Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2002, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002
DV
9
Fréttir
Samruni fjögurra sjávarútvegsfyrirtækja í Bolungarvík:
Bolfiskfyrirtæki styrkja
stoðir rækjuvinnslunnar
- einnig samið um hráefnisöflun við tengd fyrirtæki
DV-MYND HKR.
Úr rækjuvinnslu Bakkavíkur hf. í Bolungarvík
Fyrirtækið var reist á rústum rækjuverksmiöju Nasco sem var eitt margra fyr-
irtækja sem uröu til og hurfu eftir skamma viödvöi í bolvísku athafnalífi í kjöl-
far hruns Einars Guöfinnssonar hf. í þessu fyrrum frystihúsi EG. hf. er nú ein
tæknivæddasta rækjuverksmiöja landsins og þar mun einnig eftir sameining-
una hefjast bolfiskvinnsla á ný eftir nokkurt hlé.
Verið er að skjóta fleiri stoðum
undir rækjuvinnslufyrirtækið
Bakkavík hf. í Bolungarvík með
sameiningu við þrjú önnur sjávar-
útvegsfyrirtæki á staðnum. Agnar
Ebenesersson framkvæmdastjóri
segir að með sameiningunni sé
verið að auka hagkvæmni fyrir-
tækjanna auk þess að styðja við
bakið á rækjuvinnslunni sem geti
verið mjög sveiflukennd með bol-
fiskvinnslu. Fyrirtækin þrjú sem
nú sameinast Bakkavík eru Fisk-
verkunin Vík ehf. ásamt dótturfé-
lögunum Kálfavík ehf. og Útgerð-
arfélaginu Voninni ehf. sem bæði
eru hrein útgerðarfyrirtæki í smá-
bátakerfinu.
„Rækjuiðnaðurinn er sveiflu-
kenndur eins og menn þekkja og
þetta snýst um að vera ekki með
allt í sömu körfunni. Starfsemi
fyrirtækjanna mun fara undir
nafnið Bakkavík, en það verður
væntanlega ekki formlega fyrr en
eftir mánuð. Það var skrifað undir
samrunaáætlun sem þarf að aug-
lýsa og síðan munu hluthafar taka
þetta fyrir endanlega á hluthafa-
fundi.
Með sameiningunni er gert ráð
fyrir að Fiskverkunin Vík, sem
verður 16% eigandi í Bakkavík,
flytji starfsemi sína í ónotað hús-
næði Bakkavíkur sem áður var
nýtt undir rækjuverksmiðju. Ekki
er endanlega búið að taka ákvörð-
un um áherslurnar í vinnslunni.
Þó er búist viö að stefnt verði á
frystingu samhliða ferskflaka-
vinnslu, eða svokallaðan „flug-
fisk“, sem sendur er nýunninn
með flugvélum á markað erlendis.
Fjölskyldur Guðmundar Einars-
sonar og Hrólfs Einarssonar í út-
gerðarfyrirtækinu Ósi sf. eru
ásamt Völusteini aðilar í þessu
sameiningarferli. Ós verður þó
rekið sjálfstætt áfram, en það á
þrjá báta með talsverðum afla-
heimildum. Með sameiningunni
nú verður tryggt að bátar Óss
munu m.a. sjá Bakkavík fyrir hrá-
efni til vinnslu.
- Hvemig hefur gengið í rækj-
unni?
„Það hefur verið þokkalegur
gangur, en við höfum mest verið
að kaupa hráefni á heimsmarkaði.
Það hefur gengið ágætlega að ná í
hráefni frá Kanada, Noregi, Spáni
og víðar. Síðustu þrjú til fjögur ár
hefur verið lægð í úthafsrækju-
veiðum hér við land og nánast ör-
deyða á miðunum um tíma. Það er
að breytast aftur og veiði hefur
verið að aukast. Á þessu ári hefur
rækjuveiðin verið þokkalega góð
og þróunin verður sú að við sækj-
um meira af rækju hér á heima-
mið.“
Agnar segir afurðaverð á rækju
vera frekar lágt um þessar mundir
á mörkuðum, en hráefnisverðið sé
líka lágt. „Niðurstaðan er því sú að
þetta hefur sloppið," eins og Agnar
orðar það, þetta rúma ár síðan
Bakkavik hóf starfsemi. Bakkavík
hefur verið með um 42 starfsmenn
í vinnu við rækjuvinnslu að und-
anfömu og við samrunann flytjast
um 20 manns frá hinum fyrirtækj-
unum þrem í bolfiskvinnslu og út-
gerð Bakkavíkur. -HKr.
Biöur meö hveraréttina
Magnús Kristjánsson, rekstrarstjóri
Hveraskálans, bíöur eftir útlendingunum.
Heimsferðalang-
ar í eggjasuðu
Fimmtíu farþegar úr skemmti-
ferðaskipinu Atlantis komu við á
hverasvæðinu í Hveragerði í liðinni
viku þar sem Magnús Kristjánsson
bauð ferðamönnunum leiðsögn um
svæðið. Greinilegt var að útlending-
unum fannst mikið til um að fá að
sjóða egg í hverunum. Að lokinni
gönguferð um svæðið fengu ferða-
mennirnir að borða eggin sín skreytt
með grænmeti ásamt ekta hverarúg-
brauði og íslenskum osti. Herlegheit-
unum var síðan skolað niður með
gúrkusnaps, en þá er skorið innan
úr gúrkubitum og bláum snafsinurn
hellt í. Snafsuppskriftin er að sjálf-
sögðu leyndarmál Magnúsar og
Sirrýjar, sem reka veitingastaðinn i
Hveraskáianum. -EH
Tók ekki eftir
lögreglubíl
Lögreglan i Reykjavík stöðvaði 17
ára gamlan ökumann um helgina
þar sem hann mældist á 120 kíló-
metra hraða á Vesturlandsvegi í Ár-
túnsbrekku. Ungi maðurinn hafði
ekið fram úr lögreglubíl á fyrr-
greindum hraða. Hann sagöist í
samtali við lögreglumenn ekki hafa
„tekið eftir" lögreglubílnum. -aþ
DV-MYND E.ÓL
Haustverkln
Starfsmaöur Garöyrkjudeildar Reykjavíkurborgar vann aö því á dögunum aö
grisja skóg og vinna önnur haustverk í Elliöaárdalnum.
Mikil skolpmengun
á Álftanesi
Á síðasta hreppsnefndarfundi
Bessastaðahrepps vöktu fulltrúar
Álftaneshreyfmgarinnar i hrepps-
nefnd athygli á því að við sýnatöku
úr skurðum á íþróttasvæðinu við
Álftanesskóla á liðnu vori, sem
Álftaneshreyfingin gekkst fyrir,
hafi veriö staðfest mikil skolp-
mengun. Sýnatökur í sumar á öðr-
um stöðum staðfestu einnig að
mengunin væri víðtækari. Síðan
segir m.a. í bókuninni: „Eftir um-
ræður og tillöguflutning frá Álfta-
neshreyfmgunni hefur meirihlut-
inn tekið sinnaskiptum og sam-
þykkt tafarlausar úrbætur á versta
mengunarsvæðinu næst íþrótta-
húsi og skóla og þessu ber að fagna.
Eins hefur meirihlutinn samþykkt
þá kröfu Álftaneshreyfmgarinnar
aö hefjast handa um lokun hættu-
legra skurða á svæðinu og þessum
áformum þarf að flýta. Við gerð
næstu fjárhagsáætlunar þarf að
taka heildstætt á frárennslismálum
í hreppnum og veita meira fé til
þessara framkvæmda. „Skolpmeng-
un eins og viðgengist hefur árum
saman í Bessastaðahreppi, með til-
heyrandi sýkingaáhættu, eru óvið-
unandi í vaxandi bammörgu sveit-
arfélagi sem leggur áherslu á um-
hverfismál." Þetta var samþykkt.
í upphafi fundar létu fulltrúar Á-
lista bóka að vítur á oddvita, Guð-
mund G. Gunnarsson, þar sem þeir
telja að á næsta fundi hreppsnefnd-
ar þar á undan hafi oddviti Bessa-
staðahrepps misnotað vald sitt sem
fundarstjóri er hann meinaði Álfta-
neshreyfmgunni að færa til bókar
stutta greinargerð með tillögu er
fiallaði um málefni byggingarfull-
trúa. Á-listi telur að við lestur
fundargerða annarra sveitarfélaga
komi fram að færðar eru til bókar
tillögur, greinargerðir og aðrar at-
hugasemdir frá sveitarstjómar-
mönnum." Álftaneshreyfmgin' tel-
ur yfirgang oddvita við fundar-
stjóm honum til vansa og fer fram
á að hreppsnefndarfulltrúar fái frið
til að starfa án yfirgangs oddvita.
Snorri Finnlaugsson varaoddviti
taldi að oddviti hefði farið rétt að
varðandi fundarstjórn á síðasta
hreppsnefndarfundi og það væri
skoðun D-listans. -GG
í FÓKUSI Á FÖSTUDAGINN
VERÐUR ÍTARLEG UMFJÖLLUN
UM BÍLA UNGA FÓLKSINS. VIÐ
SKOÐUM HVAÐA BÍLAR ERU
VINSÆLASTIR, HVAÐ ÞARF AÐ
GERA TIL AÐ EIGNAST ÞÁ OG
FLEIRA TILHEYRANDI. FYLGSTU
MEÐ Á FÖSTUDAGINN.