Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2002, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2002
11
I>V
Pharmaco í kauphugleiðing-
um á öðrum fyrirtækjum
- vonast til að samningar takist á næstunni
Pharmaco
Helstu forsendur Pharmaco fyrir fjárfestingu í öörum fyrírtækjum liggja í veltu
og markaöshiutdeild á völdum svæöum og hagstæöum kennitölum.
HEILDARVIÐSKIPTI 10.020 m.kr.
Hlutabréf 4.563 m.kr.
Húsbréf 2.980 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
Búnaöarbankinn 1.813 m.kr.
Straumur 504 m.kr.
Pharmaco 463 m.kr.
MESTA HÆKKUN
; O SR-Mjöl 13,3%
o Ker 4,3%
i O Grandi 3,6%
MESTA LÆKKUN
j O Hlutabr.markaðurinn 3,1%
O Hlutabr.sj. Búnb. 3,1%
O'AV 2,9%
ÚRVALSVÍSITALAN 1.302
- Breyting 0,25%
Seðlabanki íslands
innkallar aura
Forsætisráðherra hefur að tillögu
Seðlabanka íslands undirritað tvær
reglugerðir sem varða greiðslumiðl-
un og gjaldmiðil íslands. Reglugerð-
imar fela í raun í sér að hætt verð-
ur að nota aura í íslenska myntkerf-
inu og því innkallar Seðlabankinn
nú alla fimm, tíu og fimmtíu aura
mynt.
Reglugerðirnar tvær sem um
ræðir eru annars vegar reglugerð
um að heildarfjárhæð sérhverrar
kröfu eða reiknings skuli greind og
greidd með heilli krónu og hins veg-
ar reglugerð um innköllun þriggja
myntstærða (aura). Samkvæmt
fyrri reglugerðinni verður engum
skylt að inna af hendi greiðslu í aur-
um frá og með 1. október 2003.
í frétt frá Seðlabankanum kemur
þó fram að eftir sem áður verður
heimilt að nota brot úr krónu í út-
reikningi verðs, en lægri fjárhæð en
0,5 krónur skal þá sleppt og 0,5
krónur eða hærri fjárhæð hækkuð í
eina krónu. Samkvæmt síðari reglu-
gerðinni skal fimm, tíu og fimmtíu
aura mynt innkölluð. Bankar og
sparisjóðir verða skyldugir til að
taka við aurum og láta í staðinn
krónur fram til 1. október 2003. Til
þess tíma verða aurar áfram lög-
mætur gjaldmiðill, en ekki lengur.
Seðlabanki íslands mun þó innleysa
aura til 1. október 2004.
Gagarín gerir fræðslu-
efni fyrir Alþingi
Gagarín hannaði og framleiddi
nýtt fræðsluefni á margmiðlunar-
formi um sögu og störf Alþingis sem
verður í Skálanum, nýrri þjónustu-
byggingu Alþingis.
Árlega koma um 5.000 gestir í Al-
þingishúsið og mun fræðsluefnið
gegna mikilvægu hlutverki í kynn-
ingu á starfsemi Alþingis. Flestir
gestanna eru nemendur sem koma á
vegum skóla en einnig er nokkuð
um að félagasamtök og vinnustaða-
hópar heimsæki þingið sem og er-
lendir gestir.
Fræðsluefnið samanstendur af
ljósmyndum og hreyfimyndum -
tvívíðum og þrívíðum - kvikmynd-
um, texta og hljóði. Þar er sagt frá
Alþingi og störfum þess, fjallað um
kjördæmaskipan, þingræðið og
verkefni þingsins svo fátt eitt sé
nefnt. Á söguás má fræðast um
helstu viðburði í sögu Alþingis í
tímaröð svo sem kristnitökuna,
samþykkt Gamla sáttmála, endur-
reisn Alþingis, heimastjórn komið
á, ísland fulivalda ríki og lýðveldi
stofnað. Þá er hugtakalisti þar sem
hægt er að fletta upp hugtökum og
fá útskýringar á hvað hugtök eins
og framsögumaður, gerðabók og út-
býting fela í sér. Starfsfólk skrif-
stofu Alþingis vann að framleiðslu
efnisins með Gagarín. Efnið sem er
á íslensku verður einnig aðgengi-
legt á ensku á næstunni en auðvelt
er að bæta við nýjum tungumálum
með lítiUi fyrirhöfn.
Hið sameinaða fyrirtæki
Pharmaco og Delta á nú í viðræðum
við nokkur smærri lyfjafyrirtæki
um hugsanleg kaup Pharmaco á
þeim. Sindri Sindrason, forstjóri
fjárfestingar hjá Pharmaco, sagði
þetta vera fyrirtæki með 20 tU 30
miUjóna doUara ársveltu og sagðist
vonast tU að geta lokað samningum
við einhver þeirra á næstunni.
Þetta kom fram á blaðamannafundi
sem Pharmaco hélt á föstudaginn
síöastliðinn vegna sameiningar fé-
laganna.
Á fundinum kom fram að áhersl-
ur í fjárfestingarstefnu Pharmaco
eru á framleiðslu- og markaðsfyrir-
tæki, fyrirtæki með hráefnafram-
leiðslu, heUdsöludreifingu eða hugs-
anlega smásölukeðjur eins og apó-
tek. Varðandi staðsetningar á slík-
um fyrirtækjum eru áherslumar á
Mið- og Austur-Evrópu.
Sindri sagði að félagið stefndi að
því að ná vaxtarmarkmiðum sínum
með bæði innri og ekki hvað síst
ytri vexti. Þannig gera stjómendur
Pharmaco ráð fyrir að félagið eigi
að ná 15-20% innri vexti á næstu
þremur árum.
Helstu forsendur Pharmaco fyrir
fjárfestingu í öðrum fyrirtækjum
liggja í veltu og markaðshlutdeUd á
Stjómunar- og rekstrarráðgjafar-
svið Deloitte & Touche ráðgjafar og
ráðgjafareining IMG hafa verið sam-
einaðar. Nýja fyrirtækið verður
stærsta stjómunar- og rekstrarráð-
gjafarfyrirtækið hér á landi, með
breiðan hóp sérfræðinga á öUum svið-
um stjórnunar, rekstrar, starfsþjálf-
unar og upplýsingatækniráðgjafar.
Heiti fyrirtækisins veröur
IMG Deloitte
í frétt frá fyrirtækinu segir að með
sameiningunni skapist nýr og sterk-
ari grundvöUur tU að bjóða viðskipta-
vinum víðtækari þjónustu. Þarfir við-
skiptavina kaUa í auknum mæli á al-
þjóðlega viðurkenndar heUdarlausnir,
aðlagaðar islenskum aðstæðum. Auk
þess hafa breytingar á ráðgjafarmark-
aðnum um allan heim og aukin bein
íslensk erfðagreining og Merck &
Co. Inc. hafa tekið upp umfangsmikið
samstarf um þróun nýrra meðferðar-
úrræða gegn offítu. Fyrirtækin munu
vinna saman að rannsóknum á erfða-
fræði offitu og leita lyfjamarka sem
hægt er að hafa áhrif á með nýjum
lyfjum.
I frétt ffá ÍE kemur fram að mark-
mið samstarfsins er að flýta uppgötv-
un nýrra lyfja gegn offitu sem er orð-
ið eitt alvarlegasta heUbrigðisvanda-
mál Vesturlanda. Samningur fyrir-
tækjanna er tU þriggja ára og mun
skapa íslenskri erfðagreiningu um-
talsverðar teKjur. Þar er um að ræða
fastar rannsóknargreiðslur, greiðslur
fyrir aðgang að tækni og þjónustu,
áfangagreiðslur þegar ákveðnum
áfóngum i þróun lyfja er náð, svo og
hlutdeUd í tekjum af sölu nýrra lyfja.
Virði samningsins fyrir íslenska
erfðagreiningu gæti orðið meira en 90
mUljónir Bandaríkjadala ef Merck
tekst að þróa og markaðssetja Oeiri en
eina afurð sem byggist á samstarfinu.
í þessari upphæð er ekki tekið tillit tU
hlutdeUdar í hugsanlegri sölu nýrra
lyfla.
íslensk erfðagreining hefur þegar
kortlagt nokkra mikUvæga erfðavísa
sem tengjast offitu og safnað nákvæm-
um hetisufarslegum og erfðaffæðUeg-
um gögnum um yfir 10.000 þátttakend-
völdum svæðum og hagstæðum
kennitölum. „Hluthafar skipta
miklu máli og viljum við skUa þeim
góðri ávöxtun með góðum fjárfest-
ingum,“ sagði Björgólfur Thor
Björgólfsson, stjórnarformaður
Pharmaco.
Sameinuðu félagi hefur núna ver-
tengsl annarra ráðgjafarfyrirtækja
við hugbúnaðarfyrirtæki skapað IMG
Deloitte algera sérstöðu á íslenskum
ráðgjafarmarkaði. Fyrirtækið er óháð
ráðgjafarfyrirtæki sem byggir þjón-
ustu sína á alþjóðlegum viðskipta-
lausnum Deloitte & Touche og Cor-
porate Lifecycles, víðtækum upplýs-
ingum um þróun á markaðs- og
rekstrarumhverfi íslenskra fyrir-
tækja, sem og mjög nánu samstarfi
við viðskiptavini. í samræmi við al-
þjóðaskipulag Deloitte & Touche verð-
ur fjármálaráðgjöf hluti af endurskoð-
unarfyrirtækinu Deloitte & Touche
hf. í framhaldi af sameiningunni.
Fjölbreytt menntun og reynsla sér-
fræðinga fyrirtækisins af stjómun í
atvinnulífínu, ráðgjöf, kennslu og
rannsóknum hér heima og erlendis
gerir þeim kleift að veita sérhæfðar
ur i rannsóknum á sjúkdómum sem
henni tengjast. Aukin áhersla verður
nú lögð á þessar rannsóknir, auk þess
sem íslensk erfðagreining leggur til
samstarfsins Lífupplýsingakerfi sitt.
Það er safn hugbúnaðar og gagna úr
erfðafræðirannsóknum íslenskrar
erfðagreiningar og verður notað til að
kanna hvort þau lyfjamörk sem
Merck hefur uppgötvað með rann-
sóknum á virkni erfðavísa og til-
raunadýmm tengist oftitu i mönnum.
Þannig gefst tækifæri til að forgangs-
raða frekari rannsóknum á lyfjamörk-
um Merck. Fyrirtækin hyggjast
ið skipt upp í tvær einingar. Það
eru rekstur, sem Róbert Wessman,
fyrrum forstjóri Delta, mun stýra,
og fjárfestingu sem Sindri Sindra-
son, fyrrum forstjóri Pharmaco,
mun veita forstöðu.
viðskiptalausnir og nýta jafnframt al-
hliða upplýsingatækni til að auka
skilvirkni þeirra lausna sem við-
skiptavinir fyrirtækisins þarfnast
hverju sinni. Sjö af hverjum tíu ráð-
gjöfum fyrirtækisins eru með meist-
araprófs- eða doktorsgráður og hjá fé-
laginu starfa margir af reyndustu ráð-
gjöfum landsins. Heildaríjöldi starfs-
manna nýja fyrirtækisins og móðurfé-
laga þess, Deloitte & Touche endur-
skoðunar og IMG, er 310 og heildar-
velta félaganna verður rúmlega 2
milljarðar króna.
Sfjóm fyrirtækisins skipa Bjarni
Snæbjöm Jónsson, Jón Gunnar Aðils,
Skúli Gunnsteinsson og Þorvarður
Gunnarsson. Stjómarformaður er
Friðrik Pálsson. Framkvæmdastjóri
IMG Deloitte verður Svafa Grönfeldt.
einnig hefja umfangsmiklar erfða-
fræðirannsóknir á offitu sem byggjast
á mælingum á virkni erfðavísa í vef-
sýnum.
„Þessi samningur er mikilsverð
staðfesting á gildi rannsókna okkar og
mikilvægur liður í þeirri viðleitni
okkar að breyta þeirri einstöku að-
stöðu sem höfum til erfðafræðirann-
sókna í vörur á markaði," sagði Kári
Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfða-
greiningar. Merck er leiðandi fyrir-
tæki á heimsvísu í þróun nýrra lyfja
og hefur notað aðra nálgun en við í
erföafræðirannsóknum.
Deloitte & Touche ráðgjöf og ráð-
gjafareiningar IMG sameinast
IE í samstarf viö Merck
- virði samningsins hugsanlega um 90 milljónir Bandaríkjadala
íslensk erfðagrelning
f frétt frá IE kemur fram aö markmiö samstarfsins er aö flýta uppgötvun
nýrra lyfja gegn offitu sem er oröiö eitt alvarlegasta heiibrigöisvandamál Vest-
urlanda.
Viðskipti
Umsjón: Viðskiptablaðið
Norðurljós hf.
innleiða
LiSA kerfið
Fjölmiðla- og afþreyingarfyrir-
tækið Norðurljós hafa valið LiSA
vefstjómarkerfið til að halda utan
um öll vefsvæði vörumerkja
sinna, ásamt aðalvef fyrirtækis-
ins. LiSA kerfið hefur verið valið
sem hönnunarstaðall í vefmálum
fyrirtækisins og verða allir vefir
Norðurljósa settir upp með kerf-
inu. Alls er á annað tug vefsvæða
sem Norðurljós hafa haldið úti og
hefur ráðgjafasvið Innn unnið að
stefnumótun vefmála Norðurljósa
ásamt starfsmönnum fyrirtækis-
ins. Nú þegar hafa vefsvæðin
www.syn.is,www.fm957.is,
www.radiox.is og fyrirtækjavefur-
inn www.norduljos.is verið sett í
loftið og munu önnur vefsvæði
fyrirtækisins fylgja í kjölfarið.
Nýjasta útgáfa LiSA - Enter-
prise hefur þá eiginleika að í
henni má stofna eins marga vefi
og þörf krefur á hverjum tíma,
auk þess sem aðgangsstýring kerf-
isins er mjög öflug og örugg. Þetta
gerir Norðurljósum kleift að reka
öll sín vefsvæði í einu og sama
kerfinu og að stýra aðgangi þeirra
sem uppfæra vefinn utan úr bæ
eða utan úr heimi eftir atvikum
með mjög einföldum hætti.
Þá skiptir það Norðurljós
miklu að LiSA er með innbyggðri
útgáfustjómun með sérstöku sam-
þykktarferli. Það er nauðsynlegur
þáttur í vefviðhaldi fyrirtækisins
og mun hindra birtingu siða sem
ekki eru í samræmi við gæðakröf-
ur og stefnu fyrirtækisins. Ráð-
gjafar- og hugbúnaðarhúsið Innn
mun vinna náið með starfsmönn-
um Norðurljósa- í þessu mark-
aðsátaki fyrirtækisins á Netinu og
mun Innn m.a. sjá um forritun og
uppsetningu vefsvæðanna ásamt
því að hanna útlit vefsvæðanna í
samvinnu við markaðsdeild Norð-
urljósa.
Líf hf. kaupir
llsanta að fullu
Líf hf. hefur samið um kaup á
samtals 51,64% eignarhlut í lyfja-
fyrirtækinu Ilsanta i Litháen. Fyr-
ir átti Líf hf. 26,06% eignarhlut i
fyrirtækinu. Kaupverð hlutanna
miðast við 170 milljóna króna
heildarverð á Ilsanta og mun Líf
hf. gera öðrum hluthöfum Ilsanta
sambærilegt tilboð í þeirra hluti
en jafnframt eiga þeir hlutfallsleg-
an forkaupsrétt ásamt Lífi hf. að
hinum seldu hlutum.
Ilsanta var stofnað árið 1993,
m.a. af Lyfjaverslun íslands, sem
þá var í rikiseigu, og fleiri aðilum.
Fyrirtækið hefur framleitt dreypi-
lyf frá árinu 1995.! frétt frá Lífi hf.
kemur fram að sú framleiðsla hef-
ur ekki staöiö undir sér og verður
verksmiðju fyrirtækisins lokað
um næstu áramót og hún seld
ásamt 2.400 fermetra fasteign þess.
Ilsanta hefur gert samning við
einn stærsta framleiðanda dreypi-
lyfja heims, Fresenius Kabi, um
að markaðssetja og dreifa vörum
fyrirtækisins í Eystrasaltslöndun-
um. Einnig mun félagið markaðs-
setja og dreifa öðrum vörum á
svæðinu. Markaðshlutdeild fyrir-
tækisins í dreypilyfjum í Eystra-
saltslöndunum hefur verið allt að
60%. Eftir lokun verksmiðjunnar
mun Usanta stunda svipaða starf-
semi og dótturfyrirtæki Lífs hf. á
íslandi og fellur sú starfsemi vel
að samstæðunni í heild, að því er
segir í frétt Lífs hf.