Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2002, Síða 11
FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2002
11
DV
Utlönd
Bandaríkjaforseti tilbúinn að fara einn inn í írak:
Saddam biðlar til SÞ um
að koma í veg fyrir árás
REUTERSMYND
Forsetafrúin með í barnatíma
Laura Bush, húsfreyja í Hvíta húsinu í Washington, er hér í góöum fétagsskap þeirra Sydney Martinez, Siennu Jeffries
og brúöu úr einhverjum frægasta barnaþætti í bandarísku sjónvarpi, Sesame Street. Forsetafrúin las upp fyrir nokkra
krakka í New York í gær og var lesturinn tekinn upp fyrir þennan vinsæla þátt.
Bandarík j amenn:
Greina hryðjuverkastarf-
semi í Jemen og Georgíu
Varavamamálaráðherra Banda-
ríkjanna, Paul Wolfowitz, segist
hafa vitneskju um virka hryðju-
verkamenn í arabalandinu Jemen
og Kákasuslandinu Georgíu, sem
séu að þjálfa sig fyrir og skipuleggja
ilivirki á laun. Þetta kom fram í
ræðu ráðherrans fyrir bandarískri
þingnefnd sem rannsakar hryðju-
verkaárásina á Bandaríkin í fyrra.
Óttast er að næsta kynslóð
hryðjuverkamanna sé þar með
fundin. Að sögn Wolfowitz eru
Bandaríkin byrjuð að efla getu Ge-
orgíu og Jemen til þess að buga
hryðjuverkamenn.
Bandaríkjamenn hafa ekki jafnít-
arlegar upplýsingar um gerjun
hvers kyns hryðjuverkastarfsemi í
þessum tveimur löndum og þeir
gerðu þegar árásunum í Afganistan
var hleypt af stokkunum. Þykir
Paul Wolfowitz
Bandaríski varavarnamálaráöherr-
ann segist vita um virka hryöjuverka-
starfsemi í Georgíu og Jemen.
þessi upplýsingaskortur benda til
þess að þjálfunarbúðirnar séu nýtil-
komnar. „En ef við höfum réttlæt-
andi upplýsingar og löndin eru ekki
tilbúin í slaginn verðum við að
fmna út úr þessu sjálfir," sagði ráð-
herrann.
Spurður um hvort önnur hryðju-
verkasamtök en al-Qaeda væru fær
um árásir á Bandaríkin svaraði
Wolfowitz því að hin palestínsku
Hizbollah-samtök væru til alls lík-
leg. Hins vegar hafi samtökin hing-
að til takmarkað umsvif sín við
Mið-Austurlönd og miðhluta Suður-
Ameríku.
Embættismenn innan bandaríska
njósnageirans eru margir á þeirri
skoðun aö mestu mistök síðasta ára-
tugar hvað varðar al-Qaeda hafl ver-
ið að ráðast ekki gegn þjálfúnarbúð-
um þeirra með vopnavaldi.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti hvatti þingmenn í Washington
til að heimila hernaðaraðgerðir
gegn írak og varaði jafnframt Sam-
einuðu þjóðimar við því að hann
væri reiðubúinn til að gripa til ein-
hliða aðgerða. Saddam Hussein
íraksforseti sakaði Bush á sama
tíma um lygar til þess eins að koma
höndum yfír olíulindir Mið-Austur-
landa og hann biðlaði til SÞ um að
samtökin kæmu i veg fyrir árás
Bandarikjamanna á landið.
Bush sendi þingheimi uppkast að
ályktun þar sem forsetanum er gef-
in heimild til að beita öllum þeim
aðferðum sem hann telur viðeig-
andi, þar á meðal valdi, gegn
Saddam. Þá ítrekaði Bush það yfir-
lýsta markmið sitt að steypa
Saddam af stóli.
Forystumenn í Bandaríkjaþingi
sögðu i gær að þeir myndu þrýsta á
að breytingar yrðu gerðar á orða-
lagi ályktunar Bush og að aukin
áhersla yrði lögð á samvinnu við
aðrar þjóðir.
Saddam Hussein sagði í bréfi til
SÞ í gær að hann réði ekki yfir gjör-
eyðingarvopnum og sakaði banda-
rísk stjómvöld um að búa til afsak-
anir til að geta ráðist á írak.
Það var Naji Sabri, utanríkisráð-
herra íraks, sem las bréfið frá
Saddam á fundi Allsherjarþingsins.
Eins og vænta mátti sögðu emb-
ættismenn í Hvíta húsinu að yfir-
lýsingin frá Saddam hefði valdið
þeim nokkrum vonbrigðum.
Hans Blix, yfirmaður vopnaeftir-
lits SÞ, sagði fréttamönnum f gær
að fyrstu flokkar eftirlitsmanna
kynnu að geta farið til íraks undir
miðjan næsta mánuð og taka til
starfa fljótlega þar á eftir.
Vopnaeftirlitsmenn eru undir
miklum þrýstingi að hefja störf í
írak sem allra fyrst til að hægt sé að
ganga úr skugga um að írakar ætli
að standa við yfirlýsingar sínar um
að hleypa eftirlitsmönnunum aftur
inn í landið. Tæp fjögur ár eru frá
því vopnaeftirlitsmenn fóm þaðan.
Ágreiningur er innan Öryggis-
ráðs SÞ um afstöðuna til tilboðs
stjórnvalda í Bagdad um að heimila
vopnaeftirlit á ný.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær að
bandarísk stjórnvöld myndu finna
leiðir til að koma í veg fyrir að
vopnaeftirlitsmenn færu til íraks,
nema Öryggisráðið sendi frá sér
ályktun um málið.
Powell sagði á fundi með þing-
nefnd að Öryggisráðið yrði að gera
íröskum stjómvöldum grein fyrir
alvarlegum afleiðingum þess að
vera ekki samvinnuþýð við vopna-
eftirlitsmennina.
Að sögn fréttamanns breska út-
varpsins i Bandaríkjunum var
Powell utanríkisráðherra með orð-
um sínum í raun að setja Öryggis-
ráðinu úrslitakosti.
Naktir í skóm
ekki allsnaktir
Sjö karlmenn sem töldu sig hafa
ekkert að fela í Gay Pride-göngu
homma og lesbía í Toronto í Kanada
hafa verið sýknaðir af ákæru um að
spranga um allsnaktir á almanna-
færi. Mennirnir vora nefnilega allir
í skóm, og það gerði gæfumuninn.
Sjömenningarnir, sem tilheyra
hópi sem kallast Allsnaktir
Torontokarlar sem líkar nekt, voru
handteknir og ákærðir fyrir ósið-
semi þegar þeir sprönguðu um göt-
ur Toronto í skóm og sólaráburði
einum fata.
Saksóknarar ákváðu hins vegar
að falla frá öllum ákærum þegar
þeir geröu sér grein fyrir því að litl-
ar líkur væru á sakfellingu, að sögn
lögmanns hinna nöktu.
REUTERSMYND
Setur úrslitakosti
Colin Powell, utanríkisráöherra
Bandaríkjanna, setti Öryggisráöi SÞ í
raun úrslitakosti í gær þegar hann
hótaöi aö koma í veg fyrir aö vopna-
eftirlitsmenn færu til íraks.
Anfinn Kallsberg
Lögmaður Færeyja er sagður
ánægöur meö samstarfsviljann milli
Dana og Færeyinga.
Sjálfstæði Fær-
eyja ekki lengur
efst á blaðinu
Anders Fogh Rasmussen, forsæt-
isráðherra Danmerkur, hefur nú
borist skýrsla frá umboðsmanni sin-
um í Færeyjum þar sem fram kem-
ur að sjálfstæði eyjanna sé ekki
lengur efst á blaði hjá færeyskum
stjórnmálamönnum.
Birgit Kleis ríkisumboðsmaður
segir í skýrslu sinni að Færeyingar
leggi nú meiri áherslu á önnur mál,
svo sem félags- og heilbrigðismál.
Danska fréttastofan Ritzau segir
að umboðsmaður upplýsi danska
forsætisráðherrann um það að An-
finn Kallsberg, lögmaður Færeyja,
sé afskaplega ánægður með þann
mikla samstarfsvilja sem nú riki í
samskiptum stjómvalda í Þórshöfn
og Kaupmannahöfn vegna yfirtöku
Færeyinga á málaflokkum sem til
þessa hafa verið undir stjórn Dana.
m
Arnoldo Aleman
Er sagöur hafa stolið 9 milljöröum í
forsetatíö sinni.
Nikaragúa:
Klofið þing rekur
spilltan forseta
Rétt rúmur helmingur þings Nik-
aragúa var viðstaddur þegar sam-
þykkt var að leysa þingforsetann
Arnoldo Aleman frá störfum í gær.
Brottreksturinn er liður í því að
svipta Aleman þinghelgi, en hann
er sakaður um að hafa stolið tæpum
níu milljörðum króna úr opinberum
sjóðum á meðan hann þjónaði landi
sínu sem forseti frá árinu 1997 til
2002.
Auk Alemans fengu flmm aðrir
fylgismenn hans úr stjómsýslu-
nefnd þingsins að fjúka, en forset-
inn fyrrverandi hafði notað nefnd-
ina til þess að koma í veg fyrir lýð-
ræðislegar tilraunir meirihluta
þingheims til að svipta hann þing-
helgi.
Enrique Bolano, núverandi for-
seti Nikaragúa, leiðir sóknina gegn
Aleman, en hann var varaforseti
þess síðarnefnda. Sjálfur segir Al-
eman aðgerðir þingsins vera póli-
tískt samsæri.
Sahara hopar fyr-
ir gróðurþekjunni
Nýjar gervihnattamyndir leiða í
ljós að suðurhluti Sahara-eyðimerk-
urinnar í Afríku hefur grænkað
talsvert undanfarið. Um er að ræða
belti allt frá Máritaníu í vestri tfl
Eritreu við Rauðahaflð í austri.
Svæði sem urðu undir sandflæminu
fyrir áratugum siðan eru nú að
grænka og hefur þetta verið stöðug
þróun síðasta áratugs.
Aukinni úrkomu og bættri rækt-
unartækni hefur verið þakkað fyrir
vöxtinn. Tekið hefur verið eftir að
svæði í kringum ákveðin þorp hefur
vaxið meiri gróður en annars staðar
og kemur þar mannanna hjálp við
sögu. íbúar í eyðimörkinni raða
steinum í sandauðninni þar sem
hún hallar sem veldur því að rign-
ingarvatnið á auðveldara með að
smjúga inn í jarðveginn og í kjölfar-
ið fýkur efsta lag jarðvegarins ekki
eins glatt á brott. Þar með eru svæði
sem fyrir áratug siðan voru auðnin
ein nothæf tfl landbúnaðarfram-
leiðslu.
Mnspjöld
...íemum
wnurn!
■*' STAFRÆNA
PRENTSTOfAN
L E T U R
Síðumúla 22 - Sími: 533 3600
Netfang: stafprentestafprent.is - Veffang: www.stafprent.is