Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2002, Qupperneq 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2002
Skoðun
30^
Spurning dagsins
Ferðu oft í klippingu?
Brynja BJörk Gunnarsdóttir nemi:
Ég fer á tveggja mánaöa fresti.
Karen Jónsdóttir nemi:
Nei, ég er aö safna hári og lita mig
sjálf en ef ég fer þá fer ég á Grímu,
þaö er besta stofan.
Davíö Andri Jakobsson nemi:
Ég fer meö svona tveggja
mánaöa millibili.
Ari Jónsson nemi:
Ég fer mjög sjaldan, kannski meö
svona hálfs árs millibili.
Davíð Arnar Jónsson nemi:
Ég fer svona fjórum sinnum á ári.
Þorvaldur Jónasson nemi:
Ég myndi segja 3-5 sinnum á ári.
Formaður húseigenda talaði um ýmsa leigutaka sem skrúðklætt hyski - fyrri grein:
Uppáklætt hyski
á lúxuskerrum
Stefanía Þorgrimsdóttir
skrifar:_________________________
Á neytendasíðu DV. 27. ágúst
birtist umfjöllun um húsaleigu-
markaöinn. Margt var þar fróðlegt
fyrir byrjendur á þessum mark-
aði, s.s. upplýsingar um verðlag
og fleira. Sem leigjandi sl. 12 ár í
Reykjavík las ég allan pakkann af
athygli en þó einkum viðtal við
formann Húseigendafélagsins,
Sigurð Helga Guðjónsson.
Mér er ekki ljóst hvort ummæli
þess manns ber að skilja sem
ósmekklegt grín, vanþekkingu,
ellegar fordóma.
Orðbragð hans var með þeim
hætti að ég veigra mér við að hafa
það eftir og kalla þó ekki allt
ömmu mína í þeim efnum.
Samheiti hans yfir okkur leigu-
taka var „Skrúðklætt hyski“ og lái
mér hver sem vill að vera ósátt
við slíkan stimpil - sem kannski
lýsir fremur innri manni stimpl-
leyfilegt táldist að ber-
hátta skrúðklcett fólk í
þeim fróma tilgangi að
ganga úr skugga um heið-
arleik þess, og stingur upp
á að slíkt verði tekið upp á
nýjan leik ..."
arans en þeim sem fyrir honum
verða.
í viðtalinu lýsir Sigurður átak-
anlega hvernig uppáklætt hyski á
lúxuskerrum, vopnað hátækni-
búnaði ginnir grandalausa húseig-
endur í vafasöm viðskipti. Vitnar
hann síðan til Jónsbókar hvar
leyfilegt taldist að berhátta skrúð-
klætt fólk í þeim fróma tilgangi að
ganga úr skugga um heiðarleik
þess og stingur upp á að slíkt
verði tekið upp á nýjan leik, þótt
hann telji að spilla myndi ánægju
þessa gjömings bann sömu lög-
bókar þar sem tekur til kvenfólks.
Nú er ég ekki löglærð persóna og
e.t.v. af þeim sökum hulin ráðgáta
hvemig slíkur spjaratætingur
utan af fólki segi af eða á rnn heið-
arleika þess, greiðslugetu eða ann-
að þvíumlíkt.
Ef undan er skilinn almennur
perraháttur dettur mér helst i hug
til skýringar uppástungu Sigurðar
ummæli hans i lok viðtalsins:
„Hyski er farið að ganga í skrúð-
klæðum ..." og „Nú þykir sem sagt
ekki tiltökumál að alls kyns lúðar
séu flottir í tauinu. Það er bara
nánast orðið löglegt." Af þessum
orðum má ráða að einhvem tím-
ann hafi varðað við lög að leigu-
takar, þ.e. „hyski“ og „lúðar“ skv.
orðabók Sigurðar, gengju sóma-
samlega til fara.
Seinni grein Stefaniu birtist á
morgun.
Hver stelur og hver ekki?
Sigrióur Ólafsdóttir
skrífar:
Sem áhorfandi í verslun sá ég
óskemmtilega sjón við afgreiðslu-
borðið. Það var klappað á öxl 8
eða 9 ára polla og hann beðinn að
afhenda það sem hann væri með í
pokanum og í buxnavasa sínum.
Hann var leiddur þama eins og
lamb til slátrunar að mörgum
ásjáandi.
„Það var klappað á öxl 8
eða 9 ára polla og hann
beðinn að afhenda það sem
hann vœri með í pokanum
og í buxnavasa sínum. “
Nú langar mig aðeins að spyrja:
Segjum sem svo að í sporum
stráksa hefði staðið pels- og purp-
uraklædd frú. Hefði hún fengið
sömu meðferð? Gæti ekki verið að
hún hefði fengið aðeins létt klapp
á öxl og bendingu um viðtal? Ég
vona bara að drengnum hafi þetta
verið áminning - en um leið
minni ég á að aðgát skal höfð í
nærveru sálar.
Eða ertu ef
til vill að gabba mig?
Garri gleðst yfir því að nafh hans var
loks samþykkt af mannanafnanefnd. Tók
hann sig því til með móður sinni á laug-
ardaginn og lét skíra sig Garra eftir að
hafa í þjóðskrá heitið Torfhildur Hólm frá
fæðingu. Eftir skímina sem fór fram í
Dómkirkjunni hemtaði mamman að fara
með soninn á Kaffi París þar sem
mæðginin fengu sér í glas. Garri er frekar
hófstilltur í drykkju sinni og hefur í gegn-
um tíðina aðallega einbeitt sér að bjór og
léttvíni. Móðir hans er hins vegar annál-
aður drykkjuvargur og gerði, eins og
frægt varð á sínum tima, allt vitlaust í
Tjarnarrétt í Kelduhverfi þegar hún
klæddi sig úr að ofan og söng Those were
the days my friends, I thought they’d
never end.
Power to the people
Mamma Garra vildi fara á Paris af því hún
vildi hitta Jörmund Inga, fyrrverandi allsheijar-
goða. „Hann er svo mikið krútt,“ hafði mamma
sagt og svipaðist um en sá hvergi Jörmund, bara
nokkur gömul skáld. „Æi, fjandinn," dæsti kerla
en ákvað samt að setjast. Það var heldur ekki á
hverjum degi sem fullorðnir synir voru skírðir.
Mamma var róttæk á sínum yngri árum.
„Power to the people,“ var hún vön að arga þeg-
ar hún hafði sporðrennt fjórum Gammeldansk og
einum Jagermeister. Laugardagurinn varð engin
undantekning. „Það sem við þurfum er bylting!"
hrópaði sú gamla í enda fyrirlestrar sem hún
hélt á borði þrjú og fjallaði um þróun í fjár-
magnseign á íslandi síðustu árin og miðaði hún
þar við tölur Hagstofunnar.
Baugabrot
„Við verðum að velta auðvaldinu úr
sessi," hvislaði mamma að Garra. „Þessir
nýju fjármagnseigendur eru ofboðslega
pirrandi. Gamli kolkrabbinn er miklu
krúttlegri. Þeir eru miklu fyrirsjáanlegri.
Þeir eiga líka sinn eigin stjórnmálaflokk
og því ekkert vesen á þeim.“ Mamma
Garra reifaði söguþráðinn í Baugsmálinu í
stórum dráttum og fór með viðeigandi fer-
skeytlur á nokkrum stöðum í frásögninni.
„Það sem við þurfum að gera, sonur sæll,“
sagði hún, „er að semja söngleik. Hann
gæti heitið Baugabrot og hægt væri að
flétta Laxdælu og persónum hennar saman
við nútímann. í upphafi gæti kór í grísk-
klassískum stíl stigið fram og sungið:
Sjáöu hér er Baugur.
Já það sé ég.
Og gamall snekkjudraugur.
Já hann er hér.
Ertu nú alveg viss um?
Já það er ég.
Eöa ertu ef til vill aö gabba mig?
CsPurrl
Umönnun
alzheimersjúklinga er erfiö.
Takk fyrir, Nýtt líf
og Friðbjörg!
Guðrún Jðnsdðttir skrifar:
Loksins er farið að tala eitthvað af
viti um málefni þeirra sem eru með
alzheimer-sjúkdóminn. Það hefur
ríkt nánast alger þögn um þennan al-
varlega sjúkdóm enda eiga
alzheimersjúklingar fáa talsmenn.
Það eina sem ég i raun hef séð af viti
um málið var í frábæru viðtali í Nýju
lífi við Friðbjörgu Óskarsdóttur.
Friðbjörg á mann með alzheimer og
þekkir af biturri reynslu hvað það er
mikið álag að vera með svona mik-
inn sjúkling inni á heimili. Mig lang-
ar að þakka Nýju lífi og Friðbjörgu
fyrir að hafa rutt brautina fyrir þessa
umræðu. Pabbi minn er alzheimer-
sjúklingur þannig að ég þekki þessi
mál af eigin raun.
Gata notuð sem
lager og samastaður
verktaka
Jóhann Ólafsson skrifar:
ístak hf. hefur í sumar unnið að
því að skipta um lagnir í Akurgerði
og Breiðagerði i Smáibúðahverfmu.
Milli þessara gatna er Gundargerði
sem lítið verður unnið í. Þrátt fyrir
það finnst fyrirtækinu og gatnamála-
stjóra fyrir hönd borgarinnar sjálf-
sagt að nota Grundargerði sem lager-
pláss og samastað. Er hluti götunnar
nánast lokaður með gámum og tækj-
um. En þó tók steininn úr þegar
starfsmaður ístaks lagði flutninga-
vagni framan við brunahana um kl.
16 á miðvikudaginn var og sagði
hann verða þar smástund. Vagninn
var svo fjarlægður um hádegisbilið á
fimmtudag. Upplýsingaskilti um
framkvæmdir er við gatnamót
Breiðagerðis og Sogavegar.
Heilagur andi betri
heilsunni en vínið
Grétar Rðbert Haraldsson skrifar:
Þegar ég
var fermdur í
Fríkirkjunni
1954 fékk ég
gefins stóra
Biblíu hjá
séra Jóni
Thorarensen
í Nessókn.
Núna hef ég
lesið Biblí-
una í 48 ár.
Ég átti lengi í
baráttu við Bakkus, alveg frá 1956 til
1988, eða í 32 ár. Á þessu tímabili,
árin 1977 til 1980, stundaði ég AA í
Tjarnargötu 3c og 5c og víðar í borg-
inni. Þar og í Biblíunni lærði ég að
heilagur andi Guðs í okkur öllum er
heilsunni betri en vín. Ég vona að
drykkjusjúklingar finni sannindin í
þessum orðum og vona að þau verði
þeim til hjálpar í baráttunni.
Neyðarblys valda
vandræðum
Kópavogsbúi hringdi:
Ég las í DV frétt um neyðarblys
yfir Kársnesi og sá það reyndar með
eigin augum. Það sjá væntanlega all-
ir hvert ábyrgðarleysi er að tendra
slíkt blys. Því miður sér maður oft
heOu flugeldasýningamar utan lög-
legs sprengitíma um áramótin. Mér
finnst þetta fremur hvimleiður ósiður
en lögreglan virðist ekkert hafast að
til að stöðva gauraganginn.
wssnmsŒ:
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@dv.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV,
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavik.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.