Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2002, Page 32
Jt.
■2
V. •*
v'm
v >
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
t hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
1 1 Viðbótarlífeyrisspamaður
Allianz (jíí)
I FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ 1 - Loforð er íoforð
I l FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2002 Sími: 533 5040 - www.allianz.is
Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík:
Geir stefnir á sæti Björns
Bjöm Bjamason segist stefna á
eitt af efstu sætunum í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavik en
Geir H. Haarde segist sækjast eftir
öðru sæti. Stjórn fulltrúaráðs
flokksins í Reykjavík ákvað í gær
að leggja til við almennan fulltrú-
aráðsfund að skipan á lista í nýju
Reykjavíkurkjördæmunum tveimur
ráðist í sameiginlegu prófkjöri sem
haldið verði 22. og 23. nóvember.
Fyrir síðustu þingkosningar
skipaði Björn annað sæti á lista
flokksins í Reykjavík og Geir þriðja
sæti, en síðast fór fram prófkjör
fyrir þingkosningar hjá
Sjálfstæðisflokknum í Reykjavik
áriö 1994.
„Ég er ráðinn í að sækjast eftir
fyrsta sæti í öðru hvoru
kjördæmanna, sem þýðir að ég óska
eftir kjöri í annað sæti í
sameiginiegu prófkjöri," segir Geir
H. Haarde. Hann segist ekki sjá
fyrir hvort það stefni í hörð átök
Björn á eitt af efstu
Gelr H. Haarde. Björn Bjarnason.
um efstu sætin.
„Ég veit það ekki. Auðvitað er
alltaf eitthvað slíkt á ferðinni, það
er ekki óeðlilegt, en nú er verið að
raða upp á nýtt á nýjum forsendum
þannig að mér finnst eðlilegt að
flokkurinn stilli formanninum
efstum í öðru kjördæminu og
varaformanninum efstum í hinu,“
segir Geir.
„Ég stefni á eitt af efstu
sætunum," segir Bjöm Bjamason.
Það er því ekki um beinan, yfirlýst-
an slag um annað sætið að ræða.
„Ég keppi að sem mestum stuðn-
ingi,“ segir Bjöm. „Það er mjög
mikils virði fyrir mig þegar ég er að
takast á við þessi nýju verkefni í
borgarstjóm. En ég hef aldrei boðið
mig fram gegn neinum í prófkjöri í
flokknum heldur fremur viljað
styrkja samheldnina þar.“
Margeir Pétursson, formaður
fulltrúaráðsins, segir að algjör sam-
staða hafi verið um þessa niður-
stöðu í stjóminni. Hann gerir ráð
fyrir að framboðsfrestur verði til 20.
október eða þar um bil en ákvörðun
um það verður tekin á almennum
fulltrúaráðsfundi eftir um hálfan
mánuð.
Samkvæmt reglum flokksins
ræður hlutkesti því á lista hvors
Reykjavíkurkjördæmanna
sigurvegari í sameiginlegu prófkjöri
tekur sæti. Sá sem hafnar í öðru
sæti skipar fyrsta sæti í hinu
kjördæminu og svo koll af kolli.
-ÓTG
Enn að brjótast inn
Lögreglan í Reykjavík fékk í nótt
tilkynningu um mann sem var að
brjótast inn í bílageymslu. Var hann
handtekinn en svo virtist sem hann
hefði ætlað að brjótast inn í bíla.
Þetta er sami maður og braust inn í
Biskupsstofu fyrr i vikunni. Er þetta
þriðja nóttin í röð sem hann er
handtekinn vegna innbrota. Eftir
síendurtekin brot getur komið að því
að menn em vistaðir 1
síbrotageymslu en umræddum
manni var sleppt eftir yfirheyrslur í
nótt. -hlh
Ráðist á mann
Ráðist var á mann í Breiðholti í
nótt. Fékk hann áverka í andliti. Að
sögn lögreglu virtist maðurinn vita
hverjir árásarmennimir voru en
var ófús að segja til þeirra. Er talið
líklegt að atvikið tengist
fíkniefnaskuldum og að árásar-
mennimir hafi verið handrukkarar.
-hlh
EINN EINN TVEIR
NEYÐARLlNAN
^ LÖGREGLA SLÓKKVIUÐ SJÚKRALIÐ j
Grímseyingar varaðir við jarðskjálftum:
Ekki mikið sofið I nótt
- hreppstjórinn kvíðinn út af fólkinu
„Við komum
saman, hrepps-
nefiidin og ég,
hringdum í alla
eyjabúa fyrir mið-
nætti og létum vita
hvemig málin
stæðu. Fólk kvaðst
ætla að taka til hjá
sér og hugsa vel fyr-
ir börnunum. Ég
viðurkenni að ég
svaf ekki mikið í
nótt. Ekki var ég
kvíðinn út af sjálfum mér en var það
gagnvart fólkinu í eynni og sérstak-
lega börnunum," sagði Bjami Magn-
ússon, hreppstjóri í Grímsey, við DV
í morgun.
Jarðskjálftar héldu áfram í nótt og
færðu sig nær Grímsey. Upptökin eru
nú um 15 km frá eynni. Ragnar Stef-
ánsson jarðskjálftafræðingur ræddi
við Bjarna og Óttar Jóhannsson odd-
vita í gærkvöld - varaði þá við hættu
á stórum skjálfta, jafnvel að stærð-
inni 5,5 til 6 á Richter - því væri var-
inn góður og við hæfi að reyna að
koma í veg fyrir aö hlutir færðust úr
stað eða féllu á fólk ef „sá stóri"
kæmi. Allir eyjabúar voru varaðir
við og gripið var til aðgerða seint í
gærkvöld og nótt. Mörgum hafði ekki
orðið svefhsamt vegna hinnar yfirvof-
andi hættu.
Magnús sagði að skólastjórinn
heföi ætlað að taka
til í skólanum á
þessum síðasta
skóladegi vikunnar
með tilliti til yfirvof-
andi jarðskjálfta og
tryggja að bömin
verði ekki i hættu.
„Þetta tók sig upp
aftur í gærkvöld og
hélt áfram í nótt.
Upptökin eru nú
20-25 km sunnar en
var á mánudaginn
þegar stærsti skjálftinn kom,“ sagði
Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræð-
ingur við DV. „Þessari hrinu gæti
lokið nú en ég reikna með að skjálft-
arnir haldi áfram. Upptökin hafa
færst og þetta er farið að brjóta upp
jarðskorpuna. Mín tilfmning er að
skjálftarnir haldi áfram í nokkra sól-
arhinga."
- Hvað myndi skjálfti upp á 5,5-6 á
Richter þýða fyrir Grímseyinga?
„Slíkt myndi ekki brjóta hús og
skemma. Fólk væri ekki í hættu ef
það væri staðsett sæmilega innan-
húss. Það er helst hætta ef lausamun-
ir og þungir hlutir velta eða hreyfast.
Þetta þarf ekki að vera hættulegt en
það er aldrei of varlega farið,“ sagði
Ragnar. Hann sagði engin merki um
eldgos samfara jarðskjálftahrinunni
þó svo að stöðugar brotahreyfmgar
geti komið kviku upp á hafsbotn. -Ött
Grímsey
Jaröskjálftafræöingur varaöi
eyjarbúa viö skjálftahættu.
DV-MYND TEITIJR
Með regnhlíf á Austurvelli
Haustveöriö hefur veriö milt í höfuöborginni undanfarna daga, hægir vindar
meö örlitilli vætu. Hiö sama var uppi á teningnum þegar borgarbúar vöknuöu
í morgun og um helgina spáir Veðurstofan dálítilli súld eöa rigningu meö
köflum. Þaö er því gott aö ganga úti en ekki sakar aö hafa meö sérgóöa
regnhiíf aö hætti konunnar á Austurvelli.
Tvíhöfði í Áslandsskóla
Óbreytt ástand er í Áslandsskóla í
Hafnarfirði en tveir skólastjórar
mættu til vinnu við skólann í morgun,
eins og reyndar í gær. Skólastjóri á
vegum íslensku menntasamtakanna,
Skarphéðinn Gunnarsson, hefúr aðset-
ur á fyrstu hæð en Erla Guðjónsdóttir,
sú er Hafnarfjarðarbær réð sem skóla-
stjóra eftir uppsögn samninga við ís-
lensku menntasamtökin, er á annarri
hæð. Sunita Ghandi, formaður ÍMS,
mætti einnig til vinnu við skólann í
morgun. Að sögn starfsmanna er and-
rúmsloftið sérkennilegt þar sem starfs-
menn þurfa að gera upp við sig hverj-
um yfírboðaranna eigi að hlýða. -hlh
Kona sem er ákærð fyrir ólöglegan gróður í eigin húsnæði:
Neitar að kannast við
„eigin hassplöntuskóg"
Kona sem ákærð er fyrir að hafa
haft 270 kannabisplöntur í húsnæði
sinu í desember á síðasta ári harð-
neitar að kannast við hvaðan þær
koma. í máli sem er til meðferðar
fyrir héraðsdómi kveðst konan hafa
leigt húsnæðið fyrir listastarfsemi.
Einnig hefur komið fram að leigu-
taka sé óheimilt að nota húsnæðið
til annar en listastarfs.
Þegar flkniefnalögreglan kom á
staðinn voru hassplöntur á víö og
dreif í húsnæðinu og það hreinlega
undirlagt af hinum ólöglega gróðri.
Við leit fundust einnig tölvuútprent-
anir af Netinu þar sem skýrt var
hvemig rækta ætti hið forboðna
efni. Að auki fannst amfetamín í
hljómflutningstækjum.
Konan var fjarverandi þegar lög-
reglan kom í húsnæðið og lagöi hald
á góssið. Þegar hún var svo yfir-
heyrð og spurð hverju þetta sætti
kvaðst hún ekkert kannast við efn-
in eða plöntumar og ekki vita hver
hefði komið þeim fyrir. Þetta kæmi
henni ekki við. Samt kom á daginn
að engum öðrum var til að dreifa
um lyklavöld að húsnæðinu sem
hún leigir til listastarfseminnar.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar í Reykjavík var óvenjumikið
um að lagt væri hald á kannabis-
plöntur á síðasta ári. Frá ársbyrjun
2001 hefur veriö lagt hald á meira
en 1.500 kannabisplöntur. -Ótt
Talaðu við okkur um
Auðbrekku 14, sími 564 2141