt verði að koma hon-
um á Evrópumarkað inn um bakdym-
ar eða jafnvel ólöglega.
Fundur verður haldinn í NEAFC í
haust en Friörik Amgrímsson er
ekki mjög bjartsýnn á að umræður
þar leiði til þess að gripið veröi til
róttækra aðgerða gegn þessum skip-
um, s.s. að færa þau til hafnar. Frið-
rik segir þó fullvíst að þau muni ekki
fá neina þjónustu hérlendis leiti þau
hafnar vegna bilunar en auðvitað
muni þau fá neyðarþjónustu eins og
ef skipin teljist í sjávarháska eða ef
slys ber að höndum um borð í þeim.
-GG
Landsmót 2002 að Vindheimamelum í Skagafirði:
Mikil örtröð verður á fjöllum
- hestamenn úr öllum fjórðungum ríða á mótið
RIM6 á landsmót
Hestamenn úr öllum landsfjóröungum ætla aö fjölmenna ríöandi
á Landsmót 2002 í Skagafiröi.
Hestamenn úr öllum landsfjórð-
ungum ætla að fjölmenna ríðandi á
Landsmót 2002 í Skagafirði sem
hefst 2. júlí. Örtröð verður á fjöllum
nú síðustu dagana fyrir
mót, samkvæmt upplýs-
ingum sem DV aflaöi sér
í gær.
Hjá Ferðafélagi ís-
lands fengust þær upp-
lýsingar að allir skálar á
vegum þess sem væra í
reiðleið væru fyrir
löngu uppbókaðir og
jafnvel yfirbókaðir dag-
ana fyrir mót. Sama
máli væri að gegna dag-
ana eftir landsmótið, þegar móts-
gestir héldu til sins heima. Skálana
á Hveravöllum og í Hvítámesi er
hægt að panta með allt að árs fyrir-
vara. Bókanir eru þó ekki skráðar
fyrr en í janúar á hverju ári. Greini-
lega hafa margir haft vaðið fyrir
neðan sig því bókanir streymdu inn
þegar í janúar. Þeir sem ekki náðu
að bóka í tíma hyggjast gista á tjald-
stæðum við skálana. Einhverjir eru
svo með tjaldvagna í farteskinu.
Kjalveg ríða einkum hópar af Suð-
urlandi.
„Þetta eru heilu hópamir sem
hafa bókað í skálunum, en þeir eru
þá á leið norður Kjalveg," sagöi
Dagbjört Tryggvadóttir hjá Ferðafé-
laginu við DV í gær. „Fólk er enn að
hringja og spyrja. Flest-
ir vilja bæta fleirum
inn, en þeir fara þá á
biðlista. Það veröur líf
og flör á fjöllunum
þessa daga.“
Hópar af Austurlandi
eru á leiðinni á móts-
stað nú. Að sögn Stefáns
Sveinssonar, sem rekur
ferðaþjónustu á Útnyrð-
ingsstöðum, fara hóp-
amir yfirleitt yfir
Fljótsdalsheiði og yfir á Jökuldal.
Síðan er haldið í Möðrudal, Mývatn,
Bárðardal og þar norður. Þetta
ferðalag tekur um þaö bil viku og
leiðin sem farin er er mjög
skemmtileg.
Sjálfur fær Stefán fólk með beinu
flugi frá Dusseldorf. Eftir sex daga
hestaferð um Austfirði fer hann
með hópinn akandi á Landsmót.
Snæfellingar láta sitt ekki eftir
liggja. Hópar hestamanna úr Grand-
arfirði og Stykkishólmi ætla að
leggja af stað á laugardaginn. Að
sögn Halls Pálssonar, formanns
hestamannafélagsins Snæfellings,
fara þeir líklega um Dalina, Mið-
fjörðinn og Hópið.
Vestfiröingar æfla einnig að ríða
á mótsstað. 12-14 manna hópur ætl-
ar aö láta keyra hesta sína í Hrúta-
fjörðinn og riða þaðan. Lagt verður
upp frá Kolbeinsá og riöið sem leið
liggur. Einhverjir Sunnlendingar
verða einnig í hópnum, en hesta-
menn fara gjaman með gæðinga
sína til kunningja og riða með þeim
til móts. Meö því sameina þeir góð-
an félagsskap og nýjar reiðleiðir,
sem þeir hafa ef til vill aldrei farið
áður. -JSS
LANDSMÓT
Malbikunarframkvæmdir:
Kostnaður
hefur aukist
„Malbikun er í meiri kantinum í ár
og við erum að eyða um 330-340 millj-
ónum í ár. Það er svona heldur i hærri
kantinum en engin
bylting frá því sem
áður hefur verið,“
sagði Sigurður
Skarphéðinsson
gatnamálastjóri
þegar DV innti
hann eftir þvi
hvort malbikunar-
íramkvæmdir
væru mem nú en
undanfarin ár. Sig-
urður segir að Gatnamálastofiiun hafi
og sé enn að vinna að nýju kerfi og það
hafi aukið kostnaðinn undanfarin ár.
Notuð var ný steintegund frá Noregi
í malbikunarframkvæmdunum i Ár-
bæjarbrekkunni i fyrradag. Sigurður
segir þetta nýtt efrii á markaðnum og
mjög slitsterkt. „Menn gátu núna gert
mjög hagkvæm kaup í Noregi og er
þetta grjót talið vera með mjög góða
eiginleika. Við reiknum með að það sé
eins slitsterkt og þær steintegundir
sem við höfum notað fram að þessu, ef
ekki sterkara," segir Sigurður.
Nýlagða malbikið er nánast svart á
lit og virðist dekkra en malbikið hin-
um megin við götuna. Segir Sigurður
það aðeins vera tímabundið. „Þetta
verður mun ljósara og verður alls ekki
ósvipað hinum helmingi götunnar. Nú
er örþunnt tjörulag á yfirborðinu sem
slitnar af á næstu vikum og þegar það
er farið kemur sjálft steinefiúð i ljós og
það er ljóst á lit. Notkun á ljósu mal-
biki hefur aukist og það er kannski
fýrst og fremst vegna lítils verðmunar
á milli tegunda. Auk þess teljum við
þægilegra að keyra á ljósu malbiki en
dökku.“ -vig
Austfirðingar:
Vilja göngin aftur
á vegaáætlun
Hópur fólks sem lætur sér velferð og
framtíð Austurlands varða gengst fyrir
almennum fundi í Sólbrekku í Mjóafirði
á morgun, laugardag. Þar verða stofiiuð
samtök eða félag sem hefur það að
markmiði að koma jarðgöngum á Mið-
austurlandi aftur inn á vegaáæflun,
jarðgöngum sem tengja munu helstu
þéttbýlisstaði á Miðausturlandi, þ.e.a.s.
Egilsstaði, Seyöisfjörð, Neskaupstað,
Eskifjörð, Reyðarfjörð við Mjóafjörð
saman í eitt atvinnu- og kjamasvæði.
„Gangahugmynd þessi er búin að
vera i umræðunni í meira en 20 ár.
Einu sinni komst hún það langt að fara
inn á langtímaáæflun Vegagerðar ríkis-
ins. Árið 1993 var tillaga jarðganga-
nefndar sú að þessi göng yrðu fyrst í for-
gangsröðinni um jarðgöng á Islandi,"
segir í fréttatilkynningu frá undirbún-
ingshópnum.
Töluverðar rannsóknir hggja fyrir um
þessi göng. Þau voru fyrst tekin til rann-
sóknar á árunum 1983-84 siðan aftur
1989-93.11. mars 1999 var samþykkt á Al-
þingi þingsályktun um jarðgangagerð á
Islandi. Tillagan olh því að umrædd jarð-
göng duttu út, þau eru ekki inni í mynd-
inni í dag. Þessu á að breyta með stofiiun
samtakanna um helgina. -JBP
Akureyri:
Kona í fangelsi
fyrir skjalafals
Kona frá Akureyri hefur verið dæmd
í 10 mánaða fangelsi fyrir skjalafals.
Mestur hluti refsingarinnar er skilorðs-
bundinn, eða níu mánuðir, en Héraðs-
dómur Norðurlands eystra gerir kon-
unni einnig að greiða skaðabætur, sem
og allan málskostnað.
Árið 1999 falsaði konan nafiiritun fyrr-
verandi eiginmanns síns sem sjálfskuld-
arábyrgðaraðila á skuldabréf að fiárhæð
kr. 280.000 sem hún gaf út til íslands-
banka. Þá viðurkenndi hún fjársvik með
þvl að gefa upp númer greiðslukorts fýrr-
um eiginmanns og láta skuldfæra and-
viröi vöru á kort hans.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkis-
ins hefur konan tvívegis áður hlotið
refsingar fyrir skjalafals og dæmir hér-
aðsdómur aukna hegningu þar sem hún
rauf skilorð með brotum sínum. -BÞ