Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2002, Side 27
FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002
27
Sport
Spáin fyrir úrvalsdeild karla í vetur:
Speraiandi
átoppnum
Þá er komið að liðunum fjórum sem
skipa efstu sætin í spá DV-Sports. Ef
spáin gengur eftir verða það Keflvík-
ingar sem fagna í vor þegar úrslitin
ráðast í deildinni.
Keílavík mætir til leiks með gríöar-
lega öflugt lið þar sem jafnvægið fyrir
utan og inni i teig er mun betra en á
síðasta tímabOi. Kevin Grandberg er
kominn í Bítlabæinn og Þorsteinn
Húnfjörð hefur snúið aftur heim eftir
að hafa leikið í Bandaríkjunum í
nokkur ár. Keflavík lék mikið af svæð-
isvöm á síðasta tímabili til að loka
teignum betur og styrkja frákastastöð-
una. Núna ætti Sigurður Ingimundar-
son, þjálfari liðsins, að geta spilað
meira af maður á mann vöm.
Þá er Hjörtur Harðarson og því bak-
varðarsveit Keflavíkur ekki árennileg
meö marga frábæra bakverði innan-
borðs. Liðið hefur einnig góða blöndu
af ungum og eldri leikmönnum. Guð-
jón Skúlason og Falur Harðarson eru
enn þá að.
Grindavík mætir með sterkt lið tii
leiks og hefur endurheimt Guðmund
Bragason til að hirða fráköst en þau
voru í lágmarki á siðasta vetri þar
sem Grindavík tók fæst fráköst i leik
af öllum liðum.
KR hefur ákveðna styrkleika og
einnig sína veikleika en ef Ingi Þór
Steinþórsson nær að fela veikleikana
á liðið eftir aö blanda sér í baráttuna.
Liðið þarf þó að vera sterkara í lok
leikja en það hefur tapað ófáum leikj-
um i fjórða og síðasta leikhluta.
ÍR ætlar sér stóra hluti i vetur og
verður fróðlegt að sjá hvemig Eggerti
Garðarssyni tekst til að búa til öflugt
lið i Breiðholtinu. Mannskapurinn er
til staðar en eitthvað hefur vantað upp
á að liðið smelli saman og spili af eðli-
legri getu.
Annars stefnir í að deildin verði
nokkuð jöfn þetta árið og mörg liðin
óútreiknanleg. Gæðin verða kannski
ekki þau sömu og á síðasta timabili
þar sem okkar skemmtilegustu og
bestu leikmenn hafa farið til annarra
og sterkari deilda í Evrópu eða til
Bandaríkjanna. -Ben
Keflavík varð í öðru sæti á síð-
astu leiktíð eftir baráttu við Njarð-
vík i úrslitum. Keflavík hefur styrkt
sig á meðan Njarðvík og KR hafa
veikst. Helsti veikleiki liðsins í úr-
slitunum á móti Njarðvík var inni í
teig en nú er búið að leysa það
vandamál með því að fá Kevin
Grandberg, en hann fékk ríkisborg-
ararétt í vor. Þá hefur Þorsteinn
Ólafur Húnfjörð komið skemmti-
lega á óvart en hann var að koma
aftur til Keflavíkur eftir fjögur ár í
.sætKKef^v'k
Keflavík 01/02
Arangur: 18 sigrar - 4 töp (1. sæti)
Stlg skoruö 1 leik: ..94,5 (1.)
Stig fengin á sig í leik: . 82,2 (4.)
Tapaðir boltar í leik: . . . 15,0 (5.)
Skotnýting:..........47,1% (1.)
Vítanýting:..........73,3% (3.)
Skotnýting mótherja:.41,7% (2.)
Tapaðir hjá mótherjum:.19,5 (1.)
Hlutfall frákasta: .... 48,2% (10.)
háskólaboltanum í
Bandaríkjunum. Framherjar verða
Damon Johnson og Jón Hafsteins-
son. Damon er einn besti erlendi
leikmaðurinn sem leikið hefur hér
á landi og Jón er landsliðsmaður.
Ekki eru bakverðimir af verri
endanum og verður eitthvað fyrir
Sigurð Ingimundarson að velja 10
manna hóp fyrir leiki, hvað þá að
halda öllum þessu leikmönnum
ánægðum. Mannskapurinn er sá
besti í deildinni í ár og þjálfarinn á
glæsilegan feril í sínu starfi. Það
virðist vera allt til alls þetta árið og
verða Keflvíkingar sterkir á nýja
parketinu og það lið sem önnur lið
þurfa að sigra til að eiga möguleika
á titlum í vetur. -Ben
Lykilmaður í vetur
Ef Kevin Grand-
berg finnur
taktinn í Kefla-
vík verður liöið
ekki ánennilegt
í vetur. Þaö er
vitaö aö menn
eins og Damon
skila sínu og
bakveröimir
eiga eftir aö skjóta
flest liöin f kaf. Stóra spumingin er
hvort Grandberg er sá sem vantaði í
púsluspiliö síöasta vetur. Hann hefur
ekki fundið taktinn enn þá í þeim leikj-
um sem hann hefur spilaö á undirbún-
ingstímabilinu en núna fer aö reyna á
hann fyrír alvöru.
spáir um lokastöðu liðanna tólfí
Intersport-deildinni í körfubolta en
hún hefst í dag með þremur leikjum
6- sæti.
7. sæti..
8. sæti..
Njarðvík
Snæfelf
Tindastóll
Haukar
®„sœti.............Breiðablik
10‘ sæti...........Hamar
sætl............Skallagrímur
12- sæti...........Valur
Það er mikm hugur í mönnum
í Breiðholtinu þessa dagana og félag-
ið ætlar sér stóra hluti í vetur. Ýmsu
er tjaldað til og hefur liðið fuUa burði
til að gera tilkafl til titla í vetur. Fyrst
var farið af stað tU að fá Eggert Garð-
arsson til að taka við af Jóni Erni
Guðmundssyni. Eftir það voru ÍR-ing-
ar áberandi á leikmannamarkaðinum
í sumar og margt reynt tU að styrkja
hópinn fyrir átökin í vetur.
Ómar Sævarsson ákvað að koma
aftur heim í heiðardalinn eftir tvö ár
hjá Breiðabliki. Fengnir hafa verið
tveir útlendingar, Bandarikjamaður
og Júgóslavi. Þá er von á Hreggviði
Magnússyni en hann lék ekkert á síð-
asta timabili vegna meiðsla en ætti að
vera kominn í gírinn þegar líður á
tímabilið.
ÍR-ingum var spáð góðu gengi síð-
asta vetur en stóðu ekki undir vænt-
ingum. Þeir fá nú annað tækifæri tU
að bæta upp hrakfarir síðasta vetrar.
Leimenn á borð við Eirik Önundar-
son og Sigurð Þorvaldsson eru ekki í
hverju liði en erlendu leikmennirnir
verða að koma sterkir inn ef liðið á
að ógna bestu liðunum. Kaninn er
meiddur og missir væntanlega af
fyrsta leiknum gegn SkaUagrími en
ætti að vera klár í slaginn eftir það.
-Ben
IR 01/02
Árangur: 8 sigrar -14 töp (10. sæti)
Stig skoruð 1 leik:...82,7 (8.)
Stig fengin á sig í leik: . 86,9 (8.)
Tapaðir boltar í leik: . . . 14,4 (2.)
Skotnýting:........ 42,2% (9.)
Vítanýting:..........70,2% (7.)
Skotnýting mótherja:.45,1% (9.)
Tapaðir hjá mótheijum:.15,6 (6.)
Hlutfall frákasta:...48,5% (9.)
Lykilmaðuri vetur
Sigurður Þor
valdsson er
griöarlega
hæfiieikarik-
ur leikmaður
sem er nán-
ast með all-
an pakkann.
Hann á þó til
að hverfa í
leikjum og
eins og hann sé ekki meövitaö-
ur um þá hæfileika sem hann
býr yfir. Ef Eggert nær aö virkja
Sigurð í vetur verður hann einn
besti leikmaöur deildarinnar og
þá veröur ÍR erfitt viðureignar.
Damon Johnson kemur aftur og
spilar meö Keflvíkingum en hér sést
Damon kyssa deildarmeistara-
bikarinn sem Keflavík vann í fyrra.
sæti: Grindavík
Bæði KR og Njarðvík
hafa misst sterka leikmenn en
Grindvíkingar tefla fram nánast sama
liði og síðasta vetur. Guðmundur
Bargason er kominn heim til
Grindavíkur og á eftir að styrkja liðið
meira en margir gera sér grein fyrir.
Fráköst voru vandamál á síðasta
tímabili hjá Grindavík og því ekki
slæmt aö Guðmund sem hefúr tekið
flest fráköst allra íslengina í gegnum
tíðina.
Koma Guðmundar hjálpar öðrum
leikmönnum liðsins sem hafa þurft að
spila undir körfunni, þar sem
Grindavík hefur ekki haft eiginlegan
miðherja, því frmaherjar eins og Páll
Axel Vilbergsson hafa þurft að spila
undir körfunni meira og minna.
Þriggja stiga skotin hafa ekki verið
vandamál í Grindavík hingað til og
verða ekki í vetur. Nóg er af skyttum
og við fyrstu sýn virðast Grindjánar
vera heppnir með erlandan leikmann.
Friðrik Ingi Rúnarsson er að hefja
sitt annað timabil með þennan hóp og
ætti að vera búinn að búa til
ákveðinn grunn sem ætti að nýtast
liðinu í vetur.
Nokkuð hefur verið um meiðsli og
annað i herbúðum liðsins í haust og
því gæti tekið liðið nokkrar umferðir
að komat á flug en Ijóst er að liðið
kemur sterkt til leiks í vetur.
Grindavík 01/02
Árangur: 13 sigrar - 9 töp (5. sæti)
Stig skoruð 1 leik:..89,0 (4.)
Stig fcngin á sig i leik: . 88,1 (9.)
Tapaðir boltar í leik: .. 11,5 (1.)
Skotnýting:.........44,0% (6.)
Vltanýting:.........75,3% (1.)
Skotnýting mótherja: ...47,2% (12.)
Tapaðir þjá mótheijum:.16,0 (4.)
Hlutfall frákasta: .... 44,9% (12.)
Lykilmaður í vetur
Helgi Jónas
Guðfinnsson
er án efa einn
besti leik-
maður lands-
ins þegar
hann nær sér
á flug. Helgi
hefur einbeitt
sér af knatt-
spyrnu í sumar
og hefur tekið sér góöa hvíld frá
körfunni. Þaö er mat DV-Sports aö
Helgi kom enn ferskari til leiks í
körfunni í vetur þar sem ferskleik-
ann vantaöi á köflum síöasta vetur
og neistann sem var tímabiliö áður
en hann fór út í atvinnumennsku.
Eins og Njarðvík hefur KR misst
sína helstu hesta en þeir Jón Amór
Stefánsson og Helgi Magnússon leika
erlendis í vetur, Jón í Þýskalandi og
Helgi í Bandaríkjunum. Þeir voru
bestu menn liðsins á síðasta tímabili -
Jón reyndar besti maður deildarinnar.
Þá lagði Ólafur Ormsson skóna á
hilluna.
Þá hafa KR-ingar fengið þrjá sterka
leikmenn í Skarphéðni Ingasyni,
Magnúsi Helgasyni og nú síðast Óðni
3. sæti: KR
KR 01/02
Árangur: 17 sigrar - 5 töp (3. sæti)
Stig skoruð 1 leik:....86,0 (6.)
Stig fengin á sig i leik: . 79,7 (2.)
Tapaðir boltar í leik: . . . 17,0 (9.)
Skotnýting:..........43,7% (7.)
Vítanýting: .........72,8% (4.)
Skotnýting mótheija:..41,9% (3.)
Tapaðir hjá mótheijum:.18,0 (2.)
Hlutfall frákasta:...51,6% (3.)
Ásgeirssyni.
Óðinn verður ekki löglegur fyrr en eft-
ir tæpan mánuð. Skarphéðinn er leik-
maður sem KR hefúr vantað. Fastur
fyrir og kemur með ákveðið drápseðli
sem vantað hefúr i vesturbæinn.
Með tilkomu Óðins hefúr KR
styrkst til muna og verður í baráttu
um alla þá titla sem í boði eru. Ingi
Þór Steinþórsson, þjálfari KR, hefúr
góða leikmenn í öllum stöðum en ekki
leikmann eins og Jón Amór sem gat
skapað fyrir sig og aðra í liðinu. Því er
líklegt að liðið verði að spila agaðan
leik þar sem samvinna leikmanna
verður að ganga upp. Darrell Flake er
leikmaður sem er sterkur undir körf-
unni og þegar hann fær tvídekkun á
eftir að losna um skotbakverði eins og
Magnús og Herbert Amarson. -Ben
Lykilmaður í vetur
Þaö mun mik-
iö mæöa á
Arnari Kára-
syni aö
stjórna leik
liösins.
Hann er um-
kringdur
góöum leik-
mönnum
sem hann þarf
aö koma inn í leikinn. Arnar hef-
ur veriö meiddur á undirbún-
ingstfmabilinu og missir vænt-
anlega af fyrstu leikjum KR f
deildinni. Takist honum vel upp
aö stjórna liöinu veröur KR
sterkt f vetur.